Morgunblaðið - 08.07.1975, Síða 3

Morgunblaðið - 08.07.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JULl 1975 3 Fjórðungsmót hestamanna: Misjöfn kyn- bótahross, en spenna í hlaup FJÓRÐUNGSMÓT hestamanna á Vesturlandi var haldið um helg- ina að Faxaborg. Talið er að um 4000 manns hafi sótt mótið en fjölmennir hópar hestamanna komu rfðandi til móts þessa m.a. úr Reykjavík Grfmsnesi, Dölum og Skagafirði. Veður var gott mótsdagana, sól en nokkur gjóla. Töluvert bar á ölvun meðal móts- gesta, en hópur unglinga sótti mótið og gætti ölvunar mest hjá þeim. A mótinu og f nágrenni Faxaborgar voru alls 14 teknir ölvaðir við akstur. t greinum kappreiðanna náðist góður árangur, þó að ekki tækist að hnekkja gildandi Islandsmetum. Kynbótahrossin, sem sýnd voru á mótinu, voru nokkuð misjöfn að gæðum. Samtals voru sýndir 17 stóðhestar og þar af einn með afkvæmum og var það Kvistur 640 frá Hesti. Hann var sýndur með 6 afkvæmum og hlaut hann fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Þau eru fríð og svipmikil hross með trausta skapgerð. I byggingu Hér er það Ólöf Guðbrandsdóttir, sem situr stóðhestinn Nóa, sem varð efstur f flokki 4 vetra stóð- hesta. Ólöf hlaut sérstök knapa- verðlaun á mótinu. þeirra er það helst stærð þeirra, sem er ábótavant því að meðalstærð þeirra er 139,5 cm, en auk þess hafa þau fremur stutta lend og djúpan bol. Þau eru gædd nokkuð góðum reiðhesthæfileikum en af- kvæmin hlutu 7,82 stig, í meðal- einkunn fyrir byggingu og reið- hestskosti. Eigandi Kvists er Hrossaræktarsamband Vestur- lands. I flokki stóðhesta 6 vetra og eldri varð efstur Fróði frá Hesti, eign Hrossaræktarsambands Vesturlands. Hann hlaut meðal- einkunnina 7,90. Fróði er undan Þokka 664 frá Bóndhóli og Snældu 2281 frá Hólum, en hún er undan Nökkva 260. Hann er hreyfinga- góður hestur með öllum gangi en ekki stór og hefur fremur grunna lend. Af 5 vetra stóðhestum varð efstur Fáfnir frá Svignaskarði, eign Hrossaræktarsambands Vest urlands. í einkunn hlaut hann 8.03 en þetta er mjög álitlegur stóðhestur, sonur Blesa 598 frá Skáney og Ljónslappar 2958 frá Krossi, en hún er undan Randver 355. Annar í þessum flokki varð einnig álitlegur foli, Svalur frá Skáney en hann hlaut 7,96 í einkunn. Efstur í flokki 4 vetra stóðhesta varð Nói 843 frá Nýja- bæ, mjög snotur hestur með fremur góðri fótlyftingu. Hann hlaut einkunina 7,83, en hann er sonur Blesa 598 frá Skáney og Nætur frá Nýjabæ. 5 hryssur með afkvæmum voru sýndar og hlutu þær allar fyrstu einkunn fyrir afkvæmi. Efst varð Skvetta 2859 frá Gufunesi en með henni voru sýndar þrjár hryssur sem hlotið hafa fyrstu verðlaun á landsmótum. Skvetta hlaut 8,15 stig, en faðir hennar er Bleikur 360 frá Gufunesi og móðir Grá- skjóna út af Flugu frá Varmadal. Eigandi Skvettu er Marinó Jakobsson á Skáney. Hópurinn sem sýndur var af hryssum 6 vetra og eldri var nokkuð misjafn. I honum voru nokkrar hryssur, sem voru veru- lega góðar þó að innan um væru Barzel kemur 21. ágúst RAINER BARZEL, fyrrum kanslaraefni Kristilegra demókrata í Vestur-Þýzkalandi, hefur eins og Mbl. skýrði frá á sunnudag sýnt áhuga á að koma til fslands. Samkvæmt upplýsing- um Arna Tryggvasonar sendi- herra f Bonn hefur Barzel komið að máli við hann og er gert ráð fyrir þvf að hann komi til Islands 21. ágúst og dveljist hérlendis f nokkra daga. Einar Agústsson utanrfkisráðherra mun taka á móti Barzel og er utanrfkisráðu- neytið að vinna að þvf að skipu- leggja ferð Barzels. Árni Tryggvason sagði að fyrir rúmum mánuði hafi Barzel haft samband við sig og látið i ljós þessa ósk. Ástæðurnar kvað Árni vera þær, að Island væri eina Evrópulandið, sem Barzel hafi ekki komið til, en að auki hafði Barzel orð á þvi að Islendingar ættu við ýmis athyglisverð vanda- mál að etja, sem hann sagðist sjálfur vilja kynnast af eigin raun. Með Barzel kemur einkarit- ari hans. Barzel hefur látið í ljós ákveðn- ar óskir um að hitta hérlendis ýmsa forustumenn. Kvað Arni utnarikisráðuneytið vera að skipuleggja ferðir hans ji Islandi. Rainer Barzel. Barzel sem var kanslaraefni fyrir nokkru, er nu aftur á mikilli upp- leið innan flokks síns og eftir fylkiskosningarnar hefur hann komizt enn meir I sviðsljósið. Núverandi kanslaraefni flokks- ins, Kohl, hefur m.a. lýst því yfir að nái flokkurinn völdum, verði Barzel ráðherra í ríkisstjórn V- Þýzkalands. Urslitin i 250 m unghrossahlaupi komu mönnum nokkuð á óvart. Hér er Biesa að koma f mark en á eftir henni koma Sleipnir og Bliki. aðrar sem sýndu ekki mikil gæði. Alls voru 38 hryssur sýndar I þessum flokki og varð efst af þeim Folda 4200 frá Múlakoti, eign Ásgeirs Karlssonar í Borgar- nesi, en hún er undan Frey 579 og Ljósblesu frá Múlakoti. I einkunn hlaut hún 8,19. Af fimm vetra hryssum varð Reynir Aðalsteinsson situr hér gæðinginn Trausta. efst Þokkadís frá Nýjabæ, eign Ólafar Guðbrandsdóttur. Þokka- dís er undan Þokka frá Bóndhóli og Nótt frá Nýjabæ, en hún er dóttir Svaða frá Svaðastöðum. Af 4 vetra hryssum varð efst Buska frá Hvítárvöllum, eign Davíðs Ólafssonar. Hún hlaut 7,63 í einkunn en hún er undan Faxa 838 frá Hvftárvöllum og Blesa frá Hvítárvöllum, en hún er dóttir Glaðs 404 frá Flatartungu. Efstur í flokki alhliða gæðinga varð Trausti,jarpur, eign Reynis Aðalsteinssonar, Sigmundar- stöðum, og hlaut hann einkunn- ina 8,52 Hann hlaut Vesturlands- bikarinn. Annar hestur var með sömu einkunn en dregið var á milli þeirra um fyrsta sætið. Það var Snæfaxi leirljós, eign Leifs Kr. Jóhannessonar, Stykkishólmi. Þriðji varð Sikill, brúnstjörn- óttur, eign Sigurbjargar Jóns- dóttur á Hvanneyri. — Hann hlaut einkunnina 8,46. Urslit í flokki klárhesta með tölti urðu þau, að fyrstur varð Tígull, brúnsokkóttur, eign Leo- polds Jóhannessonar, Hreða- vatnsskála og hlaut hann 8,74 i einkunn og Vesturlandsbikarinn. Annar varð Sörli brúnn eign Reynis Aðalsteinssonar, Sig- mundarstöðum, með einkunnina 8,66 og þriðji Krummi, brúnn, eign Sigrúnar Kristjánsdóttur. Hann hlaut einkunnina 8,62. Þátt í gæðingakeppninni tóku hestar frá 6 hestamannafélögum, en þeir voru dæmdir með spjaldadómum. Meðal mótsgesta mátti þó heyra gagnrýnisraddir á þetta fyrir- komulag. Það skal tekið fram að allt frá því að spjaldadómakerfið var tekið upp hafa menn skipzt í andstæða hópa, hvað snertir mat á gæðum þess. Unnið hefur verið að endurbótum á þessu kerfi en á mótinu um helgina þótti koma áberandi í ljós hversu hestarnir komu jafnir út úr dómunum og kann þar að einhverju leyti að hafa ráðið tæknileg framkvæmd dómanna. Kappreiðar Fjórðungsmótsins voru eins og gert hafði verið ráð fyrir mjög spennandi. Það sem kom einna mest á óvart var glæsi- leg frammistaða hryssunnar Blesu frá Hvitárholti i Árnes- sýslu. Hún sigraði í unghrossa- hlaupinu á 18,6 sek., en hafði áður hlaupið á 18,4 í milliriðli. Islandsmetið í þessari grein er 18,3 sek. Baráttan í 800 m stökk- inu var geysihörð og voru það einkum Þjálfi, Sveins K. Sveins- sonar og Frúarjarpur, Unnar Einarsdóttur, sem börðust um fyrsta sætið. Þjálfi hafði bezta timann þegar að úrslitasprettin- um kom og fyrstu 500 metrana úrslitahlaupinu hafði hann for- ustuna en þá tókst Frúarjarpi að siga á hann og sigraði á 62,9 sek. Fyrsti hestur i 800 m stökkinu, Frúarjarpur, hlaut Blakksbikar- inn en Hólmsteinn Arason í Borgarnesi sem gaf hann átti hlaupahestinn Blakk, sem um nokkurra ára skeið var einn fremsti hlaupahestur landsins. Baráttan í skeiðinu var einnig mjög spennandi. Urslit í einstökum greinum kappreiðanna urðu sem hér segir: 250 m skeið: 1. Fannar, bleikálóttúr, eign Harðar G. Albertssonar, Hafnar- firði og knapi Ragnar Hinriksson á 23,5 sek. 2. Vafi, jarpur, eigandi og knapi Erling Sigurðsson Reykjavík i 23,8 sek. 3. Öðinn, jarpur, eign Þorgeirs Jónssonar, Gufunesi, og knapi Aðalsteinn Aðalsteinsson á 23.4 sek. 250 m unghrossahlaup: 1. Blesa, rauðblesótt, eign Sig- urðár Bjarnasonar, Klemmiskeiði og knapi Halla Sigurðardóttir, i 18,6 sek. 2. Sleipnir leirljós, eign Gunnais M. Árnasonar, Reykjavik, cg knapi Gisli Björnsson á 19.0 sek. Framhald ábls. 3 5 Það er oft hörð barátta við rásmarkið milli manna og hesta. Héraðsmót Sjálfstæðisflokksins um næstu helgi á Höfn í Homafírði, Egilsstöðum og á Fáskrúðsfirði UM NÆSTU helgi verða haldin 3 héraðsmót Sjálfstæðisflokksins: Höfn I Hornafirði, föstudaginn 11. júlí kl. 21 stundvislega. Ávörp flytja Matthías Bjarnason sjávar- útvegsráðherra, Svérrir Hef- mannsson alþingismaður og Albert Eymundsson kennari. Egilsstöðum, laugardaginn 12. júli kl. 21 stundvíslega. Avörp flytja Matthías Bjarnason sjávar- útvegsráðherra, Sverrir Her- mannsson alþm. og Theódór Blöndal tæknifræðingur. Fáskrúðsfirði, sunnudaginn 13. júlí kl. 21 stundvíslega. Avörp flytja Matthías Bjarnason sjávar- útvegsráðherra og Sverrir Her- mannsson alþm. Skemmtiatriði á héraðsmótun- um annast hljómsveit Ólafs Gauks ásamt Magnúsi Jónssyni óperusöngvara, Svanhildi, Jör- undi og Hrafni Pálssyni. Hljóm- sveitina skipa: Ólafur Gaukur, Svanhildur, Agúst Atlason, Benedikt Pálsson og Carl Möller. Efnt verður til ókeypis happ- drættis og eru vinningar tvær sólarferðir til Kanarleyja með Flugleiðum. Verður dregið I happdrættinu að héraðsmótunum loknum — eða 20. ágúst n.k. Að loknu hverju héraðsmóti verður haldinn dansleikur til kl. 2 e.m. þar sem hljómsveit Ólafs Gauks leikur fyrir dansi og söngvarar hljómsveitarinnar koma fram. Svurrir Thuodór

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.