Morgunblaðið - 05.12.1975, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975
39
Lanðsleiknr við
Færeyjar í kvöld
— einn nýliði í blaklandsliðinu
f KVÖLD leika fslendingar lands-
leik f blaki við Færeyinga og er
það fyrsti leikur þjóðanna í
þessari íþróttagrein. Leikurinn
fer fram f Laugardalshölfinni og
hefst kl. 20:30. Landslið fslands
var tilkynnt á miðvikudaginn og
er það skipað ellefu leikmönnum,
sem eru eftirtaldir: Halldór Jóns-
son, fyrirliði, Indriði Arnórsson,
Sigfús Haraldsson, allir frá IS,
Anton Bjarnason og Tómas Jóns-
son frá UMFL. Elías Nfelsson,
Óskar Hallgrfmsson og Páll Ólafs-
son frá Vfkingi, Guðmundur E.
Pálsson, Gunnar Árnason og
Valdemar Jónasson frá Þrótti.
Einn nýliði er f liðinu og er það
Tómas Jónsson UMFL. Tveir leik-
menn hafa leikið alla landsleiki
fslands frá upphafi og eru það
Guðmundur E. Pálsson og Valde-
mar Jónasson og leika þeir þvf
sinn 10. landsleik f kvöld. —
Lítið er vitað um getu
Færeyinga í blaki og því erfitt að
spá um úrslit leiksins. Gera má
ráð fyrir skemmtilegri viðureign,
en á morgun kl. 15:30 mætast
liðin aftur á sama stað. Þetta eru
fyrstu leikirnir i árlegri keppni
sem haldin verður næstu fimm
árin og er keppt um bikar sem
Blaksamband íslands hefur gefið.
Það lið sem sigrar í báðum
leikjunum samanlagt varðveitir
gripinn til næsta árs. Þannig ef
annað liðið vinnur 3—2 fyrri
daginn en tapar 3—2 seinni
daginn þá verður leikin ein auka-
hrina sem sker úr um hvaða lið
sigrar í þessari fyrstu viðureign.
Það liðið sem vinnur gripinn
oftar á þessum fimm árum vinnur
hann til eingar.
Eins og kunnugt er fer landslið
fslands til ítalíu i janúar til þátt-
töku í undankeppni OL og eru
Ieikirnir við England og þessir við
Færeyjar skoðaðir sem undir-
búningur fyrir þá keppni. Ekki er
ennþá útséð um það hvort er-
lendur þjálfari kemur til landsins
í lok þessa mánaðar, en sænski
þjálfarinn sem var búið að ráða
kemur ekki, en mun hafa fengið
annan norskan í sinn stað og er
nú verið að ganga frá þvf hvort og
hvenær hann kemur. Hann mun
þá væntanlega fara með liðinu til
Italíu og stjórna þvf f leikjum þar.
Áhorfendur eru hvattir til að fjöl-
menna í kvöld og hvetja landann.
Valur Reykjavíkurmeistari
I fyrrakvöld fór fram úrslitaleikurinn f Reykjavíkurmeistaramótinu f meistaraflokki kvenna f
handknattleik. Léku Valur og Fram til úrslita, en þessi félög höfðu orðið jöfn að stigum f mótinu.
Valsstúlkurnar sigruðu 7—4, eftir framlengdan leik. Staðan að venjulegum leiktfma loknum var 4—4,
en Fram hafði haft yfir f hálfleik 3—2. Meðfvlgjandi mvnd var tekin af Valsstúlkunum er þær höfðu
tekið við verðlaunum sfnum. Sigrún Guðmundsdóttir, fyrirliði liðsins, er fremst 1 flokki, en fyrir aftan
hana eru þær Sigurbjörg, Inga, Halldóra, Harpa, Hrefna, Ragnheiður, Elfn, Oddný, Sólrún og
Hrafnhildur.
FH-Oppsal á snnnndagskvöld
FÆREYSKA blaklandsliðið sem lelkur hér f kvöld og á morgun.
Aftari röð frá vinstri: Jóan P. Midjord, Jákup Thomsen, Kári Thor-
steinsson, Kristján Höjsted, ÖIi Breckmann, Heðin Olsen. Fremri röð:
Janus Jensen, Richard Johansen, Finnbogi Arge, Suni Jocobsen og
Gordon Ejdesgáard.
Handknattleiksmenn
á ferðinni
tökum enn fastar á þeim, sagði Þórarinn Ragnarsson
N.K. SUNNUDAG leika Vikingar
seinni teik sinn við vestur-þýzka
liðið Gummersbach I Evrópubikar-
keppni meistaraliða I handknatt-
leik. Fyrri leikur liðanna fór fram i
Laugardalshöllinni 22. nóvember
s.l. og lauk honum með sigri Þjóð-
verjanna 19—16. Gummersbach-
liðið er frægt fyrir að vera erfitt
viðureignar á heimavelli, þannig
að litil von er til þess að Vikingum
takist þar að sigrast á þeim. Þegar
Valsmenn kepptu við Gummers-
bach i sömu keppni 1972. munaði
aðeins einu marki á liðunum i
leiknum i Laugardalshöllinni, en
Gummersbach vann stórsigur á
heimavelli sinum i Dortmund.
Munaði þar öllu stórkostleg mark-
varzla Klaus Katers, sem varði
ótrúlegustu skot i seinni hálfleik
þess leiks.
— ÞETTA var gffurlega erfitt
hlaup og maður er tæpast búinn
að jafna sig enn, sagði Ágúst Ás-
geirsson er Morgunblaðið ræddi
við hann um vfðavangshlaup sem
fram fór f Englandi s.l. sunnudag,
en Ágúst var þátttakandi í þessu
hlaupi ásamt félaga sfnum, Sig-
fúsi Jónssyni. Til hlaups þessa
var boðið öllum beztu langhlaup-
urum Bretlands svo og fjölmörg-
um góðum hlaupurum frá megin-
íslenzka handknattleikslandslið-
ið heldur utan á sunnudaginn til
æfinga og leikja I Danmörku. Fara
sömu leikmenn og léku leikina
gegn Norðmönnum I vikunni, auk
þess sem þrír leikmenn sem dvelja
i Vestur-Þýzkalandi koma til móts
við liðið: Ólafur H. Jónsson, Axel
Axelsson og Gunnar Einarsson. Þá
hafði Jón Hjaltalín Magnússon
sem leikur með sænska 1. deildar
liðinu Lugi verið orðaður við
landsliðið, en i samtali við
Morgunblaðið i gær, sagði Ágúst
Ögmundsson landsliðsnefndar-
maður, að það hefði orðið að ráði
að boða Jón ekki til þessara
æfinga. I vikunni munu íslending-
ar leika opinberan landsleik við
Dani og auk þess mun landsliðið
keppa þarna við Sjálandsúrval og
taka þátt i móti fjögurra liða.
landinu. AIIs voru keppendurnir
31.
— Brautin var ótrúlega erfið,
sagði Ágúst, — og ég gerði þá
meginfirru að hanea á beim betri
framan af og varð það til þess að
ég var algjörlega búinn þegar á
hlaupið leið, og það bæði andleg
og líkamleg kvöl fyrir mig að
ljúka hlaupinu. Þannig fór reynd-
ar fyrir fleirum og yfirleitt voru
keppendur orðnir örmagna er í
— VIÐ ætlum okkur að vinna
leikinn við Oppsal á sunnudags-
kvöldið, en hvort okkur tekst að
vinna upp markamuninn frá
leiknum í Osló látum við ósagt.
Við stefnum að því en niu marka
sigur er auðvitað nokkuð fjar-
lægur. Þetta sögðu forsvarsmenn
FH-liðsins á fundi með frétta-
mönnum í gær, en á sunnudags-
kvöldið kl. 20.30 leikur FH seinni
leik sinn við Oppsal í Evrópu-
bikarkeppni bikarhafa í Laugar-
dalshöllinni. Fyrri leikinn sem
fram fór í Osló unnu Norð-
mennirnir 19—11, þannig að telja
verður að þeir séu nokkuð
öruggir um að komast áfram í
keppninni. Þó verður að taka það
með í reikninginn, að Oppsalliðið
hefur lagt að velli mörg af beztu
félagsliðum i Evrópu á heima-
velli, en síðan hlotið slæma skelli
á útivelli. Þeir sigruðu t.d. vestur-
þýzka liðið Gummersbach með 6
marka mun í Osló, en töpuðu
markið kom. Sigurvegari í hlaup-
inu varð Brendan Foster frá Bret-
landi sem hljóp á 23 mínútum
sléttum, en sama tíma hlaut Hol-
lendingurinn Hermes. Var gifur-
leg keppni milli þessara tveggja
kappa undir lokin, og aðeins sjón-
armunur á þeim í markinu. Sigfús
Jónsson varð 24. í hlaupinu á 25
mínútum sléttum, en Agúst rak
lestina á 25:30 min. Meðal þeirra
hlaupara sem Sigfús sigraði voru
síðan með 7 marka mun i Dort-
mund.
FH-ingar kallaðir öllum illum
nöfnum
Eins og flestir muna eflaust var
mikið fjallað um hörku FH-inga i
leiknum í Noregi og fengu þeir
mjög slæma dóma í norsku
blöðunum, sem kölluðu þá rudda
og fleira því um líkt. Á fundinum
i gær sögðu FH-ingar að leikurinn
hefði alls ekki verið harður. Norð-
mennirnir hefðu hins vegar haft í
frammi mikinn leikaraskap og
þannig haft áhrif á dómarana og
greinilegt hefði verið að norsku
blöðin hefðu einnig gert það með
skrifum sínum fyrir leikinn.
— Við tókum auðvitað á þeim,
sagði Þórarinn Ragnarsson á
fundinum, — og fundum að þeir
urðu hræddir við okkur er á
leikinn leið. Við erum líka
ákveðnir í að gefa þeim ekkert
eftir í leiknum á sunnudags-
báðir skozku landsliðsmennirnir í
10 km hlaupi, þeir er kepptu i
landskeppninni hér á Laugardals-
vellinum í sumar, og Ágúst varð
einnig rétt á eftir þeim.
Pólski stórhlauparinn Malin-
owski varð 6. í hlaupinu og um
árangur annarra keppenda má
nefna að Norðmaðurinn Knud
Kvalheim varð f 10. sæti og landi
hans Arne Risa f 21. sæti — rétt á
undan Sigfúsi Jónssyni.
kvöldið. Taka enn fastar á þeim
en við gerðum í leiknum í Osló.
ÁRANGUR FH
Leikurinn á sunnudagskvöldið
verður 22. leikur FH í Evrópu-
bikarkeppni félagsliða. Af þeim
21 leik sem þeir hafa leikið til
þessa hafa FH-ingar unnið 9 gert
1 jafntefli og tapað 11 leikjum.
Tveivegis hefur FH náð þeim
glæsilega árangri að komast í
átta-liða úrslit í Evrópu-
bikarkeppni, og voru þá í bæði
skiptin slegnir út af liðum sem
síðan komust í úrslit keppninnar.
Arangur FH í Evrópubikar-
leikjum hefur verið sem hér
segir:
1965— 1966
FH — Fredensborg (Noregi)
19—15, 17—14
FH — Dukla Prag (Tékkóslv.)
15—20, 16—23
1966— 1967:
GH — Honved (Ungverjal.)
13—20, 19—14
1969— 1970:
FH — Honved (Ungverjal.)
17— 28, 17—21
1970— 1971:
FH — Ivry (Frakklandi)
18— 12, 16—15
FH — UK 51 (Finnlandi)
13—10, 17—10
FH — Partizan (Júgóslavíu)
14—28, 8—27
1974— 1975:
FH — SAAB (Svíþjóð)
21—22, 16—14
FH — St. Otmar (Sviss)
19— 14, 23—23
FH — Vorwarts, (A-Þýzkal.)
17—21, 18—30
1975— 1976:
FH — Oppsal (Noregi) 11—19
BYE BEZTUR
FH-ingar sögðu að þvf væri ekki
að neita að Oppsalliðið væri mjög
gott lið, enda hefur það yfir all-
mörgum landsliðsmönnum að
ráða. Hafa fslendingar kynnst
þeim f undangengnum landsleikj-
um við Norðmenn. Ber þar fyrst
að nefna landsliðsmarkvörðinn
Pál Bye, sem öðrum fremur átti
heiðurinn af svo stórum sigri
Norðmanna í Noregi, er hann
varði þá þrjú vftaköst í seinni
hálfleiknum, og upp úr þvi náði
Oppsalliðið hraðaupphlaupum og
skoraði mörk.
FORSALA
Forsala aðgöngumiða á Ieikinn
verður í Jþróttahúsinu í Hafnar-
firði kl. 13.00—17.00 á laugardag
og frá kl. 13.00—16.00 á sunnu-
dag, svo og í Laugardalshöllinni
frá kl. 18.00 á sunnudag.
MYND úr leik FH og Oppsal f Osló. Roger Hverven skorar fyrsta mark
leiksins. Norsku blöðin áttu varla nógu sterk orð til að lýsa ruddaskap
FH-inga 1 leiknum, en FH-ingar segja hins vegar að norðmennirnir
hafi gengið um vælandi og þannig haft áhrif á dómarana.
Flestir voru örmagna er í markið kom