Morgunblaðið - 05.12.1975, Side 29

Morgunblaðið - 05.12.1975, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975 29 Síðasta bók Ölafs Tryggvasonar komin út Svavar Guð- mundsson frá Sauðár- króki 70 ára Föstudaginn fimmta desember fyllir Svavar Guðmundsson sjö- unda áratug ævi sinnar. Fæddur er hann Skagfirðingur og elst þar upp. Ungur giftist hann Sigur- björgu Ögmundsdóttur. Komust 6 af börnum þeirra til aldurs 4 stúlkur og 2 drengir. Svo ung sem þau hjón eru í anda og að aldri, munu þau ef allt fer að felldu, sjá fimmtugasta afkomanda sinn nú fyrir jól. Geri aðrir betur. Svavar gengur til allra almennra starfa unglingur og gegnir trúnaðarstörfum, bæði fyrir Kaupfélag Skagfirðinga og Sauðárkrókskaupstað, bókari og gjaldkeri um langt árabil. Enda er Sv^var alkunnugt lipurmenni, samviskusamur og góðgjarn. Svavar var mjög vinsæll í félagslífi þeirra Skag- firðinga á yngri árum. Enda félagslyndur sjálfur og mikill veitandi á því sviði. Fyrir nærri fjörutiu árum, eignaðist Svavar sína afturhvarfs- reynslu. Hann frelsast. Gengur i söfnuð Hvítasunnumanna og ger- ist þar öflugur liðsmaður. Sigurbjörg kona hans, Jóhanna mágkona og Kristján svili, urðu og öll greinar á sama meiði. Var það mikill styrkur þeirra i milli og fyrir söfnuðinn. Fallega bjarta röddin hans Svavars kom nú að góðum notum í safnaðarstarfi Hvítasunnu- manna. Söng hann í samkomum og á mótum um land allt. Þótt sjötugur sé, gengur Svavar ennþá fram fyrir skjöldu og syngur í fjölmennum samkomum og á mannamótum. Þótt aldur sé þetta hár og heilsuleysi hafi heimsótt Svavar. Þá heldur hann sér það vel, að margir yngri gera ekki betur. Hvert sunnudagskvöld syngur Svavar yfir miktum fjölda fólks í Fíladelfiu. Hann er viljugur að heimsækja hæli, sjúkrahús og stofnanir. Alls staðar er hann aufúsugestur. Oft þegar Svavari tekst vel til í fallegum lögum, þá minnir mig söngur hans á heiðríkju Skaga- fjarðar, sem er svo björt og hrein. Eða sól um sólstöður um mið- nættið, baðandi Þórðarhöfða, Drangey og allt héraðið fegurstu töfrum náttúrunnar. A þessum tímamótum í lífi þínu kæri vinur, vil ég nota tækifærið og þakka þér margar gleðistundir í Guðsríki og árna þér og Sigur- björgu þinni og öllum ætt- boganum, friðar og blessunar Drottins. Svavar verður að heiman á afmælisdaginn. Einar J. Gíslason. SKUGGSJÁ hefur sent frá sér bókina ,.Á jörðu hér" eftir Ólaf Tryggvason, en það er 7 og slðasta bók höfundar, sem lézt á Akureyri hinn 2 7 febrúar siðast- liðinn í formála sem Kristján frá Djúpalæk skrifar að þessari sfðustu bók Ólafs Tryggvasonar, segir hann: ,,í minning- unni sjáum við vinir Ólafs hann fyrir okkur traustan og fagran eins og hug- sjónir hans Hinn ytri líkami tekur mót af andanum, sem í honum býr. Ljúfur var hann og elskulegur í viðkynningu, þó stóð hann manna fastast á skoðun sinni, og hopaði ekki fyrir neinum í mlnum augum var hann mikilmenni. Allir, sem kynntust honum, eru ríkari eftir, og með lestri bóka hans færari um að mæta þv! vábrimi, sem hrynur að hverri byggðri strönd. Mannkynið er statt á dimmum vegi Það þarfpast Ijóss og þráir dagrenningu Það þyrstir eftir hinu lifandi vatni. Niður þess er I bókum Ólafs Tryggvasonar." Setningu og prentun annaðist Skuggsjá. en bókband er unnið hjá Bókbindaranum h f. Bókin er 216 blaðslður Bókarkápu gerði Atli Már Ótafur Tryggvason. ertu í vanda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.