Morgunblaðið - 08.07.1975, Síða 28
NÚ EINNIG
NÝ VERSLUN
í HAFNARSTRÆTI 17
- mvndiðian^
ASTÞORhf
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RflfTORG SÍMI 26660
RAFIÐJAN SÍMI 19294
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLl 1975
Viðræður ÍSALs
og rafvirkja hafnar
VIDR/EÐUR forráAa manna
ISALs og rafvirkjanna, sem
felldu samkomulagið sem ISAL
gerði við starfsfólk álversins f
Straumsvík, hófust á sunnudag og
var fram haldið í gær. Er Mbl.
hafði spurnir af viðræðum í gær,
höfðu samningar ekki tekizt og
því engin lausn fengin á
deilunni. Rafvirkjarnir höfðu
ekki hoðað verkfall, en verkfalls-
hoðun mun í bfgerð, þar sem
óskað hefur verið eftir henni af
hálfu rafvirkjanna hjá ISAL.
Norska sjónvarpið
í Reykjavík í gær
NORSKA sjónvarpið sást nokkuð
greinilega í Reykjavfk f gær-
kveldi og heyrðist einnig það sem
Veðurguðirnir
við sama hey-
garðshornið
VEÐURGUÐIRNIR munu vfst
hafa f hyggju að sýna lands-
mönnum sunnan hciða sömu
óhilgirnina og undanfarið
meðan Norðlendingar verða
eftir sem áður f náðinni.
Ef marka má 2ja daga spá,
sem Veðurstofu Islands barst
frá brezkum veðurfræðingum í
gær, og íhuganir fslenzkra
starfsbræðra þeirra þann sama
dag, stefnir allt í það að hæg
suðvestlæg átt verði ríkjandi
hér á landinu allt til miðviku-
dagskvölds og þar af leiðandi
óbreytt veður að mestu. Þess
er jafnvel að vænta aö heldur
kólni í veðri á vestanverðu
landinu f bili.
1 gærdag var hið fegursta
veður á Austurlandi og
Norðurlandi. Um þrjú-leytið í
gær var t.d. 18 stiga hiti á
Eyvindará við Egilsstaði og 16
stig á Akureyri.
Uti fyrir Húnaflóa er á hinn
bóginn töluvert íshrafl, sem
losnað hefur frá meginísnum,
Framhald á bls. 35
fram fór. Samkvæmt upplýsing-
um Siguröar Þorkelssonar, yfir-
verkfra'ðings hjá Landssfmanum,
kcmur þetta einstöku sinnum fyr-
ir og truflar þá gjarnan móttöku
íslenzka sjónvarpsins og þá eink-
um norðanlands, þar sem notuð
er rás 3, en fyrirbrigðið kemur
fram á rás 2, 3 og 4.
Framhald á bls. 35
Grunsamlega mörg læknis-
vottorð vegna sólarferða
- með heiðnum um lengri ferðir en almennt eru leyfðar
„ÞAÐ er ekki laust við að okkur
sé farið að þykja óeðlilcga mikið
sótt um undanþágur til lengri
sólarlandafcrða en tveggja vikna
að læknisráði og með framvfsan
læknisvottorðs," sagði Ingólfur
Þorstcinsson, forstöðumaður
gjaldeyrisdeildar bankanna, í
samtali við Morgunblaðið í gær,
er hann var spuröur um þessi
mál. Taldi hann, að það færi f
vöxt, að fólk framvísaði læknis-
vottorðum til að fá framlengingu
á sólarferðunum, en sem kunnugt
er hafa gjaldeyrisyfirvöld
tilkvnnt að ferðaskrifstofunum sé
óheimilt að selja lengri sólar-
landaferðir en tveggja vikna.
Ingólfur taldi sig ekki geta
nefnt ákveðna tölu um fjölda
þeirra tilvika, sem að ofan eru
nefnd, en þau væru þó án efa
komin á annað hundraðið, og
munaði þar mest um 70 manna
hóp exemsjúklinga og ýmissa ann-
arra sjúklinga, sem fóru í þriggja
vikna ferð fyrir skömmu. Er hann
var spurður um þá sjúkdóma, sem
helzt væru tilgreindir á iæknis-
vottorðunum, sagði Ingólfur, að
oftast væri um húðsjúkdóma að
Kristján Davfðsson talar við Ragnar Jónsson og
fyrstnefnda sfðastliðinn sunnudag. Sjá frétt á bls. 2.
konu hans Björgu á „lokaðri" sýningu hins
ræða, en annars væri um alls
konar sjúkdóma að ræða.
Framhald á bls. 35
Ljósmji’riðþjófur.
LANDSLEIKURINN —
Sænskur Ifnuvörður skipar
Tony Knapp landsliðsþjálfara
Islands að yfirgefa völlinn f
landsleiknum við Norðmenn f
gærkvöldi. Þetta gerðist eftir
að Norðmenn höfðu skorað úr
mjög umdeildri vftaspyrnu.
Var Knapp hinn reiðasti eins
og flestir aðrir vallargestir yf-
ir dómnum. Leiknum lauk 1:1
og skoraði Arni Sveinsson
mark tslands. Nánar segir frá
leiknum í opnu ílþróttablaðs
Morgunblaðsins f dag.
Sovézkt sendiráðsfólk
slasaðist í bílveltu
JEPPABIFREIÐ frá sovézka
sendiráðinu valt út af Vestur-
landsvegi við bæinn Kiðafell f
Kjós laust eftir hádegi á sunnu-
daginn og slösuðust 6 manns af
þeim sjö sem f bifreiðinni voru,
þar af einn mjög alvarlega.
Jeppabifreiðin var blæjubifreið
og er hún valt á hvolf, lagðist
húsið saman með þeim afleið-
ingum, sem að ofan greinir. Telja
fróðir menn, að ef veltigrind eða
sterkari yfirbygging hefði verið á
bifreiðinni hefði vart nokkur sem
í henni var hlotið meiðsli í velt-
unni, þar sem bifreiðin mun hafa
verið á lítilli ferð og langt út í
vegarbrún.
Samkvæmt upplýsingum Hjalta
Sigurbjörnssonar bónda á Kiða-
felli og fréttaritara Mbl. var fram-
koma Rússanna á slysstað mjög
sérkennilega og þeir ráðvilltir
mjög. Þótt kallað hefði verið á
sjúkrabil, auk lögreglu, gáfu þeir
sér ekki tima til að bíða, heldur
drifu hina slösuðu upp i annan bíl
sendiráðsins, sem kom á staðinn
rétt eftir að slysið varð. Var hin-
um slösuðu siðan ekið til borgar-
Bíl stolið
Á föstudagskvöldið eða aðfara-
nótt laugardags var gulbrúnum
Opel Rekord statioij-bíl stolið
frá Skaftahlíð 28 í Reykjavík.
Einkennisstafir bílsins eru G-
4068 og er bíllinn af árgerð 1963.
Þeir, sem kynnu að geta gefið
upplýsingar um ferðir bílsins frá
því á föstudagskvöld, eða hvar
hann er nú að finna eru beðnir að
láta rannsóknarlögregluna f
Hafnarfirði vita.
innar og þar á slysadeild. Aðrir
Rússar, sem á staðnum voru, voru
síðan fluttir á brott í þremur bil-
um sem komu þar að skömmu
seinna. Voru tveir Rússar i hverj-
um þeirra en enginn þeirra bíla
var merktur sendiráðinu.
Hjalti bauð Rússunum að setj-
ast inn í sinn bíl, á meðan beðið
væri, en þeir þáðu það ekki, nema
hvað þrjú börn settust í aftursæti
bílsins. Er lögreglan kom á stað-
inn vildu Rússarnir ekkert við
hana segja, nema það, að fulltrúi
sendiráðsins kæmi bráðum og
•myndi svara spurningum lögregl-
unnar. Sjúkrabíllinn varð að fara
Framhald á bls. 35
Leirgos í
Kverkfjöllum?
SAMKVÆMT frásögn frétta-
ritara Mbl. á Egilsstöðum,
Steinþórs Eirfkssonar, var ný-
lega farið inn I Kverkfjöll og
vegurinn þangað allur heflað-
ur. Er nú fært í Kverkfjöll
fyrir 2ja drifa bíla. I Kverk-
fjöllum er skáli, sem rúmar 50
til 60 manns.
Steinþór sagði að ishellirinn,
sem fallið hefði saman í fyrra,
væri nú kominn í sitt fyrra
horf. Þá virðist einnig hafa
orðið eitthvert jarðrask í
Hveradal vestan f Kverkafjöll-
um, en þar er snjór allur leir-
litaður — að sögn Völundar
Jóhannessonar, sem þekkir
mjög vel til á þessum slððum.
Sagði Stcinþór að svo virtist
sem þarna hefði orðið leirgos
cða eitthvað slfkt f vetur.