Morgunblaðið - 05.12.1975, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975
17
Atvinnulausir aðeins 0,6%
af heildarmannaflanum
— Verðbólgan hefur hægt mikið á sér
FYRSTU 10 mánuði þessa árs
voru að meðaltali 611 manns
skráðir atvinnulausir á öllu land-
inu eða um 0,6% af heildarmann-
afla. Borið saman við tölur frá 1
fyrra voru að meðaltali atvinnu-
lausir 349 manns eða 0,4% af
heildarmannafla. Sfðustu 4
mánuðina, þ.e. eftir að togara-
verkfallinu lauk, hafa 315 manns^
verið skráðir atvinnulausir að
meðaltali, 0,31%, en voru á sama
ífma f fyrra 162.
Þessar upplýsingar koma fram í
skýrslu Þjóðhagsstofnunar um
þjóðhagshorfur og hag helztu at-
vinnuvega í árslok 1975. Þar segir
jafnframt, að vinnutími verka-
manna og iðnaðarmanna f Reykja-
Al'GLYSINGA-
SÍMINN KR:
22480
vík og nágrenni fyrri helming
ársins hafi að meðaltali verið 49,5
vinnustundir i viku og hafði hann
stytzt um 2,8 stundir frá árinu
áður, en vinnutími verkamanna
styttist þó talsvert meira eða um 4
stundir. Vegna þessarar
styttingar vinnutíma munu tekjur
launþega, einkum verkafólks og
iðnaðarmanna, hækka minna í
krónutölu á árinu 1975 en nemur
hækkun kauptaxta, gagnstætt því,
sem verið hefur undanfarin ár.
Vísitala framfærslukostnaðar
hækkaði um 7,1% hinn 1. nóvem-
ber og var hún þá 43,5% hærri en
á sama tíma 1974, en vísitala vöru
og þjónustu var 46% hærri. Mjög
hefur dregið úr hækkunum verð-
lags nú síðustu sex mánuðina frá
því, sem var á árinu 1974 og fram
eftir árinu 1975, og þannig jafn-
gildir veronækkunin frá maí til
nóvember í ár rúmlega 30%
hækkun á heilu ári samanborið
við 50% hækkun á næsta sex
mánaða tímabili þar á undan.
Sama gildir um hækkun
byggingarkostnaðar, - sem
hækkaði aðeins um 5,6% frá júní
til október, og var hún þá 36,6%
hærri en í október 1974, en
framan af árinu 1975 nam
hækkunin yfir 50% á ári.
í skýrslu Hagrannsóknastofn-
unarinnar segir: „Ein veigamikil
orsök hægari verðlagsbreytinga á
sfðustu mánuðum en áður er
stöðugt gengi krónunnar gagn-
vart helztu innflutningsmyntum,
auk minni verðhækkana erlendis
og minni launahækkana.
Ástæða misgerða
í skattlagningu
FÉLAG ísl. náttúrufræðinga sam
þykkti á aðalfundi sínum, sem
haldinn var fyrir skömmu, ályktun
þar sem fagnað er aðgerðum
skattgreiðenda í Bolungarvík og
víðar og benti fundurinn á að mis-
gerðir í skattlagningu væru fyrst
og fremst að kenna gloppóttum
skattalögum og skoraði fundurinn
á launþegasamtök og allan al-
menning að knýja fast á við þing
menn að fá fram nauðsynlegar
breytingar á skattalögum, þannig
að launþegar verði ekki beittir
áframhaldandi misrétti i skatt
lagningu.
Tvö bindi af
þjóðsögum Jóns
Arnasonar
fSAFOLD hefur á undanförnum ár-
um gefið út að nýju þjóðsögur Jóns
Árnasonar, en þær hafa verið ófáan-
legar um langt árabil. Bækurnar eru
alls 9 að tölu og tvær þær slðustu
eru nýlega komnar út, „Sendingar
og fylgjur", sem er 143 blaðsíður,
og „Náttúrusögur." sem er 141
blaðslða að stærð. Óskar Halldórs-
son magister hefur séð um útgáfuna
og Hatldór Pétursson teiknað
myndir.
A bókarkápu segir:
Fáar þjóðir eiga aðra eins bók-
menntadýrgripi þjóðsagna og ævintýra
sem við íslendingar Stafar það ekki
sízt af þvl, að hinir vitru fræðimenn
undir forystu Jóns Árnasonar, sem
unnu það þrekvirki að safna saman
þessum sögnum er lifað höfðu á vör-
um þjóðarinnar frá ómunatlð, létu hið
ferska tungutak, hina listrænu frá-
sagnarsnilld sagnameistaranna njóta
sin, rituðu sögurnar upp eins og þær
voru mæltar af munni fram en endur-
rituðu þær ekki I hinum lærða stíl
visindamanna eins og raun varð á I
mörgum öðrum löndum. Björn Jóns-
son, ritstjóri ísafoldar, hóf, árið 1901
að gefa út úrval hins mikla safns Jóns
Árnasonar i handhægum bókum, sem
einkum voru ætlaðar börnum og
unglingum. Þessar bækur eru löngu
uppseldar og hafa þjóðsögurnar ekki
verið fáanlegar í aðgengilegri útgáfu
um langt skeið ísafoldarprentsmiðja
hefur nú hafið endurútgáfu þessara
vinsælu bóka sem ungir og aldnir hafa
lesið upp til agna I bókstaflegri merk-
ingu allt frá þvl að þjóðsagnasafnið
fyrst var prentað árið 1 862
f/A
NYKOMIÐ
STÓRKOSTLEGT ÚRVAL AF KVENGÖTUSKÓM
KVENPEYSUR í MJÖG GÓÐU ÚRVALI
HERRA- OG DÖMUTERELYNEBUXUR NÝ SNIÐ
DENIM OG FLAUELSBUXUR
BOLIR, BLÚSSUR, SLÆÐUR OG FL.
ATH. GOTT ÚRVAL AF HERRASKÓM
Opið til kl. 10 í kvöld og til kl. 6 á morgun
i
mn
Bergstaöastræti 4a Sími 14350