Morgunblaðið - 05.12.1975, Side 7

Morgunblaðið - 05.12.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975 Síðbúin vörn Á miðvikudag i sfðustu viku upplýsti Gunnar Thoroddsen iðnaðarráð- herra um tilboð, sem Lúð- vík Jósepsson, fyrrver- andi sjávarútvegsráð- herra, vildi gera Þjóðverj- um f marzmánuði 1974 um veiðiheimildir innan 50 mílna markanna og fól í sér, að Vestur-Þjóðverjar mættu veiða 80 þúsund tonn af fiski á 54 þúsund ferkílómetra svæði innan 50 mílna markanna án þcss að nokkrar tak- markanir væru settar á veiðar þorsks. Upplýs- ingar þessar vöktu að sjálfsögðu alþjóðar- athygli, ekki sízt f Ijósi þeirrar gagnrýni, sem Lúðvík Jósepsson þann sama dag hafði sett fram á samningsdrögin við Vestur-Þjóðverja. Degi sfðar, eða á fimmtudag í síðustu viku, skýrði Geir Hallgrfmsson, forsætis- ráðherra, svo frá því, að þegar f marzmánuði 1972, eða tveimur árum áður en Lúðvík Jósepsson vildi gera Vestur- Þjóðverjum framangreint tilboð, hefði Hafrann- sóknastofnun skrifað honum, sem sjávarút- vegsráðherra, bréf og talið nauðsynlegt að minnka sókn f þorsk- stofninn um helming, ef ekki ætti stórfelld hætta að stafa af. í umræðunum á Alþingi varð fátt um skýringar eða varnir af Lúðvíks hálfu og f mál- gagni Alþýðubandalags- ins, Þjóðviljanum, hefur engin tilraun verið gerð til þess að halda uppi vörn- um fyrir Lúðvfk, þar til skyndilega f gær, rúmri viku eftir að fyrstu upplýsingar koma fram um tilboð hans til Vestur-1 Þjóðverja, að Þjóðviljinn tekur allt f einu upp afar sfðbúna vörn fyrir Lúðvfk i leiðara. Og að vonum velta menn þvi fyrir sér hver skýringin kunni að vera. Ekki svo leitt, sem þeir láta , Ástæðan fyrir því, að Þjóðviljinn hefur ekki haft skjótari handtök við að halda uppi vörnum fyrir Lúðvfk, er ákaflega nær- tæk. Lúðvfk Jósepsson hefur alla tíð verið utan- garðsmaður f Alþýðu- bandalaginu. Honum hef- ur verið haldið þar frá hinum mestu völdum. í þeim miklu átökum, sem staðið hafa yfir innan Sósfalistaflokksins og Alþýðubandalagsins f nærfellt 20 ár, hefur Lúð- vfk Jósepsson jafnan orðið að láta í minni pok- ann fyrir forustuliði kommúnista f Reykjavík, sem stjórnar Þjóðviljan- um. Þegar Hannibal Valdi- marsson og Björn Jóns- son yfirgáfu Alþýðu- bandalagið á árinu 1968, munaði mjóu, að Lúðvfk Jósepsson færi með þeim. Þess vegna hefur fyrrver- andi sjávarútvegsráðherra aldrei verið neitt eftirlæti hjá ráðandi öflum f Alþýðubandalaginu eða á ritstjórnarskrifstofum Þjóðviljans við Skóla- vörðustfg. Og þessum aðilum hefur aldrei þótt svo leitt sem þeir láta, þegar Lúðvfk Jósepsson hefur komizt f pólitfska erfiðleika eins og nú. Þetta er skýringin á því, að heil vika Ifður án þess að Þjóðviljinn hreyfi litla fingur til þess að halda uppi vörnum fyrir Lúðvík. Þær uppljóstranir, sem hafa orðið þess valdandi að fáir taka lengur mark á málflutningi Lúðvfks um landhelgismál, hafa ber- sýnilega verið kærkomin sending þeim öflum f Alþýðubandalaginu, sem vilja draga úr áhrifum hans á þeim vettvangi. Ýmsar breytingar hafa verið að gerast f Alþýðu- bandalaginu á undanförn- um árum og munu gerast á hinum næstu. Ný kyn- slóð manna er að komast þar til áhrifa og valdabar- áttan þar af leiðandi mikil. Einn liður f þeirri valdabaráttu er að draga úr áhrifum Lúðvfks Jósepssonar. Þess vegna líður vika þar til Þjóðvilj- inn tekur upp vörn fyrir Lúðvík. Þess vegna er vörnin jafn aumleg og lesa mátti í forystugrein Þjóðviljans í gær. Bðkmenntlr eftir Jón Þ. Þór Vestfirðingasaga 1390—1540 nefnist ný bók frá hendi Arnórs Sigurjónssonar fræði- manns og rithöfundar. 1 eftir- mála segir höfundur, að bókin sé að nokkru samin vegna til- mæla Björns Þorsteinssonar prófessors, en hann er mestur kunnáttumaður í þessu tímabili íslandssögunnar. Eins og nafn bókarinnar bendir til fjallar hún um sögu Vestfirðinga á áðurnefndu timabili. Ekki er þó svo að skilja, sem hér sé um að ræða sögu Vestfjarða eða Vestfirðinga almennt. Bókin fjallar um vestfirzka höfðingja og höfðingjaættir, og ekki er frásögnin bundin Vestfjörðum eingöngu, heldur teygist hún einnig norður og suður um land. Ekki er hér heldur um samfellda frásögn að ræða, nema að því er snertir sam- skipti höfðingjaættanna inn- byrðis. Af þeim mönnum og ættum, sem koma við sögu má nefna: Vatnsfirðinga og Seldæli, Guð- mund ríka Arason á Reykhól- um og börn hans, Björn Þor- leifsson hirðstjóra, fjölskyldu hans og afkomendur, Ögur- menn, Jón Sigmundsson lög- mann, sfðustu kaþólsku biskup- ana á Islandi að Jóni Arasyni undanskildum, auk margra annarra. Höfundur byggir frásögnina mjög á því að láta heimildirnar tala, og heimildir hans eru fyrst og fremst samtímaheimildir. Ekki verður því þó neitað, að þar finnst mér frásögnin bezt sem Arnór Sigurjónsson bregð- ur sér sjálfur 1 gervi sögu- manns. Frásögn hans er öll létt og lipur, nákvæm og fræðandi. Athyglisverðasti hluti bókar- innar er, að mínu mati, sá er fjallar um Guðmund ríka á Réykhólum. Þar er skýrt frá þátttöku íslendinga I þeim hildarleik, sem af þeim hlauzt. Athugasemdir höfundar um þátttöku biskupanna Jóns Vil- hjálmssonar og Jóns Gerreks- sonar eru skemmtilegar, og tengingin við 100 ára striðið mjög skarpleg. Vmsir hafa trúað því, að með upphafi fisk- veiða Englendinga við Island á öndverðri 15. öld hafi hafist fyrsta þorskastríðið á milli þessara þjóða. Þetta er ekki rétt. Islendingar tóku Englend- ingum yfirleitt vel, enda var verzlun við þá mjög hagstæð. Það var Noregskonungur, sem hafði illan bifur á Islandssigl- ingum Englendinga og fyrir þeim málstað urðu íslenzkir embættismenn konungs að berjast, hvort sem þeim llkaði betur eða ver. Guðmundur Arason „for- braut“ gegn Noregskonungi með verzlun við Englendinga. En hversu mikil var verzlun Guðmundar Arasonar við enska? Um það virðast heimild- ir þegja. Og hvað varð um Guð- mund Arason er hann fór úr konungsgarði? Týndist hann I hafi, eða komst hann til Eng- lands? Kaftinn um Björn Þorleifs- son hirðstjóra og Ölöfu riku á Skarði er einnig athyglisverð- ur einkum fyrir þá sök að höf undur hrekur ýmsar gamlar þjóð- og hetjusögur um Ölöfu, hafnar þeim sem sögulegum heimildum. En hvað varð um verzlun islenskra höfðingja við Englendinga eftir miðja 15. öld? í bókinni er gefið I skyn, að t.d. Björn I ögri hafi notið góðs af siglingum Englendinga, en ekki gerð fyrir því nákvæm grein. Eru engar heimildir til um þetta? Bók Arnórs Sigurjónssonar varpar nýju ljósi á ýmsa þætti I sögu okkar á tímabili, sem fram til þessa hefur verið látið af- skiptalítið af fræðimönnum. Hún er vel og vandvirknislega unnin, þótt ekki veiti hún svör við öllum spurningum. Arnóri Sigurjónssyni ber heiður og þökk fyrir mikið og vel unnið verk. Bókaútgáfan Leiftur gefur bókina út. Frágangur er góður, en nokkuð ber á prentvillum og eru sumar hverjar hvimleiðar. Vestfirðingasaga 1390-1540 eftirArnór Sigurjónsson 7 BYI IGINGANMTA AKkTrGkWLArpS ÍUD$ KRIiKSAmC111 Sérsýning Gólfefni '75 Sýningin er opin kl. 14—22. Ath.: Ókeypis aðgangur íYi-Jin: iáí,*íS5í.« Isl. íþróttatöskur Verð frá kr. 1.150. — . Lóuhólum 2—6, sími 7502 Klapparstíg 44 sími 11 783. Jakkar úr enskumefn cAndersen Lauth hf. Vesturgötu 17 Laugavegi Glæsibæ Dönsku draumasængurnar Sængur verð kr. 5.789. —, 7.265.— 10.450.— Koddar verð kr. 3.700.— Ungbarnasængur kr 2.500.— Ungbarnakoddar kr. 1.360.— Sængurveraefni í fjölbreyttu úrvali: OPIÐ TIL KL. 10 © Vörumarkaðurinn hf. Ármúla 1A. Husgagna- og heimilisd. S-86-112 I Matvörudeild S-86-111, Vefnaðarv.d. S 86 113

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.