Morgunblaðið - 19.07.1975, Blaðsíða 20
Ai:C»LY'SINC*ASÍMINN ER:
22480
ífior0uubt«öií)
al(;i.VSinc;asimi\n er:
22480
JH*rflrmbt«t>it)
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JULI 1975.
Beinagrindarinálið:
Upplýsinga afl-
að um hvarf
Olafsvíkingsins
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
vinnur stöðuj't að upplýsinRaöfl-
un f sambandi við mannshvarfid i
Rcykjavfk haustið 1930, ef það
mætti verða til þess að tengja það
enn meir við heinagrindarfund-
inn við Faxaskjól á dögunum.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hlaðsins er mjög margt svipað
með manni þeim sem þá hvarf,
fimmtugum Ólafsvíkingi, Svein-
birni Jakobssyni, og hugmyndum
sérfræðinga um manninn sem
beinagrindin er af.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Morgunblaðiö aflaði sér í gær
var Sveinbjörn formaður á eigin
Lagaprófessor
sker úr um
eignarréttinn
SAMKOMULAG hefur náðst
milli erfingja Jóhannesar Kjar-
vals og menntamálaráðuneytisins
um að fela Gauki Jörundssyni
lagaprófessor að skera úr um
eignarréttinn að myndum þeim,
sem Kjarval málaði á veggfóður í
vinnustofunni, sem hann hafði
lengi á leigu í Austurstræti 14.
Ekki hafa verið sett nein tíma-
mörk fyrir Gauk að ljúka þessu
verki, og er raunar skammt síðan
þessi ákvörðun var tekin, að sögn
Knúts Hallssonar skrifstofustjóra
í menntamálaráðuneytinu.
bát í Ólafsvík og þótti hörku-
duglegur sjósóknari. I október
1930 (ekki 1929 eins og stóð i
blaðinu í gær) brá hann sér tii
Reykjavikur. Mun hann hafa
verið með töiuverða peninga und-
ir höndum. Siðast sást til hans er
hann fór út úr bifreið við Sauða-
gerði í Reykjavík um kvöldmatar-
leytið 9. október. Eftir það spurð-
ist aldrei neitt til Sveinbjarnar og
ekkert fannst sem honum til-
heyrði nema höfuðfat sem hann
bar. Þótti hvarf Sveinbjarnar æði
dularfullt á sínum tíma. Þess skal
getið, að Sauðagerði stóð u.þ.b.
þar sem nú eru vegamót Viðimels
og Kaplaskjólsvegar en þegar
Sveinbjörn hvarf var byggð strjál
á þessum slóðum.
SNEMMA BEYGIST KRÓKUR. — „Það er alveg sama þótt talað sé um kvennaár
og svoleiðis, við ætlum bara að passa börnin okkar,“ gætu þær verið að segja,
þessar tvær, sem ljósmyndari Mbl.,Br. H., mætti á dögunum.
Engar varnir gegn gróður-
skemmdum birkifiðrildisins
— sem er líklegur skaðvaldur í Þingeyjarsýslu
LlKUR eru á, að gróður-
skemmdirnar á beitilöndum I
Þingeyjarsýslu, sem sagt var frá í
Morgunblaðinu f gær, séu af völd-
um svokallaðra hirkifiðrilda, en
bæði sl. sumar og nú I sumar
hefur orðið vart óhemju mikils
G j aldeyrisstaðan
enn á batavegi
Gjaldeyrisstaða lands-
manna batnaði í júní-
mánuði um 101 milljón
króna og er það þriðji
mánuðurinn í röð sem
staðan fer batnandi, að
því er Morgunblaðinu
var sagt hjá Seðla-
bankanum í gær.
Á fyrstu sex mánuðum
ársins versnaði gjald-
eyrisstaðan um 3930
milljónir króna en hafði
versnað um 6167 milljón-
ir — miðað við sama
gengi — á fyrstu sex
mánuðum ársins í fyrra.
I lok júnímánaðar er
nettó gjaldeyrisstaðan
neikvæð um 1523
milljónir króna.
magns af þessum fiðrildum á 60
ferkflómetra svæði, þar sem nú er
nánast allur gróður dauður. Sig-
urður Richter dýrafræðingur
hefur ættgreint þessi fiðrildi, en
þau verða nú send til nánari at-
hugunar á Norðurlöndum.
Ef þessi fiðrildi eru skaðvald-
urinn mun ómögulegt að stöðva
gróðurskemmdirnar með sérstök-
um aðgerðum og verða menn þvf
að vona að þetta deyi út af sjálfu
sér. Þess eru dæmi frá norður-
hluta Skandinavfu að fiðrildi
þessi hafi eytt gróðri á stórum
svæðum og fengu menn ekkert að
gert. Þar varði slfkt eyðingar-
ástand frá einu ári og upp í þrjú
ár, að sögn Sigurðar Richter f
samtali við Mbl. f gær.
Á hinum viðfeðmu dauðu
gróðursvæðum í Þingeyjarsýslu
er allur fjalldrapi, lyng og kjarr-
gróður skemmdur og landið svart
yfir að lita en lirfur þessara
fiðrilda lifa einkum á blöðum
birkis, fjalldrapa, bláberjalyngs
og viðis.
Sýnishorn af fiðrildum og púp-
Hæsta salan 1 Danmörku:
Gísli Árni seldi fyrir
sex milliónir króna
FA sfldveiðiskip erunú að veiðum
f Norðursjó, en þau fáu íslenzku
skip, sem þar eru, fá yfirleitt
mjög gott verð fyrir aflann þegar
þau landa f Danmörku. Gfsli Árni
frá Reykjavík seldi 85.4 lestir f
Hirtshals í fyrradag fyrir rösk-
lega 6 milljónir fsl. króna og er
þetta hæsta heildarsala f krónum
talið, sem fslenzkt sfldveiðiskip
hefur fengið f Danmörku. Þess
ber þó að gæta, að miklar breyt-
ingar hafa orðið á gengi fslenzku
krónunnar frá þvf f fyrra og hitt-
eðfyrra, og hafa skipin fengið
hærra verð f dönskum krónum
nokkrum sinnum áður. Þessi sala
Gfsla Árna, er sú langhæsta, sem
íslenzkt skip hefur fengið í Dan-
mörku á þessu ári. Meðalverðið
sem Gfsli Arni fékk pr. kfló var
kr. 68.30.
Tvö silveiðiskip seldu í Dan-
mörku í gær. Voru það Hrafn
Sveinbjarnarson frá Grindavík,
sem seldi 34.5 lestir fyrir 1.6
millj. kr. og var meðalverðið kr.
44.12 og Skarðsvfk frá Hellis-
sandi, sem seldi 57,3 lestir fyrir 4
millj. kr. Meðalverðiö var kr.
65.19.
um komu að norðan til Reykjavík-
ur í gær og hóf Sigurður Richter
þegar athugun á þeim. í viðtali
við Morgunblaðið sagði Sigurður
að fiðrildin væru af fetara-
fiðrildaættinni (geometridae), en
af þeirri ætt eru um 15 teg.
þekktar hérlendis og margar
mjög algengar.
„Fiðrildi þessi eru í daglegu tali
nefnd birkifiðrildi." sagði Sigurð-
ur,“ en það er erfitt að greína
fiðrildi af þessari ætt til tegunda
og tæpast. á færi annarra en
þeirra, sem hafa sérhæft sig í
slfkri greiningu. Fiðrildin verða
nú send utan til nákvæmari grein-
ingar, en lirfur þessara fiðrilda
lifa einkum á blöðum birkis, fjall-
drapa, bláberjalyngs og vfðis. Er-
lendis frá eru dæmi þess, t.d. í
norðurhluta Skandinavíu, að fiðr-
ildum þessum fjölgi svo að þau
eyði gróðri á stórum svæðum. Fer
það mikið eftir veðurfari og í slík-
Framhald á bls. 19
Jtlovjjunblabiíi
AÐ ÞESSU sinni fylgir Lesbók
ekki með blaðinu. Hún kemur
ekki út um þessa helgi og fell-
ur útkoma hennar einnig
niður tvær næstu helgar. Er
það vegna sumarleyfa. Næsta
blað Lesbókar mun koma út
laugardaginn 9. ágúst.
Ekki enn samið
um sölu á saltsíld
Viðræðum haldið áfram
GUNNAR Flóvenz, framkvæmda-
stjóri Sfldarútvegsnefndar, er nú
nýkominn heim úr viðræðuferð
við ýmsa sfldarkaupendur f
Evrópu, vegna fyrirhugaðrar
haustsöltunar á sfld. Morgun-
blaðið hafði samband við Gunnar
f gær og f stuttu viðtali kom fram,
að ekki tókust neinir ákveðnir
samningar f þessari ferð, en
viðræðum er haldið áfram.
Gunnar Flóvenz sagði, að hann
gæti ekki sagt annað en það, að
viðræður hefðu farið fram við
síldarkaupendur í hinum ýmsu
löndum. Hér heima hæfust fundir
i Sfldarútvegsnefnd á mánudag-
inn og myndu þeir fundir standa
fram eftir vikunni. Þá yrði að
líkindum haldinn fundur með
fulltrúum síldarsaltenda, út-
gerðarmanna og sjómanna, — en
þvf miður er ekkert hægt að upp-
lýsa um hvernig málin standa
fyrr en í fyrsta lagi að loknum
þeim fundb — en viðræður munu
engu að siður halda áfram við
kaupendur í millitiðinni, sagði
Gunnar.
Skattamir í
næstu viku
SAMKVÆMT upplýsingum
Skattstofunnar í Reykjavfk er
nú gert ráð fyrir að skattskrá-
in verði lögð fram hinn 25. júlí
næstkomandi. Aftur á móti
munu álagningarseðlarnir
hafa borizt skattstofunni á
mánudaginn og verður þá
strax byrjað að senda þá út.
Ættu allir seðlarnir að vera
komnir út f vikulokin.