Morgunblaðið - 08.07.1975, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JULl 1975
19
igi, Árni Sveinsson, skoraði
íum f gærkvöldi. Á myndinni
Lrni spyrnt knettinum með
öannessen markverði norska
rfullur á Árna. Á myndinni f
5rik og lengst til hægri sést
aðti Guðgeiri Leifssyni, sem
markinu, ásamt Matthiasi
ráttu. Jóhannes sagði, eins og svo margir
kki séð neitt brot er dómarinn dæmdi
Bezta sókn íslenzka
liðsins gafmarkið
SEGJA má að leikurinn við Norð-
menn í gærkvöldi væri fyrsti stór-
leikur hins unga Árna Sveinsson-
ar frá Akranesi. Hann lék reynd-
ar sinn fyrsta landsleik gegn Fær-
eyingum á dögunum, en það var
fremur léttur leikur og umtals-
verðir yfirburðir Islendinga allt
frá upphafi til enda.
Það hlýtur því að hafa verið
meira en lítið gaman fyrir Arna
Sveinsson að sjá knöttinn hafna í
norska markinu í gærkvöldi eftir
hælspyrnu, en skot þetta færði
íslendingum forustu í leiknum.
Markið kom á 16. mínútu.
Islendingar hófu sókn á vallar
miðjunni, og þaðan barst knöttur-
inn til Guðgeirs Leifssonar sem
var i strangri vörzlu eins Norð-
mannsins. Eigi að síður náði Guð-
geir að koma knettinum til Matt-
hlasar Hallgrímssonar sem átti í
baráttu við tvo Norðmenn. Barst
leikurinn alveg upp að enda-
mörkum hægra megin, en með
miklu harðfylgi tókst Matthíasi að
snúa þannig á andstæðinga sína,
að hann náði að senda knöttinn
fyrir mark Norðmannanna. Erik
Johannessen markvörður ^eirra
freistaði þess að ná fyrirgjöfinni,
en missti af henni, og Arni kom
aðvífandi og náði að senda knött-
inn í netið við ósegjanlegan fögn-
uð áhorfenda. Var mjög vel að
marki þessu unnið hjá íslenzka
Texti og myndir:
Steinar J. Lúðvfksson
Ágúst I. Jónsson
Sigtryggur Sigtryggsson
Friðþjófur Helgason (myndir)
Emilfa Björnsdóttir (myndir)
Þeir léku upp á jafntefli
GUÐGEIR Leifsson lék að þessu
sinni sinn 25. landsleik og stóð sig
mjög veI.,,Ég átti ekki von áNorð-
mönnunum svona leiknum og
hörðum, en þeir léku bara upp á
jafnteflið og ekkert annað. Enda
kjössuðu þeir hver annan í lokin
eins og þeir hefðu orðið heims-
meistarar“, sagði Guðgeir.
„Annars er óþarfi að vera
óánægður. það er ekki alltaf sem
íslenzkt landslið hefur náð jafn-
tefli við Noreg“
Islenzku leikmennirnir voru
sammála um það að þeir hefðu átt
mun fleiri tækifæri í leiknum en
erfitt hefði verið að skora þar sem
Norðmennirnir röðuðu sér inn í
vítateiginn og gættu þess eins að
verja jafnteflið. Allir voru leik-
menn íslenzka liðsins ákveðnir í
að selja sig dýrt I seinni leik
þjóðanna í Bergen eftir 10 daga.
Matthías Hallgrímsson sagði að
íslenzka liðið tapaði örugglega
ekki.
Gaman að fá tækifæri aftur
SKAGAMAÐURINN Björn
Lárusson kom inn á um miðjan
fyrri hálfleikinn í stað Gxsla
Torfasonar. Síðast lék Björn í
landsliði árið 1969 og þá gegn
Bermudamönnum. Lék Björn þá I
stöðu miðframherja og skoraði
tvö mörk, en annað var að vfsu
dæmt af.
Nú er Björn orðinn þrítugur,
hefur fært sig aftar á völlinn og
leikur sem bakvörður. „Jú, það
hefur auðvitað mikið breytzt
síðan ég var sfðast í landsliðinu,
en það var gaman að fá á ný
tækifæri til að spreyta sig með
liðinu“, sagði Björn eftir leikinn.
anleg dómgæzla
hefði verió kominn inn í vftateig-
inn og að komast f gott marktæki-
færi, er bakvörður íslenzka liðs-
ins hefði brugðið sér gróflega.
Um sjálfa vítaspyrnuna sagði
Gabriel Hoyland, að það hefði
ekki verið erfitt að skora, þar sem
markvörður fslenzka liðsins hefði
reiknað með knettinum hinum
megin.
Sænski dómarinn Ulf Eriksson
vildi sem minnst ræða um
þennan dóm, en sagði að þarna
hefði verið um grófl hrot að ræða.
1 fyrstu sagðist hann hafa haldið,
að það hefði átt sér stað utan
vítateigs, en er hann kom á brot-
staðinn, sá hann að það var ekki
rétt og brotið hafði orðið fyrir
innan vftateigslfnuna.
Islcnzku leikmennirnir voru
mjög sárir yfir dómgæzlu Svians.
Jóhannes Eðvaldsson sagði er við
spurðum hann hvar brotið hefði
átt sér stað, að hann hefði ekki
séð neitt andsk... bragð „þeir
hlupu saman f baráttu um knött-
inn. Þegar dómarinn flautaði
spurði ég hann hvort aukaspyrn-
an væri bein eða óbein, en hann
svaraði mér ekki en hljóp beint á
vftapunktinn." -Matthfas
Hallgrfmsson sagði að vftaspyrn-
an hefði verið alveg ferlegur
dómur og dómarinn hefði f einu
orði sagt verið afleitur. Jón
Pétursson sagði að dómgæzla
Svfans hefði verið alveg f sam-
ræmi við það sem búast mætti við
af Svfum, forkastanleg.
VIO spurðum nokkra af 1. deildar
dómurunum um álit þeirra á vita-
spyrnudómnum umdeilda. Millirikja-
dómararnir Magnús Pétursson og
Eysteinn Gumundsson sögðust báðir
hafa verið í slæmri aðstöðu en þeir
hefðu ekki getað séð neitt athuga-
vert.
Baldur Þórðarson sagði að
ekkert alvarlegt hefði verið að
liðinu.og var vörn Norðmannanna
það sundurtætt, að þótt Árni
hefði ekki náð til knattarins, má
mikið vera ef Teitur, sem einnig
kom aðvffandi, hefði ekki rekið
smiðshöggið áverkið.
Annars voru tækifæri Islend-
inganna ekki mörg í þessum leik
og afar sjaldan mátti sjá hrein og
falleg skot að markinu. Helst var
það á 10. mínútu seinni hálfleiks-
ins er Jóhannes Eðvaldsson átti
mjög fast skot sem fór rétt yfir
norska markið. Þá var markvörð-
ur þeirra úr jafnvægi, þannig að
ekki hefði þurft að sökum að
spyrja, hefði knötturinn verið
aðeins neðar. Þeir Arni Sveinsson
og Jón Alfreðsson áttu nokkuð
góð tækifæri á lokaminútum
leiksins, en auðnaðist ekki að
skora.
„Leikskipulag íslenzka landsliðs-
ins er mun fastmótaðra nú en
fyrir sex árum og fyrst eftir að ég
kom inn á gekk mér illa að finna
mig með félögum mínum í
íslenzka liðinu. Ég vona þó að ég
hafi staðið mig sæmilega og fái
fleiri tækifæri með liðinu.“
VIÐ VINNUMIBERGEN
FYRIRLIÐI norska liðsins, Svein Kvia, leikmaður no. 7, sagði að
hann væri ánægður með úrslitin, en leikurinn hefði verið lélegri en
hann hefði vonað. tslenzka liðið væri mun betur skipulagt nú en I
þau 7 skipti sem hann hefði leikið gegn fslenzkum liðum. „Ég vona
bara og trúi þvf fastlega að við vinnum f Bergen eftir 10 daga en það
er augljóst að við þurfum að hafa fyrir þeim sigri".
Einar Jörum, formaður norska knattspyrnusambandsins þakkaði
leikmönnum beggja liðanna f stuttu ávarpi f hófi eftir leikinn.
Sagði hann leikinn hafa verið krefjandi og erfiðan en úrslitin
sanngjörn. Við sænsku dómarana sagði hann: „Það eru alltaf
skiptar skoðanir um frammistöðu dómara en við Norðmenn höfum
ekki yfir neinu að kvarta að þessu sinni“.
EKKERT ATHUGAVERT
gerast, leikmennirnir hefðu verið að
berjast um boltann og hann hefði
ekkert dæmt ef hann hefði verið
dómari. Guðjón Finnbogason milli-
rikjadómari fná Akranesi sagði að
alls ekki hefði verið um vítaspyrnu
að ræða. Hannes Þ. Sigurðsson var
svo á öndverðum meiði við kollega
sína, og sagði að greinilega hefði
verið um vítaspyrnu að ræða.
Alltaf
eitthvað
að gerast
ÞETTA var harður leikur og
spennandi, þar sem alltaf var
eitthvað að gerast“, sagði
Ellert B. Schram formaður
KSl að leik loknum. „Islenzku
leikmennirnir börðust mjög
vel og það var ekki þeim að
kenna að leikurinn vannst
ekki. Við vorum mun nær sigri
að þessu sinni. Það segir sína
sögu að nú skulum við vera
óánægðir með að ná „bara“
jafntefli gegn Norðmönnum.
Það hefði einhverntíma þótt
gott.
Landsliðsþjálfarinn Tony
Knapp sagði að sér hefði fund-
izt leikurinn harður en úrslitin
réttlát. Vítið hefði verið tóm
vitleysa og i stað þess að hafa
yfir 1:0 hefði staðan verið orð-
in jöfn, en Norðmennirnir
hefðu greinilega lagt áherzlu á
að ná jafntefli.
Landsliðsnefndarmennirnir
Árni Þorgrímsson og Jens
Sumarliðason voru báðir mjög
óánægðir með að sigra ekki i
leiknum. Sagði Árni að víta-
spyrnudómurinn hefði hleypt
hörku í leikinn og auk þess
hefði það komið fram á leik
íslenzka liðsins fyrst á eftir, en
þá hefði islenzka liðið einmitt
verið að ná ser mjög vel á
strik. Jens hafði enn stærri orð
um leikinn og sagði að islenzka
liðið hefði haft alla möguleika
til að vinna þennan leik, en
óheppnin hefði verið yfir
strákunum að þessu sinni.