Morgunblaðið - 08.07.1975, Page 15

Morgunblaðið - 08.07.1975, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLI1975 23 LlKUR á þvf að efnt verði til þingkosninga á Italíu áður en langt um lfður hafa aukizt við öngþveiti sem hefur skapazt í stjórnmálum landsins eftir mik- inn sigur kommúnista f kosning- um til bæjar- og sveitarstjórna f sfðasta mánuði þótt strangt tekið eigi nýjar kosningar ekki að fara fram fyrr en vorið 1977. Þessar Ifkur hafa aukizt við það að flokkur sósfalista hefur hafnað boði kristilegra demókrata um að ganga til stjórnarsamvinnu með þeim. Jafnframt vill flokkurinn ekki útiloka þann möguleika að ganga í bandalag með komm- únistum f því augnamiði að reyna myndun meirihlutastjórnar. Flokkar sósfalista er í lykilað- stöðu þar sem hvorki kristilegir demókratar né kommúnistar geta myndað meirihlutastjórn án stuðnings þeirra. Hingað til hafa sósíalistar fremur kosið að styðja kristilega demókrata en að eiga samleið með kommúnistum. Ef þeir hætta stuðningi sínum við stjórnina verður trúlega efnt til kosninga og þá gera margir ráð t'yrir þvi að kommúnistar vinni álíka mikinn sigur og i bæjar- og sveitarstjórnarkosningunum. Átta af 13 ríkisstjórnum sem hafa verið við völd á Italíu á undanförnum tólf árum hafa ver- ið svokallaðar mið-vinstristjórnir sem hafa grundvallazt á sam- vinnu kristilegra demókrata og sósíalista. Ágreiningur milli flokkanna um stefnuna í efna- hagsmálum og afstöðuna til kommúnista leiddi til þess að Aldo Moro myndaði til bráða- birgða minnihlutastjórn kristi- lega demókrataflokksins með stuðningi eins annars flokks i nóvember i fyrra. Stefna sósíalistaflokksins eftir bæjar- og sveitarstjórnar- kosningarnar var mörkuð á nýaf- stöðnum fundi í stjórn flokksins. Það var ákveðið (auk þess sem áður greinir) að sósíalistar skyldu aðeins styðja kristilega demókrata ef það samrýmdist þeim kröfum kjósenda sem kosn- ingaúrslitin lýstu eins og ritari Við komum ekki beint inn á íslenzku i sænskukennslunni í Finnlandi, en í námsbókunum eru kaflar úr íslenzkum "bók- menntum. Nemendurnir lesa því miður ekki Islendinga- sögur, en þeir eru látnir lesa Sillen eftir Halldór Laxness, Island av í dag og kafla um Surtsey og svo var eldgosið á Heimaey eitt ritgerðarefnið á stúdentsprófinu. Og svo reyni ég að auka áhuga á Islandi á ýmsan annan hátt. Sjálf lærði ég fornislenzku í háskóla, en ég hefði nú samt viljað hafa betri undirstöðu i henni." Sören P. Mortensen kennir við lýðháskóla í Brönderslev i Danmörku. ,,I lýðháskólanum er lesið ýmislegt úr íslenzkum bókmenntum en það er allt saman i dönskum þýðingum“, sagði Sören. „Áhugi lýðháskólanna á norrænu hefur aukizt mikið og nú er þar kennd norska og sænska auk , dönskunnar. Islenzka er hins vegar ekki kennd fyrr en eftir stúdents- próf, og þá aðeins þeim nem- endum í dönsku eða málsögu, sem vilja.“ Sören sagðist því ekki hafa bein not af kunnáttu sinni I íslenzku í Danmörku að minnsta kosti. ,,En á Islandi á ég marga kunningja eins og Eyvind Eiriksson, kennara á Akureyri, Gunnar Finnbogason, skóla- stjóra í Reykjavík, og Viktor Guðlaugsson, skólastjóra Barnaskólans við Stóru-Tjörn, og það er gott að geta talað við þá á íslenzku. Þessir menn hafa allir heimsótt mig i Danmörku. Þetta er i 3. sinn, sem ég kem hingað til Islands siðah 1970, en þá kom ég hingað sem gestur Norræna félagsins og mennta- málaráðuneytisins. Nú kem ég hingað sem ferðamaður og vil gjarnan geta skilið Islendinga og það hef ég lært á þessu nám- skeiði". Fá kommúnistar völdin á Ítalíu ? Moro flokksins, Francesco de Martino, komst að orði. Hann sagði að flokkurinn mundi taka þátt í stjórnarmyndunum með kommúnistum í fylkjum, sveitum, bæjum og borgum, þar sem það reyndist framkvæmanlegt en taldi einnig að reyna ætti að koma til leiðar samvinnu milli kristi- legra demókrata, sósialista og kommúnista. Gamlir foringjar De Martino taldi það hafa haft mikil áhrif á þá afstöðu sem flokkur hans hefurtekið að kristi- legir demókratar hefðu ekki reynzt fúsir til að gera veigamikl- ar stefnubreytingar sem sósíalist- ar settu sem skilyrði fyrir því að taka aftur upp stjórnarsamvinnu við þá. Síðan kosningarnar hafa farið fram hefur þvi almennt ver- ið haldið fram að róttæk endur- skoðun sé nauðsynleg á stefnu kristilegra demókrata þar sem ítalskir kjósendur hafi færzt til - vinstri og vaxandi fjöldi italskra kjósenda telji breytingar nauð- synlegar i itölskum þjóðmálum. Þó er talið vafasamt að um verulegar breytingar verði að ræða á stefnu flokksins ef hann verður áfram undir forystu Amintore Fanfani, núverandi flokksleiðtoga, sem hefur haft töglin og hagldirnar í flokknum i tvo áratugi. Völd hans i flokknum hafa verið sterk en yngri menn i flokknum og vinstri armur hans berjast fyrir þvi að honum verði bolað frá völdum og hafa fengið miðjumenn i flokknum til liðs við sig. Tveir menn koma til greina sem eftirmenn hans: Giulio Andreotti fjárlagaráðherra og Arnaldo Forlani landvarnaráð- herra sem höfðar til yngri kjósenda. Nú hefur stjórn flokks- ins verið kölluð saman til fundar og þá segir Fanfani líklega af sér. Yngri kjósendur áttu hvað mestan þátt i hinum mikla sigri kommúnista í kosningunum. 2.3 milljónir Itala undir tuttugu og eins árs aldri kusu í fyrsta skipti og af tveimur milljónum atkvæða sem kommúnistar bættu við sig er gizkað á að um það bil ein milljón hafi verið atkvæði ungra kjósenda. Eftir kosningarnar standa kommúnistar og kristileg- ir demókratar næstum því jafnir að vígi: kommúnistar fengu rúm- lega tíu milljón atkvæði eða 33.4% miðað við 28.3% í þing- Fanfani kosningunum 1972 en kristílegir demókratar fengu 35.3% miðað við 38.4% fyrir þremur árum eða aðeins 2% meira fylgi en kommúnistar. Millistéttafylgi Kommúnistar juku einnig fylgi sitt meðal millistéttamanna og meðal þeirra verkamanna sem hafa verið þeim fráhverfir en kusu þá nú i fyrsta skipti vegna versnandi ástands efnahagsmál- anna. Efnahagserfiðleikarnir áttu ugglaust mestan þátt i kosninga- sigri kommúnista en almennt lýstu úrslitin víðtækri óánægju kjósenda með kristilega demókrata sem lúta stjórn Berlinguer, foringi ftalskra kommúnista gamalla manna sem kjósendur virðast orðnir þreyttir á. Þessi óánægja kom ótvírætt fram í fyrra þegar kjósendur sam- þykktu hjónaskilnaðarlög í þjóðaratkvæðagreiðslu gegn and- stöðu kristilegra demókrata undir forystu Fanfani. Siðan hefur þessi óánægja færzt í aukana og allt sem aflaga fer virðist vera skrifað á reikning kristilegra demókrata — jafnvel mikil alda rána^málverkaþjófnaða^sprengju- tilræða og mannrána sem hefur gengið yfir Italíu. En starfsmenn flokksins hafa verið viðriðnir fjölda hneykslismálaeinsog mút ur.-símahleranir og samvinnu við mafíuna. Kristilegir demókratar halda því fram að þeir hafi ef til vill afstýrt gjaldþroti með ströng- um efnahagsráðstöfunum, en þær hafa leitt til þess að atvinnuleysi er komið upp i 5.7%. Sardiníumaður Urslitin eru auðvitað mikill per- sónulegur sigur fyrir aðalritara kommúnistaflokksins, Enrico Berlinguer. Undir forystu hans hefur flokkurinn fengið svokallaðan virðulegan blæ í aug- um millistétta. Velgengni flokks- ins byggist á hófsamri afstöðu Berlinguers í ýmsum málum. Flokkurinn styður jafnvel meðal- stór og lítil einkafyrirtæki sem berjast í bökkum. Mikilvægast er að Berlinguer hefur lýst því yfir að flokkurinn sé fylgjandi aðild Italíu að NATO þótt efasemdir Italskir kommúnistar fagna sigri. hafi vaknað um einingu banda- lagsins eftir kosningaúrslitin ekki sízt með tilliti til atburðanna f Portúgal. Berlinguer er af landeigenda- ætt frá Sardiníu sem var upphaf- lega spænsk. Hann er 53 ára að aldri og faðir hans var lögfræð- ingur og þingmaður sósialista áð- ur en fasistar komust til valda. Berlinguer var fimm mánuði í fangelsi fasista fyrir að skipu- leggja ólöglega starfsemi kommúnista í Sassari á Sardiníu. Hann var aðeins 23 ára þegar •Togliatti skipaði hann í miðstjórn flokksins og árið 1946 varð hann foringi æskulýðssamtaka komm- únista. Síðar var hann leiðtogi alþjóðasambands æskulýðsfélaga kommúnista um þriggja ára skeið. Hann var alltaf álitinn skjól- stæðingur Togliattis og aldrei fulltrúi ákveðins flokksbrots. Gætin stefna Berlinguer kemur vel fyrir í sjónvarpi þótt hann þyki þurr á manninn og það á trúlega mikinn þátt i velgengni hans. I kosning- um sem fóru fram 1968 fékk hann 151.000 atkvæða meirihluta, meiri en nokkur annar frambjóðandi kommúnista. Fjórum árum síðar var hann kjörinn aðalritari flokksins. Á veggnum í skrifstofu sinni hengdi hann upp mynd af stofnanda italska kommúnista- flokksins, Sardiniumanninum Antonio Gramsci, en ekki mynd af Marx eða Lenín. Flokkurinn jók fylgi sitt um aðeins 0.3% í þingkosningunum 1972 en gætin stefna sem hann hefur fylgt hefur greinilega borgað sig. Jafnvel nú fer flokkurinn gæti- lega í sakirnar þrátt fyrir unninn kosningasigur. Berlingue/leggur áherzlu á það sem hann vill kalla hægfara aðlögun áð sósialisma og atburðirnir -i Chile og það Sem gæti gerzt i Portúgal eru víti til varnaðar að hans dómi. Hann tel- ur að smátt og smátt nái kommúnistar völdunum á Italiu, að timinn vinni með þeim og þess vegna liggi þeim ekki alltof mikið á. Það sem kommúnistar undir forystu Berlinguers hafa lagt megináherzlu á er svokallað sögu- legt samkomulag við kristilega demókrata, með öðrum orðum myndun samsteypustjórnar kristilégra demókrata og kommúnista. Slík stjórn á að leiða til valdatöku kommúnista síðar meir en áður en hún er mynduð vill Berlinguer að náið samráð sé haft við þá í öllum málum, það er að ríkjandi stjórn ráðfæri sig við kommúnista og þeir fái í raun og veru hlutdeild í völdunum án þess að bera ábyrgð á stjórn landsins og án þess að taka þátt í stjórninni. Þannig virðist kommúnistum það ekkert höfuðatriði að kosn- ingar verði haldnar á næstunni. Framhald á bls. 25.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.