Morgunblaðið - 15.06.1975, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 15.06.1975, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JUNl 1975 29 „Ein handa þér og ein handa þér“. Unnið við smfði F—14 &•<!* «tr moöilítv t«am Enemy tank attack! You can stop it fast Wrth the workfs most effectrve anti-tank system. Betfs amted helícopter- the Cobra. Cobra offsrs muft-jpis &! }ho rhóst modofff firepowfef kystsms Ar,# i? uau toms a tí.»r«g way ift a ho»fy tb ssisbbsh !«ek1 suporlohty by forh^hin^ ftemiOíe. f«« sopport k'«r manspvartrtg a«t1 hnávy fk« ta«gett. The CotJfa sh"ik«?» »}. f<W§ r»rt$» oOh- cesiod bofnmbvopo$«f)f>fis T*f$iM tft v»#* »t up koftt ^roums covsf Uróítayotss its» Gf<3oðoc« wttn pfocnmn átxofíK.y Th»n ir«av.?<; ?**?» •I cttf? fe6 faarfnotí ?cf»i«i»fJ ar«? mtia*$*N»<f m th» f»«;rt AoO <? rootoc tc y*>« w»th prwttí? com ;>í*t f*»3£>Mt*y. 03*int».'fti^>j»fy t*r«S SttrvivsbAfty The Cot>fa ■& thc fuopcv**? fítembef »;? thc B»:t Bf»íi s ÖM-$8 providos rscoooatfc' asoce cspoíniity pfus nommawvö »«<( íorfto>: ko?w tt'ff «itf Bf?ii s powcrhii ««w 2'.4> p<ovt<t«>s. troop íhobítify <or fsst *mpam$. hahisnntd 'support fey fhbvir»ij ttUit^ry ao<t suppiteA amt Ottic*. «v»oya?:ori O- tósí wS>oO»1«i3 T 09?»t her ffvsv t o fn': < h»: |>r iffhrfnm wor?d s rf»mt Atfochvft »>« ífío^íii'ty tt*' wutkj ow depenion i Bell HSUCOPTE* Bandarískar þyrlur auglýstar (tfmariti. kommúnistarikjum og bönnuóu lengi vel sölu til hlutlausra landa. A svipaðan hátt hafa Rússar selt vopn til Miðausturlanda til að draga úr vestrænum áhrifum og til Indlands til að mynda mótvægi gegn Kinverjum. Rússar hafa fengið aðstöðu fyrir flugher sinn i Jemen og Sómalíu í staðinn fyrir vopn sem þeir hafa útvegað þessum löndum og Bandaríkja- menn hafa haft herstöðvar í Thai- landi og Spáni vegna hernaðarað- stoðar sem þeir hafa veitt þessum löndum. Nú hóta Tyrkir að loka bandariskum herstöðvum i landi sinu þar sem bandariska þjóó- þingið hefur stöðvaó alla hern- aðaraðstoð við þá. Vopnaútflutningur heldur lií- inu í mörgum fyrirtækjum og sér mörgum verkamönnum fyrir at- vinnu. Flugvélafyrirtækið Dassault i Frakklandi gæti senni- lega ekki framleitt Mirage-þotur sinar fyrir verð sem franski flug- herinn réði við án mikils útflutn- ingsmarkaðs fyrirtækisins. Svíar telja aó þeir geti ekki varðveitt hlutleysi sitt nema með þvi að framleiða sjálfir flugvélar sinár og önnur hergögn en án útflutn- ings hefði framleiðsla Draken og Viggen sennilega orðið óheyri- lega dýr. Jafnvel fyrir banda- riska framleiðendur er útflutn- ingur að verða nauðsynlegur ef framleiðslan á aó borgasig. Vegna hækkaðs olíuverðs hafa oliuútflutningsríki haft nær ótak- mörkuð fjárráð og geta keypt nær allar tegundir hergagna handa sér eða bandamönnum sinum og skjólstæðingum. Vestræn iðnaðarríki hafa kom- izt að raun um aó hergagnasala getur dregió verulega úr greiöslu- halla vegna aukins kostnaðar af oliuinnflutningi. Stóraukin her- gagnasala er hvergi eins áberandi og við Persaflóa og þar er hafió eitt kostnaðarsamasta og æðis- gengnasta vigbúnaóarkapphlaup sögunnar. Iran hefur gengió lengst og keypt hergögn fyrir 7,6 milljaróa dollara i Bandaríkjunum einum á tveimur árum meó þeirn árangri aó þeir ráða yfir fullkomnari her- gögnum en flestar aörar þjóöir. Þeir hafa þegar keypt 260 þotur af gerðinni F-4 og pantað 200 i viðbót af gerðinni F-S og eiga um 3.000 brynvagna og rúmlega 1.000 þyrlur, þar á meóal SeaCobra- árásarþyrlu sem meira að segja bandariski landherinn '•ræður ekki yfir. Þótt ýmsir telji aó Iran- ir eigi meiri hergögn en þeir þurfi segja þeir sjálfir að þeir verói aó vera á verði gagnvart Sovétrikj- unum og Irak og verja Hormutz- sund, sem rúmur helmingur olíu- birgða Vesturlanda fer um, aó halda þvi opnu. Afleióingin hefur hins vegar orðið sú aó Írak hefur fengið MIG-vélar, þung stórskotavopn og Scud-eldflaugar, sem búa má kjarnaoddum, frá Rússum auk og landamæraþrætur og tor- tryggni hafa viða komið af staó vígbúnaóarkapphlaupi, til dæmis milli Indverja og Pakistana, rikj- anna Mali og Efri-Volta í Vestur- Afríku og milli Perúmanna, Boliviumanna og Chilemanna. Oft hafa slíkar þjóðir keypt hergögn sent koma þeim aó litlum notum og henta þeim ekki, t.d. skrið- dreka sem engin brú getur borið, og flugvélar sem fáir innlendir flugmenn geta flogið. Bandarikjamenn hafa flutt út hergögn til að styðja við bakið á rikisstjórnum fjandsamlegum og Mirage-þotur. Saudi-Arabar hafa beóió Bandarikjamenn um vopn og fengið þá ráóleggingu að efla herafla sinn á næstu tíu árum með vélvæddu herfylki, einni skriðdrekadeild, flugdeild, árásarþyrlum og strandvarnar- skipum. Óttazt er að þetta Vigbúnaðar- kapphlaup geti leitt til þess að stríð geti hafizt fyrir siysni við Persaflóa. Sá möguleiki er ekki útilokaður aó styrjöld verði milli Saudi-Arabíu og Iran í fram- tíóinni. Aukinn hernaðarmáttur Irana hefur vakið tortryggni Ind- verja sem óttast að Iran og Pakistan gangi i bandalag. Vígbúnaðarkapphlaup ■ er einnig hafið i Suður-Anteríku. Argentina, Brasilía, Kólombía, Perú og Venezúela hafa keypt freigátur og kafbáta frá Vestur- Þýzkalandi og Bretlandi, Mirage- þotur og fallhyssur frá Frakk- landi og æfingaþotur frá Italíu. 1 fyrra keypti Perú um 600 T-54 og T-55 skriðdreka af Rússum, stór- skotavopn, loftvarnabyssur, eld- flaugar og fleiri hergögn, alls fyr- ir85 milljón dollara. Löndin i þessum heimshluta fengu aðeins handarisk hergögn frá striðsárunum þar til vig- búnaðarkapphlaup þeirra hófst 1968 þegar Perú keypti Mirage- þotur af Frökkum. Vopnasalar hafa síðan streymt til Rómönsku Ameriku frá Ebrópu og fengu svo til enga samkeppni frá Bandaríkj- unurn þar til 1973 er Nixon forseti lét undan þrýstingi bandariskra hergagnaframleióenda og aflétti þeim hömlum sem höfðu verið á hergagna sölu Bandarikjamanna til þessara landa. Viðsjár hafa aukizt vegna þessa vigbúnaðarkapphlaups á landa- mærum Perú og Chile. Talið er að herforingjastjórnin í Lima vilji taka fylkið Tarapaca af Chile- mönnum, sem náðu þvi frá Perú- mönnum i styrjöld er lauk 1883. Chilemenn hafa keypt herflugvél- ar, skriódreka og skip i Banda- rikjunum og Evrópu fyrir rúm- lega 500 milljón dollara á síóustu 18 mánuðum. Bóliviumenn óttast að þeir geti dregizt inn i átök milli Chile og Perú og hafa ákveðió að koma sér upp nýtízku vopnum þótt þeir hafi varla efni á þvi. Fáar tilraunir hafa verið gerðar til að hefta vígbúnað^rkapp- hlaupið I heiminum. Suðurskaut- ið hefur verið lýst „vopnlaust svæði“. Japanir hafa neitað að selja hernaðarlega mikilvæga vöru til kommúnistalanda i 25 ár og Bandarikjamenn hafa sett hömlur á sölu á svokallaðri Red- eye-eldflaug þar sem hún gæti verið hættuleg i höndum hryóju- verkamanna. Arió 1950 ákváðu Bandarikin, Frakkland og Bret- land að takmarka vopnasölu til Mióausturlanda en sú ráðstöfun fór út um þúfur fjórum árum siðar þegar Frakkar ákváðu að selja Israelsmönnum skriðdreka og flugvélar. Viðræóur risaveld- anna um takmörkun kjarnorku- vígbúnaðar hafa lítinn árangur borið annan en þann að kjarn- orkugagnflaugar hafa verið bann- aðar en raunar er notagildi þeirra dregið í efa. Bandarikjamönnum tókst ekki að koma i veg fyrir að Pakistanar beittu bandarískum vopnum gegn Indverjum þótt þeir heföu bann- aó þaó og Libýumenn lánuóu Eg- yptum Mirage-þotur i október- striðinu þvert ofan i geróa samn- inga vió Krakka. Bann við her- gagnasölu hefur haft takmörkuö áhrif og sést á þvi að Frakkar hafa selt vopn til Suður-Afríku, Pakistan, Indlands og Rómönsku Ameriku þegar sala til þessara landa hefur verió bönnuó. Þegar Bandarikjamenn reyndu aó draga úr spennunni í Suöur-Asiu með því að takmarka vopnasölu þang- aó leituðu Indverjar lil Rússa og Pakistanar til Kinverja og Frakka. Þróunarriki gætu varió meira fé til félagsmála og efnahagsmála ef vígbúnadarkaupphlaupið yröi takmarkaö en þau segja aö riki, sem ekki geta íramleitt vopn, verði ofurselt iðnvæddum rikjum ef vopnasendingar veróa bannað- ar. Bandarikjamenn og Rússar vilja heldur ekki takmarkanir á áhrifum sinum til þess að auka veldi sitt og áhrif. Iðnaðarríki vilja heldur ekki atvinnuleysi vegna minnkandi vopnasölu. Til skamms lima keyptu iónaó- arrikin i Vestur-Evrópu meira af vopnurn en nokkrar aðrar þjóðir og i þeim heimshluta hefur rikt frióur i þrjá áratugi. En i 60 hern- aðarátökum sem hafa geisaó frá Framhald á bls. 32 Skyhawk-véla frá Bandarikja- mönnum, Kuwait hefur pantaó Mirage-þotur frá Frakklandi (og auk þess staðið undir gifurlegum vopnakaupum Sýrlendinga, Egypta og Jórdaníumanna) og smárikið Abu Dhabi hefur orðið sér úti um C-130-flutningavélar Frakkland Eftirsóttustu hergögn heimsins (talið frá vinstri). Frá Sovétríkjun- um: T—55 skriðdrekinn (14.500 seldir úr landi), AK—47 riffillinn (225.000), SA2 loftvarnaflaugin (8.000) og MIC—21 (1.900). Frá Bandarfkjunum: Sidewinder-eldflaug (12.000), CH—47 Chinook- þyrla (309), F—4 Phantom (1.100), C—130 Hercules flutningaflug- vél (230), F—5 (1.500) A—4 Skyhawk (460) og TOW gagnskrið- drekaflaug (12.500). Frá Frakklandi: Exocet gagnskipaflaug (800) AMX30 skriðdreki (1.000) og Mirage III (700). Frá lsrael: Gabriel gagnskipaflaug (150). rftc\o

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.