Morgunblaðið - 08.07.1975, Side 34

Morgunblaðið - 08.07.1975, Side 34
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JULl 1975 Þúfnabanar á ferðinni ÍÞRÖTTAFRÉTTAMENN háðu með sér sína árlegu golfkeppni sfðastliðinn föstudag og var til gððra verðiauna að vinna, en þau voru gcfin af Sveini Björnssyni. Ekki var um harða keppni að ræða þar sem Sigmundur Steinarsson Tfmanum hafði nokkra yfirburði, enda hafði hann þjófstartað og farið nokkra hringi á Nesvellinum áður en sjálf keppnin hófst. Heiðursgestirnir Jón Birgir Pétursson á Vfsi og Jón Hermannsson á Sjónvarpinu hrepptu sfðan annað og þriðja sætið. Friðþjófur Helgason, Morgunblaðinu, veitti Jóni Hermanns- syni þó harða keppni og fengust ekki úrslit hjá þeim fyrr en eftir bráðabana og sigraði Jón með þvf að fara holu f höggi á fimmtu braut — en það skal tekið fram að bráðabaninn var leikinn á „púttvellinum". f næstu sætum komu svo Ágúst I. Jónsson, Þórleifur Olafsson, Hallur Helgason, Björn Blöndal og Gylfi Kristinsson. Þátttaka var góð í keppninni að þessu sinni, alls mættu 13 til leiks og fór kcppnin allvel fram undir röggsamri stjórn Kjartans L. Pálssonar. ARAR í SVEITAGLÍMU 1975 Aðeins FH og Haukar eiga eftir að ráða þjálfara Verður Reynir ölafsson með FH-ingana? Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH eru einu 1. deildarliðin í handknattleik, sem ekki hafa gengið frá þjálfaramálum sínum fyrir næsta vetur. Er liklegt að Elias Jónasson hafi yfirumsjón með þjálfun Haukanna, að minnsta kosti til að byrja með, en leikmennirnir sjái sjálfir að mestu leyti um þjálfunina. Af FH-ingum er það að segja að þeir eru orðnir nær vonlausir um að fá erlendan þjálfara fyrir næsta vet- ur og hafa því snúið sér að því að ráða íslenzkan þjálfara. Ekki hef- ur það fengizt gefið upp hver hann er, en Morgunblaðið hefur ástæðu til að trúa að FH-ingar hafi gert Reyni Ölafssyni tilboð um að taka að sér þjálfun félags- Rcynir Ölafsson ins, en það hefur þö ekki fengizt staðfest. Karl Benediktsson mun þjálfa KR-ingar urðu sigurvegarar I sveitaglímu Islands I fimmta skiptið í röð, er þeir sigruðu Héraðssamband Suður- Þingeyinga í úrslitakeppni sem fram fór nýlega að Laugum ( Þingeyjarsýslu. Hlutu KR-ingar 13'A vinning í úrslitakeppninni, en Þingeyingar ll'A vinning. KR-ingar hafa þvi unnið sveita- glímu Islands frá því að keppni hófst, ef undan er skilið fyrsta árið sem keppnin fór fram, en þá var teflt fram í keppni þessa sameiginlegri sveit frá Reykjavík, og voru í henni fjórir KR-ingar. Að þessu sinni kepptu KR-ingar fyrst við Ungmennafélagið Vik- verja og var sú keppni gífurlega jöfn og spennandi, en leikar fóru svo að KR-ingar unnu með 13 vinningum gegn 12. Armenningar og Þingeyingar kepptu og lauk þeirri viðureign með sigri Þingey- inganna sem hlutu 14!4 vinning gegn lO'/í. Mikill áhugi var á úrslitakeppn- inni og húsfylli áhorfenda i Iþróttahúsinu að Laugum. Þeir voru heldur ekki sviknir, þar sem keppnin var lengst af mjög jöfn og skemmtileg. Þingeyingar náðu forystu 3'A—1 'A, en KR-ingum tókst að jafna á 8'A—8'A, og voru svo sterkari i síðustu glimunum. Beztúm árangri einstaklinga í sveitarkeppninni náði Þingeying- urinn Ingi Yngvason, sem tapaði engri glímu og hlaut 5 vinninga. Vinningar KR-inganna skiptust þannig að Jón Unndórsson hlaut 4 vinninga, Sigtryggur Sigurðsson og Rögnvaldur Ölafsson 3 vinn- inga, Ólafur Sigurgeirsson 2'A og Elías Arnason 1. Sundmeistaramótið Sundmeistaramót Islands 1975 fer fram i Sundlauginni í Laugar- dal dagana 23., 26. og 27. júli n.k. Alls er keppt í 25 greinum á meistaramótinu og þurfa þátt- tökutilkynningar að hafa borizt stjórn SSI á tímavarðakortum fyr- ir laugardaginn 19. júli. Á tíma- várðakortunum þarf að geta síð- asta löglega tíma á árinu, í 50 metra braut, en ef löglegur tími er ekki til, skal taka fram brautar- lengd og hvort um æfingatíma sé að ræða. Með þátttökutilkynning- um þarf svo að fylgja listi yfir þátttakendur ásamt fæðingarári þeirra og þátttökugjald sem er kr. 50,00 fyrir hverja skráningu þarf og að fylgja tilkynningunum. Niðurröðun i riðla, fer fram á skrifstofu SSI i íþróttamiðstöð- inni í Laugardal laugardaginn 19. júlí kl. 17.00 og er óskað eftir því að fulltrúar félaganna verði við- staddir. Keppnisgreinar á sundmeist- aramótinu eru eftirtaldar: Miðvikudagur 23. júlí kl. 20.00: 1500 m skriðsund karla 800 m skriðsund kvenna 400 m bringusund karla Laugardagurinn 26. júlí kl. 16.00: 100 m flugsund kvenna 200 m baksund karla 400 m skriðsund kvenna 200 m bringusund karla 100 m bringusund kvenna 100 m skriðsund karla 100 m baksund kvenna 200 m flugsund karla 200 m fjórsund kvenna 4x100 m fjórsund karla 4x100 m skriðsund kvenna. Sunnudagurinn 27. júlf kl. 15.00: 100 m flugsund karla 200 m baksund kvenna 100 m skriðsund karla 200 m bringusund kvenna 100 m skriðsund kvenna 100 m baksund karla 200 m flugsund kvenna 200 m fjórsund karla 4x100 m fjórsund kvenna 4x200 m skriðsund karla KR-INGAR ÍSLANDSMEIST- Islandsmeistara Víkings áfram, en hjá Víkingum hefur hann ver- ið undanfarin tvö ár. Pétur Bjarnason verður með Ármenn- inga, Gunnar Kjartansson með Gróttu, Ingólfur Óskarsson þjálf- ar Framara, Hilmar Björnsson með Val og Bjarni Jónsson mun áfram þjálfa og leika með nýlið- um Þróttar i 1. deild. Flest lið- anna í 1. deildinni eru þegar byrj- uð æfingar utanhúss. Félögin í 2. deild fara sér róleg- ar í sakirnar og fæst þeirra hafa gengið frá þjálfaramálum sínum. Geir Hallsteinsson verður með KR-inga og hafa þeir æft af krafti upp á síðkastið. Hermann Gunn- arsson verður að öllum líkindum með nýliða Leiknis f deildinni og Hilmar Björnsson næntanlega með lið IBK. örn Hallsteinsson, handknatt- leiksmaðurinn góðkunni úr FH, mun f vetur þjálfa lið Aftureld- ingar úr Mosfellssveit f 3. deild og ætlar Örn sér jafnframt að leika með liðinu. Sveit KR-sigurvegari I sveitarglfmu Islands 1975. Hfri röð frð vinstri: Jón Unndórsson, Sigtryggur Sigurðsson, Garðar Erlendsson og Rögnvaldur Gunn- laugsson, stjómarmaður i glfmudeild KR. Fremri röð: Rögnvaldur Ólafsson, Elias Árnason, Ólafur Sigurgeirsson. Á myndina vantar Ómar Úlfarsson sem keppti með KR-sveitinni á móti Vikverjum. Pele hefur aðdráttarafl New York Cosmos tapaði sfnum fyrsta leik sfðan Pele kom til félagsins s.l. föstudagskvöld. er það keppti við Los Angeles Aztecs f Terrance f Kalifornfu, og var það raunar meira en Iftill skellur sem félagið fékk, eða 1:5 tap. Pele skoraði fyrsta mark leiksins á 10. mfnútu, en þá tók Los Angeles-liðið heldur betur við sér, og var leikurinn algjörlega í þeirra höndum það sem eftir var, og bar mest á vestur-þýzka knattspyrnumann- inum Uri Bannhoffer sem skoraði þrjú mörk f leiknum. Svo virðist sem Pele hafi hleypt miklu Iffi F bandarfsku knattspyrnuna. Dagblöðin skrifa nú miklu meira um knattspyrnu en áður, og áhorfendum fer stöðugt fjölgandi einkum þó að leikjum New York Cosmos. Þannig voru áhorfendur t.d. um 37 þúsund talsins, er liðið lék við nágrannalið sitt f New York á dögunum, en þann leik vann Cosmos 9:1. Skoraði Pele 4 mörk f þeim leik. Ölafur Einarsson skorar f landslcik. Hann er fimmti fslenzki landsliðsmaðurinn sem mun dvelja f Þýzkalandi næsta vetur, og eru gárungarnir nú farnir að tala um að hægast verði að hafa landsliðs- æfingarnar þarlendis næsta vetur. Ólafur verður a.m.k. eitt ár hjá Dohnsdorf — Ég gerði samning við Þjóð- verja um að vera hjá þeim í eitt keppnistfmabif, en ef vel gengur er ég tilbúinn til að vera hjá Dohnsdorf lengur. Þetta sagði Ölafur Einarsson handknattlciks- maður úr FH, sem gert hefur samning við þýzka 2. deildar- félagið Dohnsdorf og byrjar æfingar með þeim í byrjun ágúst. Áður en sjálft keppnistímabilið hefst nuin liðið leika nokkra æfingaleiki og fara í áefingabúðir i hálfan mánuð til Austurríkis. Meðal liðanna sem Ólafur og hin- ir félagar hans í Dohnsdorf leika við áður en keppnistímabilið hefst er Hamburger SV-liðið sem Einar Magnússon úr Víkingi hyggst leika með næsta vetur. Ólafur lék einn æfingaleik með Dohnsdorf er hann dvaldi í V- Þýzkalandi fyrir skömmu og skoraði þá fimm mörk, þó svo að hann væri nýstigínn út úr flugvél- inni frá íslandi og því eðlilega lúinn eftir ferðalagið. Dohnsdorf er frá útborg Göppingen og því stutt á milli þeirra bræðranna Gunnars og Ólafs aðeins 15 minút- ur í bíl. Með Dohnsdorf-Iiðinu leika tveir fyrrverandi liðsmenn Göpp- ingen og landsliðsins. Mark- vörðurinn snjalli, Uwe Rathjan- en, leikur með liðinu og sömu- leiðis útispilarinn Eiseli. Sagði Ólafur að meira hefði þó verið talað um íslenzku leikmennina meðan hann hefði dvalið í Þýzka- landi og væri greinilegt að Þjóð- verjar biðu spenntir eftir að sjá til islenzku landsliðsmannanna fimm sem leika með þýzkum lið- um næsta vetur. — Geir Hall- steinsson er enn stórt nafn hjá þeim og ég var mikið spurður um hann, sagði Ólafur að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.