Morgunblaðið - 26.08.1975, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 26.08.1975, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. AGUST 1975 19 iuh witnswiii eftir aö hann hafði skorað markið og héit hann af því tilefni stutta leikfimi- sýningu sem mæltist vel fyrir hjá áhorfendum. Eftir þetta dofnaði yfir KR-ingum og FH-ingar fóru að sækja í sig veðrið. Áttu þeir oft greiða leið framhjá KR-vörninni hægra megin. Upp úr einni slíkri sóknarlotu fékk FH hornspyrnu, boltinn var gefinn á hinn sókndjarfa framlínumann Ólaf Dani- valsson sem sendi hann áfram á Helga Ragnarsson. Helgi skallaði að marki en Magnúsi markverði tókst að slá hann í slána og þaðan fór boltinn út á völlinn aftur en hættan var liðin hjá. Þá átti Leifur þrumuskot að marki af Iöngu færi sem Magnús varði í horn. I KR Iiðið vantaði þrjá lykilmenn f þessum leik, þá Hauk Ottesen, sem var í banni, Atla Þór Héðinsson, sem er kjálkabrotinn, og Jóhann Torfason, sem er fótbrotinn. Auk þess var Knapp þjálfari með blóðeitrun i fæti og gat ekki beitt sér sem skyldi. Þrátt fyrir öll þessi áföll náði KR prýðisköflum og hefði verðskuldað sigur í leiknum mið- að við gang hans. Vörnin átti reyndar í nokkrum erfiðleikum með spræka framlfnumenn FH, einkum Ólaf Dani- valsson. Er þá undanskilinn Stefán örn Sigurðsson vinstri bakvörður sem er að verða einn okkar albezti knatt- spyrnumaður f þeirri stöðu. Hann er drjúgur varnarmaður og afar skemmti- legur þegar hann tekur þátt í sókninni, er leikinn og gefur góða knetti fyrir markið. A miðjunni voru KR-ingar sterkastir með þá Björn Pétursson og Halldór Björnsson sem beztu merfn. Björn var nú með eftir langt hlé og átti prýðisleik. Var það undarleg ráðstöfun að kippa honum út af um miðjan seinni hálfleik. Baldvin Elíasson kom inn í hálfleik og styrkti það liðið. Framlfnan var ekki nægilega skörp við mark FH, enda vantaði bæði Atla og Jóhann. Þeir hefðu væntanlega afgreitt eitthvað af mörgum fyrirsendingum f netið. FH-ingar lögðu höfuðáherzlu á vörn- ina í þessum leik en síðan var treyst á skyndisóknir. Var Ólafur Danivalsson þar fremstur f flokki, leikinn og sókn- djarfur framlfnumaður sem setti vörn KR oft í vanda. Við hlið hans var Leifur Helgason, einnig mjög sókn- djarfur leikmaður. I vörninni voru þeir Janus Guðlaugsson og Gunnar Bjarna- son traustir, en það er leikmaður sem er í stöðugri framför. Annar leik- maður sem mikið hefur farið fram f sumar er Ómar Karlsson í markinu. Hann sýndi mikið öryggi í þessum leik og verður á engan hátt sakaður um markið. I heild var þetta baráttuleikur og hann ekki svo slæm skemmtun fyrir rúmlega 700 áhorfendur. t stuttu máli: Laugardalsvöllur 23. ágúst. 1. deild, KR—FH 1:1 (0:0). Mark KR: Baldvin Elíasson á 58. mínútu. Mark FH: Leifur Helgason á 58. mínútu. Áhorfendur: 736. Áminning: Hálfdán örlygsson, KR, bókaður fyrir brot gegn Loga Ólafs- syni. i knettinum. Skömmu sfðar skoraði Baldvin Elfasson eina mark KR. EFTIR LEIKIM VID FH betra en staða þess í deildinni gefur til kynna.“ Bill kvaðst vera ánægður með frammi- stöðu FH í sumar, hún væri sérstaklega athyglisverð fyrir þá sök að liðið þyrfti alltaf að vera að leika til skiptis á grasi og möl. „Þetta verður betra næsta ár hjá strákunum, þá leika þeir heimaleikina á grasi.“ „Jú þetta er rétt, það á að byrja að tyrfa völl- inn innan skamms," ságði Janus Guðlaugs- son fyrirliði FH þegar þetta var borið undir hann. „Það verður mikill munur að leika i Kaplakrikanum þegar gras er komið á völl- inn.“ Janus kvaðst ánægður með frammi- stöðu liðsins f sumar, hún væri betri en hann hefði átt von á. „Það sem mér hefur fundizt verst er að ekki skulu fleiri sækja leikina okkar f Hafnarfirði. Við þyrftum að fá þangað 1000—2000 manns að staðaldri. Gunnlaugur Kristfinnsson og Pétur Ormslev stfga villtan dans f baráttunni um knöttinn, allt kom þó fyrir ekki, Ragnar Gfslason náði að skalla. Fram fer í Evrópukeppni Þátttökurétturinn var endanlega tryggður með 1:0 sigri gegn Víkingum FRAMARAR tryggðu sér þátt- tökurétt f UEFA-keppninni í knattspyrnu á sunnudagskvöldið með þvf að sigra Vfkinga 1:0 á Laugardalsvellinum. Vissulega eiga Framarar enn möguleika á sigri f deildinni, þeir eru með 17 stig, eða jafn mörg og Skagamenn þegar þetta er skrifað. IA á hins vegar eftir tvo leiki, en Fram einn. Vonir Víkinga um rétt til að leika f UEFA-keppninni hurfu eins og dögg fyrir sólu við það að tapa fyrir Fram, það hefði þó ekki verið óréttlátt eftir gangi leiksins að Vfkingar hefðu að minnsta kosti fengið annað stigið f leiknum. Vfkingsliðið getur þó vel við unað, þvf að aldrei hefur liðinu gengið eins vel f 1. deild og f sumar. Er Vfkingar léku f deild- inni árið 1970 fékk liðið 3 stig og féll, árið 1972 fengu Vfkingar 6 stig og féllu, 1974 urðu stigin 9 og liðið dvaldi áfram f 1. deild eftir aukaleik. Nú þurfa Vfkingar hins vegar ekki að hugsa um fallbar- áttuna lengur og stigin geta orðið 15, þvf enn er einn leikur eftir f deildinni. Framþjálfararnir Jóhannes Atlason og Guðmundur Jónsson geta sannarlega verið ánægðir með árangur sinna manna, þvi að ekki var búizt við miklu af Fröm- urunum í vor. Leikmenn liðsins hafa staðið saman sem einn maður og þó að á móti hafi blásið þá hafa þeir aldrei gefizt upp. Þannig var það á sunnudaginn. Víkingarnir sóttu meira og áttu góð marktækifæri, en Framarar vörðust vel og náðu svo sóknum Texti: Ágúst I. Jónsson Myndir: Ragnar Axelsson. inn á milli sem sköpuðu hættu, og úr einni slfkri tókst liðinu að skora, þó að ekki hafi mikil hætta virzt vera á ferðum. Markið kom með þeim hætti, að gefið var inn í vitateig Framara þar sem Diðrik virtist hafa nægan tima til að handsama knöttinn. Einhverra hluta vegna tókst honum það þó ekki og aftur fyrir hann hrökk knötturinn, til Krist- ins Jörundssonar, sem skallaði að mannlausu markinu. Áður en knötturinn færi yfir línuna kom Marteinn að og bætti um betur, enda öruggara fyrir Framarana þvi að leikmenn Víkings streymdu að úr öllum áttum. Beztu tækifæri fyrri hálf- leiksins átti Stefán Halldórsson. Það fyrra strax í upphafi leiksins, en Árni varði skot hans á óskilj- anlegan hátt. Síðara tækifærið kom undir lok hálfleiksins og hefði hann með smáheppni átt að geta skorað þá, þó að þrengt væri að honum. I síðari hálfleiknum átti Gunnar Örn hörkuskot eftir aukaspyrnu, en Árni var á réttum stað og varði glæsilega. Erlendur Magnússon átti bezta tækifæri Framara, er Víkingsvörninni urðu á ljót mistök, en skot Erlend- ar fór rétt framhjá. Víkingarnir reyndu að sækja allan leiktímann og að láta knött- inn ganga frá manni til manns. Það gekk þó ekki nógu vel, auk þess sem alltof margar sóknarlot- ur enduðu með sendingum fyrir markið, sem strönduðu á hausum þeirra Marteins eða Jóns í vörn Fram. Óskar Tómasson lék þennan leik mjög vel fyrir Vík- ingana og !ék varnarmenn Fram oft grátt í leiknum. Hefðu Víking- ar að ósekju mátt nota Öskar meira en þeir gerðu f leiknum. Árni Stefánsson átti mjög góðan leik f marki Framaranna og virðist aftur vera kominn í sitt bezta form, eftir heldur slaka leiki að undanförnu. Er ánægju- legt til þess að vita, þar sem Árni fær eflaust nóg að gera f lands- leikjunum sem framundan eru. Marteinn og Jón eru alltaf traust- ir og barátta Ágústs i leiknum á sunnudaginn var meiri og betri en oftast áður. Þá átti Kristinn Jörundsson góða spretti i seinni hálfleik. Valur Benediktsson dæmdi þennan leik og var frammistaða hans með því slakasta sem sást á vellinum. Til að mynda skildu fáir, er hann bókaði Gunnar Örn f seinni hálfleik fyrir sakleysislegt brot, þar sem jafnvel aukaspyrna var vafasöm. I STUTTU MÁLl: Islandsmótið 1. deild Vfkingur — Fram 0:1 Mark Fram: Marteinn Geirsson á 33. mínútu. Áminning: Gunnar Örn Kristjáns- son Víkingi. Ahorfendur: 900.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.