Morgunblaðið - 05.12.1975, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 05.12.1975, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975 ÞRÓTTUR átti í miklum erfið- leikum með Tungnamennina f Is- landsmótinu á mánudagskvöldið. Eftir að hafa marið sigur f tveim- ur fyrstu hrinunum 15—12 og 15—10, þá töpuðu þeir næstu tveimur 15—7 og 15—10. Hins vegar unnu þeir fimmtu hrinuna 15—0 og þótti engum mikið. Þetta var annar miðnæturleik- u: inn á skömmum tima, og lauk honum ekki fyrr en laust eftir miðnætti. Sem fyrr segir áttu Þróttarar í mestu vandræðum með Tungnamennina i fyrstu tveimur hrinunum. Leikurinn var ákaflega slakur af beggja hálfu, mikið um ónákvæmt uppspil, enda framspilið ekki upp á það bezta. Guðmundur Pálsson og Valdemar Jónasson voru þeir einu sem skelltu af viti, enda fengu þeir niu af hverjum tíu boltum til að skella. Leifur Harðarson, maður, sem er í lands- liðshóp, er sveltur langtímum saman og kólnar eðlilega, og vinn- ur svo ekki sem skyldi þegar hann fær loksins uppspil fyrir skell. Viðar Konráðsson stekkur nógu hátt, það vantar ekki, en honum gengur ekki vel að skella ígólfið, og fara flestir boltar sem hann fær ýmist í netið eða útaf, kannski af sömu ástæðu og hjá Gtasgow sœkirumOL SKOTLAND hefur bætzt í hóp þeirra þjóða sem sækja um að halda sumarólympíuleikana 1984. Lagði íþróttaráð Glasgow- borgar nýlega fram beiðni sina til alþjóðlegu Olympiunefndarínnar. og sögðu talsmenn ráðsins, að þótt Glasgow fengi ef til vill ekki að halda leikana þá, kæmi að þvi fyrr eða siðar að röðin kæmi að borginni. Olympiuleikarnir 1980 verða haldnir i Moskvu. en Teheran i íran hefur sótt um að halda leikana 1984. Leikmennírnír þnrfa að vera í sínnm stöðnm PÁLMI Pálmason hefur f vetur verið helzti burðarás Framliðsins f 1. deildinni f handknattleik og skorað flest mörk leikmanna liðs- ins. Pálmi hefur verið orð- aður f sambandi við lands- liðið. en gaf ekki kost á sér til leikjanna við Pólverja fyrst í haust. — Það er hins vegar ekki rétt að ég hafi ekki gefið kost á mér til leiksins við Luxemborg, eins og fram kom f blöðunum þegar greint var frá vali á leik- mönnum landsliðsins, sagði Pálmi f viðtali við Morgunblaðið á dögunum. — Ég var aldrei að því spurður hvort ég hefði breytt afstöðu minni til landsliðsins og væri fús til að leika. — Þó finnst mér rétt að taka það fram að ég hefði ekki gefið kost á mér til leikja með landsliðinu nú. Ástæðan fyrir þessari ákvörðun minni er reynsla mfn af landsliðinu frá f fyrra, þá var stillt upp stór- skyttuliði á sama hátt og nú er gert, sem þýðir ein- faldlega það að skyttur þurfa að leika inn á Ifnu eða sem hornamenn, stöð- ur, sem þeir eru alveg óvanir og jafnvel ófærir að Ieika. — Ég fékk það hlutverk f fyrra að leika bæði sem hornamaður og Ifnuspilari, sem ég alls ekki kann. Ég fann að þetta kom niður á félagi mfnu, þar sem ég lék mun lélegri leiki eftir landsliðs „periodurnar". — Ég er ákaflega undr- andi á svona fyrirkomu- lagi, að velja útispilara og jafnvel mestu markaskor- ara 1. deildar liðanna f landsliðið og troða þeim sfðan inn á Ifnu þar sem ekki er pláss fyrir þá f sfn- um stöðum með landslið- inu. Ég er sannfærður um að árangur yrði meiri og betri með samstilltu og samæfðu liði, með menn f þeim stöðum sem þeir eru vanir að leika með sfnum félagsliðum, en að velja „súperstjörnur" sfna úr hverri áttinni. — Þá kemur upp f hug- ann sú spurning hvort það sé rétt að leggja eins mikla áherzlu á að nota leik- mennina, sem leika með erlendum liðum, eins og nú er gert. Væri ekki rétt- ara að reyna að ná upp samstilltum hópi leik- manna af Stór- Reykj avfkursvæðinu? Hópi sem gæti verið meira saman en mögulegt er heldur en með þá sem leika erlendis eða búa austur á landi. Landsliðs- forystan hefði þá að minnsta kosti möguleika á að sjá með eigin augum getu þeirra manna, sem hún velur f landsliðið, ekki lesa um getu þeirra f fjöl- miðlum. Ég er ekki með þessu að kasta rýrð á neinn af þeim leikmönnum sem valdir hafa verið, þvert á móti hef ég mikla trú á þessum mönnum í réttum stöðum á vellinum. — Mig langar nú þar sem ég hef tækifæri til að lýsa furðu minni á ummæl- um landsliðsþjálfarans, þar sem hann lætur hafa það eftir sér að meðal- mennskan sé allsráðandi f fslenzkum handknattleik, og sýnist mér það lið ekki vænlegt til árangurs sem leikur undir stjórn manns með slfkan hugsunarhátt, og trúleysi á getu Ieik- manna sinnna. Félögin eru að breyta handknattleikn- um, hraðinn er að aukast og það tekur tfma að ná valdi á nýjum leikaðferð- um. — Það eru margar spurningar sem ieita á hugann f sambandi við landsliðið og sjálfsagt mun árangurinn svara mörgum þeirra. Mér finndist þó ekki vitlaust að hinkra að- eins við og menn spyrðu sjálfan sig hvað erum við að gera, hvert stefnir? — Þó svo að ég sé óhress sjálfur með hvernig að málum hefur verið staðið f sambandi við fandsliðið, þá á ég enga ósk heitari að vel gangi f þeim erfiðu leikjum, sem framundan eru, sagði Pálmi að lokum. — áij. ÞRÓTTUR m „EGGI” AF HFB Pálmi Pálmason — tvfmælalaust einn af beztu fslenzku handknatt- leiksmönnunum um þessar mundir telur sig ekki hafa erindi f landsliðið sem línu eða hornamaður. . Hrina þessi stóð í 27 mínútur og má sjá bezt af því að hart hefur verið barizt, enda var hrinan æsi- spennandi og margir skemmti- legir leikkaflar í henni. Næstu hrinu unnu stúdentar 15—11 en hún var jöfn upp í 11—11. Góður leikur Júlíusar Kristinssonar og índriða Arnórssonar sem skelltu mjög vel úr uppspili Helga Harðarsonar tryggði þeim sigur. Júlíus var einkar laginn að skella utan í hávörnina og var ómögu- legt fyrir Víkinga að ráða við það. Annars var framspil slakt hjá Víkingum í þessari hrinu og skellt var í netið, eða þá að há- vörn stúdenta tók skellina. Leifi? Það má segja að það sé erfitt að spila gegn Tungnamönn- um. Þeir sækja stundum með góð- um árangri, sérstaklega Björgvin Eyjólfsson, svo Þróttarar voru sífellt í „reddingum“ og gekk þvi verr að byggja upp sókn. UMFB vann svo næstu tvær hrinur enda voru Þróttarar afspyrnu lélegir, uppgjafir fóru margar í netið og framspil var mjög slæmt og uppspil þar af leiðandi lélegt og kom það oft í hlut skellaranna að spila upp. Það var verðskuldaður sigur Tungna- manna í hrinunum þvi baráttan var mjög skemmtileg, menn fórn- uðu sér miskunnarlaust í lágvörn- inni og oft björguðu þeir ótrúlega skemmtilega og sem fyrr var Björgvin fremstur i flokki. Þegar Guðmundur Pálsson og Valdemar brugðust var ekki að sökum að spyrja. Ötrúlegt en satt þá var sigur UMFB i báðum hrinunum aldrei í hættu. Þannig komust þeir f 12—3 í þriðju hrinu og voru alltaf vel yfir i þeirri fjórðu. — I fimmtu hrinunni var nú ekki annað en að duga eða drepast fyrir Þrótt, enda sýndu þeir nú ákveðni og uppskáru „egg“. Það er talað um að vinna egg þegar hrina vinst á núlli. Þeir spiluðu öruggt og voru vel vakandi fyrir laumum. Þeir Guðmundur Páls- son og Valdemar Jónasson voru sem fyrr segir allt i öllu hjá Þrótti, en Björgvin Eyjóifsson og Sigurgísli Ingimarsson voru bezt- ir hjá UMFB. Sá síðarnefndi hef- ur frábærlega mjúkt fingurslag, en hann mátti nota það betur með því að spila betur út á kantana, til að draga hávörn andstæðingsins betur í sundur. Pétur Björnsson og Halldór Jónsson dæmdu leik- inn þokkalega. IS-b og HK unnu í annari deild TVEIR leikir voru í 2. deild Is- Iandsmótsins á laugardaginn. ÍS-b sigraði Þrótt-b 3—1 (15—4, 15—1, 14—16, 15—2) og eins og sjá má höfðu iS-menn nokkra yfirburði i leiknum og það var ekki fyrr en í þriðju hrinu sem Þróttur tók við sér. Þróttarar leiddu framanaf allt í 12—10, en þá komst IS yfir 14—12, en Þrótturum tókst að merja sigur í hrinunni 16—14. Leikurinn var á köflum mjög skemmtilegur, sér- staklega þriðja hrinan, og sýndu báðir aðilar góð tilþrif, en afger- andi sókn var hjá hvorugu lið- inu. Síðari leikurinn var á milli Skautafélags Reykjavíkur og Handknattleiksfélags Kópavogs: SR-HK. Sá leikur hefði getað orðið skemmtilegur fyrir músik- alska menn, því hann bauð eigin- lega ekki upp á annað en flautu- konsert dómaranna. Boltameð- ferð beggja liðanna er svo ábóta- vant að það tekur ekki nokkru tali. Þátttaka SR í mótinu virðist bara vera grín, og leikmönnum liðsins finnst þetta mjög fyndið, en þvf miður eru þeir einir um það. HK sigraði f leiknum 15—4, 15—11, 13—15 og 15—7, eða3—1. Víkingar ÞAÐ ætlar að ganga erfiðlega að leggja tS af velli f blakfþróttinni. Á mánudagskvöldið lék fS við Víking f 1. deildar keppni fs- landsmótsins og sigraði nokkuð örugglega 3—1. Leikurinn var þó ekki eins ójafn og tölurnar gefa til kynna, þar sem Vfkingar voru óheppnir að tapa fyrstu hrinunni 17—15, eftir að hafa haft yfir 15—14 og höfðu þeir haft foryst- una alla hrinuna. Halldór Jðnsson, þjálfari stúdentaliðsins og landsliðsins lék nú með fS hefir nokkurt hlé vegna meiðsla og stóð fyrir sfnu. ^ réðn ekki við ÍS Þriðju hrinuna unnu Vfkingar eftir mikinn barning, þar sem ÍS var komið í 13—10. Var Vfkings- sigur í þessari hrinu sanngjarn þar sem þeir sýndu á tíðum skemmtilega takta. Þó var eins og eitthvað vantaði enn á. Baráttu- gleðin var ekki hin sama og t.d. er þeir Iéku við Þrótt í Reykjavíkur- mótinu í síðustu viku. Fjórðu hrinuna unnu stúdentar 15—11, og eins og f hinum fyrri var jafnt upp f 11—11, en þar með datt botninn úr sókn Víkinga. Reyndar var hávörnin mjög Iéleg í þessari hrinu hjá þeim. Ýmist dró hún boltann niður með sér eða tók hann alls ekki. Hávörn er jafnan bezta sóknin og því fór sem fór hjá Víkingum. Það var einkum tvennt sem var að hjá Víkingum í þessum leik. Móttaka á uppgjöf og hávörn. Móttakan var líka léleg hjá IS en hávörnin hins vegar mjög góð, enda hefur það löngum verið aðall liðsins. Vfkingar léku flestir í meðal- lagi, en ekki meira og var enginn sem skar sig úr. Júlíus, Indriði og Helgi voru beztir hjá IS. Einnig átti Friðrik Guðmundsson góða skelli. Halldór Jónsson lék nú með ÍS-liðinu að nýju og var ekki að sjá annað en hann styrkti liðið verulega, þótt haltur væri. Guð- mundur Pálsson og Gunnar Arna- son dæmdu þennan leik af ákveðni. Marokkó vann MAROKKÓ sigraði Túnis 1—0 i fyrri leik liðanna f undankeppni Olympíuleikanna i knattspyrnu. Skoraði Marokkó sigurmark sitt á 8. mínútu og heitir sá er markið gerði Zahraoui. msm

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.