Morgunblaðið - 26.10.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.10.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTOBER 1975 Bretar spá þorskastríði Emkaskeyti til Mbl. London, 25 október AP KVÍÐA gætir um horfur f fiskveiði- deilu Breta og íslendinga f langri frétt sem birtist í brezka blaðinu The Guardian I dag með tveggja dálka mynd af Einari Ágústssyni utanrík- isráðherra um viðræður hans og brezkra ráðamanna Patrick Keatley, sérfræðingur blaðs- ms í utanrikismálum, bendir á þau orð Einars Ágústssonar að engmn vafi Atkvæðatap Vöku: Úr 44% í 36% S.L. miðvikudag fóru fram kosn- ingar til hátfðanefndar 1. des. f Háskðla tslands. Úrslit urðu þau, að Verðandi hlaut 517 atkvæði eða 64% en Vaka 284 atkvæði eða ••56%. Þetta er lægsta atkvæðahlut- fall, sem Vaka hefur hlotið s.l. 4 ár, en flest atkvæði á sama tíma- bili fékk félagið árið 1973, eða 48,5%. Arið 1974 fékk Vaka 44% atkvæða í kosningum til 1. des. nefndar. Kosningaþátttaka var óvenju lítil að þessu sinni. Atkvæði greiddu aðeins um 30% þeirra, sem á körskrá voru, eða 818 af 2650. Þess má geta, að undanfarin ár hefur Vaka fengið 44—45% at- kvæða í kosningum til Stúdenta- ráðs, en þá hefur kosningaþátt- taka verið 60—70%. Sjötíu og fimm ára í dag 75 ára er f dag, sunnudaginn 26. október, Guðmundur Þ. Magnússon, sláturhússtjóri, Hellisgötu 16, Hafnarfirði. Hann tekur á móti gestum að heimili sfnu eftir klukkan 15 f dag. Basar KVENFÉLAG austfirzkra kvenna heldur basar að Hallveigarstöðum klukkan 14 í dag, sunnudag. Þar verða einnig seldir lukkupokar. megi leika á því að núgildandi samn- ingur renni út 13 nóvember og segir ..Þar með virðist hafa verið gert Ijóst að frá og með 14 nóvember eigi allir brezkir togarar sem veiða á svæðinu milli 1 2 og 50 mílna á hættu að á þá verði skotið viðvörunarskotum eða reynt verði að taka þá með valdi " John Miller segir í Daily Telegraph. „Nýtt þorskastrið milli Breta og íslend- mga virðist vera yfirvofandi þar sem viðræðurnar hafa farið út um þúfur " Hann segir að Roy Hattersley að- stoðarutanrikisráðherra hafi reynt að vera bjartsýnn er hann tilkynnti um fyrirhugaðar viðræður fiskifræðinga Breta og íslendinga en telur þessa ..bjartsým" stmga í stúf við þá yfirlýs- ingu Emars Ágústssonar að íslending- ar muni aldrei fallast á að Bretar veiði 1 30 000 tonn við ísland og þau um- mæli hans að Bretar ættu að minnka afla smn um þriðjung The Times birtir frétt undir tveggja dálka fyrirsögn ..Viðræðum haldið áfram um fiskveiðimörk" og vitnar i ummæli Emars Ágústssonar þess efnis að samkvæmt skýrslu Hafrannsókna- stofnunar ætti að mmnka veiði við ísland úr 340—350 000 lestum á ári i 230 000 lestir og takist samkomulag ekki fyrir 1 3 nóvember verði reynt að framfylgja hinni nýju útfærslu Financial Times birtir einnig tveggja dálka frétt undir fyrirsögninni „Ekkert samkomulag og nýtt þorskastrið yfir- vofandi" í frétt eftir Malcolm Ruther- ford segir „Ljóst er að enn skilur diúpt bil deiluaðila." Hann vitnar í viðvörun utanríkisráðherra og segir að „togvíra- klippingar sem einkenndu þorskastrið- ið 1972 gætu gerzt aftur " Hann bætir við: „Hattersley notaði vægara orðalag þegar hann sagði að samningaviðræð- ur deiluaðila væru aðeins hálfnaðar. En ef upp úr slitnar fá brezk skip alla nauðsynlega vernd." ,,Ef samkomulag tekst ekki gæti það kostað íslendinga um 1 25 milljón pund á ári þar sem þeim verður ekki leyft að fá ems greiðan aðgang að mörkuðum í löndum Efnahagsbanda- lagsms fyrir fisk sinn og fiskafurðir,” segir Financial Times. Leiðrétting 1 messuauglýsingum í Morgun- blaðinu í gær var sagt, að barna- guðsþjónusta yrði kl. 11 í dag í Stapa í Njarðvíkum. Það er ekki rétt. Hið rétta er að almenn guðs- þjónusta verður kl. 11 fyrir hádegi í Stapa í dag, sunnudag, 26. október. Leiðréttist þetta hér með. t Dagbók Morgunblaðsins í gær féll niður heimilisfang fyrrum sendiherra V-Þjóðverja hér, Hans R. Hirschfeld, sem verður 75 ára i dag, en heimilisfang hans er 5486 Oberwinter / Rh., Rheinhöhen- weg 68, Deutschland. Var hótað morði á óskemmtilegan hátt MAÐUR á sextugsaldri sneri sér til lögreglunnar seint á fimmtudagskvöld og kærði morðhótun. Kvaðst hann hafa setið í stofu íbúðar sinnar við Lindargötu þá um kvöldið, þegar skyndilega hafi verið bankað á gluggann hjá sér. Kvaðst hann hafa litið út og séð þar tvo menn sem hann kannaðist ekki við og hefðu báðir verið með byssur. Kallaði' annar þeirra til mannsins og sagði honum að kikja á miða sem væri við úti- dyr hans, og hurfu þeir síðan á braut. Manninum varð að vonum bilt við en kannaði málið, og fann þá allstórt spjald á tröppunum hjá sér og voru þar áritanir af ýmsu tagi, m.a. morðhótanir. Ekki kvaðst maðurinn hafa minnsta grun um hvað þarna lægi að baki, en rannsóknarlögreglan hefur rannsókn þessa máls með höndum. SPJALDIÐ — Þetta er spjaldið með morðhótunum, sem maðurinn við Lindargötuna fann á tröppum sinum. R|1T1D ^KKRP frRIíTI0 ( 1 •«. !p jrPj . f§Éf % 11 I h p 1 |F| Svipmyndir frá hinum f jölmenna útifundi er kvenfóikið efndi til á Lækjartorgi I gær. Ekki barátta við útgerðina - heldur við úrelt sjóðakerfi — segja sjómenn YFIR- og undirmenn á fiskiskipa- flotanum héldu sameiginlegan fund I hátíðasal Sjómannaskólans á fimmtudagskvöldið. Var fund- urinn mjög fjölsóttur og margar ályktanir samþvkktar, er varða deilu þá er nú stendur yfir. „Sameiginlegur fundur yfir- og undirmanna á fiskiskipum hald- inn í hátíðasal Sjómannaskólans í Reykjavík 23. október 1975 skor ar á sjómenn um allt land að standa saman sem örofa heild í þeirri kjarabaráttu sem nú stend- ur yfir. Fundurinn minnir á að hér er ekki um baráttu við útgerð- armenn að ræða, heldur baráttu við úrelt sjóðakerfi, sem rfkis- valdið hefur komið á á undan- förnum árum og er farið að tröll- ríða sjávarútveginum í heild með þeim afleiðingum, að meirihluti fiskiskipaflotans vinnur með hálf- um afköstum vegna mannfæðar, sem er afleiðing lélegra launa hjá sjómönnum.“ Þessi tiliaga var samþykkt samhljóða og önnur til- BIÐSKÁKIR úr 4. umferð svæða- mótsins f skák voru tefldar f gær- morgun. Úrslit urðu þau, að Friðrik Ólafsson og Belgfumaður- inn Van den Broeck gerðu jafn- tefli en Björn Þorsteinsson tapaði fyrir stórmeistaranum Timman frá Hollandi. önnur úrslit urðu þau, að Jansa vann Murrey og Liberzon og Artíðar sr. Hallgríms minnzt á sunnudag 301. ártfðar Hallgrfms Péturs- sonar verður minnzt með hátíðar- guðsþjónustu að kvöldi mánu- dagsins 27. okt, í Hallgrfmskirkju á Skólavörðuhæð. Hefur verið laga var ennfremur samþykkt samhljóða. „Sameiginlegur fundur undir- og yfirmanna á fiskiskipum, hald- inn í hátiðarsal Sjómannaskólans í Reykjavík 23. október 1975 skor- ar á hæstvirt alþingi og rikis- stjórn að gera tafarlaust þær ráð- stafanir, sem duga til að deila þessi leysist." Ostermeyer gerðu jafnteflí. Ribli, Zwaig og Timman eru nú efstir með 3 vinninga, en Ribli hefur teflt einni skák færra. 5. umferðin verður tefld í dag klukkan 14 að Hótei Esju. Þá teflir Friðrik við Ribli og hefur hvítt en Björn teflir við Liberzon og hefur Björn svart. prentuð sérstök messuskrá fyrir þá minningarguðsþjónustu. Á mánudag verður steyptur fyrsti áfangi efri hluta kórs kirkj- unnar, en neðri hluti kórsins var byggður á árunum 1945—48, og var notaður til guðsþjónustuhalds fram á sumar 1974. Nú hefur sá hluti verið innréttaður að nýju og tekinn í notkun fyrir barna- og æskulýðsstarf. Nýlega barst Hallgrimskirkju um 900 þús. kr. að gjöf, er Helgi Guðmundsson, Freyjugötu 26, hafði ánafnað kirkjunni með erfðaskrá. Einnig hafa kirkjunni borizt margar aðrar góðar gjafir. Jafntefli hjá Friðrik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.