Morgunblaðið - 27.08.1975, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGUST 1975
ÞESSA dagana stendur yfir í
Reykjavfk fundur samstarfs-
nefndar fþróttasambandanna á
Norðurlöndum. Fundinn sitja 5
og 6 fulltrúar frá hverju landi þ.á
m. formenn fiestra sambandanna
og stjórnarmenn auk fram-
kvæmdastjóranna. Fundir sem
þessi cru haidnir annað hvert ár,
sfðast hér í Reykjavík árið 1965.
Fundurinn, sem haldinn er á
Hótel Loftleiðum, hófst á þriðju-
dagsmorgun kl. 10 með setningar-
ræðu Gfsla Halldórssonar forseta
ÍSÍ, en hann var jafnframt kosinn
forseti fundarins og Sveinn
Björnsson varaforseti Ritarar
voru kjörnir Bragi Kristjánsson
og Sigurgeir Guðmannsson.
Fyrsta verkefni fundarins var
að fjalla um umsókn Færeyinga
að samstarfsnefndinni. Hafði
Kurt Möller, form- danska
íþróttasambandsins framsögu í
því máli og mælti hann eindregið
með aðild Færeyinga. Var það
samþykkt í einu hljóði og sitja nú
Færeyingar fund samstarfsnefnd-
arinnar í fyrsta sinn. Liggjas
Joensen form. Iþróttasambands
Færeyja þakkaði f.h. Færeyinga
góða afgreiðslu og vinsemd hinna
landanna.
Mörg þýðingarmikil mál, sem
varða íþróttastarfsemina á
Norðurlöndum liggja fyrir
fundinum og verður greint frá
þeim nánar á blaðamannafundi i
Iok fundarins.
LIÐ VALS: Sigurður Haraldsson 3, Grímur Sæmundsen 2, Berg-
sveinn Alfonsson 2, Dýri Guðmundsson 2, Vilhjálmur Kjartans-
son 3, Hörður Hilmarsson 3, Magnús Bergs 3, Ingi Björn Alberts-
son 2, Guðmundur Þorbjörnsson 2, Albert Guðmundsson 2, Atli
Eðvaldsson 2.
LIÐ ÍA: Hörður Helgason 1, Benedikt Valtýsson 3, Björn Lárus-
son 1, Jón Gunnlaugsson 2, Jóhannes Guðjónsson 3, Jón Alfreðs-
són 3, Árni Sveinsson 2, Haraldur Sturlaugsson 2, Matthías
Hallgrímsson 2, Teitur Þórðarson 1, Karl Þórðarson 2, Hörður
Jóhannesson (varam.) 1, Guðjón Þórðarson (varam.) 1.
DÖMARI: Þorvarður Björnsson 2.
Fram kærir ekki
MORGUNBLAÐINU barst f gær
fréttatilkynning frá Knattspyrnu-
félaginu Fram, þar sem segir að
Framarar hyggist ekki kæra
Skagame:.n vegna Harðar Helga-
sonar. Var mál þetta tekið fyrir á
fundi aðaistjórnar siðdegis I gær,
en áður hafði stjórn Knattspyrnu-
deildar fjallað um málið. Fer
fréttatilkynningin hér á eftir:
„Að undanförnu hafa átt sér
stað umræður í fjölmiðlum um
hugsanlega kæru af hálfu Knatt-
spyrnufélagsins Fram vegna ólög-
mæts leikmanns f liði tA
Samkvæmt fundargerðarbók-
um KSl mun einn leikmanna lA,
Hörður Helgason, hafa sótt um og
fengið samþykkt félagaskipti yfir
I Fram á sfðasta ári. Þau félaga-
skipti voru aldrei afturkölluð
formlega, eins og þó mun vera
ætlazt til, eigi leikmaður að öðlast
Framkvæmd-
um við Laug-
ardalsvöll
frestað fram
yfir leik ÍA
Á FUNDI borgarráðs I gær var
ákveðið að fresta framkvæmd-
um við Laugardalsvöllinn þar
til að loknum leik lA og Kýp
urliðsins Nikosia Omonia f
Evrópukeppni meistaraliða.
Hafði fþróttaráð lagt til að
framkvæmdir við lagfæringar
á Laugardalsvellinum hæfust
um miðjan september, en til-
Iaga Alberts Guðmundssonar
og Alfreðs Þorsteinssonar um
frestun á framkvæmdunum
var samþykkt á fundi borgar-
ráðs f gær.
Ef byrjað hefði verið á hin-
um bráðnauðsynlegu viðgerð-
um við völlinn um miðjan
september eins og ráð hafði
verið fyrir gert hefði það þýtt
að Skagamenn hefði orðið að
flytja leik sinn til Keflavfkur
eða Akureyrar þar sem á þeim
stöðum eru einu löglegu vell-
irnir fyrir Evrópuleiki. Einnig
hefði verið hægt fyrir Skaga-
menn að gera völl sinn á Akra-
nesi löglegan en það hefði þýtt
mikinn kostnað, auk þess sem
hætt er við að fáir áhorfendur
hefðu komið á leikinn þar.
Þriðji möguleikinn f málinu
hefði verið að spila leikinn er-
lendis, en sú þrautalending
hefði verið til vansa fyrir fs-
lenzka fþróttahreyfingu.
hlutgengi með fyrra félagi á nýj-
an leik.
Samkvæmt upplýsingum fyrrv.
formanns knattspyrnudeildar
Fram mun Hörður Helgason hafa
óskað eftir þvf við hann, að fé
lagaskiptin yrðu afturkölluð
Þeim boðum mun hafa verið kom-
ið áleiðis til KSÍ, en hins vegar
mun málið aldrei hafa hlotið
formlega afgreiðslu á stjórnar-
fundi KSl.
Að þessu leyti svipar málinu
mjög til máls Elmars Geirssonar,
sem upp kom á sfðasta keppnis-
tfmahili, en þá fékk Fram á sig
kæru vegna svipaðra formgalla.
Fram taldi þá, að slfk kæra væri
byggð á veikum grunni, en það
sjónarmið átti litlu fylgi að fagna,
og var Fram dæmt til að leika upp
einn leik f 1. deild.
Þrátt fyrir slfka niðurstöðu
fyrir einu ári, er skoðun stjórnar
Fram óbreytt á þvf, að kærur, sem
tilkomnar eru vegna formgalla,
jafnvel þótt þær stæðust lagalega,
séu byggðar á afar hæpnum for-
sendum. Af þeim sökum mun
Fram ekki kæra leikinn við IA.
Hins vegar þótti rétt að skoða
þetta mál niður f kjölinn með
tilliti til Elmarsmálsins á sfðasta
ári.
F.h. Knattspyrnufélagsins
Fram Alfreð Þorsteinsson,
form.“
SIGURÐUR HARALDSSON — kastar sér á eftir knettinum, en ef
eitthvað hefði brugðið út af er Vilhjálmur Kjartansson (4)
nærstaddur. Jón Gunnlaugsson stormar að, en Dýri Guðmundsson
er hinn rólegasti.
16 manna
hópur liefur
enn ekki
verið valinn
Knattspyrnusamband Islands
boðaði f gær til blaðamanna-
fundar þar sem hópur sá sem
fer f landsliðsferðina til Belg-
fu, Frakklands og Sovétrfkj-
anna f byrjun næsta mánaðar
var endanlega tilkynntur. Er
hópurinn enn sá sami og greint
var frá f Morgunblaðinu f sfð-
ustu viku og 16 leikmanna hóp-
ur sem leikur f Frakklandi,
Belgfu og Sovétrfkjunum verð-
ur ekki tilkynntur fyrr en rétt
fyrirleik.
Knattspyrnusambandið hef-
ur nú greitt tryggingu þá sem
Standard Liege vildi fá fyrir
Asgeir Sigurvinsson, 40 millj-
ónir, og nam iðgjaldið 80 þús-
undum króna. Ásgeir verður
með f leikjunum gegn Frökk-
um og Belgum og sömuleiðis
Guðgeir Leifsson, en KSl vinn-
ur enn að þvf að fá Jóhannes
Eðvaldsson f leikinn gegn Belg-
um. Sama dag og á að leika
þann leik á Jóhannes að leika
með Celtic og vill félagið ekki
missa hann.
Útsölumark Vilhjálms
gaf l.deildinni nýtt líf
ÞAÐ var sárt fyrir Skagamenn að
tapa leiknum gegn Val á Laugar-
dalsvellinum f fyrrakvöld. Ekki
þannig að liðið hafi leikið þá
snilldarknattspyrnu að liðið verð-
skuldaði sigurinn þess vegna. Nei
alls ekki. Hins vegar var mark
það sem Valsmenn skoruðu og
var eina mark leiksins slfk
hörmung að annað eins hefur
ekki sézt í 1. deildinni í háa herr-
ans tfð. Vilhjálmur Kjartansson
tók aukaspyrnu við miðlfnu
vallarins og sendi knöttinn inn f
vítateig Skagamanna. Án þess að
nokkur kæmi við knöttinn barst
hann að markinu, fór einu sinni f
jörðina og sfðan undir hendur
Harðar Helgasonar markvarðar
ÍA. Hefur Hörður sennilega mis-
reiknað hreyfingar knattarins,
enda ekki gott að sjá fyrir hvaða
Texti: Ágúst I. Jónsson.
Myndir: Ragnar Axelsson.
stefnu knötturinn tæki á hálu
grasinu — þar sem gras var —
eða í drullunni á vellinum.
Mark Vilhjálms var eina mark
leiksins og það er langt í frá að
verið sé að ásaka Vilhjálm eða
félaga hans í Valsliðinu fyrir að
skora svona ódýrt mark. Það hefði
hins vegar verið skemmtilegra að
þessi tvö af þremur beztu liðum
íslenzkrar knattspyrnu hefðu nýtt
gullin marktækifæri sín í leikn-
um og skorað, þvi þrátt fyrir allt
þá var leikur lA og Vals ekki svo
vitlaus. Kálgarðurinn í Laugar-
dalnum tók að sjálfsögðu sinn toll
af knattspyrnumönnunum og þeir
Þátttakendur á fundi samstarfsnefndar fþróttasambandanna á Norðurlöndum.
Samstarfsnefnd norrænu íþróttasambandanna þingar í Reykjavík:
Færeyingar meðal þátttakenda
leikmenn, sem beztir eru á góðum
völlum í góðu veðri — t.d. Karl
Þórðarson — máttu sín litils við
þessar aðstæður. Valsmönnum
tókst ágæta vel samleikurinn í
þessum leik og baráttan var mikil
í leikmönnum liðsins. Skagaliðinu
gekk ekki vel að ná sínum
skemmtilega samleik, eigi að síð-
ur voru þeir ógnandi í leiknum og
áttu sízt minna í þessari mikil-
vægu viðureign.
Eru nú IA og Fram jöfn f efsta
sæti 1. deildarinnar með 17 stig
og eiga bæði liðin eftir að leika
einn leik. Fram leikyr gegn Val í
Laugardalnum um næstu helgi,
en Skagamenn fá Keflvíkinga í
heimsókn. Hafa Valsmenn lýst
því yfir að þeir ætli að vinna bæði
toppliðin og margt er ólíklegra en
að liðinu takist það. I kvöld mæt-
ast Valur og Akranes aftur, að
þessu sinni í bikarkeppninni og
fer leikurinn fram á Akranesi.
Svo aftur sé vikið að leiknum í
fyrrakvöld þá skoruðu Skaga-
menn einnig eitt mark í leiknum.
Jón Alfreðsson hafði gefið háa
sendingu inn i vítateig Vals-
manna. Þar stukku þeir upp sam-
an Sigurður Haraldsson og Teitur
Þórðarson, hvorugur náði til
knattarins, sem kom niður fyrir
aftan þá og skoppaði að marklín-
unni. Matthías Hallgrímsson og
einir þrfr Valsmenn ætluðu sér
allir að ná boltanum. Varð þarna
á marklínunni mikil barátta, sem
endaði með þvf að leikmennirnir
lágu allir á jörðinni með flækta
saman fætur, en það eina sem sást
greinilega var að Matthías með
boltann fyrir framan sig lá inni
í miðju marki Valsmanna. Hefði
þarna átt að dæma mark þvf
knötturinn var langt fyrir innan,
en f staðinn var dæmd auka-
spyrna á Skagamenn fyrir brot á
Sigurði markverði. Má vera að
það hafi verið réttur dómur þó
svo að Skagameqn hafi ekki viljað
viðurkenna eftir leikinn að um
brot hafi verið að ræða.
Ástæðulaust er að telja upp þau
mörgu tækifæri, sem leikmenn
liðanna áttu til að skora mark.
Guðmundur Þorbjörnsson, Albert
Guðmundsson og Ingi Björn Al-
bertsson hefðu getað skorað fyrir
Val, en þeir Árni Sveinsson, Har-
aldur Sturlaugsson, Hörður
Jóhannesson og Jón Gunnlaugs-
son áttu allir hörkuskot að Vals-
markinu.
Vilhjálmur Kjartansson, Dýri
Guðmundsson, Magnús Bergs og
Hörður Hilmarsson voru fremstir
í flokki Valsara að þessu sinni, en
yfirleitt áttu leikmenn liðsins
mjög þokkalegan leik og börðust
allir grimmilega. Það veitti held-
ur ekki af því þar sem Skaga-
menn sóttu grimmt af örvæntingu
síðustu mínúturnar. Jón Alfreðs-
son og Jóhannes Guðjónsson
stóðu sig hvað bezt Skagamanna,
Matthías var drýgstur f framlín-
unni og Benedikt var góður með-
an hans naut við, en hann varð að
yfirgefa völlinn vegna meiðsla,
sem þó reyndust ekki alvarleg.
Annars bar lítið á flestum lands-
liðsmanna ÍA í þessum leik.
I STUTTU MÁLI:
Islandsmótið 1. deild
Laugardalsvöllur 25. ágúst
Valur — lA 1:0
Mark Vals: Vilhjálmur Kjartans-
son á 22. mfnútu
Áminning: Benedikt Valtýsson