Morgunblaðið - 08.07.1975, Page 30
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JULl 1975
Brotalamir í knattspyrnuþjálfuninni
Karl Guðmundsson fþróttakennari gerði síðastliðinn vetur ftarlega könnun á málefn-
um unglingaþjálfunar. Eru niðurstöður Karls uggvænlegar fyrir knattspyrnufþróttina,
þar sem hann dregur fram í dagsljósið margar brotlamir f uppeldi knattspyrnumanna
og á menntun leiðbeinenda. Karl varð góðfúslega við beiðni Morgunbiaðsins um leyfi til
að birta niðurstöður könnunar hans og fara þær hér á eftir. Einnig hefði verið æskilegt
að geta birt spurningalista þann sem Karl lagði fyrir þjálfarana og sömuleiðis tillögur
hans til úrbóta, en það er þvf miður ekki hægt vegna rúmleysis.
Knattspyrnusambandið hefur nú ákveðið að setja f haust á stofn knattspyrnuskóla þar
sem um 15—20 manna hópi verður gefinn kostur á að fræðast um öll atriði knattspyrn-
un'nar og munu færustu innlendir leiðbeinendur annast þá fræðslu ásamt erlendum
starfskröftum. Verður skóli KSt sennilega til húsa f Kennaraháskólanum og fer
kennslan fram á daginn frá klukkan 16—19 frá því í scptember og fram að jólum. Alls
verða tfmarnir f skólanum um 200. Þeim sem áhuga hafa á þessu námskeiði er bent á að
Esnúa sér hið fyrsta til KSt.
Þá hefur KSÍ ákveðið að árlega verði haldin 1. stigs námskeið fyrir þjálfara, 2. stigs
námskcið verði sömuleiðis haldin reglulega og 3. stigs námskeið eftir þörfum. Ætti þvf,
ef vel tekst til með þessa fræðslustarfsemi, mikil breyting að geta orðið á þjálfunarmál-
um fslcn/.kra knattspyrnumanna, ungra sem aldinna á næstu árum.
Samkvæmt ósk stjórnar KSI
;erði undirritaður könnun á
nkjandi ástandi í málefnum
;'nglingaþjálfara og unglinga-
bjálfunar. Könnunin var
framkvæmd með þeim hætti, að
'erður var spurnmgalisti og
hann sendur út til allra félaga
i..nan Knattspyrnusambandsins.
f-á var haldinn fundur með
unglingaþjálfurum á Stór-
Seykjavíkursvæðinu og mættu
þar 30 þjálfarar, sem gengu frá
purningalistum sfnum á þeim
ffundi. Utan af landi hafa aðeins
torist 4—5 listar óg eru þó um
tveir mánuðir sfðan þeir voru
sendir út.
Samkvæmt öðrum upplýsingum
O i fenginni reynslu á ég ekki von
á að skýrslur utan af landi breyti
mðurstöðum þessarar könnunar
t ’1 batnaðar.
Niðurstöður könnunarinnar
e, u í stuttu máli þessar:
1. Flestir þjálfaranna hafa álit-
lega leikreynslu og virðast margir
s'vðjast alfarið við hana i
þiálfarastörfunum.
2. Menntun íslenskra unglinga-
þiálfara er f algjöru lágmarki.
SVálægt 60% þeirra þjálfara, sem
•'ið höfum upplýsingar um, hafa
ekkí sótt neitt námskeið. Fjórir
‘tu iþróttakennarar, en hinir
bafa sótt eitt stutt námskeið að
ur.danteknum tveimur, sem hafa
ótt tvö eða fleiri.
ÞETTA ER STÆRSTA
ROTALÖMIN 1 ÞJALFARA-
liLUM KSI.
3. Mikill meirihluti starfandi
nglingaþjálfara hefur litla
arfsreynslu eða enga. Hitt er
t óst, áð þeir sem mesta starfs-
seynslu hafa, hafa jafnframt
afíað sér nokkurrar menntunar.
Þotta ber vott um áhuga og vekur
vonir um að þessir menn ílengist i
þjálfarastarfi.
4. Flestir þjálfaranna telja sig
skorta almenna þekkingu á
unglingaþjálfun og eðli hennar.
Nokkrir telja sig mjög vankunn-
andi um leikaðferðir og leikskipu-
lag. Atriði, sem gefa bendingu um
hvað leggja þarf áherslu á á nám-
skeiðum.
5. Könnunin leiðir í ljós, að all-
ur fjöldinn fylgist lítið með
unglingaþjálfun, með lestri bóka
eða tímarita. Ræður málakunn-
átta eflaust miklu þar um. Þó
telja margir skort á upplýsingum
um bækur og tfmarit bagalegan
og óska úrbóta af hendi KSl.
6. Fram kemur að rétt (heppi-
leg) tímasetning námskeiða er af-
gerandi um þátttöku.
7. Draga má þá ályktun að vfða
skorti kennslufræðilega undir-
stöðu undir unglingaþjálfunina,
sem niðurröðun kennsluefnis,
Karl Guðmundsson.
kennslutækni, kennsluskipulag,
gerð kennsluáætlana fyrir lengri
og styttri tímabil, tímaseðla
o.s.frv. Þetta gefur bendingar um
námskeiðsefni.
8. Þjálfararnir þurfa aðstoð í
sambandi við fræðslu og skemmti-
fundi fyrir drengina. Margir óska
eftir aðstoð KSl í þessu efni með
útvegun kvikmynda o.s.frv. Eftir-
tektarvert er, að félagsstarf og
samband við foreldra er einna
best hjá þeim félögum, sem náð
hafa hvað bestum íþróttalegum
árangri hin síðari ár.
9. Samfara þessari könnun mun
okkur takast að ná sambandi við
velflesta unglingaþjálfara lands-
ins. Þetta tel ég afar mikilvægt
fyrir framgang unglingaknatt-
spyrnunnar. Við eigum að efla
þetta samband eftir megni. Láta
þessa menn finna hve mikilvægt
starf þeirra er fyrir íslenska
knattspyrnufþrótt, að við kunnum
að meta störf þeirra og viljum
veita þeim alla þá aðstoð er við
megnum. Því er eins farið með
góða unglingaþjálfara og góð
knattspyrnumannsefni — það
verður að hlúa að þeim, örva þá
og aðstoða á alla Iund. HVER
EINSTAKLINGUR ER ÖMET-
ANLEGUR FYRIR EFLINGU
KNATTSPYRNUNNAR Á
ISLANDI.
10. Það er því miður staðreynd,
að margir þessara velviljuðu og
áhugasömu þjálfara njóta ekki
þess stuðnings knattspyrnunefnd-
ar, sem hverjum þjálfara er nauð-
synlegur. Þarna er vísbendingum
nauðsyn námskeiða (fyrirlestra)
fyrir stjórnendur knattspyrnu-
félaga og starfsnefndir innan
félaga. Enn eitt verkefni fyrir
KSl.
Að lokum þetta:
irni, Jórunn og Magnús hlutu
bikara Skíðasamhands íslands
Akureyringar röðuðu sér I þrjú
,'stu sætin I bikarkcppni Sklða-
mbauds tslands f Alpagreinum,
: sem kunnugt er hljóta skíða-
n mn punkta fyrir ýmis mót
• efrarins og að þeim loknum
i síðan útkoman fengin
stighæsti keppandinn
;ýtur að launum fallegan
>. kar frá Skíðasambandinu. Var
», :ð Arni Óðinsson frá Akureyri
m vann til hans að þessu sinni,
Haukur Jóhannsson varð f
-ru sæti og Tómas Leifsson í
Arni Oðinsson
þriðja sæti.
I fjórða sæti varð Hafþór
JúlíusSon, Isafirði, Arnór
Magnússon, Isafirði, fimmti,
Gunnar Jónsson, Isafirði, sjötti,
Guðjón Ingi Sverrisson, Reykja-
vík, varð í sjöunda sæti og Valur
Jónatansson frá Isafirði varð í
áttunda sæti.
Bikarinn fyrir kvennakeppnina
féll hins vegar til Jórunnar
Viggósdóttur, Reykjavík, en Jór-
unn stóð sig mjög vel á mótum
Jórunn Viggósdóttir
vetrarins og þó aldrei eins og á
Islandsmeistaramótinu á Isafirði.
I öðru sæti varð Margrét Vil-
helmsdóttir frá Akureyri og Guð-
rún Frímannsdóttir, Akureyri,
varð í þriðja sæti.
I vetur fór einnig fram bikar-
keppni í skíðagöngu og þar
röðuðu Fljótamenn sér i þrjú
efstu sætin. Magnús Eiríksson
hreppti bikarinn, en þeir Trausti
og Reynir Sveinssynir deildu með
sér öðru og þriðja sætinu.
mm,
________
Magnús Eiríksson
íslenzkir knattspyrnuunglingar búa oftast við þröngan kost hvað varSar
þjálfun. Oft eru þjálfarar þeirra menn sem nánast gera þaS af þegnskap fyrir
félag sitt að sinna þjálfun. En sagt er að lengi búi að fyrstu gerð, og mjög
árfðandi er að bæta verulega þjálfun ungmennanna, eins og Karl Guðmunds-
son bendir á f skýrslu sinni.
A undanförnum árum hefur átt
sé stað vítaverð vanræksla á
málefnum unglingaknattspyrnu
og unglingaþjálfunar innan KSI.
Nú verður að snúa blaðinu við og
hefja markvisst starf til úrbóta.
Missum aldrei sjónar á þeirri
staðreynd, að i yngri flokkum
knattspyrnunnar er framtíð
íþróttarinnar falin. Allt, sem við
látum undir höfuð leggjast i
stuðningi við unglingaknattspyrn-
una kemur okkur siðar i koll.
Hér nægir ekkert minna en
sleitulaust starf. Lítum á fordæmi
Svía og Dana — hversvegna eru
þessar þjóðir stöðugt meðal hinna
allra bestu á knattspyrnusviðinu,
þrátt fyrir að menn hverfi þaðan
unnvörpum til atvinnumennsku í
öðrum löndum? — ÞAÐ ER HIÐ
STÖÐUGA, ÖFLUGA OG VEL-
SKIPULAGÐA UNGLINGA-
STARF, SEM GERIR GÆFU-
MUNINN.
öll góð knattspyrnulið verður
að byggja upp neðanfrá.
Unglingaþjálfarar, meistara-
flokksþjálfarar og landsliðsþjálf-
ari verða að leggja á ráðin um
langtima uppbyggingu Iiða á öll-
um stigum.
Knattspyrnulið þarf reynslu og
samhæfingu og ég tel að með-
verkandi i árangri landsliðs okkar I
dag sé ekki sist stofnun unglinga-
landsliða 1961 og áframhaldandi
þjálfun þess og keppni — en
þetta er aðeins einn þáttur
unglingastarfsins.
Hvað eru margir í landsliði
okkar nú, sem lokið hafa knatt-
þrautum KSl? Hvað hefur verið
gert til að halda þeim gangandi og
hver er annars afstaðan til þeirra
í dag?
Virðingarfyllst,
Karl Guðmundsson
Atta keppa
í Innsbruch
Skíðasambandið velur œfingahóp
Akveðíð hefur verið að átta
skíðamenn taki þátt í vetrar-
ólympiuleikunum sem fram fara í
Innsbruch i Austurríki dagana
4.—15. febrúar n.k. Er ráðgert að
fjórir keppi í Alpagreinum karia,
tveir í Alpagreinum kvenna og
tveir í göngu. Skíðasamband Is-
lands hefur nú valið hóp til æf-
inga, en endanlegt lið verður val-
ið í haust. Þau sem valin hafa
verið úl æfinga eru eftirtalin:
Alpagreinar karla:
Árni Öðinsson, Akureyri,
Haukur Jóhannsson, Akureyri,
Tómas Leifsson, Akureyri,
Sigurður H. Jónsson, Isafirði
Hafþór Júlíusson, Isafirði,
Hafsteinn Sigurðsson, Isafirði.
Alpagreinar kvenna:
Jórunn Viggósdóttir, Reykjavik,
Margrét Baldvinsdóttir,
Akureyri,
Katrin Frímannsdóttir,
Akureyri,
Steinunn Sæmundsdóttir,
Reykjavik.
Ganga:
Halldór Matthiasson, Akureyri,
Magnús Eiriksson, Fljótum,
Trausti Sveinsson, Fljótum.
Þjálfun i Alpagreinum annast
Austurrikismaðurinn Kurt Jenni
og Viðar Garðarsson frá Akur-
eyri. Eru áætlaðar tvær sam-
æfingar í sumar, sú fyrri i Siglu-
fjarðarskarði 12.—23. júlí, en sú
seinni í Kerlingarfjöllum í lok
ágúst. I haust verður síðan farið i
keppnisferðalag til Mið-Evrópu.
I göngu mun Björn Þór Ölafs-
son, Ólafsfirði, sjá um æfingar i
sumar, en í haust er ætlunin að
göngumennirnir fari til æfinga og
keppni til Noregs.
Geta islenzkra skiðamanna hef-
ur vaxið mikið undanfarin ár
og verður að teljast líklegt að
Islendingar hafi nú betra liði á að
skipa til keppni á Olympiuleikum
en nokkru sinni fyrr.
Bugner óhræddur
Bretinn Joe Bugner lætur ekki
deigan slga þótt illa færi hjá hon-
um I keppninni um heims-
meistaratitilinn við Muhammad
Ali ð dögunum. Hann hefur lýst
þvl yfir, að hann sé reiðubúinn að
mæta Joe Frazier I keppni, fari
svo að Frazier sigri Ali I keppni
þeirra sem fram á að fara I
Manila 1. október n.k. — Og ef
Ali sigrar þá er ég reiðubúinn að
mæta honum aftur I keppni, hvar
og hvenær sem er, sagði Bugner.
Bugner segir engan vafa á þvl
að hann hefði sigrað Ali, hefði
ekki hitasvækjan verið sllk I
Kulala Lumpur meðan keppnin
fór fram, að hann var nánast
lémagna er hann fór I hringinn.
— Ali var hins vegar vanur
sllkum aðstæðum, sagði Bugner,
— þar sem hann æfir jafnan I
Miami, þar sem loftslag er mjög
svipað og var er keppni þessi fór
fram. Bugner bætti þvl svo við,
að hann væri viss um að þeir
Norton og Foreman hefðu ekki
staðið jafnvel I Ali og hann gerði
við sllkar aðstæður. Andy Smith,
framkvæmdastjóri Joe Bugners,
tók mjög I sama streng og sagði
að Joe Frazier ætti að eiga góða
möguleika á að sigra Ali I Manila,
þar sem keppt yrði innanhúss. en
hann ætti hins vegar ekki mögu-
leika ef keppnin færi fram við sllk
skilyrði og Bugner varð að gera
sér að góðu i Kuala Lumpur.