Morgunblaðið - 26.08.1975, Page 15
Bræðurnir Ólafur „Hamar“ og Gunnar Einarsson.
Ólafur
skoraði
10 mörk
ÓLAFI Einarssyni hefur gengið mjög
vel hjá slnu þýzka liði, Dohnsdorf, en
með þvlhefur hann æft og leikið að
undanförnu. í slðasta leik liðsins,
sem var gegn sterku 1. deildarliði,
skoraði Ólafur 10 mörk úr 12
skotum og vakti frammistaða hans
mikla athygli. Eftir leikinn rigndi
hamingjuóskunum yfir Ólaf og
þjðlfari Göppingen sagðist harma
það að Ólafur hefði ekki komið til
hans félags.
Almennt er búist við þvl að
Dohnsdorf sigri I 2. deildinni I ár og
leiki þvl I þeirri fyrstu á næsta
keppnistlmabili. Göppingen er hins
vegar I einhverjum öldudal, en með
þvl félagi leikur Gunnar Einarsson og
er hann einn sterkasti leikmaður
liðsins. Lið þeirra bræðra eru frá
sama stað og venjan hefur verið sú
að Göppingen hefur dregið til sin
mun fleiri áhorfendur. T.a.m.
fylgdust 2500 manns með leiknum
gegn 1. deildarliðinu, en búist hafði
verið við 1000. Eftir leikinn hrósuðu
blöðin Ólafi á hvert reipi og kalla
hann „Hamarinn".
Engin kæra
1 „kærumálinu”
ALLT útlit er nú fyrir að „kæru-
málið“, sem svo mikið var talað
um f sfðustu viku, verði alls
ekkert kærumál. Hafa bæði Vest-
manneyingar og FH-ingar ákveð-
ið að kæra Skagamennina ekki
vegn Harðar Helgasonar, sem af
ýmsum er talinn ólöglegur leik-
maður með Akranesliðinu. Fram-
arar hafa enn ekki tekið endan-
lega ákvörðun um hvað þeir gera
f málinu, en það var á Frömurum
að heyra á sunnudaginn að þá
fýsti ekki að kæra til að ná f stig.
Hins vegar eru uppi raddir
innan félagsins um að rétt sé að
kæra vegna þess að Framarar
hafi á sfðasta sumri verið kærðir
vegna svipaðs máls, en þá höfðu
stjórnarmenn úr KSl gefið grænt
Ijós á að Elmar Geirsson léki með
Fram og sagt að hann þyrfti ekki
að útfylla eyðublöð um félaga-
skipti. Þegar á reyndi kom þó I
ljós að leikmaðurinn var dæmdur
ólöglegur með Fram. Munu
Framarar væntanlega taka um
það ákvörðun f dag, hvað þeir
gera f málinu.
Knötturinn er á leið f net Vopnfirðinga og hvorki markverði né varnarmönnum Einherja tókst að koma
við vörnum. Fylkismaðurinn á miðri myndinni er Ólafur Brynjólfsson fyrrum Þróttari, fjær má sjá Jón
Sigurðsson, sem lék með KR hér á árum áður.
Þrjú lið jöfn í úrslitakeppni þriðju deildar og
enn eykst hausverkur Mótanefndar
AÐ sjálfsögðu er ævinlega gaman
að jafnri keppni og skemmtilegri
baráttu, eins og var f úrslita-
keppni þriðju deildar um sfðustu
helgi. Sjálfsagt eru þó einhverjir
óánægðir með að ekki skyldu fást
hrein úrslit f a-riðli og þeirra á
meðal eru án efa Mótanefndar-
mennirnir, sem nú verða enn
einu sinni að setjast niður og
finna heppilega leikdaga fyrir
Iiðin. KA frá Akureyri, Stjarnan
úr Garðahreppi og Fylkir úr
Arbæjarhverfi urðu öll jöfn f a-
riðli og þar sem markatala gildir
ekki verða liðin þrjú að leika sfn
á milli um réttinn til að leika f
úrslitunum gegn Þór frá Akur-
eyri, sem vann B-riðiIinn. Vann
Þórsliðið báða leiki sfna, en
Isfirðingarnir urðu númer tvö í
riðlinum.
tJrslit leikjanna f úrslitakeppn-
inni urðu þessi:
A-riðill:
KA — Fylkir 1:1
KA — Stjarnan
KA — Einherji
Fylkir — Stjarnan
Fylkir — Einherji
Stjarnan — Einherji
B-riðilI:
Þór — ÍBÍ
Þór — Þróttur
IBI — Þróttur
Staðan í riðlunum varð því þessi:
A-riðill:
Fylkir 3 1 2 0 7:1 4
KA 3 1 2 0 6:2 4
1:1 Stjarnan 3 12 0 4:2 4
4:0 0:0 Einherji B-riðilI: 3 0 0 3 1:13 0
6:0 Þór 2 2 0 0 5:2 4
3:1 IBI 2 10 1 3:3 2
3:2 Þróttur 2 0 0 2 0:3 0
2:0 Eins og kunnugt er verður
1:0 fjölgað í 1. og 2. deild á næsta ári
ISLENDINGARNIR KOMUST EKKI
Á YERÐLAUNAPALL Á NM í SUNDI
ÞRlR Islendingar voru meðal
keppenda á Norðurlandamót-
inu f sundi, sem fram fór f Abo
f Finnlandi um helgina. Voru
það þau Þórunn Alfreðsdóttir,
sem keppti f flugsundi og löngu
skriðsundunum, Guðmundur
Ólafsson f bringusundi og Sig-
urður Ólafsson, sem keppti í
skriðsundi. tslendingarnir
komust ekki á verðlaunapall f
neinni af greinunum, en ekki
er enn vitað um árangur þeirra,
þannig að vel getur verið að
þeim hafi tekizt að bæta gild-
andi lslandsmet f einhverjum
greinanna.
Svíar voru hinir sterku á mót-
inu og hfutu alls 22 gullverð-
laun af þeim 30 sem um var
keppt. Norðmenn urðu 5
sinnum f efsta sæti og Danir
þrisvar sinnum. Bengt Gingsjö
frá Svfþjóð var maður þessa
móts. en hann setti tvö Norður-
landamet á mótinu, synti 100
metra flugsund á 58,17 og 200
m skriðsund á 1:55,11. 1 200 m
baksundi kvenna setti norska
stúlkan Bente Eriksen Norður-
landamet er hún synti á
2:26,29. Auk þessa voru svo sett
mörg landsmet á mótinu,
norsku metin urðu t.d. fimm og
vonandi gctum við sagt frá Is-
landsmeti eða metum f blaðinu
á morgun.
og eiga því þrjú lið úr 3. deild
möguleika á að flytjast upp í 2.
deild, en að minnsta kosti tvö lið
úr „Kjallaranum" fara upp.
Til að úrslit fáist í deild-
inni þarf.fyrst að ljúka auka-
keppninni i a-riðli og fer
fyrsti leikurinn f aukakeppn-
inni fram nú í vikunni á
milli Fylkís og Stjörnunnar. Um
næstu helgi er svo ætlunin að
hinir tveir leikirnir fari fram, en
enn hefur ckki verið ákveðið hvar
eða hvenær þeir fara fram. Að
þeim leikjum loknum fer fram
úrslitaleikurinn i 3. deild, siðan
leikur um þriðja og fjórða sætið
og þá er Ioks komið að keppninni
á milli liða númer 2 og 3 í þriðju
deild, við botnliðið í 2. deild,
Víking frá Ólafsvík.
Fyrsta frjálsiþrótta-
mót Skautafélagsins
Skautafélag Reykjavfkur gengst fyrir sfnu fyrsta frjálsíþrótta-
móti 27. ágúst, og þar sem eini frjálsfþróttamaðurinn f Skautafélag-
inu er Erlendur Valdimarsson, verður aðeins keppt f kastgreinum.
Keppnisgreinar þann 27. verða kúluvarp, spjótkast og kringlukast
og til að keppnin gángi fljótt fyrir sig hefur SR sett lágmörk fyrir
keppendur, 14 m í kúluvarpi, 55 m í spjótkasti og 42 m í kringlu-
kasti. Keppnisstaður er kastvöllurinn f Laugardal og hefst keppnin
klukkan 17.15.
29. ágúst verður keppt f kringlukasti og spjótkasti á sama stað og
hefst keppnin þann dag klukkan 18.10. Laugardaginn 30. ágúst
verður svo keppt á Melavellinum og hefst keppnin þá klukkan
11.30. Keppt verður f kúluvarpi og lóðkasti.
Dregið í Evrópumótin í handknattleik:
Víkingur og Valur sitja yfir
HSÍ gleymdi að tilkynna FH
HANDKNATTLEIKSSAMBANDI Islands hafa
orðið á Ijót mistök er tilkynnt var um þátttöku
fslenzkra liða f Evrópumótunum f handknatt-
Ieik næsta vetur. Er dregið var um hvaða lið
leika saman í 1. umferð fannst nafn FH-inganna
ekki meðal þeirra félaga sem tilkynnt höfðu
þátttöku, en FH ingar ætluðu sér að vera með f
Evrópukeppni bikarhafa, en þann rétt ávann
félagið sér sfðasta vetur.
Islandsmeistarar Víkings sitja yfir f 1. um-
ferðinni og sömu sögu er að segja um Valsstúlk-
Alls eru það tíu lið sem sitja
yfir f 1. umferðinni og auk Vík-
inganna fengu bæði fulltrúar Sví-
þjóðar og Danmerkur yfirsetu í 1.
umferðinni. Norsku meistararnir
Fredrikstad eiga hins vegar að
leika gegn Færeyingum í 1. um-
ferðinni.
Aðspurður um mótherja FH-
inga í bikarkeppninni sagði fram-
kvæmdastjórinn, að það lið hefði
ekki tilkynnt þátttöku i Evrópu-
keppni bikarhafa, en sú keppni er
ný af nálinni. Sagði hann að f
dreifibréfi, sem sent hefði verið
öllum handknattleikssamböndum
í Evrópu hefði verið skýrt kveðið
á um að fresturinn til að tilkynna
þátttöku rynni út 15. ágúst.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
urnar, en þessi Iið eru með f Evrópubikar-
keppni meistaraliða. AIls taka 22 lið þátt f
Evrópukeppni karla að þessu sinni og sitja
Vfkingarnir yfir f fyrstu umferðinni þar sem
FH-liðið komst f átta-liða úrslitin f fyrra og
sagði framkvæmdastjóri Alþjóða handknatt-
leikssambandsins f viðtali við Morgunblaðið f
gær, að venjan væri sú að kæmust meistarar
einhvers lands f 8-Iiða úrslit, þá sæti fulltrúi
landsins næsta ár yfir f 1. umferð keppninnar.
band við Geir Hallsteinsson og
Ingvar Viktorsson formann Hand-
knattleiksdeildar FH og voru þeir
að vonum óhressir er þeir heyrðu
fréttirnar. Sögðust þeir hafa hald-
ið að mál þetta væri frágengið og
að HSl myndi sjá um formsatriði
í sambandi við þátttökutilkynn-
ingu liðsins, eins og venja væn.
Sögðu þeir félagar að FH hefði
þegar verið farið að undirbúa
þátttöku sfna í mótinu, búið væri
að fá auglýsingu á búninga, farið
að safna auglýsingum í leikskrá
og ýmis önnur undirbúnings-
vinna hefði verið skipulögð. Fóru
þeir ekki fögrum orðum um þátt
HSl I þessu máli.
Seinni partinn í gær hafði HSl
samband við Erik Larsen, sem á
sæti I stjórn Alþjóða handknatt-
leikssambandsins. Sagðist hann
mundu gera það sem I hans valdi
stæði til að FH-ingarnir gætu orð-
ið meðal þátttökuliða, þó svo að
tilkynningarfrestur væri útrunn-
inn. Væru Iiðin, sem tilkynnt
hefðu þátttöku 15 taisins og það
gerði skipulag keppninnar auð-
veldara að bæta 16. liðinu við.
Vonandi tekst að koma FH-
ingum inn f keppnina þó svo að
seint sé, en þó það takist þá afsak-
ar það ekki Handknattleikssam-
band Islands á nokkurn hátt.
Vinnúbrögð HSl eru fyrir neðan
allar hellur f máli þessu.
— áij.