Morgunblaðið - 08.07.1975, Side 19

Morgunblaðið - 08.07.1975, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JULl 1975 27 Guðni Thorlacius skipstjóri—Kveðja Hinrik B. Jónsson frá Fáskrúðsfirði Fæddur 25. október 1908. Dáinn 22. maí 1975. Fyrstu kynni mín af Guðna voru niðri á Kveldúlfsbryggju hinni gömlu. Vorum við þar báðir að veiða smáufsa ásamt fleirum, því að þar var mikið að hafa stundum. Var mikið sótt þangað af minni borgurum. Átti Guðni þá heima á Vatnsstíg 10, að þvf er mig minnir, en ég aftur á móti á Klapparstíg 17, sem nú er. Var þá Ölafur G. Eyjólfsson nýbúinn að t'aka mig í fóstur. Var þetta árið 1916. Var Guðni þá ekki nema 8 ára gamall, en ég 6 ára, svo að við vorum ekki háir í loftinu þá, sízt ég. En þó komumst við leiðar okkar þrátt fyrir allt. Þessi fundur okkar Guðna á Kveldúlfs- bryggju leiddi til ævarandi kynna, allt til æviloka Guðna, þótt leiðir okkar hafi legið sín í hvora áttina. Á þeim dögum var nokkuð öðruvisi um að litast á Hverfis- götu en nú er. Ekki voru þá bifreiðarnar til þess að ónáða mann, og sást varla maður á farar- tæki, nema helzt á hjólhesti, ef svo mætti kalla, því að bændur kornu ekki til bæjarins nema á haustin með rollur sinar á lifandi fæti til slátrunar. Var því Hverfis- gatan notuð óspart til allra mögu- legra leikja, svo sem slagbolta, fótbolta og ýmissa annarra leikja. Voru þar að verki bæði kynin, bæði strákar og stelpur. Og gegn- um þetta kynntist ég mörgu fólki á þessum slóðum, enda var ég orðinn alþekktur á Hverfisgöt- unni af því fólki, er þar bjó þá, enda var faðir minn frægur maður á sínum tíma sem ljós- myndari. Fórum við Guðni oft saman, ef ekki á hverjum degi, i gömlu sundlaugarnar hjá Páli gamla, er kenndi okkur að synda. Var þá ekki verið að spara fæt- urna. Var farið í hvaða veðri sem var, þó að rigndi eldi og brenni- steini. Oft fékk maður aukavinnu á leiðinni inn eftir., því að Guðni var vel að manni. Keyrðum við hjólbörur fyrir gamla fólkið, sem sótti mikið i gömlu þvotta- laugarnar, ogýmislegt fleira. Man ég eftir Guðna, er hann fór sem hjálparmatsveinn á togarann Þórólf með Guðmundi i Nesi, er Kveldúlfur átti. Hafði ég fyrr kynnzt Sigþóri matsveini. En það var um borð i togaranum Snorra Sturlusyni, er Sigurður Guðbrandsson færði. Heimsótti ég þá oft Guðna um borð í Þórólf, en aðallega til að sníkja af honum kandíssykur, sveskjur og fleira. Man ég eftir Guðna i broddi fylk- ingar, er mótor og seglskipið Svöl- una rak á land í Rauðarárvíkinni ásamt seglskipinu Hugin síðar meir og mótor- og seglskipi sænsku, er var hlaðið eingöngu með Svea-eldspýtum frá Sviþjóð. Það rak á land i krikanum fyrir framan sænska frystihúsið. Var þá ekki neitt atvinnuleysi, er aðstoðað var við að bjarga eld- spýtunum. Var þá unnið nótt og dag. En ég held, að menn hafi ekki einu sinni fengið kaffisopa fyrir, hvað þá meira, enda voru erfiðir tímar þá, eftir fyrri heims- styrjöldina 1914 2. ágúst til 1. des. 1918. Hafði Guðni og ég unnió við þetta nær allan tímann, enda lið- ugri að klifra í stórgrýtinu en gömlu mennirnir í þá daga. Var þá nýstofnað fyrirtæki, er Lands- verzlun hét. Var fyrsti forstjóri þess Pétur Þ. Gunnarsson. Hafði Guðni orð á þvi, hvort við fengj- um ekki einhver laun fyrir vinn- una okkar. Lofaði Pétur Þ. Gunnarsson því, en sveik svo allt saman. Hugsaði hann meir um sjálfan sig en aðra í þvi sambandi. Man ég eftir, hvað Guðni var reiður yfir þessu. Væri nú hægðarleikur að segja margt fleira. En ég læt nú þetta nægja í þetta sinn. Liðu nú árin. Veturinn 1920 fór ég í Landakotsskólann. Ég byrjaði í fjórða bekk ásamt fleirum. Gerð- ist ég nú kaþólskur, og varð ég að stunda kirkjuna eftir mætti, enda var ég kórdrengur þar tæp fjögur ár, eða þar til ég var fermdur. Eftir skólann fór ég á Es. Goða- foss og var þar í mörg ár. Höfðum við Guðni nú samband okkar á milli eftir þetta, þegar ástæður leyfðu, bæði þegar hann var á vs. Ægi og ms. Artic, es. Columbus og fleiri skipum. Guðni kvæntist 18. apríl 1936 Margréti dóttur Ölafs Guðmunds- sonar bónda i Hjörsey á Mýrum og konu hans Þórdísar Boga- dóttur. Bjuggu þau öll sarnan að Ránargötu 33, og að Olafi látnum bjó Þórdís hjá þeim Guðna og Margréti til dauðadags. Þeim Guðna og Margréti fæddust þrjú börn: Ölafur Þór, sjókorta- teiknari og teiknikennari, kvæntur Jóhönnu Zoéga Jóhannesdóttur, hjúkrunarkonu. Guðfinna, gift Aðalgeiri Pálssyni verkfræðingi á Akureyri. Margrét kennari, gift Jóhannesi Sæmundssyni iþróttakennara. Barnabörn þeirra Guðna og Margrétar eru 8 að tölu. Ekkju hans, börnum hans og barnabörnum votta ég innileg- ustu samúð mina. — Hvili sál hans í friði. Pétur Pétursson stýrimaður. (sömand). Hann lézt í Landspítalanum 7. júni og var jarðsettur frá Foss- vogskapellu 18 s.m. Bjarni fæddist að Laugarbóli við Arnar- fjörð 10. október 1886. Foreldrar hans voru hjónin Jónína Jónsdótt- ir frá Kirkjubóli og Bjarni Bjarnason skipstjóri, en hann fórst í aftakaveðri vorið 1897, og varð Bjarni því föðurlaus frá 11 ára aldri. Hann varð þvi snemma að fara að vinna fyrir sér og hóf vinnu við sjómennsku svo fljótt sem kraftar leyfðu. Systkinin voru mörg, þeim hjónum varð 14 barna auðið, 7 þeirra náðu fullorðins aldri, en trygging ekkna sem misst höfðu fyrirvinnu sína var engin. Bjarni stundaði sjósókn vestanlands og sunnan reyndist hann dugandi og traust- ur sjómaður og þótti jafnan það rúm vel skipað þar sem hann var. Hinn 7. nóvember 1917 gekk Bjarni að eiga Sigríði Mariu Jóns- dóttur frá ísafirði, myndarlega, trausta og góða konu, sem hefur i hvívetna reynzt honum traustur förunautur. Þau eignuðust eina Hinrik fæddist í Fögruhlið á Eskifirði 14. júní 1885. Foreldrar hans voru Jón Guðmundsson tómthúsmaður og Þórdís Þórarinsdóttir. Hinrik sleit bernskuskónum á Eskifirði en hugiir hans leitaði snemma til sjós enda var hann mikill dugn- aðar-sjómaður. Sjómennsku stundaði hann mestan hluta ævinnar bæði á Austfjörðum og Suðurnesjum. Hann fluttist ung- ur frá Eskifirði til 'Fáskrúðs- fjarðar. Þar kynntist hann eigin- konu sinni Snjófríði Guðnadóttur. Þau bjuggu iengst af á Melstað í Búðum á Fáskrúðsfirði. Þau eign- uðust tvo syni, Jón og Elis. EIís drukknaði 23. febrúar 1953 aðeins 34 ára gamall. Hann lét eftir sig eiginkonu, Jóhönnu Gunnarstein, og dóttur, Mariu, sem búsett er i Sviþjóð. María lét sér mjög annt um afa sinn og dvaldist hann oft hjá henni þegar hún bjó á íslandi. Hinrik varð fyrir þungu áfalli 27. dóttur, Unni, sem gift er Sigurði Sigurjónssyni bifreiðarstjóra i Reykjavík. Þau Bjarni og Sigríður bjuggu á Isafirði til ársins 1948, en þá flutt- ust þau til Reykjavíkur. Þau keyptu sér íbúð í Efstasundi 2 og Framhald á bls. 35 janúar 1961, þegar eiginkona hans lést eftir langa og ástrika sambúð. Urðu þá þáttaskil í lífi Hinriks. Þá um vorið fluttist hann til Vestmannaeyja til Jóns sonar sins ogtengdadóttur sinnar Sigur- linar Olafsdóttur.Gamli maðurinn undi hag sínum vel í Vestmanna- eyjum, enda hugsuðu tengda- dóttir hans og sonur um hann af mikilli alúð. 1 Vestmannaeyjum vann hann í fiskvinnu til 85 ára aldurs. Sýnir það vel hve vinnu- samur og hraustur hann var. Hinrik var mjög músikalskur maður. Það var ósjaldan að hann tók fram harmonikkuna til að skemmta sér og öðrum, og siðast er hann skemmti þeim er dvöld- ust með honum á elliheimilinu á Sólvangi. Enn urðu þáttaskil i lifi Hinriks. 23. janúar 1973 er Vest- mannaeyjagosið varð, og hann varð að flýja eyjarnar ásamt öðr- um Vestmannaeyingum þá 87 ára gamall. Þetta var þungt áfall fyrir gamla manninn. Fyrst eftir gosið dvaldist hann á heimili mínu. Hann var þá sem endranær ávallt jafn léttur í lund, þótt háaldraður væri. Síðan fluttist hann á elli- heimilið Sólvang í Hafnarfirði. Þar naut hann hinnar bestu aðhlynningar. Það var í júní 1974 að Hinrik veiktist af þeim sjúk- dómi sem dró hann til dauða. Hann hafði legið rúmfastur í eitt ár þegar hann lést. Þá vantaði aðeins 3 daga að hann næði ní- ræðisaldri. Þegar við horfum á bak afa eftir langan og dug- mikinn lífsveg þá eigum við margs góðs að minnast. Megi Guð geyma minningu hans. Baldur Jónsson Minning: Bjarni Bjarnason frá Laugarbóli LJÓSRITUN é venjulegan pappir NASHUA DELTAI DELTA I — Brautryðjandi á íslandi, — yfir eins árs reynsla. DELTA I — Notar rúllu eða arkir — yðar eigin bréfsefni ef þér óskið. DELTA I — Sýningarvél. SUÐURLANDSBRAUT 10 — REYKJAVÍK — SÍMI 84900 —

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.