Morgunblaðið - 26.10.1975, Side 24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1975
23
llppiygpgin
Neskaipstað
Uppbygging þeirra fyrirtækja, sem þurrkuðust út í náttúruhamför-
unum í Neskaupstað þann 20. desember á s.l. ári er nú komin vel á veg,
þótt enn sé margt eftir. Segja má að unnið sé dag og nótt við endurreisn
sumra fyrirtækjanna og allt kapp er lagt á að koma þeim sem fyrst í
notkun og öll starfa þau nú að einhverju leyti, þótt starfsemin sé ekki
eins mikil og áður. Morgunblaðið átti leið um Neskaupstað fyrir
skömmu og ræddi þá við nokkra þá, sem standa í fremstu viglínu
heimamanna við uppbygginguna. Þá kom fram, að flestir eru mjög
þakklátir öllum þeim, sem veitt hafa aðstoð við endurreisnarstarfið, en
að enn vantaði þó mikið á, að fyrirtækin hefðu náð sinni fyrri stærð og
að það fjármagn, sem þeim væri ætlað, dygði til þess. Það kom fram, að
eina peningastofnunin, sem hefur veitt einhverja bráðabirgðafyrir-
greiðslu, sem heitið getur, er Sparisjóður Norðfjarðar og finnst Norðfirð-
ingum það einkennilegt, að Landsbankinn, sem hefur útibú á staðnum,
hefur ekki tekið þátt í uppbyggingunni, þótt allt það-fé, sem veitt hefur
verið til uppbyggingarstarfsins hafi farið í gegnum útibúið. — Viðtölin
við Norðfirðingana fara hér á eftir.
Eirrkar Asmundsson við afgreiðslu f bifreiðaþjðnustunni.
Jafn bjartsýnn á
framtíðina o g áður
„Engin fyrirgreiðsla til
að leysa nýju teekin út”
Rætt við Gylfa
Gunnarsson
„Áætlaðar bætur Steypusöl-
unnar h.f. voru 29.5 millj. kr., þar
af á ég enn eftir að fá 8.5 millj. kr.
og ekki er vitað hvenær ég fæ
þessa upphæð eða hvernig þetta
mál þróast. Ástæðan fyiir þvi að
það fé er ekki komið, er, að mats-
manni Viðlagasjóðs fannst siðasta
skattaframtal fyrirtækisins varð-
andi lager ekki bera saman og auk
þessa hafa húsabætur ekki verið
greiddar," sagði Gylfi Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Steypusöl-
unnar hf. þegar Mbl. ræddi við
hann.
— Hafið þið keypt mikið af
nýjum tækjum i stað þeirra, sem
eyðilögðust eða hurfu i snjó-
flóðinu?
„Megnið af þeim tækjum, sem
keypt voru i stað þeirra, sem eyði-
lögðust, og ég festi kaup á vegna
uppbyggingarinnar hér standa
óhreyfð þar sem engin fyrirgreiðsla
hefur fengizt til að leysa þau úr tolli
Núna er aðal steypuvertiðin að
verða búin, og ég veit ekki hvernig
þetta fer. Hjá mínu fyrirtæki hefur
allt farið i sjálft sig i sumar vegna
gífurlegs kostnaðar og mikillar yfir-
vinnu. Þetta stafar af því, að tækin
sem við höfum notað í stað þeirra,
sem liggja hér óhreyfð, eru úr sér
gengin og ekki boðleg til vinnu,"
— Er búið að greiða tækin, sem
hér standa óhreyfð, erlendis?
„Þau eru greidd þar. Úr því sem
komið er, get ég ekki séð neina
ástæðu til þess að lánastofnanir veiti
fyrirgreiðslu, þvi okkar vertíð er að
verða búin Eina fyrirgreiðslan, sem
ég hef enn fengið frá lánastofnunum
eftír snjóflóðin, er frá Sparisjóði
Norðfjarðar og lánsloforð upp á 7
millj kr frá Byggðasjóði."
— Fyrir hvað áttu tjónbæturnar
að koma?
„Þær áttu að koma fyrir steypu-
stöðina, sementsgeymslu, verkstæði
fyrirtækisins, tvo steypubila, 1 vöru-
bíl, 1 jarðýtu, íbúðarhús með
tveimur íbúðum, þar sem skrifstofur
fyrirtækisins voru og skrifstofu-
áhöld Ennfremur átti fyrirtækið
mikið af byggingarefni, sem fór for-
görðum og mjög stóran varahluta-
lager, sem myndazt hafði á 10 árum
eða frá því að fyrirtækið var stofnað
Annars missti ég samtals 8 bila í
snjóflóðinu "
— Hvað er gert ráð fyrir, að
kosti að byggja fyrirtækið upp á
ný?
«■ ■ mtmam m - ■ i
Gylfi Gunnarsson
„Þær áætlanir sem hafa verið
gerðar fyrir mig hljóða upp á 60
millj. kr."
— Hvað hafa margir menn
starfað hjá fyrirtækinu í sumar?
„Yfirleitt 20—25, sem eru mun
fleiri en á siðastliðnu árii'
— Hvernig er útlitið framund-
an?
„Það er þannig, að selja þarf eitt-
hvað af tækjum nema lánastofnanir
bregðist við, núna þegar ekki þarf á
þeim að halda yfir vetrartimann.
Menn eru lika að koma úr sumar-
leyfum núna og geta farið að veita
mönnum áheyrn Það verður að
segjast, að við hefðum staðið ráð-
þrota í sumar, ef Sparisjóður væri
ekki í Neskaupstað, bankarnir hafa
ekki veitt fyrirgreiðslu. Næsta sumar
verður vafalaust miklu minna um að
vera hér í Neskaupstað Þess vegna
er mjög slæmt, að þessi tæki sem
keypt hafa verið, hafi þurft að
standa ónotuð í sumar og ryðga
niður og þurfa síðan að nota úr sér
gengið dót með ærnum kostnaði til
að geta veitt einhverja þjónustu
Mér var heitið I upphafi, að það yrði
reyní að koma til móts við okkur og
hefði ekki farið út i það að byggja
upp fyrirtækið annars Við höfum
unnið nótt sem nýtan dag til að
reyna halda steypuframleiðslunni
gangandi og höfum t d steypt upp í
þrjá sólarhringa i einu og unnið því
sem næst heilu vikurnar. Útkoman
er þannig, að betur hefði verið
heima setið, þvi allt sem inn hefur
komið hefur farið i kostnað og
þjónustu sem fyrirtækið hefur vart
getað veitt."
— Hvar hefur fyrirtækið haft
aðalbækistöðvar i sumar?
„Við gátum notað steypu- og
malartrekt, sem stóð uppi eftir snjó-
flóðin og til þess að koma upp
verkstæðisaðstöðu notaði ég 9 millj.
kr. af bótafénu í að koma verk-
stæði Steypusölunnar og fyrirtæki
Eiríks Ásmundssonar, Bifreiða-
þjónustunni, fyrir i Mána
skemmunni Að sjálfsögðu var þetta
verk, sem Viðlagasjóður hefði
reyndar átt að gera, en ég varð að
nota bótaféð til þess og þá hef ég
ekki eftir nema 13.5 millj. kr. sam-
kvæmt mati til að byggja fýrirtækið
upp, sem ekki er há upphæð um
þessar mundir og verðbólgan heldur
áfram sinu striki og étur upp þessa
upphæð á stuttum tima '
EITT þeirra fyrirtækja, sem
þurrkaðist út á augabragði i snjó-
flóðunum i Neskaupstað 20. des.
s.l. var Bifreiðaþjónustan. Eigandi
þessa fyrirtækis, Eirikur Ásmunds-
son, gafst þó ekki upp frekar en
aðrir, og skömmu siðar hóf hann
starfsemi á ný i bráðabirgðahús-
næði og i •'marz hóf fyrirtækið
starfsemi á ný. Þessa dagana er
fyrirtækið að hefja byggingu á
nýju og rúmgóðu húsnæði
skammt frá nýju sildarbræðslunni.
Yfirleitt er mikið að gera hjá Eiriki
og svo var einnig þegar Mbl. hitti
hann að máli við afgreiðslu vara-
hluta og tækja i Mánaskemmunni,
en þar hefur Bifreiðaþjónustan að-
setur sem stendur.
— Þegar fyrirtæki mitt hóf
rekstur á ný í marzmánuði, var fyrst
og fremst um dekkjaviðgerðir, vara-
hluta- og verkfærasölu að ræða Þvi
miður höfum við ekki enn og getum
ekki húsnæðisins vegna veitt sömu
þjónustu og áður, og í sumar varð
ég áþreifanlega var við, hvað ferða-
fólk saknaði þeirrar góðu aðstöðu
sem við höfðum komið okkur upp,
þegar ósköpin dundu yfir, en þá var
ég að leggja síðustu hönd á fyrsta
flokks aðstöðu. Ég var þá nýbúinn
að reisa stóra skemmu með tveimur
Texti og myndir frá Neskaup
stað Þórleifur Ólafsson
Fyrirtæki Gylfa Gunnarssonar hefur enn enga fyrirgreiðslu fengið til
að leysa út úr tolli ný tæki, sem fyrirtækið festi strax kaup á eftir
snjóflóðin. Á annarri myndinni sjást tveir nýir steypubílar, sem staðið
hafa óhreyfðir í Neskaupstað í sumar og á hinni myndinni er ný
steypustöð. Og þar sem fyrirgreiðslan hefur enn ekki komið, hefur
fyrirtækið orðið að notast við gömul og úr sér gengin tæki, sem þurfa
gífurlegt viðhald.
bílalyftum og öðrum góðum tækja-
búnaði Því miður eyðilagðist þetta
allt í náttúruhamförunum, segir
Eiríkur.
Þá sagði hann, að öll umsvif væru
nú allt öðru vísi en áður Allt væri
dýrara og reksturinn léti minna yfir
sér. Þá væri nýting á mannafla mjög
slæm vegna ónógrar aðstöðu.
„Vegna þrengsla er ekki aðstaða til
þess að verá með þá varahluti, sem
maður hefði ella verið með En núna
hef ég hafið byggingu á nýju stál-
grindahúsi undir reksturinn,
Skemman er keypt frá Heðni og er
36x12 metrar en það er lítið eitt
stærra en húsið, sem fór í snjóflóð-
inu''
,,Já,'' segir Eiríkur, „Þetta verður
strembið, reyndar er ég búinn að
borga skemmuna, en ég er búinn að
fá 60—70% af því fé, sem Viðlaga-
sjóður á að greiða mér samkvæmt
tjónamatinu. Mér reiknast til, að nú
eigi ég eftir að fá 5—6 millj kr og
er þegar búinn að fá lán út á það,
sem ég á inni Nokkur hluti þessarar
fjárhæðar hefur farið í tækjakaup,
en er samt ekki há upphæð Þótt ég
hefði viljað fjárfesta í tækjum fyrr á
árinu, hefði ég ekki getað það, þar
sem ég get ekki geymt þau vegna
plássleysis og allt hækkar í verði,
t d. hafa þau tæki, sem ég kem til
með að nota, hækkað um
30—40% það sem af er árinu Ég
tel mig þurfa 10—12 millj kr. enn
til þess að geta eignast álika verð-
mætan lager og ég missti i snjóflóð-
inu og þá á ég ekki við fjölda hluta "
— Hvernig ætlar þú þá að leysa
vandann?
„Ég get ekki séð hvernig þetta á
að takast Reyndar hef ég ekki gert
fjárhagsáætlun nýverið, því um leið
og þær eru unnar, er verðbólgan
búin að eyðileggja áætlanagerðina
Ég hafði gert mér vonir um að flytja i
nýja húsið í ágúst s.l og gerði
ýmsar ráðstafanir i vörukaupum og
eru allskonar sendingar að koma
núna, en því miður er rétt verið að
byrja á grunni nýja hússins.”
— Hver er ástæðan?
„Höfuðástæðan fyrir þessari
seinkun er að skipulag á þessu
svæði hefur dregizt von úr viti Úr
því sem komið er, geri ég ekki ráð
fyrir að flytja inn í nýja húsið fyrr en
í vor eða næta sumar Það fer allt
eftir hvernig árar á næstunni En
þessi seinkun gerir það að verkum,
að þessi framkvæmd mín verður öll
dýrari en átti að vera í upphafi "
— Hvað vinna margir hjá þér?
„Hjá fyrirtækinu starfa venjulega
fjórir menn að mér meðtöldum Og
ég verð að segja, að þrátt fyrir allt er
ég jafn bjartsýnn á framtiðina og
áður, þrátt fyrir allt sem á hefur
dunið Náttúruhamfarir eins og í
fyrra þurfa ekki að koma fyrir aftur,
en þær gætu samt allt æms átt sér
stað á komandi vetri í fyrra var
óvenjulegur snjór, hann var bæði
þurr og sat ofarlega i fjöllunum '
— Eru bilstjórar nógu vel búnir
á ferðalögum?
„Ég verð að játa að fólk er nú
miklu betur búið á ferðalögum en
áður Vafalaust á aukinn bilakostur
og örari endurnýjun bifreiða sinna
þátt í því, en áður voru bílar okkar
íslendinga alltof gamlir þegar litið er
á heildina.” t