Morgunblaðið - 08.07.1975, Side 1

Morgunblaðið - 08.07.1975, Side 1
36 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐJ 151. tbl. 62. árg. ÞRIÐJUDAGUR 8. JULÍ 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Lammi\Z féllu 1 árásunum S&" ?§?'€&£&_______________ -................... ■_. ■ ■ AP-símamynd. Árás tsraelsmanna. Aldraður palestfnskur flóttamaður veifar hendi framan við rústir heimilis sfns. tsraeiskir hermenn sprengdu það f loft upp f hefndarskyni fyrir árás skæruliða f miðri Jerúsalem, sem kostaði 14 manns lffið. Tel Aviv, Beiruí 7. júlí — AP ÍSRAELSKAR flugvélar og landgönguliðar réðust á búðir palestínskra flótta- manna á mánudag með sprengjum. Sjónarvottar segja að minnsta kosti 13 manns hafi fallið í árásinni og að hús margra flótta- mannanna hafi verið eyði- lögð. Árás Israelsmanna varð tæpum þrem sólar- hringum eftir að sprengja palestínskra skæruliða hafði sprungið í miðborg Jerúsalem og orðið 14 að bana. Forsætisráðherra Libanon sagði á mánudag að stjórn sin Soares boðar andóf — en kommúnistar eru viðbúnir Lissabon 7. júlí — Reuter, AP LEIÐTOGI portúgalskra jafnaðarmanna, dr. Mario Soares, gaf á mánudag þá aðvörun, að flokkur hans væri tilbúinn til að lama allt athafnalíf landsins, ef þeim þætti nauðsynlegt til að mótmæla skerðingu á prentfrelsi. Soares, sem á Austur-Þjóð- verjar styðja 200 mílur ef... Austur-Berlfn 7. júlí — Reuter. Aðstoðarutanríkisráðherra Austur-Þýzkalands sagði á mánudag að austur-þýzka stjórnin styddi útfærslu fisk- veiðilögsögu skandinavískra ríkja í 200 mílur. Það væri hins vegar álit stjórnarinnar að ríki, sem veitt hafa innan þess svæðis, sem íalla mundi undir 200 mílurnar, ættu að fá að gera það áfram. Hann lýsti einnig yfir stuðningi við tillög- ur Kekkonens Finnlandsfor- seta um að Eystrasalt og Norður-Atlantshaf yrðu friðuð gegn kjarnorkuvopnum. sæti i ríkisstjórninni, sagði á fundi með blaðamönnum úr Jafnaðarmannaflokkn- um að eins og á stæði væri ekkert mikilvægara en bar- áttan fyrir frjálsri blaðaút- gáfu. Ræða Soares kemur í kjölfar ákvörðunar hersins að taka útvarpsstöð róm- verzk-kaþólskra undir sína stjórn, og þess að prent- arar, sem styðja kommúnista hafa lagt und- ir sig ritstjórnarskrifstofur dagblaðs Jafnaðarmanna, Republica. Dr. Soares, sem kom heim úr útlegð í París eftir byltinguna í fyrra, var ákaft fagnað þegar hann sagði við blaðamenn: „Við erum tilbúnir til, ef nauð- synlegt er, að efna til mótmæla- aðgerða um allt land og lama allt landið til að mótmæla því, sem við köllum árás á þjóð vora með einokun minnihlutahópa á frétta- miðlun". Soares var fyrst utanríkis- ráðherra i bráðabirgðastjórninni, en er nú ráðherra án ráðuneytis. I þingkosningunum i april sl. vann flokkur hans, Jafnaðar- mannaflokkurinn, 38% atkvæða, en kommúnistar fengu 13%. Kommúnistar brugðu skjótt við efiir ræðu Soares, og sögðu þeir á mánudag að þeir hefðu beðið fylgismenn sína að vera reiðu- búna vegna tilrauna, sem gera ætti, til að velta Vasco Goncalves forsætisráðherra úr sessi. Segir annar ritari Kommúnistaflokks- ins að hann hafi þegar á föstu- dag beðið félaga sina að vera á verði og að hann hefði haft fulla ástæðu til þess, „þar sem byltingin er i hættu“. Hafa kommúnistar mikinn viðbúnað i verksmiðjum og á vinnustöðum. hefði von um að endurheimta bandaríska ofurstann, Ernest Morgan, sem skæruliðar rændu i síðustu viku. Hafa skæruliðarnir krafizt þess að Bandaríkjastjórn sendi matvæli og byggingarefni til fólks í þeim hluta Beiruts, þar sem mikið tjón varð í bardögum síðustu viku. I ávarpi í þinginu sagði Yitzhak Rabin forsætisráðherra Israel að stjórn sín ætlaði að halda þeirri stefnu sinni að semja ekki við samtök hryðjuverkamanna, og sagði að eina málið sem þeir skildu væri „sverðið" og „á því máli ætlum við að tala við þá“. Herstjón Israels sagði að Palestínuskæruliðar hafi á mánu- dag eftir árásina skotið eldflaug- um að ísraelskum þorpum rétt við landamæri Líbanon. Rashid Karami forsætisráð- herra Líbanons minntist ekkert á árásir Israelsmanna á mánudag Hann skýrði fréttamönnum aftur á móti frá því að yfirvöld væru í sambandi við ræningja Morgans ofursta, og að þau hefðu góða von um að endurheimta hann innan tiðar. Þá handtóku menn úr leyni- þjónustu hers Líbanons fólk úr „undirróðurssamtökum", sem gætu hafa staðið á bak við ítrekaðar sprengjuárásir í Beirut. Fólkið, sem er jórdanskt, líbanonskt og palestinskt, var handtekið i íbúð, þar sem fannst mikið af sprengiefni og skotfær- um. Mikil leynd hvílir yfir yfir- heyrslum yfir fólkinu. Wilson hvetur námumenn til að koma lýðræðinu til hjálpar Scarborough 7. júlí — Reuter. HAROLD Wilson forsætisráð- herra Bretlands lagði á mánudag hart að námamönnum að liggja ekki á liði sínu til að bjarga Iýð- ræðinu i Bretlandi með því að draga úr kaupkröfum sfnum „á elleftu stundu f sögu landsins". Kom Wilson til Scarborough f Norður-Englandi til að ávarpa ársþing samtaka námumanna, en þingið mun taka afstöðu til kröf- unnar um 60—94% launa- hækkanir, sem sett hefur verið fram af leiðtogum námumanna. Rfkisstjórnin reynir nú að halda öllum iaunahækkunum innan við 10%. Ræða Wilson var þrungin til- finningahita. Hárri röddu sagði hann hljóðum hópi námumanna að spurningin væri „hvort nokkur ríkisstjórn, sem aðhylltist grund- vallarreglur lýðræðis, gæti stjórnað brezku þjóðinni". Það voru námumenn, sem mestan þátt áttu i falli Ihaldsstjórnar Edwards Heaths, með kaupkröf- um sínum. Reyndi Wilson að benda áheyrendum sínum á það sem margir stjórnmálamenn hafa sagt, að lýðræði í Bretlandi sé ógnað, ef öflugum hópum tekst að gera að engu tilraunir rikis- Framhald á bls. 35 Athafnalíf Argentínu gjörsamlega lamað Buenos Aires 7. júlí — Reuter. MARlA Estela Peron forseti Argentfnu, sem nú stendur frammi fyrir mestu stjórnmála- erfiðleikum sfnum sfðan hún tók við völdum fyrir árl, átti fund með rfkisstjórninni og leiðtogum verkalýðssamtaka á mánudag, þegar tveggja sólarhringa als- herjarverkfall lamaði athafnalff landsins. Þá átti hún fundi mað stjórninni sjálfri, sem ncyddist til að segja af sér á sunnudags- kvöld, og einnig leiðtogum Aiþýðusambandsins (CGT) og leiðtogum peronistaarms verka- lýðshreyfingarinnar til að reyna að afstýra þvf kreppuástandi, sem landið hefur komizt í. Þó að stjórnin hafi sagt af sér og að viðræður hafi staðið fram á síðustu stundu, ákvað CGT að hefja tveggja sólarhringa verkfall ‘til að mótmæla stefnu stjórnar- innar í launamálum. Lítið var um að vera á götum Buenos Aires í dag. Allar verzlan- ir, veitingahús, bankar og aðrar stofnanir og fyrirtæki voru lokuð Framhald á bls. 35 Sœnskir kommúnist- ar fá fé erlendis frá — segir dónjsmálaráðherra Svíþjóðar stokkhóimí 7. jútt—ntb símhleranir hjá nokkrum leið- SJÖ Svfar eru um þessar mund- togum sænska Kommúnista- ir grunaðir um að hafa brotið svo gróflega af sér gagnvart öryggi ríkisins, að sænska öryggislögreglan hefur fengið leyfi til að hlera sfmtöl þeirra. Þetta upplýsti dómsmálaráð- herrann, Lennart Geijer, f dag. Hann sagði ^nnfremur að sænsk stjórnvöld hefðu nú undir höndum upplýsingar, sem bentu til þess að Kommún- istaflokkur Svíþjóðar hafi þeg- ið verulegar fjárupphæðir frá erlendu ríki. Dómsmálaráðherrann tók fram að símhleranir væru stundaðar i mjög litlum mæli i Svíþjóð og ætíð í samræmi við landslög. Geijer skýrði m.a. frá því að flokksins hefðu verið stöðvaðar, skömmu áður en sagt var frá þeim opinberlega fyrir stuttu. „Sá grunur sem við höfðum um að þessir félagar í Kommúnistaflokknum tækju við verulegum fjárhagslegum stuðningi frá útlöndum fékk frekari staðfestingu við hler- anirnar, en við höfðum ekki nægilega sterkar sannanir til að gera eitthvað frekar í mál- inu“, sagði dómsmálaráðherr- ann. Hann vísaði því á bug að ýmis sænsk-erlend vináttufélög eða menn tengdir slfkum félögum hefðu orðið fyrir sfmhlerunum. „Ég get ábyrgzt að þetta er allur sannleikurinn".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.