Morgunblaðið - 15.06.1975, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 15.06.1975, Qupperneq 23
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1975 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚNl 1975 23 irpttírWtíi Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80 Áskriftargjald 700,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið 56% kjarabætur á lægstu laun Ríkisstjórnin mark- aði þá stefnu um leið og hún tók við völdum, að .við ríkjandi aðstæður í efnah^gsmálum bæri fyrst og fremst að leggja áherzlu á aö bæta kjör láglauna- fólks. Eftir þau áföll, sem við höfum orðið fyrir, varð kjararýrnun ekki umflúin, enda hafði þjóðin búið við falska kaupgetu um tíma. Geir Hallgrímsson, for- sætisráðherra, lýsti yfir því á fyrstu dögum ríkis- stjórnarinnar, að þeir sem betur væru staddir yrðu að taka á sig auknar byrðar til þess að unnt yrði að bæta hag láglaunafólksins. Þessari stefnu hefur verið fylgt eftir með ýmiss konar ráðstöfunum af hálfu stjórnvalda eins og launajöfnunarbótum og skattalækkunum. Þetta er í fyrsta skipti, sem tekizt hefur að framkvæma þessa stefnu og hefur ríkisstjórn- inni því orðið meir ágengt i því efni en launþegasam- tökunum í frjálsum samn- ingum. Þróun lægstu launaflokka í hlutfalli við verðlagshækkanir ber gleggst vitni um árangur- inn af' þessari stefnu. Lægstu laun hafa þannig hækkað í fullu samræmi við hækkun á vísitölu framfærslukostnaðar. Þegar ríkisstjórnin ákvað að launajöfnunar- bætur skyldu greiddar á laun; er næmu allt að 50 þúsund kr. á mánuði, lágu fyrir tillögur frá Lúðvík Jósepssyni, þar sem lagt var til að launajöfnunar- bætur skyldu ekki greiddar á hærri laun en 36 þúsund kr. Ef mið er tekið af launum, sem á þeim tíma námu 33 þúsund kr. á mánuði, kemur i ljós, að þau hafa nú hækkað um 14.700 kr. eða um 45%. Þegar ennfremur hefur verið tekið tillit til kjara- bóta vegna skattalækkana, sem metnar hafa verið til jafns við 5% hækkun pen- ingatekna, og kjarabóta vegna aukinna niður- greiðslna á landbúnaðar- vörum, er meta má til 3% kauphækkunar. kemur í ljós, að þessi laun hafa batnað nú þegar um 56% frá því í september 1974. Þegar launahækkunin verður komin til fram- kvæmda 1. október verður kjarabótin á einu ári orðin nálægt 60%. Visitala framfærslu- kostnaðar hefur frá því í september í fyrra hækkað um 43,4%. Af þessu má sjá, að kjarabætur til þeirra, sem hafa lægst laun, hafa verið í fullu samræmi við verðlagshækkanir og raunar verið ívið meiri en nemur hækkun verðlags. Hér er um umtalsverðan árangur að ræða, sem nauðsynlegt er að hafa í huga. Laun, sem í september í fyrra námu 60 þúsund kr. á mánuði, hafa nú hækkað um 15.300 kr. Þegar búið er að taka tillit til kjara- bóta vegna skattálækkana og aukinna niðurgreiðslna, kemur í ljós, að þessi laun hafa í raun réttri batnað um 36%. Þegar launa- hækkanirnar koma tií framkvæmda 1. október n.k. verða kjarabætur á þessi laun á einu ári orðnar 38%. Þessi laun hafa því hækkað að verulegu leyti í samræmi við verðlags- hækkanir frá því að núver- andi ríkisstjórn kom til valda. Þessi dæmi sýna gleggst, að það hefur tekizt eins og að var stefnt að bæta þeim, sem lægst laun hafa í þjóð- félaginu, þær óhjákvæmi- legu verðlagshækkanir, er komið hafa fram. Laun- þegasamtökin hafa í ára- raðir haft það að megin- stefnu að bæta fyrst og Verkfallið á stóru togurunum hefur nú staðið í rúma tvo mánuði. Hundruð manna hafa misst atvinnu sína af þessum sökum og gífurleg verð- mæti hafa farið í súginn. Ástæða er því til að knýja mjög fast á um, að aðilar að þessari kjaradeilu setji skrið á samningaviðræður og semji. Að vísu eru hér þær sér- stöku aðstæður, að þessi mikilvirku atvinnutæki, hafa átt við verulega rekstrarerfiðleika að etja. Þessir stóru togarar hafa að ýmsu leyti reynzt óhag- kvæmir i rekstri. Öllum er fremst kjör þeirra, sem við erfiðastar aðstæður búa. í framkvæmd hafa laun- þegasamtökin hins vegar ávallt knúið fram kjara- samninga, sem gengið hafa í gagnstæða átt, eins og skýrast kom fram í febrúarsamningunum 1974. Raunhæfar aðgerðir núverandi ríkisstjórnar til þess að framfylgja þessari stefnu í raun, marka því að nokkru leyti þáttaskil. Þegar svigrúm atvinnu- veganna til kauphækkana er lítið sem ekkert, en jafn- framt ljóst, að efnahags- erfiðleikarnir koma með hvað mestum þunga á þá, sem veikastir eru fyrir, er óhjákvæmilegt annað en að fylgja slíkri stefnu fram. ljóst, að þau vandamál endurspeglast í þessari kjaradeilu. En eigi að síður verður ekki við það unað, að togararnir séu öllu leng- ur bundnir við bryggju. Þjóðin hefur ekki efni á að stöðva framleiðslu og verðmætasköpun í svo langan tíma, sem raun ber vitni um. Hér er meira í húfi en svo, að þrákelkni megi ráða ferðinni. Því er ástæða til að brýna báða samningsaðila til að leggja sitt af mörkum í því skyni að hraða lausn málsins. Verkfallið er orðið of lang- vinnt og við svo búið má ekki standa. Togaraverkfallið verður að leysa r7 Aðeíns eln jörö Komið framhald af bókinni Þróun vaxtar Löndunum er skipt I fjölskytdur eftir ástandi þeirra, þar sem mismunandi aðgerðir eiga við: 1. Norður-Ameríka, 2. Vestur-Evrópulöndin, 3. Japan, 4. Ástralla, S-Afrlka, 5. A-Evrópa, 6. S-Ameríka, 7. N-Afríka og Austurlönd nær, 8. Mið-Afrlkulönd, 9. S-Asla og SA-Asía, 10. Klna. NÝLEGA útkomin bók, „Mankind at the Turning Point" eða Mann- kynið á vegamótum, hefur vakið mikla athygli og umræðu I veröld- inni. Þetta er nokkurs konar fram- hald skýrslu Rómarkiúbbsins eða viðbót við fyrstu bókina Takmörk vaxtar, sem út kom 1972, unnin af Dennis Meadows frá Dart- mouth College. Sú bók kom út hjá Menningarsjóði sl. vetur undir nafninu Endimörk vaxtarins. Feiki- legar umræður hafa orðið um víða veröld um spár þær, sem þar eru settar fram og sem margir kalla dómsdagskenningar. Margir hafa gagnrýnt þær vegna þess, sem þar kemur fram, þ.e. að ef margvisleg- ur ofvöxtur — mannfjölgun, hag- vöxtur, eyðsla hráefna, iðnþróun o.fl. — verði ekki stöðvað, þá blasi eyðing mannsins á jörðinni við. Höfundar nýju skýrslunnar, júgóslavinn Mihajlo Mesarovic frá Cleveland háskóla og Eduard Pestel frá Hanoverháskóla i Vest- ur-Þýzkalandi. hafa nálgast við- fangsefnið á nokkuð annan hátt. Og þeir leggja áherzlu á að leggja málin fyrir stefnumótandi leiðtoga og stjórnmálamenn. Þar sem Þró- un vaxtar spáir þvi sem verða muni, ef ekki verði brugðizt skjótt við og breytt um stefnu, þá bendir „mannkynið á vegamótum" á ýmsar leiðir og valkosti, sem fyrir hendi eru til að koma i veg fyrir ófarirnar. Mesarovic og Pestel halda þvi semsagt fram, að forð- ast megi að dómsdagur komi yfir mannkynið, með þvi að skapa stöðugan hagvöxt og beita skipu- lagsbundnum, vísindalegum vinnubrögðum um allan heim. En báðir aðilar beita tölvutækni við vinnsluna. Höfundarnir hafa þegar lagt tölvulikan sitt um fæðu- og orku- ástandið i heiminum fyrir stjórn- málamenn Evrópu, átt einkafundi um það með belgískum og hol- lenzkum stjórnarleiðtogum og rætt við embættismenn i fran um tölvuspár við skipulagningu og stjórnun. Einnig fara þeir til Moskvu og Washington og eiga fund með vestur-þýzku stjórninni og embættismönnum Efnahags- bandalagsins. Von þeirra er sem- sagt sú. að likan það, sem þeir hafa unnið um efnahagsmál heimsins, orkubúskap, fæðu, vatn, loftslag og aðra efnahags- lega og vistfræðilega þætti, verði stefnumótandi leiðtogum kunnugt og tiltækt. Þeir stjórnmálamenn, sem viðstaddir voru kynningu á þessari vinnu i Hanover, virtust þeirrar skoðunar að þessi nýja tækni gæti orðið gott verkfæri fyrir leiðtoga heimsins i stefnu- mörkun. „Það er ekki hægt að skipta á pólitiskri ákvörðun og tæknilegri, en til að taka pólitiska ákvörðun þarf maður á staðreynd- um að halda, sagði einn hollenzki stjórnmálamaðurinn. Og hann kallaði likanið „tæki til að sjá fyrir afleiðingarnar af slíkum valkost- um". Þeir Mesarovic og Pestel leggja í bók sinni til að fremur verði miðað við „lifrænan" vöxt eða vöxt i jafnvægi en algera stöðvun vaxtar. Þeir telja að ekkert geti staðizt og lifað af annað en rétt blönduð efnahagsleg tilhögun jafnvel í þróunarlöndunum. Þvi stinga þeir upp á samblandi af fjárfestingu. efnahagshjálp, fjöl- breytilegri fæðu- og iðnaðarfram- leiðslu, takmörkun mannfjölgunar og alþjóðlegum stofnunum til að mynda heildaráætlun fyrir heim- inn. Og leggja áherzlu á. að ein allsherjarstjórn eða sameiginleg stjórn á heimsmálunum sé ekki hugsanleg, eða i rauninni til góðs. Miklu fremur samvinna og samspil margvislegra þátta og við- horfa sem þó taki mið af heildar- stefnu. Ekki vegna þvingana, heldur af þvi að menn og þjóðir verði sér meðvitandi um það, að ofvöxtur eða sjúkt æxli einhvers staðar i heimsmyndinni smitar út frá sér og eyðileggur um siðir allt annað. Þannig að allir eru háðir hver öðrum, þó hver þróist með sinum hætti. Alveg eins og mannslikaminn, sem byggður er upp af ólikum frumum er hafa ýmsum hlutverki að gegna, svo sem heilafrumur, æðafrumur o.fl. Þær laga sig samt allar að heildar- stefnu og þvi sem likamanum i heild er til góðs. Hætti einhverjar frumur að aðlagast og fer að fjölga úr samræmi, geta þær myndað krabbamein, sem þá eyðileggur um síðir allan likamann, ef ekki er brugðizt við þvi. Höfundarnir hafa t.d. reiknað út, að sé ekkert gert til að bæta fæðuvandann i Suður-Asiu, þá muni mannfellirinn snaraukast, þegar kemur fram undir 1980. og fella um 30 milljón manns á ári. Það sem þeir kalla skammtima- lausnir — eins og t.d. að hætta við hina miklu iðnvæðingu til að beita kröftunum i að framleiða i staðinn mat — muni i fyrstu leiða til mikillar aukningar á matvæla- framleiðslu, sem siðan muni draga úr að nokkrum tíma liðnum, vegna þess að efnahagsgrundvöllinn vantar til að fjármagna fæðuöflun heima eða erlendis frá. Höfundar Mannkyns á vegamót- um telja að bæði orkuneytendur og orkuframleiðendur séu nú farn- ir að viðurkenna hversu háðir þeir eru hvorir öðrum og séu byrjaðir að vinna saman. En að kjarnorku- kapphlaupið sé Faustdraumur, sem óhagkvæmt sé að veita i fjár- magni. Sé lika hættulegt um- hverfinu. Þeir mæla i staðinn með þróun sólarorku-„búgarða", aðal- lega i oliuframleiðslulöndunum i Austurlöndum, þar sem inn- streymandi fjármagni sé beitt til að bæta minnkandi oliueign. Mesarovic og Pestel vara við áhrifum á „hitaeyjum" i sambandi við stórar kjarnorkustöðvar, og benda á það að oliuvinnsla i fs- hafinu geti leitt til oliuleka, sem mundi bræða ísinn og valda ógn- vekjandi veðurfarsbreytingu. Dennis Meadows, höfundur bókarinnar „Takmörk vaxtar" tel- ur að heimslikan þeirra Mesarovics og Pestels taki fram likani þvi, sem hann notaði, og að það sé raunsærra. Hann dregur þó i efa kenninguna um að „lifrænn" vöxtur henti heiminum. en bætir þvi við um leið, að stjórnlaus vöxt- ur geti sýnilega ekki gengið leng- ur. Rétt er að gera hér ofurlitla grein fyrir þvi sem kallað er jafn- skrefa vöxtur, þ.e. þegar stærð vex jafnskrefa. er við hana bætist jafnmikið magn á jafnlöngu milli- bili. Barn, sem vex um 2 sm á ári vex t.d. jafnskrefa. En þessu eru gerð skil i bókinni Takmörk vaxt- ar. Veldisvöxtur er aftur á móti það, þegar gerill i gerlaofni skiptir sér i tvennt á tiu minútum og vex stofninn samkvæmt þvi lögmáli. Eftir 10 minútur eru þá komnir tveir gerlar i stað eins og eftir 10 minútur verða gerlarnir fjórir, sið- an 8 og 16 o.s.frv. Og þannig verður vöxturinn mjög hraður. En það er einmitt sá vöxtur á öllu i heiminum, sem höfundar nýju skýrslunnar vara við. Ef allt tvö- faldast alls staðar með jöfnu milli- bili, verður veröldin ekki varin hruni. Kenningin i henni er að þvi leyti frábrugðin kenningunni i Takmörk vaxtar, að fyrri bókin tók hagvöxt heimsins sem eitt kerfi, er dæmt væri til að hrynja saman innan 75 ára, ef vöxturinn yrði ekki stöðvaður. En nýja bókin við- urkennir sérstök svæði með mis- munandi lifhætti og menningu, sem hafi áhrif hvert á annað. Hún gerir greinarmun á ýmsum teg- undum vaxtar. sem ekki sé allur til Framhald á bls. 21 Rey kj av í kurbréf 14. júní^ Vinnufriður Flestir munu vera sammála því að betur hafi tekizt til um lausn vinnudeilnanna en á horfðist. Þegar kröfur forustunnar í Al- þýðusambandinu voru settar fram, hnykkti mönnum við, og flestir töldu, að verkfallið væri óumflýjanlegt. Sem betur fer var kröfugerðinni síðan breytt, og er á samningaþófið leið varð ljóst að þeir, sem ferðinni réðu af hálfu Alþýðusambandsins, hugðust ekki leitast við að láta kné fylgja, kviði. A því leikur enginn vafi að sáttanefnd sú, sem skipuð var í deilunni, vann mikið og gott starf, og deiluaðilar voru Iaðaðir saman af þeim, sem sáttastörfin höfðu með höndum. Landslýður allur þekkir þau gffurlega mikilvægu störf, sem Torfi Hjartarson, sátta- semjari ríkisins hefur innt af höndum i marga áratugi, og verður hlutverk hans seint að fullu metið. Hitt er ljóst að nú eru allsherjarsamningar orðnir svo viðamiklir, að ógjörlegt er fyrir einn mann að leiða sáttastarf, og þess vegna var eðlilegt að hafa þann hátt á, að fleiri legðu hönd á plóginn. Þegar þetta er ritað, er ekki Ijóst hvort togaradeilan mun leys-1 ast um helgina. En áreiðanlega auðveldar lausn megin deilunnar einnig samninga við sjómenn á togaraflotanum. Úr því að unnt reyndist að afstýra allsherjar- verkfalli, mun nú maður ganga undir manns hönd til þess að leitast við að láta öll hjól atvinnu- lífsins snúast og þá ekki sízt að tryggja rekstur stóru togaranna, sem sjá miklum fjölda manna fyr- ir atvinnu og afla gífurlegra verð- mæta í þjóðarbúið. Á yztu nöf En þótt menn gleðjist yfir lausn vinnudeilnanna, tjóar ekki að loka augunum fyrir því, að samningarnir, sem nú voru gerðir, þýða að allur rekstur, bæði hinna einstöku fyrirtækja og at- vinnulífs þjóðarinnar í heild, er á yztu nöf. Fjölmörg fyrirtæki áttu við að glíma rekstrarörðugleika, áður en þessar nýju hækkanir bættust við, og staðan út á við er vissulega ótrygg, eins og marg- sinnis hefur verið sýnt fram á. Að vísu hafa aðgerðir í efnahags- málum á undanförnum mánuðum þegar borið talsverðan árangur, en engu að síður eru viðskipta- kjörin út á við enn slæm og við- skiptajöfnuður óhagstæður. Hætt er við að þessar nýju kauphækkanir muni leiða til þess, að nokkuð dragi úr eftirspurn eft- ir vinnuafli. En vonandi kemur þó ekki til þess, að um alvarlegt atvinnuleysi verði að ræða. Eitt meginmarkmið rikisstjórnar Geirs Hallgrímssonar er einmitt að tryggja fulla atvinnu. Það hefur tekizt fram að þessu og tekst vonandi áfram, þótt ekki verði dregin á það dul að kaup- hækkanirnar nú gera þetta við- fangsefni erfiðara. Eins og greint var frá, þegar efnahagsfrumvarp ríkisstjórnar- innar var lagt fram á Alþingi, stefnir í geigvænlegan greiðslu- halla hjá rikissjóði. Nú bætast á ríkissjóðinn veruleg útgjöld vegna aukinna niðurgreiðslna landbúnaðarvara, þannig að hag- ur hans versnar enn frá því sem áður var. Öhjákvæmilegt verður þess vegna að grípa til verulegs niðurskurðar bæði rekstrarút- gjalda og verklegra framkvæmda á vegum rikisins síðari hluta árs- ins, og mun fjárveitinganefnd Alþingis væntanlega fá það við- fangsefni næstu daga að lækka hinar margbreytilegu fjárveit- ingar. Við Islendingar getum ekki fremur en aðrir vænzt þess að fá eðlilegan stuðning alþjóðlegra fjármálastofnana, nema við höld- um sæmilega hyggilega á eigin málum, og frumskilyrði þess að rétta við hallann gagnvart útlönd- um er einmitt að draga úr ríkisút- gjöldum, þótt það kosti, að menn verði að bíða nokkuð lengur en þeir væntu eftir því að sjá ýmis framfaramál heil i höfn. • • *> Onnur álverksmiðja Fáir eru þeir, sem nú vilja halda á loft andstöðu sinni við virkjun Þjórsár og byggingu ál- bræðslunnar í Straumsvík, en þó varð að heyja mjög harða baráttu til að koma þeim miklu framfara- málum i kring. 1 baráttunni gegn þess- um framkvæmdum var beitt hinum fjölbreytilegasta vopnabúnaði. Sagt var að erlent auðvald mundi leggja undir sig islenzkt efnahagslif, isingar í Þjórsá mundu hindra orkufram- leiðslu, verkalýður yrði kúgaður af hinum nýju drottnurum og síðast en ekki sízt átti allur gróður á Reykjanesi að eyðast af eiturefnum og jafnvel fiskurinn í sjónum að drepast af sömu sök- um. Allt reyndust þetta falsspár, sem alkunna er. Alverksmiðjan er mikilvægt atvinnufyrirtæki, ekki sizt þegar á móti blæs í efnahags- málunum. Búrfellsvirkjun mun mala sitt gull um langan aldur og er lyftistöng undir öðrum virkjunarframkvæmdum, og Byggðasjóður nýtur verulegs arðs af álverksmiðjunni, en þau fjár- framlög auðvelda uppbyggingu atvinnuveganna úti um allt land. Nú hafa fregnir borizt af því, að norska stórfyrirtækið Norsk- Hydro hafi áhuga á að byggja álverksmiðju hér á landi, og er Eyjafjörður einna helzt tilnefnd- ur. Vissulega er tímabært að við Islendingar hugum að frekari stóriðjuframkvæmdum en þegar eru 1 undirbúningi. Og þá virðist einmitt liggja beinast við aó byggja aðra álverksmiðju, og tækifærið, sem nú býðst, virðist vera kjörið af mörgum ástæðum, sem nú skal greinaj Við engar þjóðir viljum við Is- lendingar eiga nánari samskipti en einmitt frændur okkar á Norðurlöndum og þá ekki sízt Norðmenn. Vegna byggðajafnvægis er nauðsynlegt að koma upp öflug- um atvinnufyrirtækjum í öllum landshlutum og álverksmiðja norðanlands mundi vissulega vega þungt á metaskálunum. Stórvirkjanir verður að byggja víðar en á Suðurlandi. Bæði er alltof áhættusamt að hafa allar stórvirkjanirnar á einum stað, og það á jarðskjálfta- og eldgosa- svæði, og eins'er nauðsynlegt vegna jafnvægis byggðarinnar að stórvirkjanir verði gerðar bæði norðanlands og austan. Gunnar Thoroddsen, iðnaðar- ráðherra, hefur kunngert, að hann muni á þessu ári taka ákvörðun um virkjunarfram- kvæmdir á Norðurlandi vestra. Er þar um tvo kosti að velja, annars vegar að virkja Blöndu og hins vegar Jökulsárnar í Skagafirði, en báðar þessar virkjanir eru taldar hagstæðar. Slik stórfram- kvæmd krefst þess að sjálfsögðu, að orkuna sé þegar í stað unnt að nýta, og samningar um meiri- háttar orkusölu til Norsk Hydro mundu að sjáifsögðu flýta fyrir öllum framkvæmdum. Skipti á orku Ef við Islendingar ákveðum að selja Norðmönnum verulega orku til framleiðslu áls, væri hugsan- legt að semja við þá um greiðslu i olíu, þvi að Noregur verður meiri- háttar oliuframleiðsluland á næstu árum. Ekkert er eðlilegra en að vjð íslendingar kaupum oliu okkar í framtíðinni af frænd- um okkar i Noregi. Og því skyld- um við ekki greiða þeim fyrir þennan orkugjafa með þeirri orku, sem þeir þarfnast, en við eigum i ríkum mæli, vatnsafls- orku. Líklegt verður að telja, að það væri beggja hagur að gera samninga um slík skipti á orku- gjöfum, og vissulega væri það mikilvægt fyrir okkur að þurfa ekki að búa við stöðuga óvissu að því er olíuverð varðar. Ef raf- orkuverðið væri tengt olíu- verðinu, fengjum við ákveðið magn olíu fyrir þá raforku, sem við látum af höndum, og þannig skapast að sjálfsögðu visst öryggi, sem hefði komið sér vel nú á síðustu árum t.d., ef slíkir samningar hefðu áður verið gerðir. Enda þótt við íslendingar hyggjumst um alla framtið lifa fyrst og fremst á þeim meginat- vinnuvegum, sem við höfum stundað og þekkjum, sjávarút- vegi, landbúnaði og margvísleg- um iðnaði, þurfum við einnig að fara lengra út á braut stór- iðjunnar, enda er það eina leiðin til að hagnýta að fullu þau miklu auðæfi, sem við eigum i orkugjöf- unum, fallvötnunum og jarðhitan- um. Og siðast en ekki sízt er þess að gæta, að þegar á móti blæs, verður að takast á við erfið- leikana og búa i haginn fyrir framtíðina, og einmitt slík stór- verkefni styrkja bæði stöðu okkar út á við og efla með þjóðinni þrek og kjark. Lúðvík og landhelgin Eins og alkunna er, brást Alþýðubandalagið með Lúðvík Jósepsson i broddi fylkingar ókvæða við, er Sjálfstæðis- flokkurinn markaði þá stefnu haustið 1973, að við Islendingar ættum að stefna ótrauðir að út- færslu fiskveiðitakmarkanna i 200 mílur og biða ekki eftir end- anlegum niðurstöðum hafréttar- ráðstefnu. Hinn 1. sept. 1973 sagði Lúðvik Jósepsson m.a. í viðtali við Þjóðviljann: „Hitt er allt annað mál, hvort við íslendingar tökum okkur 200 mílna landhelgi einhvern tíma í framtíðinni, þegar slíkt er heimilt skv. breyttum alþjóðalögum eða að aflokinni hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna." Og daginn áður sagði m.a. í rit- stjórnargrein Þjóðviljans: ,,Það hefur áreiðanlega verið fróðlegt fyrir þjóðina að fá að fylgjast með málefnalegri einangrun ritstjóra Morgunblaðsins á sjónvarps- skerminum í fyrrakvöld, þegar hann var að reyna að útlista „framtíðar" kenningar sinar. Morgunblaðið hefur undir for- ystu þessa manns að undanförnu reynt að gera Sjálfstæðisflokkinn dýrðlegan með mikilli umræðu um 200 mílurnar, en það er gert til þess að breiða yfir deyfð og sljóleika íhaldsins i landhelgis- málinu frá upphafi." Síðan segir: „Það er svo hlálegt, að þeir sömu menn, sem mesta ábyrgð bera á þessum samningum skuli nú lýsa því yfir, að þeir vilji nú endilega 200 milna landhelgi." Og enn segir: „En Islendingar vita fullvel, að undanhaldssjónarmiðin, sem haldið er fram í stærsta dagblaði landsins, eru bundin við ein- angraða kliku valdamanna í Sjálf- stæðisflokknum. Þau sjónarmið eiga ekkert fylgi utan þessarar klíku. Einangrun Morgunblaðsrit- stjórans á sjónvarpsskerminum var að visu eftirtektarverð, en skoðað i sambandi við viðhorf allrar þjóðarinnar í landhelgis- málinu í dag er einangrunin al- ger. 50 milurnar er dagsverkefn- ið, þær heyra ekki fortíðinni til nema í gerviheimi ritstjóra Morgunblaðsins." Þegar þessar tilvitnanir eru skoðaðar, ætti öllum að vera ljóst, að kommúnistar hafa þvælzt fyrir þeirri stefnu, að við íslendingar miðuðum aðgerðir okkar i land- helgismálinu við að vinna lokasig- ur, helga okkur 200 milurnar og afla viðurkenningar á rétti okkar til að hagnýta íslenzk fiskimið einir. Kommúnistar töldu þá menn, sem fyrir þessari stefnu börðust haustið 1973, vera „ein- angraða klíku“. En hætt er við því að öllum sé nú orðið ljóst, að það eru einmitt kommúnistar sjálfir, sem einangrað hafa sig í land- helgismálinu vegna skammsýni og afturhaldssjónarmiða. Við sama heygarðshornið En ef menn kynnu nú að halda, að forustumennirnir i Alþýðu- bandalaginu hefðu breytt um skoðun og vildu fúslega leggja sitt af mörkum til að lokasigur i land- helgismálinu ynnist fyrr en seinna, þá er það á misskilningi byggt. I forsiðuviðtali, sem Þjóð- viljinn átti við Lúðvik Jósepsson, nýkominn heim af hafréttar- ráðstefnunni i Genf, hinn 10. mai s.l„ segir hann i lokaorðum til áréttingar því, sem á undan er sagt, orðrétt: „Þess vegna er það enn sem fyrr höfuðatriðið, að 50 mílna svæðið verði hreinsað af útlendingum, þegar umþóttunarsamningurinn við Breta rennur út 13. nóvem- ber. Nú hafa Bretar enga aðstöðu til þess að standa gegn okkur, þar sem þeir sjálfir styðja útfærslu landhelgi sem meginstefnu." „Höfuðatriðið" er þannig enn ekki að ná 200 mílunum að mati Lúðvíks Jósepssonar, heldur að einblina á 50 mílurnar, sem hann fann upp, i stað þess að við Islendingar héldum fast við landgrunnskenninguna og þá stefnu, sem mörkuð var strax 1948 með setningu laganna um visindalega vernd- un fiskimiða landgrunns. En landgrunnskenningin hefur nú tekið á sig mynd 200 mílnanna eins og alkunna cr. Nei, Lúðvik Jósepsson er ekkert á þeirn buxunum að berjast við hlið annarra fyrir útfærslu i 200 míl- ur. Hann er enn að þrástagast á 50 milunum. En þeirri stefnu fylgir engin þjóð lengur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.