Morgunblaðið - 15.06.1975, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 15.06.1975, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚNl 1975 Elín Eggertsdóttir frá Oddsstöðum - Minning Elín Eggertsdóttir fæddist að Oddsstöðum i Lundareykjadal 2. nóvember 1911, dóttir hjónanna Unnar Jónsdóttur og Eggerts Guðnasonar bónda þar. Hún þurfti ung að halda að heiman að hætti þeirra tima. Hún settist að í Reykjavik og bjó þar æ siðan. Þar kynntist hún manni sínum, Atla Eirikssyni húsasmið, sem lézt fyrir tveimur árum eftir langvarandi veikindi. Þau áttu þrjú börn, Atla Ársæl, er dó fyrir tveimur árum eftir erfiða sjúk- dómslegu, Unni Erlu og Eggert, sem þurfa nú aó sjá að baki móð- ur sinnar. Ævin hennar frænku minnar var ekki ævinlega dans á rósum. Erfiðust var byrðin samt, þegar hún þurfti að sjá að baki eigin- manni sínum og elzta syni eftir langa baráttu veikinda og þján- inga. En hún lét aldrei bugast. Við, sem eftir lifum, minnumst þreks hennar og hetjulundar. Hún var dæmigerður arftaki þeirra islenzkra kvenna, er alltaf hafa fyrirfundist á Islandi á öll- um tímum. Þær hafa axlaðsína byrði möglunarlaust og borið harm sinn í hljóði, en samt ætíð reynzt skjól öllum þeim, sem aö- stoðar þurftu og áttu bágt. Mannlífið birtist okkur i svo mörgum myndum. Menn koma og fara, minningarnar dofna smám saman, en samt verður manni það fólk, sem stóð vörð um uppvöxt manns og þroska, ætið i fersku minni. Þetta fólk varðaði braut- ina fram til fullorðinsára, hjá þeim áttum við allt okkar skjól. I ómótuðum barnshuga var þetta fólk Imynd hins eilifa. Það hefur aiitaf verið til og verður alltaf til, þótt alit annað sé forgengilegt. En dauðann fær enginn umflúið. Líka þetta fólk verðum við að kveðja, og kannski þá fyrst kynn- umst við einmanaleikanum í allri sinni dýpt og veldi. Ég kveð frænku mína og þakka henni allar liðnar samverustund- ir, og allt það, sem hún var mér og verður ætíð. Ég bið börnum henn- ar, tengdabörnum og barnabörn- um öllum allrar blessunar og veit, að þau munu finna styrk í minningunni um hana. „Hvað er Hel? öllum Ifkn, sem lifa vel. EnMÍII, sem lil ijóssins leiðir. Ljósmóðir, er hv flu breiðir. Sólarhros, er sortna él. Heitir Hel.“ Unnur Steingrimsdóttir. Þar sem góðir menn fara |>ar eru Guðs vegir. Hún Elín er horfin, dáin. Ég stend eftir hljóð og hugsandi. Það leitar margt á hugann, þegar engill dauðans hrífur burtu vini manns svo óvænt og fyrirvara- laust. Okkur datt víst hvorugri í hug að þetta væri siðasta kveðjan, þegar við töluðum saman í sima fyrir nokkrum dögum. Við vitum aldrei, hvað morgundagurinn ber i skauti sér. Það er öllum hulið. En minningar um það liðna geymast og þær leita fram í hug- ann, hljóðar, ljúfar og kyrrlátar eins og Elín var sjálf. Minningar æskuáranna koma ein af annarri. Þegar við vöktum yfir túninu á björtum, fögrum vornóttum, þá var veröldin falleg. Þegar morgunsólin vakti hvert strá og hvert blóm með sindrandi geisla- flóði og döggin glóði eins og þús- und demantar á mjúku grænu flosi, þá gátum við tekið undir með skáldinu, sem sagði: „Þá var gott að vaka, vera til og eiga þrá“. Það var ekki langt á milli bæj- anna okkar, enda taldi Elín ekki eftir sér sporin, ef hún hafði sögu- bók eða Ijóð til að lána mér og lofa mér að njóta með sér. Svo liðu árin við leik og störf. Elín hvarf burt úr sveitinni okkar, en hún gleymdi ekki göml- um vinum. Hún kom með mann- inn sinn og litlu fallegu börnin sín, ailtaf var hún söm og jöfn, broshýr og blið. Enn liðu árin og börnin urðu fullorðin, fyrir- t Maðurinn minn, JÓELFR. INGVARSSON, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju, miðvikudaginn 1 8. júní kl. 14. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað ValgerSur Erlendsdóttir. Útför móður okkar + ELÍNAR EGGERTSDÓTTUR Hjálmholti 10, Reykjavlk fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 16. júní kl. 3. Fyrir hönd vandamanna. Unnur Atfadóttir Kendall Eggert Atlason. myndarfólk. Tvö eldri börnin gift, en yngri sonurinn heima, við- skiptafræðingur að mennt. Svo dró ský fyrir sólu. Eldri sonurinn, 37 ára, veiktist og dó. Hálfum mánuði seinna hneig eiginmaður- inn örendur niður við fætur Elínar. Það var mikil lifsreynsla, en Elín var hetja I sorg sinni og stillingin brást henni aldrei. Ég ætla ekki að rekja æviferil Elinar eða segja lífssögu hennar. Ég ætla aðeins að þakka henni hugljúfar samverustundir, þakka henni vináttu og tryggð, þakka brosin björtu, þakka orð, sem eru geymd en ekki gleymd, þakka heimsóknir og hlýleik allan, þegar hún vissi, að ég þurfti þess með. Ég veit að það verður tekið vel á móti Elinu handan við fortjaldið mikla. Eiginmaður og sonur rétta henni hjálpandi hendur. Guðs eilifi kærleikur blessi, leiði og styrki Elínu á hennar nýju vegferð. Ég kveð hana með hjartans þökk fyrir allt og allt. Vak þú minn Jesús vaktu f mér Vaka láttu mig eins f þér Sálin vakir þó sofni Iff sé hún ætfó f þinni hlff. Guð blessi Diddu og Eggert og styrki í sorg þeirra eftir góða og elskulega móður. Guð blessi tengdabörnin og barnabörnin. I Guðs friði. I. Bjarnadóttir Hinn 8. júni s.l. lézt á heimili sínu hér að Hjálmholti 10 frú Elin Eggertsdóttir frá Oddsstöðum í Lundareykjadal. Hún var fædd 2. nóvember 1911. Hún átti að mörgu leyti erfið uppvaxtarár og fór ung að vinna fyrir sér. Ung að árum kynntist hún Atla Eiríks- syni, síðar trésmiðameistara, og giftist honum. Eignuðust þau þrjú börn: Atla, er einnig varð trésmíðameistari. Hann kvæntist Sigurdísí Sveinsdóttur og eignuð- ust þau þrjú börn. Atli lézt fyrir tveimur árum, 38 ára gamall, frá hinni yndislegu konu sinni og börnum. Annað barn þeirra er Unnur, gift Harry Kendal. Þau eru búsett I Njarðvíkum og eiga tvo drengi. Yngstur er Eggert við- skiptafræðingur, sem tók við fyrirtæki föður síns að honum látnum, en Atli Eiríksson lézt hálfum mánuði síðar en sonur hans, Atli. Eggert hefur búið með móður sinni og haft forustu um hag þeirra. Ég var búin að þekkja Elínu lengi, en kynning .okkar var þó sérstaklega náin, eftir að hún missti mann sinn og son. Ég hef aldrei þekkt betri konu og vandaðri. Hún vildi í hvivetna láta gott af sér leiða, sýndi hverj- um manni vinsemd, var sigefandi, enda var hús hennar opið fyrir hinum mörgu vinum og vanda- mönnum. Og þannig hafði hjóna- band þeirra Atla jafnan verið. Þar ríkti vinátta og kærleikur og tryggð. Ég reyndi þessa mann- kosti Elinar i ríkum mæli og er þessvegna með hrærðum huga, er ég minnist hennar nú við brottför hennar. Dóttir mín og Unnur voru skólasystur og samvera þeirra tengdi heimilin vináttu- böndum. Elin var vel gefin, Ias mikið, sérstaklega var hún ljóðelsk. Hún var einnig skáldmælt. Var ánægjulegt að ræða við hana um ýmis hugðarefni. Mér finnst sem ég hafi vaxið af kynningunni við hana og er af alhug þakklát fyrir allar samverustundirnar. Þessi vinátta í minn garð hefur einnig komið fram i sambandi við Unni, dóttur Elinar. Hún hefur erft kosti móður sinnar og veitt af þeim i ríkum mæli. Siðastliðinn fimmtudag kom ég til Elínar I síðasta sinn. Við rædd- um saman um ýmis hugðarefni. Hún hafði fyrir nokkru átt við sjúkdóm að stríða, hafði verið skorin upp á spitala. 1 þetta sinn lét hún þau orð falla, að hún væri tilbúin til brottfarar, hvenær sem að því kæmi. Hún hafði þá í huga sinn ástríka mann og son sinn, er hvarf í broddi lífsins. Og þess var ekki langt að bíða að hún hyrfi. Og nú er hún kvödd af ást og virðingu. Henni fylgir þakklæti og hjartanlegar óskir um að henni verði að þvi, sem hún þráði, að fá samband við ástvini sína. Við hjónin og fjölskyldan öll sendum aðstandendum Elinar einlægar samúðarkveðju. Helga., Guðmundur Péturs- son kaupmaður frá Hafnardal - Minning Fæddur 18. maí 1892. Dáinn 7. júnl 1975. Haustið 1913 kom til náms i Verslunarskóla Islands ungur maður úr Norður-ísafjarðarsýslu og settist i miðdeild skólans, sem þá var kölluð, en skólinn taldist starfa I þrem deiidum, undir- búnings-, mið- og eldri deild. A þeim árum hófu menn gjarnan nám I skólanum um tvítugsald- ur eða eldri, einkum þeir er átt höfðu heima utan höfuðstaðarins og urðu sjálfir að standa straum af námskostnaði og dvöl hér. Þá voru enn fáir skól- ar í landinu sem efnalitlir, tekju- lágir ungir menn og litt undirbúnir gátu hafið nám i og notið svo að sá árangur næð- ist er þeir kepptu að. Þrátt fyrir þetta lögðu margir á brattann, sem áhuga voru gæddir, til að afla sér aukinnar þekkingar á þeim almennu viðfangsefnum sem lik- ur voru til að samtíð og framtíð mundu af þeim krefjast, er fram liðu stundir, og vildu þá til þess reyna að klífa þrítugan hamarinn. Einn þessara ungu manna þá t Innilegar þakklr til allra er sýndu okkur samúð og hjálp við andlát og útför SIGUROAR H. JÓNSSONAR Sérstakar þakkir til yfirlæknis Hrafnkels Helgasonar og Trvqgva Ásmundssonar og alls starfsfólks Vlfilsstaðaspítala fyrir frábæra alúð og hjálp Guð blessi ykkur öll, Laufey Þorgrlmsdóttir, Smári SigurSsson, Kásnesbraut 18, Kópavogi. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, GÍSLA VILHJÁLMSSONAR. Akranesi. Karen Vilhjálmsson, Úlfljótur Glslason, Eyrún Glsladóttir, Erla Glsladóttir, Anna Jóna Glsladóttir, tengdabörn og barnabörn. var Guðmundur Pétursson sem við nú minnumst. Þegar hann hóf nám var hann liðlega 21 árs að aldri, heilsuhraustur, léttur i hreyfingum, fullur fjörs og ákveðinn um að láta ekki hlut sinn þótt á reyndi og á móti blési. Hann var þá þegar vel þroskaður bæði til sálar og líkama enda al- inn upp við þær aðstæður að reyna á afl og þol og þaulvanur allri vinnu. Eitt af þvi sem vakti athygli okkar, sem með honum stunduðu nám, var að hann kunni utanbókar heila kafla úr Islend- ingasögunum og var tilbúinn að þylja þá i heyranda hljóði ef svo bar undir. Hann var þá þegar þaulkunnugur okkar fornu bók- menntum, þeim sem almenningur náði til á þeim tíma. Hann dáði söguhetjurnar bæði vegna frækn- leiks og vitsmuna. Guðmundur reyndist ágætur námsmaður i skólanum þá tvo vet- ur sem hann var þar, þ.e. veturna 1913-14 og 1914-15 og að námi loknu náði hann góðum einkunn- um við burtfararpróf eins og vænta mátti um svo skylduræk- inn, kappgjarnan og námshæfan mann. Guðmundur var fæddur i Hafnardal og ólst upp hjá foreldr- um sínum en þau voru hjónin íngibjörg Jónsdóttir og Pétur Pétursson. Var Ingibjörg hálf- systir, samfeðra, hins kunna fræðimanns séra Þorleifs á Skinnastað, en faðir þeirra var Jón Oddsson hreppstjóri og bóndi að Arnarbæli á Fellsströnd í Dala- sýslu. — sjá Isl. æviskrár, P.E.Ö. Pétur bóndi i Hafnardal var ættaður úr nyrsta hluta Stranda- sýslu, bróðir hins kunna bónda og sjósóknara, Guðmundar I Ófeigs- firði, er lengi var forvígismaður í byggð sinni. Pétur hafði byrjað búskap á Ströndum og búið á lé- legu koti er Fell hét. Þar hafði hann misst fyrri konu sína og mörg börn þeirra. Þangað fékk hann síðan til búsforráða seinni konu sína, Ingibjörgu, sem þá var aðeins 18 ára gömul. Ég sá hana roskna að aldri og var hún þá enn Útför GUÐNA JÓNSSONAR, Kirkjuteig 11, Reykjavik verður gerð frá Laugarneskirkju mánudaginn 1 6. júní kl. 3 e.h. Kristín Vigfúsdóttir, Stella Guðmundsdóttir, Kjartan Ó. Þórólfsson, Bragi Guðnason, Guðrún Sigurðardóttir, Ágústa Vigfúsdóttir, Sigurður Þorsteinsson, Glslina Vigdis Guðnadóttir, Bogi Helgason, Óskar Guðnason, Sigurlaug Guðbjörnsdóttir, Diðrik Jónsson. t Hugheilar þakkir flytjum við öllum þeim, er sýndu okkur ógleymanleg- an hlýhug, einlæga vináttu og samúð við andlát og jarðarför hjartkærr- ar dóttur okkar og systur SIGRÚNAR AGNESAR Kristln Þorsteinsdóttir Sigurjón Ingi Hilarlusson Friða Guðrún Sigurjónsdóttir Ellsabet Sigurjónsdóttir Erla Sigurjónsdóttir Hilmar Sigurjónsson Kristinn Sigurjónsson Þorsteinn Sigurjónsson. t Faðir minn HINRIK JÓNSSON frá Fáskrúðsfirði verður jarðsettur fimmtudaginn 19. júnl kl. 2 frá Hafnarfjarðar- kirkju Jón Hinriksson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.