Morgunblaðið - 15.06.1975, Side 14

Morgunblaðið - 15.06.1975, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JUNl 1975 Ágætis mynflip, en koma seint I því skyni að geta e.t.v. kynnzt nánar skoðunum og kvikmyndasmekk ungs fólks brá Slagsíðan sér í síðustu viku upp að Laugarásbíói og rabbaði við nokkra sem voru að koma af sýningu. Fyrst á vegi Slagsíðunnar urðu tveir ungir kennarar frá Ölafsvík, þau Drífa Harðardótt- ir og Eyjólfur Pétur Hafsteins- son. Þau sögðust sjaldan fara í bíó vegna þess að i Olafsvik væri yfirleitt ekki boðið upp á nema gamlar og lélegar mynd- ir. vlkmyndlrnar & unga tðlklð LAGSIÐAN hefur annað slagið verið að kynna kvikmyndir, sein verið var að sýna eða væntanlegar voru til sýningar í kvikmyndahúsum borgar innar og ætla mátti að ungt fólk hefði áhuga á með tilliti til efnisins. Einkum hefur verið um að ræða myndir með poppinnihaldi eða ívafi, enda er popptónlistin snar þáttur í lífi allflestra ungmenna. En raunar eru kvikmvndir einnig talsvert stór þáttur í lífi ungmenna, a.ni.k. í skemmtanalífi þeirra. Og stjórnendum kvikmyndahúsa í höfuðborginni, sem Slagsíðan hafði tal af, bar saman um, að ungt fólk, innan þrítugs, væri uppistaðan í gestahópi kvikmyndahúsanna, líklega 70—80%, að mati eins þeirra. Þetta kemur heim og saman við aldursskiptingu bíógesta í öðrum löndum: Alls staðar er unga fólkið langtum fjölmennara í bíósölum en miðaldra eða eldra fólk. Slagsíðan er í dag helguð kvikmyndunum sem veigamiklum þætti í skemmtana- lífi unga fólksins. Er efnismeðferðin þríþætt: Kynntar eru tvær kvikmyndir, sem hljóta að höfða sérstaklega til ungs fólks, og verða sýndar hér í sumar. Rætt er við kvikm.vndahúsastjórnendur og starfsmenn um aðsökn unga fólksins, myndaval og sitthvað fleira og spjallað er við ungt fólk um bíóferðir þess og viðhorf og venjur í því sambandi. Og þá er ekki eftir neinu að bíða: SLÖKKVIÐ LJÓSIN OG DRAGIÐ FOR- TJALDIÐ FRAí Unga fðlklð vlll helzt, jiasar”- mynd RlkarSur Hansan. „Myndavalið er ekkert, og að- staðan er léieg því húsið er orðið gamalt, en þó er alltaf fullt.“ Hvað með myndavalið í Reykjavík? - Agætt fannst Eyjólfi, en um það var Drífa honum ekki sam- mála: Það er einna bezt þegar vertíðin er í fullum gangi, um jól og páska, annars er það lé- legt. Sammála voru þau þó um að myndirnar, sem kvikmynda- húsin byðu upp a færu batn- andi. Iivers konar myndum hafið þið svo mest gaman af? „Semmtilegum myndum. Myndum, sem hægt er að hlæja að.“ Næst hittum við tvo sjómenn úr Reykjavík, þá Ríkarð Hansen og Sigurjón Arnason. „Við förum mjög oft í bíó“, sögðu þeir félagar. „Við sjáum flestar myndir, sem varið er i. Beztu myndirnar eru gaman- myndir og músíkmyndir eins og Woodstock. Hvað finnst ykkur um myndaval kvikmyndahúsanna? „Þetta eru yfirleitt ágætis- myndir, en þær koma bara svo seint. Annars hefur verið frek- ar lélegt í bíó undanfarið." Fyigist þið með þvf sem er að gerast í kvikmyndum erlendis? is? „Já, við fylgjumst með því og það er ótrúlegt hvað kemur mikið hingað." „Ég var nýlega erlendis", bætti Sigurjón við, „og sá þá nokkrar myndir, sem þyrftu að koma hingað, þar á meðal Dirty Mary, Crazy Larry og Fritz, the Cat.“ ir segja blðstjórar í Reykjavfk Sigurjón Árnason. Eyjóifur Pétur Hafsteinsson og Drtfa Harðardóttir. Ungt fólk, þ.e. innan við þrí- tugsaldur, er langstærsti hóp- urinn meðal gesta í kvikmynda- húsunum. Þetta er samdóma álit þeirra forstjóra og starfsmanna kvik- myndahúsa í höfuðborginni, sem Slagsíðan ræddi við. Einn þeirra, Friðfinnur Ölafsson, forstjóri Háskólabíós og for- maður Félags kvikmyndahúsa- eigenda, sagði í þessu sam- bandi, að menn hefðu verið að gizka á, að ungt fólk, innan þrítugs, væri 70—80% áhorf- endahópsins. Og bent var á, að þetta væri svipað og annars staðar í nágrannalöndunum, t.d. í Bretlandi. Slagsíðan beindi til íyrr- greindra aðila spurningum um ýmis atriði í sambandi við bíó- ferðir unga fólksins og fara svörin hér á eftir. — Hvaða flokkum mynda hefur unga fólkið mestan áhuga á? „Ég er ekki viss um að það vilji ákveðnar tegundir mynda umfram aðrar," sagði Frið- finnur. „Ég held að það sé alæt- ur á kvikmyndir. Það vill bara fá góöar myndir og gerir áreiðanlega meiri kröfur um gæði mynda nú en áður. Það hefur meira vit á kvikmyndum sem listgrein, það les erlend blöð um kvikmyndir og svo ferðast Islendingar svo miklu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.