Morgunblaðið - 07.12.1975, Síða 15

Morgunblaðið - 07.12.1975, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1975 55 Þórður Jónsson. neikvæðu áhrif i þjóðfélaginu einkum fyrir börnin. Ég lít ekki á sérsköttun hjóna sem neina réttarbót fyrir konuna, hafi hjón- in sameiginlegan fjárhag, sem ég tel eðlilegast samkvæmt hjúskaparheitum þeirra, en sér- sköttun hjóna til tekjuskatts er nú í lögum ef um er krafið. Að lögleiða sérsköttun hjóna, eins og nú er ástatt fyrir þjóðinni, teldi ég misráðið mjög. Það mundi auka gífurlega skrif- finnskubáknið í sambandi við framtöl, fjölga þeim stórlega, og þá um leið fjölga þeim tugþús- unda dagsverka sem landsmenn verja til að telja fram til skatts. Líkur eru til, að sérsköttunin mundi hafa í för með sér alls- konar vandræði um eignaskipti milli hjóna ef raunhæf væru, og Þórður Jónsson, Látrum: gefa nokkuð greiða leið til hag- ræðingar tekna og eigna, þannig að skattleysingjar mundu mun al- mennari meðal þeirra sem meira mega sín en nú er. Mun æskilegra væri, að hlutur hjóna í skatt- greiðslunni væri leiðréttur á annan veg, þannig að hann væri heldur hvati til hjónabands og sameiginlegs fjárhags heldur en ekki, SLEGGJUDOMAR Eitt er sem ég vildi mjög ein- dregið vara við, að gert yrði að veruleika í skattalögunum, en það er, að skattstjórum væri heimilað að ganga framhjá framtölum smá- atvinnurekenda ef sá- atvinnu- vegur kæmi illa út, og skattleggja þá eftir þeim tekjum sem þeir gætu hafa haft, ef þeir hefðu unnið hjá öðrum en um það er nú rætt. meðat 5 Alþiiigi. Eí að þessu væri horfið, mundi það í mjög mörgum tilfellum vera mis- notað, og verða hreinir sleggju- dómar skattstjóranna, en það vilja hvorki þeir né aðrir, eða ekki held ég það. AFNÁM tekjuskatts Mesta bót, sem hægt væri að gera á skattalögunum í dag, væri að mínu mati að afnema með öllu tekjuskattinn. Það mundi leysa stóran vanda, því hann er aðal hvatinn að öllu því sem við köllum misferli í skattamálum, en hefir aldrei gefið á móti þvi sem hann skemmir í þjóðfélaginu, hvað þá meir. Látrum 20/11—’75. Hið stjórnlausa stjórn- tæki — skattalogin Straufría sængurfataefniö er nú fyrirliggjandi í mörgum mynztrum og litum. Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverjum sem hlýtur. Spariö húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægileg og lífgið upp á litina í svefnherberginu. Reynið Night and Day og sannfærizt. SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA @ Innflutningsdeild SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 28200 Ég veit ekki hversu margir gera sér ljós áhrif skattalaganna á allt fjárhags- og athafnalíf þjóðar- innar, en ég held að þeir séu of fáir, og fólk þekki þau ekki nægjanlega. Ekki man ég annað, þau ár sem ég hef fengizt við framkvæmd skattalaga, en að hver breyting sem á þeim hefir verið gerð, en þær eru margar hafi átt f upphafi að gera þau réttlátari, þannig að sem næst því yrði komizt, að hver fengi sinn skattbagga í hlutfalli við getu sína til að valda honum. En þegar til kastanna hefir komið, þá hefir breytingin gert hina ríkari ríkari og hina fátækari fátækari, þótt ef til vill megi segja, að við eigum hvorugt, rfka menn eða fátæka, ef borið er saman við aðrar þjóðir vfðsvegar um heiminn. En sem sagt, breyt- ingarnar hafa ekki náð boðuðum tilgangi, og aldrei fjær þvf en nú síðari árin, enda svo komið að heil byggðarlög eru farin að rísa upp gegn hinni hrópandi mismunun meðal fólksins, sem :,efnd lög valda í ákvörðun skattbögglanna. Það kann að vera ein orsökin til þess að breytingarnar ná ekki til- gangi sínum, að ekki sé nægjan- lega vandað til gerðarinnar, ákvæði virðast oft sett inp af hin- um og þessum að lftt athuguðu máli, sem dæmin sanna. Örlaga- ríkasta dæmið um það, er „óbeina fyrningin" sem inn var sett af „Vinstristjórninni“ en fyrir það ákvæði hefir mörgum launamann- inum orðið að blæða f skaí t- greiðslu á undanförnum árum, enda svo komið, að nú vilja höfundarnir ólmir fá þetta ákvæði úr skattalögunum, og er það vel og drengilega hugsað, sem þeirra var von. GERÐ SKATTALAGA. Þeir, sem standa að gerð skatta- laga, verða að gera sér það ljóst, að það eru þúsundir manna, sem taka við þessum lögum, þar á meðal lögfræðingar, lagasmiðir og leikmenn, sem vega lögin og meta, leitandi eftir „kríulöppum" (svo notað sé sjómannamál) og finnist smuga, þá er hún notuð til skattfrelsis fjármuna. Við það er ekkert óheiðarlegt, heldur mann- legt, og frjálst að fara svo langt sem lögin heimila, en fyrir það eru menn oft úthrópaðir sem skattsvikarar, alveg að ósekju. En þannig gjörnýtt heimild lag- anna bíður oft og algengast uppá sláandi dæmi: Til dæmis, út- gerðarmaður, sem á skip, frysti- hús, 2—3 bfla fyrir fjölskylduna, hjólhýsi, einbýlishús, eitt eða fleiri, og getur farið með sína á baðstrandir í suðrænni sól, þegar hann telur sig hafa tíma. En þegar til skattgreiðslunnar kemur þá er ekki mikill munur á skattin- um hans og einhverrar konunnar, sem vinnur í frystihúsinu, og þarf að tjalda öllu til svo endar nái saman, og verður að skolpa af sér f þokunni og súldinni hér heima, bara í baðkarinu, þreytt eftir önn dagsins. Þessi maður í umræddu dæmi væri af öllum almenningi talinn skattsvikari í stórum stfl, en því fer fjarri að svo þurfi að vera, skattalögin skapa þennan mis- mun, og því rís fólkið upp. SlÐBÚNAR BREYTINGAR Eitt af því, sem mér fellur illa við skattalagabreytingar og ég tel að verið sé að koma aftan að skatt- greiðendum, er þegar verið er að gera veigamiklar breytingar á lögunum.löngu eftir að menn eru búnir að gera og skila sfnum framtölum, sem eru þá gerð f sam- ræmi við allt önnur lagaákvæði. Eins og til dæmis átti sér stað á þessu ári, en það mun lfka eins- dæmi að svo langt hafi verið gerigið, þar á ég við lög nr. 11,28 apríl 1975. Þá voru allir búnir að skila sín- um framtölum. Hver fylgdist með því fyrir hönd framteljenda, sem gerði sitt framtal eftir ágætum leiðbeiningum ríkisskattstjóra, sem áttu við lögin eins og þau voru fyrir breytinguna, að fram- tali skattgreiðanda væri nákvæm- lega breytt f samræmi við hin nýju ákvæði? Framteljandinn hefir í flestum tilfellum engan möguleika til að fylgjast með því, allra sízt sjómenn, meðal annars af því, að skattstjórar eru undan- þegnir skyldu um að láta viðkom- andi framteljanda vita um þær breytingar, sem þeir gera á fram- tali samkvæmt lögum og fyrir- mælum, sem ekki er óeðlilegt, ef lög og reglur liggja fyrir þegar skattþegn gengur frá framtali sínu og rfkisskattstjóri gengur frá sínum leiðbeiningum. I síðbúnum nefndum lögum, voru meðal annars ákvæði um mjög aukin friðindi sjómanna. Vonandi hafa allir fengið sitt, þó er ég ekkert meir en viss um það, því ég held að á skattstofunum vinni bara venjulegt fólk, sem gæti orðið á mistök eins og öðru fólki. Þau henda vfst okkur flest, en f þessu tilfelli veit þolandinn, ef um það er að ræða, ekkert um þau og fengi sennilega aldrei að vita. Eigi þetta að ganga svo til áfram, þá legg ég til, að skatt- heimtan kosti fulltrúa fyrir skatt- greiðendur á hverja skattstofu. Það er ekki meint sem vantraust á skattstjórana, heldur viðkunnan- legra og menningarlegra form, þegar skattheimtan, er orðin svo geigvænleg sem raun ber vitni um. SÉRSKÖTTUN HJÖNA Enn standa fyrir dyrum skatt- lagabreytingar, og eins og alltaf áður til að leiðrétta misrétti. Eitt af þvi, sem talað er um í því sambandi, er sérsköttum hjóna, og það er eðlilegt að það komi fram, því yfirleitt hafa hjón farið verr útúr skattlagningu en fólk sem er í óvígðri sambúð. Því hef ég alltaf kunnað illa, talið það eiga sinn þátt í því, að fólk giftir sig ekki, en velur frjálsa sambúð, en að mínu mati hefir það sín Nfght and dta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.