Morgunblaðið - 05.12.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975
3
BBC-fréttamaðurinn í viðtali við Mbl.:
„Hélt að landgöngubann næði
ekki til hhitlausra fréttamanna”
SAKSÓKNARAEMBÆTTIÐ
úrskurðaði f gær, að ekki væri
ástæða til frekari aðgerða f
máli brezka fréttamannsins
Archie McPhee frá brezka út-
varpinu BBC og var honum
Ieyft að fara frá Neskaupstað
og um borð f eftirlitsskipið
Miröndu, sem kom inn á Norð-
fjörð til þess að sækja hann. Þá
hafði McPhee samið skýrslu
um komu sfna og f henni skýrði
hann frá þvf að hann hefði skil-
ið svo orð skipstjórans á
Miröndu, að öll leyfi vfirvalda
á Islandi væru fyrir hendi um
að hann færi f land. McPhee fór
frá Neskaupstað laust fvrir
klukkan 11 f gærmorgun.
Morgunblaðið náði f gær tali
af Archie McPhee, en þá hafði
hann verið fluttur frá borði
Míröndu og yfir í dráttarbátinn
Lloydsman. McPhee.semer sér
fræðingur BBC i landbúnaðar-
og sjávarútvegsmálum, sagði að
hann hefði yfir engu að kvarta
um meðferð yfirvalda á sér á
- Hef undan engu að
kvarta, hitti aðeins
vingjarnlegt fólk á
stuttri dvöl
minni á íslandi
meðan hann var i gæzluvarð-
haldi. Embættismenn hefðu
komið einstaklega vel fram við
sig og honum hafi verið fylli-
lega ljóst að þeir gerðu ekkert
nema skyldu sína — þ.e. að fara
að fyrirmælum dómsmálaráðu-
neytisins. „Allt fólk, sem ég
hitti á meðan á dvöl minni á
Islandi stóð, var sérstaklega
vingjarnlegt og mér var í raun
vel tekið á íslandi, en ég varð
að fara aftur vegna afstöðu
dómsmálaráðuneytisins í
Reykjavík. Ég get á engan hátt
kvartað undan þeirri meðferð,
sem ég hlaut.“
Morgunblaðið spurði þá
Archie McPhee fer frá
Neskaupstað í gærmorgun. —
Ljósm: Sigurður Arnfinnsson.
McPhee að þvf, hvað hann hefði
ætlazt fyrir á meðan á dvöl
hans hefði staðið á Islandi.
Hann svaraði: „Ég var lagður
-af stað til Reykjavíkur og þar
ætlaði ég að dveljast í svo sem
einn dag, unz flogið yrði til
London. Ég ætlaði að nota tæki-
færið f Reykjavík og ræða við
fólk, ríkisstjórn og blaðamenn
'sem fréttamaður eingöngu. Ég
fór í land með því hugarfari, að
ég væri fréttamaður, ég væri
aðili að alþjóðlegu blaðamanna-
sambandi, vitandi það þó, að
íslenzk stjórnvöld hefðu
bannað öllum þeim, sem væru á
vegum brezka togaraflotans eða
verndarskipa hans að fara í
land, nema um veika eða særða
væri að ræða. Ég leit alls ekki á
sjálfan mig sem aðila að veiðum
Breta hér við land eða aðgerð-
um þeirra á sjó hér við land. Ég
er fréttamaður og ég kom til
landsins í þeim skilningi að ég
væri brezkur þegn, sem ekki er
Framhald á bls. 22
Miranda bfður úti á Norðfirði eftir fréttamanni BBC, sem hún kom til aó sækja. Depillinn aftan við
skut skipsins er gúmbáturinn, sem flytur Archie McPhee til skipsins.
„Sprettur í góð-
um félagsskap ”
— „Eg skal vaka . . ný breiðskífa Árna
Johnsen með ljóðum Halldórs Laxness
% „ÞESSI plata er af minni
hálfu sprettur f góðum félags-
skap, Iffsleikur með góðum
ljóðum og skemmtilegum. Og
fátt veít ég náttúrulegra f góð-
um leik en söng. Það má segja
að mið plötunnar sé að taka
smá dansspor með fslenzkri
menningu og vonandi hittir það
f mark hjá þeim sem hafa
gaman af að taka lagið og unna
góðum Ijóðum.“
0 Þetta sagði Arni Johnsen,
vfsnasöngvari og blaðamaður, á
fundi með starfsbræðrum sfn-
um f gær þar sem kynnt var
nýútkomin breiðskffa hans og
kassetta með 13 lögum við Ijóð
eftir Halldór Laxness. Platan
ber heitið Ég skal vaka..., en
það nafn valdi Laxness sjálfur
plötunni. Halldór Laxness les
tvö ljóða sinna (Bráðum kemur
betri tfð og Strfðið) f upphafi
og enda plötunnar. Þar á milli
eru bæði gömul og ný lög við
Ijóð Laxness úr Kvæðakverinu.
Nýju lögin eru sjö alls, þar af
á Árni sjálfur fimm og tvö eru
eftir Arna G. Jörgensen. Eldri
lögin eru eftir Jón Þórarinsson,
Sigvalda Kaldalóns, Þránd
Thoroddsen og þá er eitt
íslenzkt og eitt brezkt þjóðlag,
auk dansks lags sem ljóðið
Hvað er svo glatt var upphaf-
lega samið við. Jón Sigurðs-
son bassaleikari útsetti lög-
in sem eru hin fjölbreytt-
ustu í stfl, — allt frá fjörugu
poppi í ævagamlan islenzkan
tvísöng. Þá ber að geta þess að
þau Sigríður Ella Magnúsdóttir
Framhald á bls. 22
HEIMILISTÆKI SF.
Sætúni 8 sími 15655 og Hafnarstræti 3 simi 20455.
Nú fástallar
PHILIPS vörur
LlKA
atl Sætúni 8