Morgunblaðið - 26.08.1975, Page 18

Morgunblaðið - 26.08.1975, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1975 Armur knattspyrnulaganna heldur á rauða spjaldinu og Einar Gunnarsson gengur þungum skrefum af leikvelli. VÍSAÐ AF VELLI ÍBK og ÍBV gerðu 0:0 jafntefli í hörkuleik í Keflavík TVEIM ÞAÐ hitnaði heldur betur í kolunum er leið að leikslokum f leik IBK og IBV f Keflavfk á laugardaginn. Leystist leikurinn þá nokkra stund upp f stimpingar og stælur milli leikmanna og áður en leikurinn hófst að nýju hafði þeim Friðfinni Finnbogasyni tBV og Einari Gunnarssyni IBK verið vikið af leikvelli. Verða þeir þvf tæpast með f næstu leikjum Iiða sinna f deildinni. Tildrög brottvísananna í þess- um jafnteflisleik, þar sem ekkert mark var skorað, voru þau, að skotið var að marki IBV. Ársæll varði auðveldlega með því að kasta sér á knöttinn. Einar Gunnarsson fylgdi fast eftir og hvort sem það var Viljandi eða ekki þá sparkaði hann í Ársæl þar sem hann lá á jörðinni. Lfkaði Friðfinni Finnbogasyni þetta að vonum illa og lét sig ekki muna um að snúa Einar í jörðina. Grétar Norðfjörð dómari var nær- staddur og dró hann þegar upp rauða spjaldið og vísaði Friðfinni af velli. En þar sem Einar lá á vellinum steig einn varnarmaður ÍBV harkalega ofan á hendi hans. Brást Einar þá ókvæða við og sparkaði á eftir ÍBV- leikmanninum. Varð það til þess að einnig Einar fékk að líta rauða spjaldið. Hárrétt hjá Grétari að vísa þeim af velli, en ósköp átti maður auðvelt með að skilja viðbrögð miðvarðanna Einars og Friðfinns er þeir í hita augnabliksins létu skapið hlaupa með sig í gönur. AÐ sjálfsögðu er það þó vítavert að ráðast á andstæðinginn og beita fólskubrögðum. Fyrir það verða þeir líka að líða, Einar og Friðfinnur. Á fundi Aganefndar á fimmtudaginn verða mál þeirra væntanlega tekin fyrir og þeir dæmdir i leikbann, hvað lengi sem það kemur til með að vara. Friðfinnur missir nefnilega af leiknum við KR um næstp helgi, og þurfi IBV að leika aukaleik um sætið í 1. deild, þá gæti hann TEXTI og MYND: Ágúst I. Jónsson einnig þurft að hvíla þann leik. Einar Gunnarsson verður væntanlega með IBK í bikarleikn- um gegn KR á miðvikudaginn, en fer síðan í bann. Eyjamenn sterkari Vestmanneyingar voru sterkari aðilinn í þessum Ieik,-ogþeir voru klaufskir að skora ekki mark eða mörk fyrir leikhlé. Til að mynda átti Tómas Pálsson opið mark- tækifæri á 12. mínútu leiksins, er bæði hann og örn Óskarsson kom- ust inn fyrir vörn Suðurnesja- mannanna, en f stað þess að skjóta gaf Tómas á örn, sem þá var orðinn rangstæður og þó Örn skoraði var markið eðlilega dæmt af. I upphafi leiksins áttu bæði liðin tækifæri, en er leið á tóku Eyjamenn öll völd og hver sókn þeirra af annarri skall á vörn Keflvíkinga. Ekki tókst liðinu þó að skora og í seinni hálfleik jafnaðist leikurinn og varð þóf- kenndari. Skoruðu Keflvíkingar þá eitt mark, sem dæmt var af vegna rangstöðu, var það Jón Ólafur sem skoraði. Lið IBV og IBK skildu því jöfn að þessu sinni. Það var ekki aðeins að markatala liðanna væri sú sama 0:0. Heldur skoruðu þau bæði eitt rangstöðumark og misstu einn leikmann út af. Auk þess fékk einn leikmaður IBV að sjá gula spjaldið, Einar Friðþjófsson, en það er vafasamur vinningur. Einn leikmaður ÍBK hefði sömu- leiðis átt að fá bókun, Grétar Magnússon, er hann reif í buxur Snorra Rútssonar og varð Snorri að fá lánaðar buxur hjá félaga sínum á Varamannabekk IBV- liðsins. Óbreytt staða á botni Staðan á botni 1. deildar breytt- ist ekki I leikjum helgarinnar, Vestmanneyingar eru með einu stigi meira en KR-ingar eins og áður, en þessi lið leika saman á laugardaginn og skera úrslit þess leiks úr um það hvort liðið leikur aukaleik við Þrótt um viðbótar- sætið í 1. deild. Bæði ÍBV og KR léku allvel um helgina og ekki hefði verið ósanngjarnt að liðin hefðu unnið andstæðinga sfna. Bræðurnir Ársæll og Karl Sveinssynir voru sterkustu leikmenn IBV-Iiðsins á laugardaginn og er ÍBV-liðinu mikill styrkur að endurkomu Karls. Þessi ungi feikmaður hóf að leika með ÍBV-liðinu í vor, en kaus síðan að eyða sumrinu frek- ar við eggjatöku og eyjalíf heldur en að iðka knattspyrnu. Nú hefur hann leikið tvo leiki með IBV og í Keflavik á laugardaginn sýndi hann f fyrri hálfleik að hann er svo sannarlega maður framtíðar- innar f IBV-Iiðinu ef hann sinnir knattspyrnunni af alvöru í fram- tíðinni. Keflavíkurliðið var nokkuð jafnt á laugardaginn, en þó áttu þeir Ástráður Gunnarsson og Einar Gunnarsson einna beztan leik. ÍBK-liðið er nú um miðja deild, liðið fellur ekki niður f 2. deild úr þvf sem komið er og ekki nær liðið á toppinn. I bikarkeppn- inni eru Keflvfkingar hins vegar enn með 'og þeir leika gegn KR f unaanurslitunum á morgun. Undanfarin sex ár hafa Keflvík- ingar ætíð komizt í Evrópukeppni og ætli þeir sér enn einu sinni að vera með á þeim vigstöðvum verða þeir að vinna KR-ingana. Það ætti liðinu að takast en meira bit vantar þó í framlínuna. 1 stuttu máli: íslandsmótið 1. deild. Keflavfkurvöllur 23. ágúst IBK — IBV 0:0 Áminning: Einar Friðþjófsson IBV. Brottvísanir: Friðfinnur Finnbogason ÍBV og Einar Gunnarsson IBK. KR VELIÍIR AFl „ÞEGAR maður er á botninum gengur manni allt f óhag,“ sagði Tony Knapp KR-þjálfari við blaðamann Mbl. eftir leik liðs sfns við FH á laugardaginn. Þetta voru orð að sömmu á laugardag- inn, KR-ingar náðu sfnum bezta leik f langan tfma þrátt fyrir fjarveru nokk- urra lykílmanna, og verðskulduðu sig- ur. En FH-ingar hafa sýnt það f sumar að þeir gefa ekki eftir stig án baráttu og tókst að ná öðru stiginu þótt þeir ættu lengst af miklu minna f leiknum. Jafntefli 1:1 og ekkert minna en sigur yfir IBV um næstu helgi dugir til að lyfta gamla Vesturbæjarliðinu úr neðsta sætinu. Og ef það tekst ekki kemur til aukaleikur við „litla bróður" úr Grfmsstaðaholtinu, Þrótt um áfram- haldandi veru f 1. deild. KR lék undan nokkrum vindi f fyrri hálfleik og var greinilegt í byrjun að KR-ingar mættu ákveðnir til leiks. Boltinn var miklu meira á vallarhelm- ingi FH og máttu varnarmenn liðsins hafa sig alla við til að forða marki. Litlu munaði að KR skoraði strax á 5. mfnútu þegar einn sóknarmaður liðs- ins komst inn að marki og ætlaði að senda á samherja dauðafrían í teign- um. En sendingin var ónákvæm og missti marks, en ónákvæmar og van- hugsaðar sendingar áttu einmitt eftir að setja svip sinn á þennan leik. Á 38. mínútu komst Guðmundur Jóhannes- son einn inn fyrir vörn FH, en Ómar markvörður kom út á réttu augnabliki og hirti boltann af tám Guðmundar. Á 45. minútu munaði tvívegis litlu að KR skoraði. Fýrst átti Björn Pétursson þrumuskot að marki sem sleikti stöng- ina utanverða og rétt á eftir gaf Björn Texti: Sigtryggur Sigtryggsson. Myndir: Ragnar Axelsson. á Hálfdán örlygsson, sem var í dauða- færi inni í á markteignum, en skot hans fór hátt yfir. Þetta var bezta tæki- færi leiksins. I upphafi seinni hálfleiks sóttu KR- ingar einnig meira, en sem fyrr fundu þeir ekki leiðina í mark FH enda varnarmenn FH og Ómar markvörður harðir í horn að taka. Og þegar markið loksins kom á 58. minútu Ieiksins þurfti dyggilega aðstoð varnarmanns FH. Það var Janus Guðlaugsson, sá annars trausti varnarmaður, sem var upphafsmaður þess. Hann var með boltann úti við hliðarlínu vinstra meg- in og hugðist gefa á Ómar markvörð. Hálfdán örlygsson sá hvað Janus hafði i huga og gerði sér lítið fyrir og hirti boltann áður en hann barst til Ómars, lék á Ómar, og skaut að markinu. Þar var fyrir Gunnar Bjarnason og tókst að bjarga á marklínu, boltinn barst út f teiginn til Baldvins Elfassonar sem af- greiddi hann örugglega í netið. Þarna hefndist Janusi fyrir þessa ónákvæmu sendingu. FH-ingar byrjuðu á miðju og höfðu jafnað leikinn áður en mfnútan var liðin. Sóknarlota þeirra endaði með því að Leifur Helgason fékk boltann vinstra megin og hljóp inn f eyðu sem hafði myndast f vörn KR og skoraði stöng og inn úr fremur erfiðri aðstöðu. Gleðin leyndi sér ekki f athöfnum Leifs *» t * ... ** * "•' . ~ *L>' Jk •“ •^' ' '•»* - • -r y i Hálfdðn örlygsson hefur nðð boltanum og Ómar Karlsson er of langt frá „ÁTTll AÐ VIMA” SA6ÐI KNAPP „VIÐ höfum ekki leikið eins vel f iangan tíma og áttum að vinna Ieikinn,“ sagði Tony Kapp þjðlfari KR eftir leikinn við FH. „En þegar maður er á botn- inum gengur manni allt f óhag,“ bætti hann við. Knapp sagði að það væru mikilvægir leikir framundan hjá KR, en hann kvaðst vera bjart- sýnn eftir þá frammi- stöðu sem strákarnir hans hefðu sýnt f leikn- um við FH. „Ég er vissulega ánægður með stigið sem við hlutum f dag,“ sagði Bill Hodger þjáffari FH. Hann sagði að FH hefði þurft að berjast mikið fyrir þessu stigi og kvaðst vera ánægður með baráttuandann í sfnu unga liði. „Markið sem KR fékk var ódýrt en við vorum líka heppnir að jafna svona fljótt. KR liðið er gott að minu mati, miklu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.