Morgunblaðið - 27.08.1975, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 27.08.1975, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGUST 1975 17 Flutt í flýti frá Leningrad til Lon- don vegna sjúkdóms + Þessi litla stúlka er rúss- nesk og er hér á myndinni ásamt móður sinni Galinu Chudnovskaya. Litla stúlkan heitir Irina Chudnovskaya og er nlu mánaða gömul. Ir- ina var með alvarlegan hjartasjúkdóm og þurfti að flytja hana I ofboði frá Len- ingrad til hjartasérfræðinga á Bromton-sjúkrahúsinu I London, þar sem gerð var á henni aðgerð sem sýnilega hefur borið tilætlaðan árangur. Irina litla og móðir hennar, sem einnig kom með frá Leningrad, eru sýni- lega búnar að endurheimta gleði sfna og brostu óspart fyrir Ijósmyndara brezka blaðsins „The Daily Telegraph“. Presley lagður inn á ný + Rokksöngvarinn vfðfrægi ELVIS PRESLEY hefur nú ver- ið lagður inn á sjúkrahús — rétt einu sinni. ELVIS liggur á Memphis-sjúkrahúsinu f LAS VEGAS — reyndar segir lækn- ir hans, Elias Ghanem, að einungis sé um það að ræða að söngvarinn sé þreyttur og þurfi á afslöppun að halda. Þessu trúa þó ekki allir; þær raddir hafa heyrzt að hér sé um eitt- hvað alvarlegra en þreytu að ræða, sérstaklega þegar haft er í huga að þetta er í fimmta skiptið síðan árið 1973 sem söngvarinn fer í „afslöppun“. Nytsamur þumall + Það er ekki úr vegi að benda putta-vegfarendum á þessa meistaralcgu uppfinningu sem stúlkan hér á myndinni notar. Hún hefur það bara rólegt þangað til einhver félagslyndur vegfarandi sem getur boðið far f farskjóta sfnum stöðvar og býður henni uppf. — Minning Jón Framhald af bls. 22 hann var forstjóri J.B. Pétursson. Sá tími var lærdómsríkur, og fyr- ir hann og ótal margar samveru- stundir á lífsleiðinni vil ég þakka. Burtför Bjarna ber skjótt að, en við getum huggað okkur við það, að hann hefur skilað sínum mann- vænlegu börnum góðu vegarnesti, sem ástæða er til að þakka fyrir. Innilegar samúðarkveðjur flyt ég systur minni og börnunum, Helgu tengdadóttur og Rósu sonardóttur. Missir þeirra er mikill og sárt er Bjarna saknað af öllum þeim, sem mátu mannkosti hans svo sem vert var. Tengda- fólkið þakkar Bjarna að leiks- lokum fyrir margar ánægjulegar samverustundir. Blessuð veri. minning hans. Gottfreð Arnason. Far þú f friði, friðurGuðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þessi orð virðast harla fátækleg þegar svo mikið er að þakka. Jón Bjarni Kristinsson, eða Bjarni eins og hann var alltaf kallaður, var slikur maður, að erfitt er að skrifa um hann án þess að það sýnist vera mikið ýkt og oflofað. Þeir sem þekktu Bjarna vita þó að það aru ekki ýkjur að hann var sérstakur maður, maður sem alltaf var að framkvæma eitthvað stórkostlegt og unni sér aldrei hvíldar. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hversu hörkuduglegur þessi maður var, hann reisti sér veg- legan minnisvarða sem talar sinu máli þar sem fyrirtæki hans, Glerborg h.f. i Hafnarfirði stendur. Allar athafnir hans bera þess einnig glögg merki hve ein- stakt snyrtimenni hann var. Okkur, sem nutum þess heiðurs og þeirrar ánægju að fá að starfa með Bjarna, mun reynast erfitt að gleyma þeim dapurlega degi, 19. ágúst, þegar fánar voru dregnir í hálfa stöng við fyrirtæki hans, er við mættum til vinnu. Fánar sem hann hafði nýverið látið útbúa og hann hafði deginum áður dregið að húni fyrsta sinni til að fagna komu erlendra gesta. Hve fljótt skipast ekki veður f lofti. Við reynum að hugga okkur við góðar minningar um allar þær ánægjustundir, sem við áttum með Bjarna. Hann var góður hús- bóndi, svo kraftmikill að hann hreif mann með sér, og svo gott var að starfa fyrir hann að maður taldi það ekki eftir sér að vinna svolitið lengur, ef mikið var að gera. Hann var ekki mikið fyrir að skjalla fólk eða hrósa því, en maður fann það vel, að hann kunni að meta það sem vel var gert, enda sýndi hann það í verki. Gott dæmi um það er, að hann lét sér ekki nægja að stofna starfs- mannafélag, heldur afhenti um leið félaginu stóran sal til íþrótta- iðkana og til skemmtanahalds. Á öllum skemmtunum og öðrum mótum var hann eins og einn af okkur hinum. Þá lét hann sig ekki muna um að smíða, mála eða hengja upp myndir. Slfkur persónuleiki var hann, að allt sem hann gerði jók virðinug starfs- fóiksins fyrir honum. Hann sagði eitt sinn: Ég get ekki beðið neinn að gera það, sem ég get ekki gert sjálfur. Þetta Iýsir honum vel, enda ríkir svo góður starfsandi, sem hann hefur skapað, í fyrir- tækinu, að annað eins hlýtur að vera vandfundið. Það er stórt skarð höggvið i þennan góða hóp, sem nýlega var að hlaupa í skarðið í saklausum barnaleik i Þórsmörk nú í sumar. Þetta skarð verður aldrei fyllt. Það er óumflýjanlegur sann- leikur þó sár sé. Ef Bjarni mætti mæla nú mundi hann eflaust segja: Þetta átti að fara svona. Það var hans trú og sannfæring. Með því hugarfari kveðjum við Bjarna hinztu kveðju og biðjum algóðan Guð að geyma hann. Megi Guð styrkja Ernu og börnin i þeirra miklu sorg. Starfsfólk Glerborgar. Föstudaginn 15. ágúst fékk ág í heimsókn hér á skrifstofuna til mín vin minn Jón Bjarna Kristinsson, sem I sjálfu sér er ekki í frásögu færandi, þvi að undanfarin 3 ár liðu ekki margir vinnudagar svo að við hittumst ekki, eða i það minnsta töluðum ekki saman i síma. Þessi heim- sókn hans þótti mér strax dálítið sérstæð, þvi að hann gaf sér tíma til að fá sér kaffibolla með mér, og eins og að venju höfðum við margt um að spjalla viðskiptalegs eðlis, og í þetta skipti frá hans hendi töluvertpersónulegt. Hann var óvenju skrafhreifinn þennan dag og dvaldi hjá mér í um tvo tíma, maður sem varla gaf sér tíma venjulega til þess að ljúka við einn kaffibolla. Framtiðar fyrirætlanir voru ræddar, hús voru byggð, já og fleiri hús voru byggð þennan stutta tíma. Hann var óvenjulega hress og reifur og lék á als oddi sem endranær en þó óvanalega rólyndur. Okkar fundi lauk með því að ákveðið vað að hittast næst þriðjudaginn 19. ágúst. — Samstundis og ég kom á skrifstofu mína þann dag, var Anton sonur hans i símanum, að tilkynna mér lát hans þá um morguninn. Vart hefur mér bor- izt meiri harmafregn, og erfitt reyndist mér að trúa því að trúnaðarvinur minn nú siðustu ár skyldi svo skyndilega vera burt kallaður. Maður á bezta aldri og maður sem fjöldi manns byggði sitt traust og lífsafkomu á. Maður sem alla sína ævi Iét aldrei verk úr hendi falla og vægast sagt þekkti ekki orðið hvíld, sérstak- lega ef að hann þurfti að aðstoða vini sína og félaga. Það var hreint og beint ástríða hans að byggja og láta afrakstur vinnu sinnar sjást, ekki af fésýslu ástæðum, miklu meira af með- fæddum metnaði og virðingu fyrir vinnunni. Nú hefur þessi vinur minn öðl- ast hvild, og þó að aldur hans væri ekki hár, hefur hann skilað af- köstum þennan stutta tíma langt umfram meðalmann á langri ævi. Margir eiga þessum sérstaka af- bragðsmanni mikið að þakka, svo margt gott lagði hann til, og auð- fundinn mun ekki strax hans jafningi sem sameinar jafn vel dygðugt mannlíf, atorku, afköst og velvilja og hann gerði ásamt hinni sérstöku gleði, sem vakti traust og hlýju hjá hverjum sem kynntist. Jón Bjarni fæddist vestast á Vesturgötunni hér í Reykjavik þann 11. febrúar 1922 sonur þeirra sérstöku sæmdarhjóna Guðrúnar Ottadóttur og Kristins blikksmiðs Péturssonar. Strax að námi loknu hóf hann starf við fyrirtæki föður síns og föður- bróður J. Bjarna Pétursson- ar, en hann bar nafn hans. Þetta reyndist fljót- lega of þröngt starfssvið slik- um athafnamanni. Árið 1960 stofnsetti hann ásamt össuri Aðalsteinssyni fyrirtækið Bygg- ingarvörur h.f. og nokkrum árum síðar Heildverzlunina Verkfæri og járnvörur, h.f., sem sonur hans Anton, hefur rekið undanfarandi ár. Þetta var ekki nóg, fleiri verk- efni þurfti. 1968 stofnar hann ásamt fleirum Ispan h.f., sem framleiðir einangrunargler, og svo síðast árið 1972, eftir slit við fyrri félaga, stofnar hann ásamt fleirum sams konar verksmiðju, Glerborg h.f., I Hafnarfirði, sem hann rak til dauðadags með sér- stökum stórhug og bjartsýni. Hug- ur hans var sérstaklega opinn fyrir köllum nýjum tæknilegum framförum og öllu slíku komið í framkvæmd samstundis ef til gagns virtist, en hann var óvenju- lega næmur fyrir öllum nýjung- um og einhver bezti vinnuskipu- leggjari sem ég hefi kynnzt. Hann kvæntist eftirlifandi konu sinni Ernu Árnadóttur, Böðvarssonar, hinn 27. nóvember 1943 og eignuðust þau fjögur börn, Mariu Sophíu, hlaðfreyju, Anton, sem fyrr er getið, kvæntan Helgu Torfadóttur, Guðrúnu sem er í heimahúsum og Pétur, sem unnið hefur við fyrirtæki föður sins. — Heimilislif þessarar fjöl- skyldu var mjög gott og mjög vel samrýmt og tilbúin voru þau hjón til hins ólíklegasta til að auka hamingju og heill barna sinna. Jón Bjarni var stór og myndar- legur maður, svipur hans og augnatillit hýrt og glaðlegt og geislaði af göfgi og góðvilja. Slik- um mönnum er alls staðar vel fagnað alls staðar aufúsugestir og ekki efa ég að honum verði vel fagnað i hinum nýju heimkynn- um hans. Fáa utan ættingja mina hefi ég tregað líkt og vin minn Jón Bjarna Kristinsson, og vel skil ég þann harm, sem slegið hefur eiginkonu, börn og systkini hans. Bið ég þess af alhug að þau öðlist styrk í sinni miklu sorg og flyt þeim alúðar samúðarkveðjur mínar og f jölskyldu minnar. Magnús Ingimundarson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.