Morgunblaðið - 08.07.1975, Side 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JULI 1975
Conore-eyjar
vilja viður-
kenningu SÞ
I)ar Es Salaani. Moruni 7. júlí AP-Reuter.
MOLINACO, frelsishreyfing
Conore-eyjaklasans á Indlands-
hafi, sem lotið hefur Frökkum, en
lýst óvænt einhliða yfir sjálfstæði
sínu um helgina, hvatti í dag til
þess að sjálfsforræði þeirra yrði
viðurkennt af Sameinuðu þjóðun-
um og Einingarsamtökum Afríku-
ríkja. I yfirlýsingu frá aðalstöðv-
um Molinaeo i Dar Es Salaam
segir að Einingarsamtök-
in ættu að beita sér fyrir því að
Frakkar viðurkenni sjálfstæði
eyjanna, sem eru undan strönd
Tanzaniu. Þing eyjanna átti að
koma saman i dag til að setja
Ahmed Abdallah inn i embætti
þjóðhöfðingja. Fulltrúi frönsku
stjórnarinnar svaraði sjálfstæðis-
yfirlýsingunni með því að láta
herlög ganga i gildi, en aftur-
kallaði þau cftir aðeins þrjár
klukkustundir. Frönsk stjórnvöld
munu nú velta fyrir scr hvernig
bregðast skuli við ákvörðun eyjar-
skeggja.
Keith Rich-
ard tekinn
Ford.vcc, Arkansas 7. júlí — Rculcr
KEITH Richard, einn af liðs-
mönnum rokkhljómsveitarinnar
heimsfrægu The Rolling Stones,
var i fyrradag stöðvaður í bifreið
sinni af lögreglunni i bænum For-
dyce í Kansas og sakaður um
ógætilegan akstur og fyrir að hafa
vopn í fórum sinum. þ.e. veiði-
hnif. Richards, sem var á ferð
með starfsbróður sínum, Ron
Wood, og tveimur öðrum
mönnum þurftu að bíða í sjö
klukkustundir i ráðhúsi bæjarins
unz umboðsmaður hans kom á
vettvang og greiddi 162 dollara og
75 sent í sckt. Var þá haldið af
stað áieiðis til Dallas í Texas þar
sem Rolling Stones áttu að halda
hljómleika.
Skorzeny
er látinn
Madrid 7. júlt—AP
OTTO Skorzeny, ofursti í
SS—sveitum þýzku nasista-
stjórnarinnar, sem frægur
varð fyrir að bjarga Benito
Mussolini, einræðisherra á
Italíu, úr höndum bandamana
eftir fall Italíu i síðari heims-
styrjöldinni, lézt á laugardag á
Spáni að því er segir í blaðinu
Hoja del Lunes i dag. Skorzeny
sem var 67 ára að aldri, lézt úr
krabbameini. Hann var um
tíma kallaður „hættulegasti
maður Evrópu", en hafði búið
í kyrrþey á Spáni sem verk-
fræðingur frá því árið 1952,
eftir að hafa verið sýknaður af
ákærum um stríðsglæpi.
AP-mynd.
Óþekkt herskip — Óþekkt herskip, sem talið er vera sovézkt var ljósmyndað af danska
flughernum nálægt Borgundarhólmi. Engir einkennisstafir voru á skipinu, né heldur fánar. NATO-
sérfræðingar telja hins vegar að á skipinu sé 500 manna innrásarlið.
Indira
Hótaði IRA að sprengja
neðanjarðarlestir Lundúna?
London 7. iúll — AP
London 7. júll — AP
ÍRSKI lýðveldisherinn.
IRA, hótaði að sprengja i
loft upp neðanjarðarlestir í
Lundúnum á mesta anna-
tíma til þess að fá leynilegt
loforð frá brezku ríkis-
stjórninni um að hún
kallaði hersveitir sínar frá
Norður-Irlandi, að því er
brezka blaðið The Sun seg-
Fulltrúar Verkamanna-
flokksins á Evrópuþing
Ijuidon. Slrashourg. 7. júlí AP—Rculcr
I FYRSTA skipti síðan
Bretland gerðist aðili að
Efnahagsbandalagi
Evrópu fyrir tveimur og
hálfu ári taka nú þátt í
starfi Evrópuþingsins full-
trúar frá brezka Verka-
mannaflokknum. 18 þing-
menn flokksins flugu í dag
til Strasbourg til að sitja
þingfundi Evrópuþingsins
ásamt 17 öðrum fulltrúum
brezku sendinefndarinnar,
— 16 íhaldsþingmönnum
og einum úr Frjálslynda
flokknum. Þessi stefnu-
breyting Verkamanna-
flokksins fylgir í kjölfar
úrslita þjóóaratkvæða
greiðslunnar um áfram-
haldandi aðild Breta aó
EBE. Sameinuð brezk
sendinefnd þykir nú hafa
fært þingið skrefi nær því
marki að verða löggjafar-
þing sameinaðrar Evrópu.
Fulltrúi skozka þjóðernissinna
Gos á Hawaii
Washinglon 7. júlf — Rculcr.
MAUNA Loa-eldfjallið á Hawaii
hóf að spúa eldi og eimyrju um
helgina éftir 25 ára hvíldartíma.
Eldgosið, sem er á 5 km langri
sprungu, er ekki talið ógna
mannslífum.
flokksins fór ekki með sendi-
nefndinni, þar eð hann hafði ekki
verið látinn formlega vita um
ferðina. Með þátttöku fulltrúa
Verkamannaflokksins eru
sósílistar nú orðnir fjölmennasti
pólitíski hópurinn á Evrópuþing-
inu. Á þessum þingfundi verða
ræddar tillögur um aukið vald
þingsins, en hingað til hefur það
aðeins verið ráðgefandi aðili.
Jafngilda þessar tillögur nýrri
stofnskrá, sem gerir ráð fyrir að
þingið láti ekki aðeins til sín taka
takmörkuð viðfangsefni á efna-
hagssviðinu, heldur einnig utan-
ríkismál og jafnvel varnarmál.
ir i dag. Vitnar blaðið til
heimildarmanna I nánum
tengslum við æðsta ráð
IRA (,,provisional“-
armsins) og segir að
Merlyn Rees Irlandsmála-
ráðherra hafi gefið fyrr-
nefnt loforð í febrúar.
Sun segir að Rees hafi v^rið
tregur til að gefa leynilegt loforð
af þessu tagi, en gert sér grein
fyrir þvi að ógerlegt væri að koma
I veg fyrir að hermdarverkamenn
kæmust í gegnum öryggisnet í
neðanjarðarbrautunum sem
flytja milljónir farþega dag
hvern.
Rees hefur hvað eftir annað
neitað því að hafa gefið IRA lof-
orð um að kalla heim brezku her-
sveitirnar. Hann neitaði einnig í
dag að staðfesta fréttina í Sun.
Norður-Irlandsmálaráðuneytið
sagði í yfirlýsingu: „Margar
hótanir hafa komið frá mörgum
aðilum á Norður-Irlandi undan-
farin ár“, en skýrði málið ekki
frekar.
brýnir
atvinnu-
rekendur
Nýju-Delhi 7. júlf—AP
INDIRA Gandhi forsætisráðherra
Indlands varaði I dag stjórnendur
indverskra stórfyrirtækja við þvl
að veita viðnám viðleitni hennar
til að rétta við efnahag landsins,
ella sæti þeir þungum refsingum.
Hún kvaddi helztu forustumenn
stórfyrirtækjanna á fund þar sem
hún tilkynnti þeim að hún Iegði
áherziu á að hleypt yrði nýju lífi í
atvinnuvegina og framleiðslan
aukin og krafðist þess að þeir
legðu þar sitt af mörkum. Fyrir
tveimur dögum hélt hún sams
konar fund með helztu verkalýðs-
leiðtogum landsins, og kveðst hún
hafa fengið stuðning þeirra.
Hún sagði stjórnina taka tillit
til erfiðleika atvinnuveganna, en
mundi hins vegar refsa harðlega
þeim sem uppvísir verða að til-
raunum til að draga úr fram-
leiðslu. Hún tilgreindi ekki nánar
hvers eðlis slík refsing yrði.
IndiraGandhi lagði einnig áherzlu
á aukinn aga og hreinlæti meðal
Indverja og að sögn talsmanns
hennar tóku forustumennirnir
vel í það.
Wallenberg
segir af sér
DR. MARCUS Wallenberg,
einn helzti bankafrömuður og
fjármálamaður Svfþjóðar,
mun segja af sér formennsku I
Skandinavisk Enskilda
Banken, einum af stærstu
bönkum landsins, á ársfundi
bankans á næsta ári, að þvf er
segir I fréttum frá Stokkhólmi.
Dr. Wallenberg, sem er 75 ára
að aldri, hefur verið I forystu
innan viðskipta- og fjármála-
Iffsins I Svfþjóð I marga ára-
tugi. Við formennskunni tekur
Lars-Erik Thunholm, yfir-
bankastjóri bankans.
SAIGONBUUM
STEFNT TIL
ER NU
SVEITA
Saigon 7. júlí—NTB
tBÍJAR f Saigon, þar sem offjölg-
un hefur átt sér stað að undan-
förnu, eiga nú í miklum mæli að
snúa aftur til sveitahéraðanna til
þess að koma f veg fyrir hung-
ursneyð. Byltingarstjórnin hefur
hafið umfangsmikla herferð f
þeim tilgangi að hvetja fólk til
að flytja til hrísgrjónaræktar-
svæðanna til þess að auka fram-
leiðsluna.
Q Þá hafa yfirvöld byrjað að
opna verzlanir í öllum hverfum
höfuðborgarinnar, þar sem hrls-
grjón eru seld, ásamt öðrum
nauðsynjavörum, á lágu verði.
Fyrrnefnd herferð fer meðal
annars fram fyrir tilstilli bylt-
ingarnefnda í einstöKum hverf-
um, en er fylgt eftir í dagblöðum
og útvarpi. Sérstakir bílar aka um
göturnar og flytja þennan boð-
skap um gjallarhorn.
Talið er að í Saigon séu nægar
birgðir hrísgrjóna til að fæða
íbúana fram til hausts, en engu að
síður hefur reynzt erfitt fyrir
fátæklinga og atvinnuleysingja að
fá hrísgrjón. Bágstaddar fjöl-
skyldur fá ókeypis hrisgrjóna-
skammta en yfirvöld líta svo á, að
eina leiðin til að bægja frá
hungursneyð og atvinnuleysi til
lengri tíma sé að fækka borgarbú-
um stórlega og auka framleiðsl-
una.
Kambódíumenn sagðir
notaðir sem dráttardýr
ILLA haldnir Kambódfubúar eru
nú neyddir til að draga plóga frá
morgni til kvölds af Rauðu
Khmerunum, þar eð skortur er á
uxum f landinu, að því er brezka
blaðið The Times hefur eftir UPI-
fréttastofunni. UPI byggir frétt-
ina á upplýsingum ungs flótta-
manns, Nordom Vorapong, fjar-
skylds ættingja Norodom
Sihanouks fursta, sem flúið hefur
til thailenzka landamærabæjar-
ins Aranyaprathet. Segir Vora-
pong að Rauðu Khmerarnir hafi
sent sig til að vinna á bóndabæ I
heimasveit sinni og neytt sig til
að vinna látlaust frá sólarupprás
til sólseturs ásamt fleira fólki.
Hafi Rauðu Khmerarnir beitt
fólki fyrir plógana. Hver maður
hefði aðeins fengið eina krús af
hrísgrjónum á dag, sem þar að
auki hefðu verið drýgð með því að
gera úr þeim graut. Vorapong er
nú á sjúkrahúsi í landamærabæn-
um meiddur á fótum og ofkeyrð-
ur. Hann kvaðst hafa heyrt marg-
ar sögur um fjöldamorð, en gæti
ekki staðfest þær, þar eð hann
hefði engar sannanir séð.
FHIACION
PERSONAL DESCBÍFTION
Códu'a do Identldad .1.3MAQl.
ldBntíflC3tlon CBrd
NaclonðHdðd GHjImmí I
Nstlonallty
N»cldo «« ..:/..Z.i
Dðto of blrth
um> civii ........S9.J-TMX.Q
Möfitai slatu3
P.ofcsión J..A&.fjAÍ£Afi..................
rrofttðslon
...............
Adórtss,
Oh3*rvacione< .......................
O M: 73584 8 w* *
F I L I A C I O N
PERSONAL DESCRIPTION
OKRTO PULGAR
tnum8 m*r
FIRMA DEL TITUIAR
SIGNA7URE OF BEARER
AP—mynd
Sjakalinn — Myndin sýnir vegabréf, sem fannst f íbúð f London
fyrir helgina og er talið tilheyra Carlos þeim eða „sjakalanum“,
sem lögregluyfirvöld víða um lönd leita nú vegna morða á gagn-
njósnurum I Parfs fyrir skemmstu. Maðurinn mun heita réttu nafni
Ilich Ramirez Sanchez og vera frá Venezueia. Hann er talinn starfa
I tengslum við ýmis hermdarverkasamtök.