Morgunblaðið - 05.12.1975, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975
í fannaklóm
ný saga eftir Desmond Bagley
Komin er út ný þýdd bók eftir
Desmond Bagley. Nefnist hún „í
fannaklóm". „Þessi bók er skáld-
saga en hún byggist á traustum
grundvelli staðreynda," segir höf-
undur í inngangsorðum.
Um efni sögunnar segir m.a. á
kápusíðu: „Það hefur orðið slys í
námuhéraði I Nýja-Sjálandi. Snjóflóð
hefur fallið og orðið fjölda manns að
bana auk þess sem það hefur lagt
námubæinn I eyði. Yfirheyrslur fara
fram til þess að leiða hið sanna í Ijós
um slysið — hvort manntjónið varð
svo alvarlegt vegna vanrækslu eða
vanhugsaðra ráðstafana. Vitni koma
fram hvert á fætur öðru og varpa
Ijósi á málið stig af stigi og spennan
eykst — því það voru ekki allir
saklausir."
Torfi Ólafsson islenzkaði bókina,
en útgefandi er Suðri.
TVær bækur eftir
Hugrúnu
iiwM'Xv!'
Wm m
Hugrún
Nýkomnar eru út tvær bækur
eftir Hugrúnu skáldkonu. önnur
bókin er skáldsaga, sem ber nafn-
ið „Draumurinn um ástina“. Er
það saga um ástir og afbrýði.
Hin bókin eru þættir úr ævi frú
Gunnhildar Ryel og Vígdísar
Kristjánsdóttur. Nefnist hún
„Farinn vegur“ og er skreytt
mörgum myndum.
Gunnhildur Ryel, ekkja Baldu-
ins Ryel kaupmanns og ræðis-
manns á Akureyri, segir frá upp-
vaxtarárum sínum og gömlu
Akureyri, viðburðum, mönnum
og málefnum, sem hún hafði
kynni af á langri ævi, og miklu og
Stórkostlegt úrval
af jólavörum
í ár höfum viö slegið út öll okkar fyrri
met, — meö stórkostlegasta
jólavöruúrvali landsins.
Viö veröum meira að segja með
jólakort nákvæmlega viö þitt hæfi!
rHTTTTT
HALLARMULA 2
Hafnarstræti 18 Laugavegi 84
Opiö til kl. 10
í kvöld í
Hallarmúla
fórnfúsu félagsstarfi, einkum þó í
þágu líknar- og menningarmála.
Vigdís Kristjánsdóttir rekur
hér þræði langrar sögu sinnar við
listnám og listiðkun. Segir hún
frá ferðum sfnum til lista- og
menningarstöðva stórborganna,
samvistum við ýmsa samferða-
menn og frá ævikjörum sínum og
farsælu hjónabandi.
Bækur Hugrúnar eru nú orðnar
24, sem út hafa komið. Eru það
ljóðabækur, skáldsögur, barna- og
unglingabækur, ævisögur og bók
um drauma og vitranir. Auk þess
hefur hún skrifað nokkur leikrit,
sem hafa verið flutt í útvarpinu.
Bókamiðstöðin gefur bækurnar
út.
Ný Alistair
MacLean-bók
komin út
Komin er út hjá bókaútgáfunni
Iðunni ný bók eftir Alistair
MacLean. Nefnist hún „Launráð f
Vonbrigðaskarði".
„Fullyrða má að Alistair
MacLean sé mest seldi spennu-
bókahöfundur hér á landi, og
hann á að baki ótrúlega skjótan
og sögulegan rithöfundarferil,"
segir f fréttatilkynningu frá út-
gefanda.
Fyrsta bók hans var „Byssurnar
í Navarone", en síðan hefur hver
sagan fylgt annarri og undirbún-
ingur á kvikmyndun þeirra
hafinn jafnóðum og þær hafa
komið út.
I þessari bók er sögusviðið
Villta vestrið á gullæðistfmanum.
— Þýðandi er Sverrir Hólmars-
son.
AU(íl,VsiN(iASÍMINN ER:
22480
JRoreimbleöiö
&
SKIPAUTGCRD RIKISINS'
M/s HEKLA
fer frá Reykjavík fimmtudaginn
1 1. des. austur um land til Akur-
eyrar. Vörumóttaka: mánudag
og þriðjudag til austfjarðahafna,
Þórshafnar, Raufarhafnar, Húsa-
víkur og Akureyrar.