Morgunblaðið - 05.12.1975, Side 40
ALLA
DAGA
ALLA
DAGA
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 197S
Eru ökumenn farnir
að gleyma sér aflur?
5 teknir á
yfir 100 km
hraða í
borginni
LÖGREGLAN hefur verið með
hraðamælingar f höfuðhorginni á
hverjum degi undanfarnar vikur.
Ctkoman hefur verið mjög mis-
jöfn og í gær var hún óvenjulega
slæm. Alls voru þá teknir 50 öku-
menn fvrir of hraðan akstur, þar
af reyndust 5 vera á yfir 100 km
hraða og 3 á bilinu 90—100 km.
„Eftir hina miklu slysaöldu á
dögunum og þá herferð sem
fylgdi í kjölfar hennar virtist sem
ökumenn drægju úr umferðar-
hraðanum, en þessar nýjustu töl-
ur gefa því miður ekki ástæðu til
bjartsýni i þessum efnum. Ég
vona bara að ökumenn séu ekki
almennl farnir að gleyma sér í
umferðinni eins og þessir 50 virð-
ast hafa gert," sagði Óskar Ólason
yfirlögregluþjónn umferðarmála,
þegar Mbl. ræddi við hann í gær.
í gær var lögreglan bæði með
radar- og skeiðklukkumælingar á
Kringlumýrarbraut og Reykja-
nesbraut, þar sem hún liggur upp
í Breiðholt. Var hraðinn meiri á
Kringlumýrarbraut og þar voru
þeir teknir sem voru á yfir 100
km hraða. Mál þessara manna eru
nú til athugúnar hjá lögreglunni
og mega þeir allt eins búast við
þvi að verða sviptir ökuleyfi til
bráðabirgða.
Pilturinn úr-
skurðaður í
allt að 20 daga
gæzluvarðhald
YFIRHEYRSLUM var fram hald-
ið í Keflavík vegna láts Guðbjarg-
ar Óskarsdóttur i fyrradag, en
eins og fram kom í fréttum blaðs-
ins í gær, lézt hún eftir átök við 16
ára pilt í verzluninni Brautar-
nesti. Lítið nýtt hefur komið fram
í málinu og í gærkvöldi lágu ekki
fyrir niðurstöður krufningar sem
framkvæmd var í gærmorgun. 16
ára pilturinn, sem lenti í átökum
við Guðbjörgu, var í gær úrskurð-
aður í allt að 20 daga gæzluvarð-
hald á meðan rannsókn málsins
fer fram.
m.
Ljósm.: SÍKurður Arnfinnsson.
BBC-maðurinn fer meó gúmbát út í Miröndu í gærmorgun — Miranda sótti fréttamann BBC til Neskaupstaðar
laust fyrir klukkanllí gærmorgun, en þá hafði hann verið alla nóttina undir eftirliti í húsi bæjarfógetaemb-
ættisins þar. — Sjá viðtal við fréttamanninn á bls. 3.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir 1976:
Rekstrarútgiöld hækka
um 20,8%
— Aætlað að útsvarstekjur hækki um 16,8%
— Álög á fasteignagjöld ekki nýtt að fullu
FJARHAGSAÆTLUN Reykja-
vfkurborgar fyrir árið 1976 var
lögð fram á fundi borgarstjórnar
f gær. Birgir Isl. Gunnarsson
borgarstjóri fylgdi henni úr hlaði
og f ræðu hans kom fram, að
áætlað er, að heildartekjur
borgarsjóðs á næsta ári muni
nema 7,3 milljörðum króna, sem
er 22,3% hækkun frá yfir-
standandi ári. Rekstrarútgjöld
borgarsjððs eru áætluð rúmlega 5
milljarðar króna og nemur hækk-
un þeirra frá yfirstandandi ári
um 26,4%, en ef nýbygging gatna
og holræsa er ekki meðtalin,
nemur raunveruleg hækkun út-
gjalda 20,8%. Tii gatna- og hol-
ræsagerðar, bæði viðhalds og
nýbyggingar og til umferðarmála,
er áætlað að verja 1,4 milljörðum
króna en til svonefndra eigna-
breytinga, þ.e. nýrra fram-
kvæmda o.fl. er áætlað að verja
2,3 milljörðum króna, sem er
hækkun um 19%. í ræðu
borgarstjóra kom fram, að gert er
ráð fyrir, að hækkun útsvars-
tekna muni nema 16,8% frá fjár-
hagsáætlun yfirstandandi árs. Er
þá gert ráð fyrir, að notuð verði
að hluta heimild um álag á útsvör
allt að 10%, en sú hækkun er háð
samþykki ráðherra. Skv. fjárhags-
áætlunarfrv. er ekki gert ráð fyrir
að nýta að fullu álög á fasteigna-
gjöld, enda sagði borgarstjóri, að
svo mikil hækkun fasteignaskatts
milli ára sem hækkun fasteigna-
mats segði fyrir um, mundi koma
illa niður á almenningi, og verður
því hækkun á hvern gjaldanda
18,5% í stað 36,5% eins og heimilt
er.
Að öðru leyti lagði borgarstjóri
áherzlu á eftirfarandi i ræðu
sinni:
Framhald á bls. 22
Birgir tsl. Gunnarsson.
Air Yiking-málið:
Vilja ekkert segja
1 FRAMHALDI af frétt Morgun-
blaðsins I gær um Air Viking
reyndi blaðið enn að ná sambandi
við eiganda fyrirtækisins, Guðna
Þórðarson, og spyrja hann um
fjárhagsstöðu þess, en það
reyndist ekki unnt, þar eð hann
Húsmóðirin í Norðurbotni:
„Alveg ótrúleg lífsregnsla
að lenda ísvona bruna
Patreksfirði 4. des
FRÉTTARITARI Morgun-
blaðsins á Patreksfirði átti (
dag tal við Guðnýju Gests-
dóttur húsfreyjuna f Norður-
botni f Tálknafirði sem
bjargaðist svo naumlega úr
húsi sínu er það brann til
kaldra kola á innan við klukku-
stund fyrir nokkrum dögum.
Guðný dvelst nú á samt manni
sfnum Gunnbirni Ólafssyni og
börnum þeirra tveimur á
sjúkrahúsinu á Patreksfirði, en
þar hafa þau verið f einangrun
undanfarna daga vegna opinna
brunasára. Guðný fékk fyrst að
fara út af sjúkrastofunni í dag
en maður hennar og tvö börn
eru ennþá f einangrun.Guðný
er allmikið skorin og brennd f
andliti og mikið brennd á
vinstri hendi. Gunnbjörn og
börnin eru öll skorin og
brennd, einkum telpan sem er
brennd f andlíti og á öxlum.
Gunnbjörn Olafsson og
Guðný Gestsdóttir bjuggu í
Norðurbotni ásamt börnum
sfnum þremur frá 7 til 13 ára
en fast við Norðurbotn er býlið
Hjallatún, en þar býr systir
Guðnýjar.
Þegar eldurinn kom upp i
Norðurbotni en það var tveggja
hæða timburhús, ásamt bílskúr,
var Guðný sofandi uppi á efri
hæðinni ásamt tveimur yngri
börnunum, en eldri drengurinn
Framhald á bls. 22
er f Saudi-Arabfu, þar sem leigu-
flugvél Air Viking annast
flutning á pflagrfmum og kemur
Guðni ekki til landsins aftur fyrr
en á morgun eða sunnudag.
Þá reyndi blaðið einnig að fá
upplýsingar hjá Hermanni Guð-
mundssyni, bankaráðsformanni
Alþýðubankans, um meintar
skuldir flugfélagsins við bank-
ann, en hann sagðist ekkert vilja
um málið tala og Jón Hallsson,
annar bankastjóri Alþýðu-
bankans, sagði við blaðamann
Morgunblaðsins: „Ég banna þér
Framhald á bls. 22
19
DAGAR
TIL JÓLA