Morgunblaðið - 05.12.1975, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975
Ásgeir Magnús-
son—Minning
Horfinn er nú héðan, hvilu
drottins feginn, bernsku-bróðir
minn.
í dag er til hinstu hvilu lagður
æskuvinur minn og bernsku
minnar leikfélagi, Ásgeir
Magnússon, sem fórst í bruna að
morgni hins 28. nóvember s.l. á
nýbyrjuðu 53. aldursári sínu.
Hann var fæddur 24. nóvember
1923.
Ásgeir var alla tíð einn þeirra
manna, er ekki þurfa ættarskrá
sér til auðkennis. Því þekki ég
framættir hans ekkert, en móður
hans, Sigríði Helgadóttur, og
föður hans, Magnúsi Magnússyni,
kynntist ég nokkuð svo og syst-
kinum hans. Sigríður, móðir Ás-
geirs, andaðist 31.12. 1960 en
faðir hans, hinn þjóðkunni rit-
snillingur Magnús, ritstjóri
Storms. lifir enn og býr hjá Gerði
dóttur sinni.
Ljúfustu minningar mínar um
Ásgeir eru frá þeim árum, er við
vorum nábúar og leikfélagar á
Vitatorgi og síðar skólafélagar
allt frá 1. bekk i Ingimarsskóla
(Gagnfræðaskóla Austurbæjar)
og til loka stúdentsprófs 1943.
Leiðir skildust að vísu nokkuð i
menntaskóla, þegar hann valdi
sér leið máladeildarnáms en ég
kaus að setjast i stærðfræðideild.
Garður húsanna að HVerfisgötu
82 og Vitastíg 8A lágu saman.
Þaf var oft klifrað yfir múra,
hlaupið eftir veggjum og tuskast
uns annar hvor féll f sinn eigin
garð. Fjaran frá Kolbeinshaus og
Klöpp inn að Rauðarárvík lokkaði
til ævintýraleitar. Koli á Kveid-
úlfsbryggju, fjörufugl í maðki eða
marfló undir steini, allt voru
þetta áhugaverð rannsóknarefni,
Á sendnum fjörukambi i Rauðar-
árvík lá jafnan þarabingur. Þar
varð háður þöngulhausaslagur. I
t
Eiginmaður minn,
STEINN EMILSSON
jarðfræðingur.
Hraunbæ 118,
lézt í Landakotsspítala 3 desember.
Guðrún Hjálmarsdóttir.
t
GRÍMA SIGURJÓNSSON ANDERSEN,
lést í Danmörku 3 desember
Fyrir hönd aðstandenda
Snjólaug Sigurðardóttir.
Sonur okkar. +
ÓMAR SNORRI HREIÐARSSON.
Kirkjugerði 7, Vogum,
verður jarðsettur að Kálfatjarnarkirkju laugardaginn 6 desember kl
14.
Hreiðar Guðmundsson, Anna Snorradóttir.
t
Móðir okkar
RAGNHEIÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju laugard. 6 des n.k kl 10.30
Þeir sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á Öryrkja-
bandalag (slands
Þorbjörg Danielsdóttir,
Gróa Magnúsdóttir.
t
Við þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar. tengdamóður, ömmu og langömmu
SVANFRÍÐAR HJARTARDÓTTUR.
Sigriður Pétursdóttir Blöndal
Laura Cl. Pjetursson Hjörtur Pjetursson,
Bergur Sigurbjörnsson
Þorbjörg Guðnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
miklum frostum lagði víkina
ótryggum fsi. Þá var kalt að detta
í klakavök. Samt var sjaldnast
farið heim til fataskipta, heldur
undið úr spjör. Það er gaman að
hafa lifað þessi ár. Rikan þátt f
sköpun þeirrar ánægju átti vinur
minn Ásgeir.
Ásgeir var snemma félagslynd-
ur og vildi hafa hjá sér hóp
félaga. Við vorum ekki einungis
félagar, leikfélagar, skólafélagar
og vinir, heidur að nokkru marki
keppinautar. Ásgeir taldi sig til
forystu fallinn og það með réttu.
En ég þóttist nú maður lika. Því
var það stundum að við ráðgerð-
um, hvor í sfnu lagi, stofnun
leynifélags undir hinum eina og
sanna foringja. Ástir kvenna
hverfisins urðu okkur líka að
kappsmáli, en við vorum jafn-
gamlir, svo að ekki munaði
mánuði. Aldrei ollu þessi átök
vinslitum, heldur þóttumst við
menn að meiri.
Þannig var Ásgeir fágæt blanda
hins félagslynda leikfélaga og for-
ingja, sem öllu vildi ráða. Hann
hélt dagbækur með hæfilegri
leynd, sýndi okkur litlar svartar
bækur, sem við fengum svo aldrei
að hnýsast í.
Haustið 1936 settumst við i 1.
bekk gagnfræðaskóla. Ásgeir var
þá þegar mjög góður námsmaður.
Naut hann þar bæði frábærra
gáfna og iðni við námið. Hann
varð því fyrirhafnarlaust dúx
bekkjarins og þótti öllum það
eðlilegt. Við lukum siðan gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóia
Austurbæjar i lok apríl 1938.
Gagnfræðapróf sem jafnframt
var inntökupróf í 3ja bekk
menntaskólans tókum við svo
utanskóla við Menntaskólann i
Reykjavík í maí sama ár.
Stúdentspróf tökuni við svo
saman vorið 1943.
Ásgeir hafði veikst í vorprófi 5.
bekkjar menntaskólans. Hann
lauk þvi prófi fársjúkur og gekk
aldrei heill til skógar eftir það. Að
loknu stúdentsprófi hóf hann þó
nám í íslenskum fræðum við
Háskóla íslands. Þvi námi varð
hann samt fljótlega að hætta.
Eftir það sótti hann sinn lærdóm í
lífsins stranga skóla, þar sem á
ýmsu gekk, uns yfir lauk.
Ásgeir hélt alla tið tryggð við
foreldra mina, kom oft I heim-
sókn til þeirra og var jafnan au-
fúsugestur. Þau sakna þar vinar í
sinni háu elli.
Þetta og svo ótal margt annað
fékk ég aldrei þakkað Ásgeiri. En
ég hef þá ekki þekkt hann rétt, ef
hann hefur nokkru sinni ætlast til
sérstaks þakklætis fyrir tryggð
sína og vináttu. Slíkt var honum
eðlilegt og sjálfsagt. Eins eðlilegt
eins og það var honum að vera
glaður og reifur þá sjaldan við
hittumst síðari árin, og það þótt
oft blési á móti.
Ég kveð Ásgeir með söknuði,
þótt leiðir hafi ekki legið saman
lengi. Ég sakna þess félaga, sem
ég átti í honum, meðan lxfið var
ennþá meiri leikur en alvara. Þá
var gott að eiga hann að félaga og
vini. Þeim árum mun ég aldrei
gleyma.
Lifir í ljúfu minni, leikfélaginn
góði, lífs um liðinn dag.
Jón Ingimarsson.
+
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför
SIGURÐAR ANDRÉSSONAR
skipstjóra,
Hringbraut 115.
Gróa Ólafsdóttir,
Erna Bragadóttir Gisli Benediktsson
Hrafnhildur Atladóttir Atli Már Atlason
Sigurður Atlason Árni Atlason.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns,
ÞORSTEINS EINARSSONAR.
Ásgarði 99.
Katrin Hendreksdóttir og börn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
ÞURÍÐAR MAGNÚSÍNU JÓNSDÓTTUR
Syðri-Hömrum, Ásahreppi.
Þorsteinn Viihjálmsson
Jón Þorsteinsson,
Vigdís Þorsteinsdóttir, Björn Guðjónsson,
Sölvi Magnússon, Karla M. Sigurjónsdóttir,
Barnabörn og fósturbörn.
+
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN SIGURGEIRSDÓTTIR,
Ljósheimum 22,
áður til heimilis að Öldugötu 24, Hafnarfirði,
sem lézt i Landspítalanum 28 1 1 verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar-
kirkju, laugardaginn 6 desember kl 1 1 f.h
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hinnar
látnu er bent á Hjartavernd
Böm, tengdabörn og barnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem auðsýndú okkur samúð
og vináttu við fráfall
JÓHANNESAR J. KRISTJÁNSSONAR
leigubílstjóra,
Langholtsvegi 101,
Sérstakar þakkir færðar læknum og öðru starfsfólki Borgarspítalans,
Grensásstöðvarinnar og Landspitalans fyrir frábæra umönnun i hans
veikindum
Einnig færum við þakkir til Bæjarleiða
Unnur Guðmundsdóttir,
Sigurþór Jóhannesson,
Kristrún Jóhannesdóttir,
Kristján Magnússon,
Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Haraldur Þórðarson.
Kveðja:
Jóhann
Guðna-
son
Fæddur 6. júnf 1923
Dáinn 26. nóvember 1975.
I dag er til moldar borinn Jó-
hann Guðnason. Hann lést að
heimili sínu að Óðinsgötu 4,
fyrra miðvikudag, er eldur
kom þar upp. Jóhann var
sonur Elfnar Sigurðardóttur
og Guðna Jóhannssonar.
Hann var fæddur á Brekku i
Holtum. Hann ólst upp hjá
Guðmundi Guðmundssyni og
móður sinni Elínu. Hann fór
snemma að vinna fyrir sér og
vann við alla almenna vinnu,
annars var sama hvað hann gerði,
það lék allt í höndum hans.
Eg mun ávallt minnast hans
með hlýjum hug, því hann var
vinur vina sinna. Mig hefði ekki
órað fyrir því að ég ætti ekki eftir
að fá að sjá hann, þegar ég kæmi
af sjúkrahúsinu, en enginn veit
hvenær ævin er öll. Hann sem var
svo kátur er nú horfinn okkur en
ávallt mun hans verða minnst
með söknuði.
Ég flyt systkinum hans og öllu
skyldfólki og fósturföður mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Megi aigóður guð styrkja þau á
stund sogarinnar.
Far þú f friði,
friður (íuðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú meðGuði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Ingibjörg Sigurgeirsdóttir
ísafirði
Afmælis-
og minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á I mið-
vikudagsblaði, að berast I sfð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
Ifnubiii.