Morgunblaðið - 15.06.1975, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚNI 1975
43
.Verium
gggróöurJ
verndum'i
jandp^l
kferndum
Jíf
Kerndum.
yotlendiy
■WTTi tí j TT^^^^W
LAIMDVERIMD
Bílamerki Landverndar
minna á góða umgengni
FRA ÞVl að Landvernd hóf
starfsemi sína hefur áróður um
bætta umgengni í byggð og
óbyggð verið mikið á dagskrá.
Sérstök áherzla hefur verið
lögð á að áminna ferðafólk um
snyrtilega umgengni og nær-
gætni við náttúru landsins. Nú
er okkur ljóst að þetta starf
hefur á margan hátt borið
góð'an árangur, það er t.d.
minna áberandi nú að flöskum
og rusli sé hent úr ökutækjum
eða tjaldstæði yfirgefin án þess
að hreinsa til. Hinsvegar er enn
mikið ólært til að umgengni
geti talizt góð, enda tæplega á
öðru von, segir Haukur
Hafstað, framkvæmdastjóri
Landverndar. í mjög mörgum
tilfellum eru umhverfisspjöll
gerð í hugsunarleysi en ekki af
ráðnum hug og þess vegna vill
Landvernd nú í ár snúa sér
sérstaklega að þeirri hlið
vandamálsins.
Bilmerki Landverndar sem
hér er verið að kynna eiga að
fylgja ferðamenni hvert sem
hann fer í bflum sínum og
minna á nauðsyn góðrar
umgengni.
Merkin eru af fjórum gerðum
sem hvert um sig höfðar til
sérstaks vandamáls. Þau eru
prentuð á gegnsæja glæru i
mismunandi litum. Gísli B.
Björnsson teiknaði merkin.
Það er von okkar I Land-
vernd að sem flestir kaupi bíl-
merkin og styðji á þann hátt
þessa baráttu okkar fyrir
bættri umgengni. Merkin eru
til sölu á bensinstöðvum og
einnig á skrifstofu Land-
verndar.
Islenzki Suðuriandssfldarstofninn er nú f örum vexti, eftir 3 ára friðun og hefir Hafrannsóknastofn-
unin lagt til að leyft verði að veiða 10 þús. smálestir (100 þús. uppmæidar tunnur) á komandi
haustvertfð.
Sfldarútvegsnefnd hefir þegar hafið undirbúning vegna sfldarsöitunar á vertfðinni og birtist hér
mynd, sem Ijósmyndari Mbl., Brynjólfur tók í fyrradag af stærsta tunnufarmi, sem fluttur hefur verið
með bfl á vegum nefndarinnar frá Tunnuverksmiðju rfkisins á Siglufirði. Með bflnum voru samtals
610 tunnur.
- Norðfjarðarhöfn
Framhald af bls. 17
verið skipt í þrjú athafnasvæði. a.
Fremri höfn, þar sem eingöngu
fer fram löndun og útskipun.
Stærðin er 2,3 ha. b. Viðlegu- og
þjónustukví fyrir bátaflotann. c.
Trillukví inn af viðlegukví, sem
eingöngu verður notuð fyrir
trillur.
Niðurstöður likantilraunanna
sýna, að talsverð ölduhreyfing og
straumar verða I viðlegukvi
miðað við fyrsta áfanga. Þegar
höfnin verður fullgerð verður litil
hreyfing f viðlegukvi.
I sumar er stefnt að þvi, að
fremri höfnin, þ.e. hluti ,af við-
legukví, ásamt trillikví, verði
grafin upp. Eru það um 150 þús.
rúmmetrar. Auk þess, ef fjár-
magn fæst, verður gerður viðlegu-
kantur í bátakví. Um þessar
mundir er búið að búa til garð frá
enda hafnarbakka út f brim-
varnargarða, þannig að megnið af
höfninni verður grafið út áþurru.
Á fundinum kom fram, að hægt
er að grafa alla höfnina út á
þurru og efnið sem þar fæst er
mjög gott til gatnagerðar og í hús-
byggingar. Því er ekki ósennilegt
að haldið verði áfram að grafa
höfnina út, þar sem þá fæst
ókeypis efnisnáma.
Verðlaun fyrir ritgerðir
VIÐ skólaslit um sfðustu mánaða-
mót fór að venju fram afhending
bókaverðlauna úr sjóði Hallgrfms
Jónssonar fyrrum skólastjóra
fyrir fslenska ritgerð á fullnaðar-
prófi (nú unglingaprófi) f skól-
um borgarinnar. Verðlaunin
hlutu að þessu sinni:
Elísabet Waage, Álftamýrarskóla,
Selma Ösk Kristiansen, Austur-
bæjarskóla, Sigríður Sigurjóns-
dóttir, Hvassaleitisskóla, Svan-
hvít Axelsdóttir, Hagaskóla, Þor-
steinn Gauti Sigurðsson, Fella-
skóla og Þorvarður Carr, Lang-
holtsskóla.
Við skólaslitin voru einnig af-
hent verðlaun þjóðhátiðarnefnd-
ar 1974 fyrir ritgerð um sögusýn-
inguna að Kjarvalsstöðum sl.
haust. I þessari ritgerðarkeppni
tóku þátt nemendur fimm aldurs-
flokka, þ.e. 10—14 ára börn. Veitt
voru ein verðlaun hverjum
aldursflokki en þau voru röð af
veggskjölum Þjóðhátíðarnefndar,
er frú Sigrún Guðjónsdóttir
teiknaði.
Verðlaunin hlutu:
Þórunn Egilsdóttir, 4. bekk
Hvassaleitsskóla, Bjarni Hinriks-
son, 5. bekk Breiðagerðisskóla,
Auður Einarsdóttir, 6. bekk Mela-
skóla, Skúli Þ. Ingimundarson, 7.
bekk Alftamýrarskóla og Elín Rut
Ölafsdóttir, 8. bekk Alftamýrar-
skóla.
Myndir Myndin sýnir börn úr
skólum borgarinnar á Sögusýn-
ingunni, en eftir heimsóknina
þangað skrifuðu þau ritgerðir um
hana.