Morgunblaðið - 05.12.1975, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975
33
félk í
fréttum
Ljósm. Sv. Þorm.
Skákkennsla hjá TR
+ TAFLFÉLAG Reykjavfkur
hefur f vetur gengizt fyrir skák-
kennslu fyrir börn og unglinga
f skákheimilinu við Grensás-
veg. Er kennslan sfðdegis á
laugardögum og hefst klukkan
14. Aðalkennari er Kristján
Guðmundsson skákmeistari og
honum til aðstoðar er Benedikt
Jónasson unglingaleiðtogi í
stjórn TR. Er dagskráin sú, að
annan hvorn laugardag eru
haldin hraðskákmót fyrir þátt-
takendur en hina laugardagana
eru fengnir skákmeistarar til
að tefla fjöltefli. Jafnhliða
þessu eru leyndardómar skák-
listarinnar útskýrðir fyrir þátt-
takendum, jafn byrjendum
sem lengra komnum. Þátttaka
er ókeypis og öllum heimil.
Myndin sem hér fylgir var
tekin þegar Ólafur H.Olafsson
tefldi f jöltefli við 60 unglinga á
dögunum. Þetta var hið
fjörugasta fjöltefli og varð
meistarinn að gefa þrjár skákir
en hinar vann hann..
Jólapappírs-
sala Njarðar
Ein aðaltekjulind Lions-
klúbbsins Njarðar hefur verið
sala á jólapappír. Njarðar-
félagar munu nú þessa daga og
næstu vikur ganga f hús og
selja jólapappfr, en auk þess
munu klúbbfélagar selja
pappfrinn f anddyri Borgar-
spftalans á heimsóknartfmum
og við bfla Flugbjörgun-
arsveitarinnar, sem verða f
Austurstræti tvo næstu laugar-
daga, 6. og 13. des. Klúbburinn
hefur varið ágóða af jóla-
pappfrssölunni m.a. til kaupa á
tækjum til háls-, nef- og eyrna-
deildar Borgarspftalans og
keypt tvo fjallabfla til afnota
fyrir Flugbjörgunardeildina.
Þá hefur klúbburinn og lagt
fleiri Ifknarverkefnum lið.
STGtfÚ/VD 3*s-sr?i
— Hvað á þetta eiginlega að
þýða þú lætur mig fá einn
svartan skó og annan brúnan.
Hótelþjónninn: — Ja, ég skil
ekkert f þessu. Þetta er annar
gesturinn, sem kvartar undan
þessu.
X
Piparsveinn kvartaði undan
þvf, að hann kynni hvorki vel
við sig heima né að heiman.
— Nú giftu þig maður, sagði
vinur hans, þá lfður þér að
minnsta kosti vel á öðrum hvor-
um staðnum.
X
— Ertu þreytt, mamma mfn?
— Já, ég er svo úrvinda, að ég
get hvorki hreyft legg né lið.
— Jæja, þá er best að segja
þér eins og er, ég braut rúðu.
X
— Agúst bað mig um að gift-
ast sér og gera sig hamingju-
samasta manninn f heiminum.
— Hvort ætlarðu að gera?
Kökubasar
Kökubasar verður haldinn laugardaginn 6. des-
ember '75 í félagsheimili Múrara, Freykjugötu
27, Reykjavík.
Nefndin.
Gluggastengur
úr tré og málml
Elnnlg Drýstistengur
Pðstsendum
Laugavegl 29,
slmar 24320 og 24321
ttHaia
Heimsfrægar glervörur, kunnar fyrir lisifenga hönnun
og frumlegt útlit. littala glervörur eru ein
fallegasta tækifærisgjöf, sem hægt er að hugsa sér.
Komið og skoðið úrvalið í verzlun okkar.
HÚSGAGNAVERZLUN
KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
Laugavegi 13 Reykjavik simi 25870