Morgunblaðið - 15.06.1975, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JUNI 1975
25
— Slagsíðan
Framhald af bls. li>
kváóust ekki velja myndirnar
sérstaklega fyrir ungt fólk,
heldur færu þeir fyrst og
fremst eftir þeim dómum og
þeirri aðsókn, sem myndirnar
hefðu hlotið erlendis. Aðrir
kváðust hins vegar verða að
taka tillit til þess, að áhorf-
endurnir væru aðallega ungt
fólk. En í þessu sambandi benti
Hilmar Garðars á, að í rauninni
hefðu bióin ekki eins mikið
svigrúm í kvikmyndavali og
margir virtust halda, því að þau
væru yfirleitt með fasta samn-
inga við ákveðin dreifingar-
fyrirtæki erlendis og ættu ekki
úr öðru að velja en þvi sem
fyrirtækin hefðu á boðstólum
hverju sinni.
En annar forstjóri benti á, að
hvað sem öðru liði, yrðu bíóin
að hugsa um að tryggja sér að-
sókn og þess vegna yrðu þau að
miða við það, sem fólkið sýndi
mestan áhuga á.
—v En hvað með svonefndar
listrænar myndir?
„Unga fólkið hefur meira vit
á kvikmyndunum sem listgrein
en eldra fólkið,“ sagði Frið-
finnur Ölafsson, „og það er
unga fólkið sem heldur uppi
mánudagsmyndunum hjá
okkur í Háskólabíói. „Hilmar
Garðars sagði m.a.: „Ég held að
áhorfendurnir skiptist í tvo
hópa, eftir því hvort þeir vilja
slappa af í bíói eða þreytast, ef
svo má segja. Ég get nefnt
mynd eins og „Space Odyssey
— 2001“. Það komu ekkert
mjög margir að sjá hana, en
þeir sem sáu hana hafa hugsað
mikið um efni hennar og hafa
margir beðið okkur um að
endursýna hana. En samt held
ég, að meirihluti bíógesta sé i
hinum hópnum, vilji fyrst og
fremst slappa af í bíói.“
— Eru einhverjir sérstakir
sýningartímar vikunnar, sem
unga fólkið velur fremur en
aðra?
Flestir, sem spurðir voru,
töldu, að svo væri ekki. Þó
fengust ólík svör að sumu leyti.
Einn taldi t.d. aðsóknina al-
mennt betri fyrrihluta vik-
unnar en seinnihlutann og um
helgar og sérstaklega væru
föstudagarnir rýrir. Annar
taldi hins vegar föstudagana
hafa batnað mikið frá því sem
var, þegar sjónvarpið var að
byrja. Sá þriðji taldi helgarnar
beztar. Jón Ó. Ragnarsson for-
stjóri Hafnarbíós var spurður
um aðsókn unga fólksins á
sýningum kl. 3 og 11, sem bíóið
hefur boðið upp á. Hann taldi,
að unga fólkið væri ekkert
meira áberandi á þessum sýn-
ingum en öðrum. Aðsóknin
hefði verið ágæt á 11 sýningum
og nú væru 3 sýningarnar
farnar að taka við sér. Vil-
hjálmur Astráðsson i Laugarás-
blói nefndi, að aðsókn yngstu
unglinganna væri mest á 5 sýn-
ingar um helgar og eins
talsverð á föstudagskvöldum.
Og Jón Ó. Ragnarsson benti á
sem dæmi um áhrif sjónvarps-
ins á eldra fólkið, að aðsókn
eldra fólksins væri mest á bíó-
sýningar á fimmtudags-
kvöldum, þ.e. sjónvarpslausu
kvöldunum.
— Hver eru áhrif sjónvarps-
ins á bíóferðir unga fólksins?
öllum ber saman um, að sjón-
varpið hefði yfirleitt litil sem
engin áhrif á bíóferðir unga
fólksins, en hins vegar væri
eldra fólkið miklu bundnara
heima nú en áður fyrr, fyrst og
fremst vegna sjónvarpsins.
„Eldra fólkið kemur ekki
nógu mikið í bió, sagði Jón Ó.
Ragnarsson. „Það áttar sig ekki
á því hvað bióin eru með góðar
myndir. Það liggur yfir sjón-
varpinu á kvöldin, i stað þess að
drifa sig út. Þetta er bara sof-
andaháttur. Svo segir það við
mann: Mikið er annars langt
síðan ég hef komið í bió, en það
eru bara svo lélegar myndir
alltaf hérna. Þær eru miklu
betri erlendis. — En þetta er
bara þvæla, því að yfirleitt allar
beztu myndirnar eru nú orðið
sýndar í kvikmyndahúsunum
hér.“
Litir; Rauðbrúnn
eða grænn/brúnn
Stærðir: 35—42
kr. 3.595.
Kirkjustræti 8, v/Austurvöll sími 14181
Vv v
|l§Í|*§p»f ^
; t ' Jmmr
H |1 * ART. 538
Æ- ■0’/."1 _■■ K j'. 'tf .♦
/ Litir: Natur eða Græn/brún Stærðir: 35—46 kr. 4.485
[W iira i WÆ 1
f/ ’
h 7 5
- Z.WíIbSM 7.JÉ & ,m f \ v\ * -i 1 I