Morgunblaðið - 05.12.1975, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.12.1975, Qupperneq 1
40 SIÐUR FRtJ Betty Ford, forsetafrú Bandarfkjanna, sem nú er f heim- sókn f Peking ásamt manni sfnum sést hér heilsa lftilli kfn- verskri stúlku og fööur hennar f musteri himnarfkis f Peking. 80 milljón lesta minni korn- uppskera í Sovétríkjunum Stórkostlegur niðurskurður á kvikfénaði framundan Moskvu, 4. desember. Reuter. Landbúnaðarsérfræðingar á Vesturlöndum hafa reiknað út að kornuppskera f Sovétrfkjunum í ár hafi aðeins numið 137 milfjón lestum, sem er 80 milljón lestum minna magn, en gert hafði verið ráð fyrir f áætlunum fyrir þetta ár og minnsta uppskera á sl. 10 árum. Talið er að þessi mikli upp- skerubrestur muni valda stór- felldum niðurskurði á kvikfénaði f vetur. Einn sérfræðingur hefur bent á að árið 1972, er uppskeran var 168 milljónir lesta hafi orði að slátra svfnum, geitum og kindum, en nú sé ljóst að ekki verði hjá þvi kom- ist að slátra kúm. Sérfræðingar fengu þessa tölu i örstuttri frétt, sem birt var í Moskvublöðunum í gær um uppskeru á árunum 1971—75 og úr ummælum I Vashchenkos, formanns fjárlaga og áætlunarnefndar ríkisins, þar sem hann sagði að meðaluppskera á þessu 5 ára tímabili hefði verið 8% hærri en á árunum 1966—70. Uppskerubresfurinn er einkum um að kenna miklum þurrkum í Sovétríkjunum á helzta vaxtar- tíma kornsins. Sérfræðingar segja hins vegar að vegna geysilegrar tæknivæðingar í landbúnaði verði að líta á uppskeruna í ár sem hina lélegustu frá lokum heimsstyrj- aldarinnar síðari. 200 mílur tilbúnar til afgreiðslu í öldunga- deild Bandaríkjaþings Washington 4. desember — NTB. TILLAGAN um útvfkkun fisk- veiðilögsögu Bandarfkjanna f 200 sjómflur er nú tilbúin til afgreiðslu f öldungadeild Banda- rfkjaþings. Tillagan var sam- þykkt með yfirgnæfandi meiri- hluta f fulltrúadeildinni snemma f október og allt bendir til þess að öldungadeildin geri hið sama. Hermálanefnd deildarinnar af- greiddi málið á miðvikudag og samþykkti með 9 atkvæðum gegn 7 að mæla með þvf að öldunga- deildin samþykkti tillöguna, sem felur f sér einhliða útfærslu. Hvfta húsið, varnarmálaráðu- neytið og utanríkisráðuneytið hafa lýst andstöðu við slfkar að- gerðir, er þær njóta stuðnings áhrifamikilla afla f þinginu. Viðskiptanefnd öldungadeildar- innar hafði áður samþykkt f þing- inu. Viðskiptanefnd öldunga- deildarinnar hafði áður sam- þykkt að mæla með tillögunni, en utanrfkisnefndin lagðist gegn henni, að vfsu aðeins með eins atkvæðis meirihluta. Eini munurinn á þeirri tillögu, sem öldungadeildin tekur nú til afgreiðslu og þeirri, sem fulltrúa- deildin samþykkti, er sú að gert er ráð fyrir útfærslu 1. janúar 1977, í stað 30. júní 1976, eins og fulltrúadeildin vildi. Þetta mun líklega stafa af því að varnarmála- nefndin vill gefa hafréttarráð- stefnunni, sem kemur saman f Frú Sakharov tekur við verð- laununum Ösló 4. desember NTB. ELENA Sakharov, eiginkona sovézka vfsindamannsins og friðarverðlaunahafans Andrei Sakharovs, staðfesti f dag við norsku Nóbelsnefndina að hún myndi koma til Óslóar til að taka við verðlaununum fyrir mann sinn, sem sovézk yfir- völd hafa neitað um fararleyfi til Noregs á þeim forsendum að hann búi yfir rfkisleyndar- málum. Verðlaunin verða afhent nk. miðvikudag 10. desember og mun frú Sakharov koma til Óslóar á þriðjudag. Þá mun hún einnig halda blaðamanna- fund á fimmtudag. New York í vor, annað tækifæri. En um þetta verður sameiginleg hafréttarnefnd beggja deilda að ná samkomulagi áður en tillagan kemur til lokaafgreiðslu deild- anna. Ford forseti hefur lýst því yfir, að hann muni beita neitunarvaldi gegn einhliða aðgerðum af hálfu Bandaríkjanna áður en hafréttar- ráðstefnan hefur komist að niður stöðu. Málið er hins vegar ekki einfalt og sá möguleiki er ekki fjarlægur að á kosningaári komi hann til með að meta aðstæður frá sjónarmiði innanríkismála frem- ur en utanríkismála. Simamynd AP. Konur frá Moluccaeyjum f ráðhúsinu f Bcilcn eftir að þær höfðu boðist tii að reyna, sem „mæður og eiginkonur'* að hafa áhrif á lestarræningjana, sem halda farþegum f gfslingu f lest nálægt Beilen. Valdbeiting líklega nauðsynleg til að frelsa meir en 60 gísla Amsterdam ok Beilen 4. desember Reuter TVEIR hópar vopnaðra manna héldu f kvöld meir cn 60 manns körlum, konum og börnum f gfslingu f Hollandi og hollenska stjðrnin neyðist Ifklega til þess að beita valdi til að yfirbuga þá. Alitið er að báðir hóparnir séu öfgamcnn frá Suður-Moluccaeyjum í Kyrrahafi sem berjast fyrir sjálfstæði eyjanna frá Indónesftf. Mennirnir sex, sem rændu farþegalest f norður Hollandi fyrir meir en tveim sólarhringum, skutu f dag einn af 38 gfslum sfnum og aðvöruðu jafnframt: „Við erum reiðubúnir til að berjast, drepa aftur og deyja sjálfir." Hópur manna hertók einnig indónesfsku ræðismannsskrifstofuna f Amsterdam. Skutu þeir einn starfsmann skrifstofunnar í magann og tóku að minnsta kosti 25 fanga, þar á meðal 10 börn á aldrinum 5 til 12 ára. Fimm hræddum börnum var sleppt f gærkvöldi og settu mcnnirnir fram kröfu um að þeir fengju að fara fcrða sinna og flugvél til afnota. Mennirnir sex, sem halda fólkinu í lestinni krefjast þess að allir Moluccaeyjabúar, sem sitja í fangelsum i Hollandi verði látnir lausir. Kröfum sínum til áréttingar skutu þeir þriðja gíslinn í dag. Lengi var ekki vitað hvort hann var særður eða látinn, þar sem ræingjarnir öftruðu lög- reglumönnum með skothrið að komast nærri lestinni þar sem gislinn lá ásamt líkum tveggja gisla sem myrtir voru i gær. Ræningjarnir hafa sent kröfur sínar með milligöngumanni sem hefur farið þrjár ferðir út í lest- ina þar sem hún stendur á járn- brautarteinunum á auðu svæði. Dómsmálaráðuneytið sagði að siðustu skilaboð ræningjanna væru aðallega löng pólitisk yfir- lýsing þar sem þess væri krafist að Moluccaeyjar yrðu sjálfstæðar, en þær tilheyra nú Indónesíu er voru áður hollensk nýlenda. Tals- maður ráðuneytisins sagði að ekki væri hægt að skýra frá öðrum atriðum skilaboðanna þar sem þau væru í gaumgæfilegri athug- un stjórnvalda. Samkvæmt síðustu fréttum krefjast ræningjarnir þess einnig að Holland beiti sér fyrir við- ræðum milli hópa, sem berjast fyr ir sjálfstæði Moluccaeyja, og Indónesiustjórnar undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna og að hollenska stjórnin lýsi þvf yfir í beinni sjónvarpssendingu að hún beri ábyrgð á því aó Moluccaeyjar voru settar undir stjórn Indónesiu þegar nýlendan fékk sjálfstæði 1949. Þeir fangar, sem ræningjarnir fyrst og fremst vilja fá lausa, eru menn sem dæmdir voru fyrir sam- særi um að ræna Júlíönu drottn- ingu og öðru fólki úr hollenzku konungsfjölskyldunni. Fyrr i dag minnkaði áfrýjunarréttur í Arn- hem refsingar sumra þeirra. Tveir af föngunum tólf voru sýkn- aðir og fangelsisdómur þriggja var minnkaður úr fimm árum í fjögur. Mennirnir viðurkenndu að hafa ætlað að ræna drottningunni með áhlaupi á hlið konungshallarinn- ar. Sögðust þeir hafa viljað draga athygli heimsins að sjálfstæðis- baráttu Moluccaeyjamanna. Ræningjarnir hafa farið fram á það að meir en 300 lögreglumenn og hermenn, sem umkringja lest- ina, dragi sig til baka. Virðast þeir óttast áhlaup þeirra. Dómsmálaráðuneytið skýrði frá því að lfklegt væri að kona, sem ræningjarnir héldu í lestinni, hefði dáið af hjartaáfalli, en það hafði ekki fengist staðfest. Milli- göngumaðurinn hefur reynt að komast að því. Framhald á bls. 22 Heimsókn Fords lauk án yfirlýsingar Peking4. desember — Reuter FORD Bandarfkjaforseti lauk heimsókn sinni til Kína f kvöld og sagði f þakkarræðu sem hann hélt að heimsókn sfn hefði verið mjög gagnleg „þó að ágreiningsmál hafi borið á góma.“ Ekki er þó álitið að mikill árangur hafi náðst með heimsókninni, en Ford sagði f matarboði i Hinum mikla sal þjóðarinnar, að viðræðurnar hefðu verið „vinsamlegar, hrein- skilnar, vfðtækar og uppbyggi- legar.“ Forsetinn, sem fer til Indónesfu á morgun sagði að sambandið á milli Kína og Bandaríkjanna, þó enn væri ekki komið í „eðlilegt horf “ væri gott og vinsamlegt. Varaforsætisráðherra Kína Teng-Hsiao Peng var heldur kaldari í ræðu sinni og sagði við- ræðurnar hafa verið gagnlegar. Með svipuðu orðalagi sögðu Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.