Morgunblaðið - 26.10.1975, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.10.1975, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKT0BER 1975 Málverk af Jóni Jakobssyni sett upp í Landsbókasafni NVLEGA hefur verið sett upp f aðallestrarsal Landsbókasafns málverk af Jóni Jakobssyni lands- bókaverði. Málverkið af Jóni Jakobssyni f Landsbókasafninu. Myndina gerði Eiríkur Smith listmálari. Jón réðst að Landsbókasafninu sem aðstoðarbókavörður 1895 en var jafnframt forngripavörður á árununi 1897—1907. Hann var við fráfall Hallgrfms Melstcðs lands- bókavarðar 1906 settur til að gegna embættinu og fékk veit- ingu fyrir þvf 1908. Jón Jakobsson sat á Alþingi sem fulltrúi Skagfirðinga 1893— 1899, en þingmaður Húnvetninga var hann 1903—1907. Landsbóka- safninu var mikill styrkur að eiga þannig fulltrúa á þingi, enda hélt hann vel fram málum safnsins á þeim vettvangi, stuðlaði m.a. að byggingu Safnahússins, en smíði þess var hafin haustið 1906 fyrir forgöngu Hannesar Hafstein ráð- herra og gekk svo greiðlega að unnt var að hefja starfsemi í Safnahúsinu snemma árs 1909. A síðari árum sínum við safnið samdi Jón Jakobsson sögu þessa: Landsbókasafn íslands. Minning- arrit 1818—1918, er prentað var á árunum 1919—1920 og er hið merkasta verk. Jón Jakobsson lét af embætti haustið 1924 eftir nær 30 ára giftudrjúgt starf í Landsbóka- safni. Hann lézt 18. júní 1925 og voru því nú í sumar liðin 50 ár frá andláti hans. Frá Listasafni Einars Jónssonar Eins og kunnugt er andaðist frú Anna M. Jónsson, ekkja Einars Jónssonar, myndhöggvara, þ. 2. þ.m. I veikindaforföllum systur hennar, frú Franeisku Gunnars- son, annaðist stjórnarnefnd Lista- safns Einars útför hennar. Utför- in var gerð að viðstöddum forseta- hjónunum frá Kristskirkju í Landakoti, biskupinn þar flutti sálumessuna með aðstoð systr- anna í Landakoti og Björgvins Magnússonar. Sigrfður E. Magn- úsdóttir söng tvo latneska helgi- söngva og Sig. Isólfsson lék á org- elið. Frá kirkju var haldið austur að Hrepphólum, þar sem lík hinnar háöldruðu Iistamannsekkju var lagt til hvíldar við hlið eigin- manns hennar. Þar söng í feg- ursta veðri blandaður kór Hreppamanna, sra. Sveinbjörn sóknarprestur í Hruna mælti kveðjuorð og jarðsöng. Sú athöfn var einföld og falleg. Með erfðaskrá sinni 1954 höfðu Gefa til Líbanon Á sameiginlegum fundi fram- kvæmdastjóra norræna Rauða kross félaga, sem haldinn var í Svíþjóð 15.—16. október s.l. var samþykkt að gefa blóðplasma og lyf til Líbanon að andvirði 82.000 sænskra króna eða því sem næst 3.280.000 ísl. kr. — Verður gjöfin send frá Finnlandi næstu daga. þau frú Anna og Einar Jónsson gert þá ráðstöfun eigna sinna eft- ir beggja dag, að tveimur þriðj- ungum skyldi varið til að gera af steypur í varanlegu efni af verk- um Einars og einn þriðjungur rynni til Rauða Kross íslands, en hug sinn til þess félags höfðu þau hjónin áður sýnt. Stjórnarnefnd safnsins og stjórn R.K.l. eru þeim hjónum hjartanlega þakklát og geyma þeirra merku minningu f heiðri. Þá hafa Listasafni Einars Jóns- sonar nýlega borizt góðar gjafir. Börn frú Steinunnar Jóhánns- dóttur og Sveins Sigurðssonar rit- stjóra hafa gefið safninu brjóst- líkan Einars Jónssonar af föður þeirra, og frú Lilja Kristjánsdótt- ir, ekkja Siguringa Hjörleifsson- ar, hefir gefið safninu vanga- mynd af Einari, ágætlega gerða af Málaranum Haye Hansen, líklega síðustu mynd þeirra, sem lista- menn gerðu af Einari Jónssyni. Stjórnarnefnd safnsins þakkar kærkomnar gjafir. Að marggefnu tilefni skal á það bent, að óheimilt er með öllu að láta gera afsteypur eða eftirlík- ingar í nokkurri mynd af verkum Einars Jónssonar, nema leyfi safnsstjórnar komi til Þótt ein- hver eigi mótaða mynd eða mál- aða eftir Einar Jónsson veitir það enga heimild til að láta gera af verkinu afsteypu eða eftirlíkingu. Stjórnarnefnd Listasafns Einars Jónssonar. Frá athöfninni er tekin var fyrsta skóflustungan að færeyska sjómannaheimilinu við Brautarholt s.l. laugardag. Séra Jónas Gíslason flytur bæn á staðnum eftir að frú Marfa Jakobsdóttir, klædd í færeyskan þjóðbúning, hafði tekið fyrstu skóflustunguna. Ljósmynd Mbl. Sv. Þorm. Nýtt fœreysk tsjó■ mannaheimili rís FYRSTA skóflustungan að nýju færeysku sjómannaheim- ili f Reykjavfk var tekin s.l. Iaugardag, en húsið verður staðsett við Brautarholt, milli Tónabfós og Heklu. Séra Jónas Gfslason fluttibænvið athöfn ina. Fyrstu skólfustunguna tók frú Marfa Jakobsdóttir, en hún er af færeyskum ættum. Lóð hússins er að Brautar- holti 29, milli Skipholts og Laugavegar, en þaðan er hið besta útsýni og staðurinn hinn ákjósanlegasti í hvívetna. Er byggingarnefndin mjög þakk- lát borgarstjórn Reykjavíkur fyrir að hafa valið húsinu jafn veglegan stað. Færeyska sjómannatrúboð- ið, færeyski sjómannakvenna- hringurinn og áhugamenn bæði í Færeyjum og á Islandi standa fyrir byggingarframkvæmdun- um. Byggingin er kostuð af frjálsum framlögum og hefir verið efnt til happdrættis í fjár- öflunarskyni bæði hér og í Fær- eyjum, og það hlotið góðar við- tökur hjá almenningi. Einnig veitir færeyska landsstjórnin fjárhagslegan stuðning. Hliðstæð heimili eru starf- andi í Færeyjum og eitt á Grænlandi og annað i Skot- landi. Heimilið mun starfa á kristilegum grundvelli fyrir sjómenn hverrar þjóðar, sem þeir eru, en einnig verða til afnota fyrir almenning. I húsinu verða 10 tveggja manna herbergi og 10 fjögra manna herbergi. Öllum her- bergjum fylgja snyrtiherbergi með sturtubaði. Þá verður í húsinu samkomusalur, mat- stofa, fundaherbergi, setustof- ur og gufubað. Enn fremur íbúð fyrir forstjóra heimilisins. Heildarflatarmál hússins er 1263 fm en rúmmál 4261 rúmm. Áætlaður heildarbyggingar- kostnaður er um 95 milljónir króna. Tilboð f fyrsta áfanga verks- ins, gerð grunns og botnplötu, voru nýlega opnuð og hefur nú verið samið um framkvæmdir við lægstbjóðanda, Magnús Kristinsson f.h. Byggingarfé- lagsins Smára h.f. Á næsta ári er fyrirhugað að gera húsið fokhelt. Húsið er hannað á Arkitekta- stofunni s.f. af Ormari Þór Guð- mundssyni og örnólfi Hall og samstarfsmönnum þeirra Val- dísi Bjarnadóttur arkitekt og Viðari Olsen tæknifræðingi. Verkfræðistofurnar Vægi s.f. og Rafteikning s.f. annast teikningar af burðarvirkjum, lögnum og raflögnum. 1 byggingarnefnd eru: Jakob Mortensen, formaður, Scluman Didriksen, Jens Pétursson, Leifur Gregersen, Maria Jak- obsdóttir, María Paulsen og Jóhann Olsen, fulltrúi fær- eyska sjómannatrúboðsins. Teikning af hinu nýja Færeyska sjómannaheimili I Reykjavik. „Vekjarar” áveg- um iðnrekenda Vinna að bættri samkeppnisaðstöðu FÉLAG islenzkra iðnrekenda beitir sér nú fyrir því að auka rekstrartækni hjá félagsmönn- um sínum og bæta þannig sam- keppnishæfni Islenzkra fyrír- lækja. I þeim tilgangi starfa á vegum félagsins tveir ráðgjaf- ar, þeir Bergþór Konráðsson rekstrarhagfræðingur og Guðmundur S. Guðmundsson tæknifræðingur, og hafa þeir um nokkurt skeið unnið hjá 20 fyrirtækjum í því skyni að gera heildarúttekt á stöðu hvers þeirra, og aðstoða við þau svið rekstrarins, sem helst virðist vera áBótavant. Forstöðumenn F.I.I. benda á að stigminnkandi aðflutnings- gjöld á vörur frá aðildariöndum EFTA og EBE á næstu fimm árum hafi leitt til þess að ákveðið hafi verið að aðstoða félagsmenn til að bæta sam- keppnisaðstöðuna eftir mætti. Hafi hugmyndin um ráðningu rekstrarráðgjafa kviknað i fyrra haust og komizt í fram- kvæmd um síðustu áramót með fjárhagsaðstoð frá Iðnþróunar- sjóði. Innan félagsins hafi þess- ir ráðgjafar hlotið viðurnefnin ,,vekjarar“, því þeim sé ætlað að vekja fyrirtækin til dáða og vekja athygli á þeim liðum rekstursins, sem betur mættu fara. Á fundi með fréttamönnum kom fram að forstöðumenn F.t.I. telja eðlilegra að líta í eigin barm til að koma á umbót- um hjá félagsmönnum, en ekki sækja alla aðstoð til þess opin- bera. Kváðust forstöðu- mennirnir fyrst og fremst vilja gera kröfur til sjálfra sín og finna leiðir til úrbóta með eigin ráðum, en ekki sækja allt til opinberra aðila. Töldu þeir rekstrarráðgjafana nýju, eða „vekjarana", sem hafa kynnt sér sams konar ráðgjafastörf hjá nágrannaþjóðum okkar, geta komið miklu til leiðar á þessu sviði. Margir eru þó þeir erfiðleikar, sem jafnvel rekstrarráðgjafar ráða ekki við, svo sem verðbólgan og toll- greiðslur af nauðsynjum iðnaðarins, sem stundum kippa fótunum undan samkeppnis- hæfninni. Forstöðumenn og „vekjarar" iðnrekenda á fundi með fréttamönn- um. Ljósm.Mbl. Brynj. „Gleym mér ei”-sala LÍKNARSJÓÐUR Aslaugar K. P. Maaek, Kópavogi, efnir til blóma- sölu sunnudaginn 26. október. Lfknarsjóðurinn var stofnaður 27. janúar 1952 til minningar um fyrsta formann Kvenfélags Kópa- vogs, frú Áslaugu K.P. Maack. Markmið sjóðsins er að styrkja einstaklinga og fjölskyldur, sem þurfa á hjálp að halda vegna veik- inda eða annarra erfiðleika. Oft er um skyndihjálp að ræða t.d. vegna slysa. Blóm Líknarsjóðsins hefur ver- ið selt I Kópavogi einn dag á ári. Er það „gleym mér ei“, en Aslaug K.P. Maack gleymdi ekki þeim sem áttu í erfiðleikum. Blómið er því táknrænt. Stjórn Líkn jóðsins skipa þessar konur: Helga Þorsteinsdóttir formaður, Soffía Eygló Jónsdóttir varafor- maður, Vilborg Björnsdóttir ritari, Ólafía Jensdóttir gjaldkeri og Agla Bjarnadóttir meðstjórnandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.