Morgunblaðið - 26.10.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÖBER 1975
3
25—30% sjónvarpsefnis sent út 1 lit
— siónvarpsmenn ánægðir
með fyrstu litaútsendinguna
Eins og fram hefur komið af fréttum hóf sjón-
varpið litaútsendingar s.l. föstudagskvöld. Fyrsta
dagskráratriðið, sem sent var út í Iist var ballett
Birgit Cullberg, en á eftir komu svo Skálkarnir.
Báðar þessar dagskrár eru á myndsegulbandi, sem
er forsenda þess, að litur komi fram í útsendingu.
Blm. Mbl. var boðið að vera við þessa „frumsýn-
ingu“ á íslenzku litstjónvarpi í húsakynnum Heim-
ilistækja, en segja má, að fyrirtækið hafi að vissu
leyti orðið til þess að litaútsendingar eru nú hafnar
hér á landi.
Forsagan er sú, að fyrir
nokkru fengu Heimilistæki
hingað tæki, sem framkallar lit
á litsjónvarpstækjum, þótt ráð-
stafanir séu til þess gerðar að í
sjónvarðsstöð að loka fyrir lit í
útsendingu. Tæki þetta hefur
verið nefnt Iitlykill og myndi
kosta um þrjátíu þúsund krón-
ur í verzlunum hér. Það var
upphaflega hannað af Philips i
Astralíu, en dráttur varð á þvi
að sjónvarp þar hæfi útsending-
ar í lit, og var litlykill notaður
um tima í Astralíu og á Nýja-
Sjálandi, eða þar til sjónvarps-
stöðvar þar hættu að loka fyrir
litinn.
Eins og fram kom í frétt í
blaðinu í gær varð innflutning-
ur litlykilsins hingað til þess að
íslenzka sjónvarpið ákvað að
hefja litaútsendingar, þar sem
ekki þótti ástæða til að baka
eigendum litsjónvarpstækja
ómak og kostnað við að fá sér
litlykil.
A „frumsýningunni" gafst
kostur á að bera saman gæði
myndar, sem send var út I lit,
eins og hún kom fram á tækinu,
og svo myndar, sem framkölluð
var með litlykli. I ljós kom, að
gæði myndanna voru þau sömu,
þ.e.a.s mjög góð.
Heimilistæki gengust nýlega
fyrir tveggja vikna námskeiði í
viðgerðum og meðferð Iitasjón-
varpstækja. Námskeiðið sóttu
fimm tæknimenn frá Sjónvarp-
inu, fimm kennarar Iðnskólans
og fimm menn frá Heimilis-
tækjum. Þetta er fyrsta nám-
skeiðið, sem haldið er hér á
landi í viðgerðum litsjónvarps-
tækja, þannig að nú fyrst er
aðstaða til að veita þá þjónustu,
sem eigendur litsjónvarpstæka
kunna að þurfa á að halda, en
litsjónvarpstæki eru rriun
flóknari en svart-hvít tæki, eins
og raunar kemur fram í verði
þeirra. Algengt verð að litsjón-
varpstækjum mun nú vera um
250 þúsund krónur.
Við snerum okkur i gær til
Harðar Frimannssonar yfir-
verkfræðings Sjónvarpsins, og
spurðum hvernig þeim sjón-
varpsmönnum þætti hafa til
tekizt með þessa fyrstu útsend-
ingu í lit.
Hörður sagðist vera mjög
ánægður með árangurinn, og
sagði dagskrá föstudagskvölds-
ins hafa verið vel til þessarar
byrjunar fallna, þvi að ballett-
inn hefði verið í svokölluðum
ýktum litum, en Skálkarnir i
eðlilegum Iitum, þannig að góð-
ur samanburður hefði fengizt.
Við spurðum hvaða efni það
yrði, sem sent yrði út í lit við
núverandi aðstæður.
— Við höfum aðeins
aðstæður til að senda út þau
myndsegulbönd, sem eru í lit,
sagði Hörður. — 60—65% af
Litlykillinn. Oft veltir Iftii
þúfa þungu hlassi, segir mál-
tækið, og það eru orð að sönnu
um litlykilinn, sem orðið hefur
til þess að Sjónvarpið hefur nú
hafið litaútsendingar.
því efni, sem sjónvarpið fær
erlendis frá er á myndsegul-
böndum og af því eru 70—80%
í lit. Þar er um að ræða flesta
framhaldsmyndaþætti og svo til
allt efni, sem kemur frá Bret-
landi auk þess sem margar
kvikmyndir hafa verið settar
yfir á myndsegulbönd. Allt
þetta efni getum við nú sent út
í lit, en ég gæti trúað að þetta
yrði um 25—30% af öllu dag-
skrárefni íslenzka sjónvarps-
ins.
— Hvaða tæki vantar þá til að
hægt sé að senda út aðrar lit-
filmur?
— Næsta skrefið yrði að fá
hingað svokallaðan „lit-
scanner“, sem setur litmyndir
inn á litasjónvarpsupptökuvél.
— Hvað myndi slíkur tækja-
búnaður kosta?
— Hann myndi líklega kosta
eitthvað 40—50 milljónir
króna. Lokaskrefið yrði svo að
koma hér upp „litastúdíói", en
kostnaður við það gæti orðið
4—500 milljónir. Hins vegar
gæti ég ímyndað mér að á
sínum tíma myndi islenzka
sjónvarpið byrja á þvi að fara
leið, sem flest nágrannalönd
okkar hafa farið — þ.e. að
kaupa fyrst bifreið með „lita-
stúdíói", sem hefur þann kost,
að hægt væri að nota hana í
sambandi við sjónvarpsstöðina
og utanhúss. Slíkur upptökubíll
myndi nú kosta 80 til 100
milljónir að ég held.
— Er hafinn nokkur undir-
búningur að útvegun einhverra
slíkra tækja hjá Sjónvarpinu?
— Nei, sagði Hörður
Frímannsson.
Kanaríeyjar
1975—1976
Brottför:
30. okt. 3 vikur uppselt
20. nóv. 3 vikur
4. des. 2 vikur
1 1. des. 1 9 dagar uppselt
1 8. des. 3 vikur uppselt
29. des. 1 8 dagar uppselt
8. jan. 3 vikur uppselt
1 5. jan. 3 vikur uppselt
29. jan. 2 vikur uppselt
5. feb. 3 vikur uppselt
12. feb. 3 vikur uppselt
26 feb. 2 vikur
4. marz. 3 vikur uppselt
1 5. marz 3 vikur
25. marz 3 vikur
1. apr. 3 vikur uppselt
1 5. apr. 2 vikur uppselt
99 ^ \/ik11 r
Allir fara í ferð með
ÚTSÝN
Sýningar
í Kaupmannahöfn
BROTTFÖR: 12. OKT.
Clothing fair
Brottför: 23. nóv.
Furniture industry
Brottför 14. feb.
Scand menswear fair
Brottför: 1 3. marz
Scand. fashion week
Brottför: 23. apr.
Scand. gold &
silver fair
Verð frá kr, 38.300
Skíðaferðir
til Lech í Austurríki
Brottför 15. jan og 7. fobr.
Ver8 me8 gistingu og Vi
fæSi I 15 daga
Bangkok
og
Pattaya
Ógleymanleg
ævintrýaferð
Brottför:
1 9. des
15 feb.
Kenya
Brottför: 13. marz
Safari oq vikudvöl við
London
Ódýrar vikuferðir
Brottför
október:
5., 12., 18.
nóvember:
1 8 15. 22 29
Verðfrá kr. 38.000
Glasgow
Helgarferðir
Brottför:
10. og 24. okt.
7. og 21. nóv.
Verðfrá kr. 27.500
FERÐASKRIFSTOFAN UTSYN AUSTURSTRÆTI 17
SÍMAR 26611 OG 20100