Morgunblaðið - 07.12.1975, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.12.1975, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1975 62 kvik munl /ÍÖQft SÆBJÖRN VALDIMARSSON Meistarauerkið Bloody Sunday KVIKMYNDAHUSIN I DAG NÝJA BÍÓ: SOUNDER ★ ★ ★ LAUGARÁSBÍÓ: AMERICAN GRAFFITI ★ ★ ★ HÁSKÓLABÍÓ: GUÐFAÐIRINN ★ ★ ★ ★ TÓNABlÓ: DECAMERON ★ ★ STJÖRNUBÍÓ: EMMANUELLE ★ Sunday Bloody Sunday ★ ★ ★ ★ Háskólabfó, mánudagsmynd. Leikstjóri: John Schlesinger. Bresk, frá árinu 1971. SUNDAY BLOODY SUNDAY er sannferðug og heiðarleg mynd, gjörsamlega laus við ódýr og yfirborðskennd vinnu- brögð sem svo oft einkenna myndir sem fjalla um hið vand- meðfarna og viðkvæma efni kynvillu. SBS er mynd sem sýn- ir mannleg viðbrögð fólks á trú- verðugan hátt. Hún er ekki byggð á tilgátum, en segir eðli- lega frá því hvernig fólk lærir að sætta sig við hlutina. Tveir Lundúnabúar, kynvillt- ur læknir á fimmtugsaldri, (Peter Finch) og vinnuráðgjafi sem leikinn er af Glendu Jack- son, berjast um „yfirráðarétt" á ungum og glæsilegum lista- manni, (Murray Head, en þetta er hans fyrsta kvikmynd, áður hafði hann leikið nokkuð á sviði, m.a. farið með aðalhlut- verkið á Lundúnauppfærslu söngleiksins HAIR). Hann framkvæmir aðeins það sem hjartað býður hverju sinni og fær engan veginn skilið hvers vegna þau eldri geta ekki deilt honum bróðurlega, þar sem hann elskar þau bæði og getur ekki gert uppá milli þeirra. Head er fæddur í þetta hlut- verk, frjálslegur og afslappað- DECAMERON * ★ Tónabíó Itölsk frá 1971; dreifing: U.A.; Leikstjóri og handrit: Pier Paolo Pasolini; kvik- myndataka: Tonio Delli CoIIi; aðalhlutverk: Franco Citti, Ninetto Davoli og Pier P. Paso- lini. Hér tekur Pasolini tfl með- ferðar nokkrar hnyttnar sögur úr DECAMERON Boccacios. Þrátt fyrir að þær séu skrifaðar á fjórtándu öld, á efni þeirra ekkert síður erindi til okkar samtíðar þar sem efni þeirra er ákaflega jarðnesk efni; mann- Iegan breyskleika og veikleika haoldsins. Þá býðst Pasolini einnig kærkomið tækifæri til ur flöktir hann á milli elskhuga sinna, líkt og turtildúfa. Hann nýtur þessa alls en hin þjást. Peter Finch er að öllum lík- indum einn fyrsti kynvillingur- inn f kvikmynd sem hvorki er gerður afkáralegur né hlægi- legur, heldur er hlutverk hans mjög heilsteypt. Og ekki er að sökum að spyrja, Finch leysir vandmeðfarið hlutverk dr. Hirsh mjög vel af hendi. Hann líður ekkert fyrir kynvilluna, unir sér vel meðal fagurra lista og hans helmingur af hinum unga listamanni mundi nægja — ef hann vissi ekki að hann er ekki einn um hituna. Hálfur karlmaður nægir Glendu Jackson engan veginn. Hún er nýskilin og í nokkru uppnámi. Étur pillur. Reyndar finnst manni hún ekki eiga samleið með þessum reikula manni, hún er gáfuð, ákveðin og vel upp alin. Það kemur aldrei skýrt fram, hvað það er sem bindur þau saman. Glenda gerir ætíð hlutverkum sínum góð skil, en hversu persónuleiki hennar fellur vel að þessu hlut- verki er mikið vafamál. Hún er eggjandi og aðlaðandi í aðra röndina, en hún verður að gæta sín, um leið og hún grettir sig eða hnyklar brýrnar, í þungum þönkum, þá er hún ófrfð, jafn- vel eilítið karlmannleg. Hins vegar er Finch ákaflega geðs- að gera spott að kaþólsku kirkj- unni, sem var honum löngum þyrnir í augum. Pasolini tekst dável að halda hinum hnyttna, áleitna og eró- tíska stíl sagnanna svo útkoman verður hin ágætasta kvöld- skemmtun. Þá er leikurinn hinn prýðilegasti, persónurnar spretta Ijóslifandi fram af sfð- um bókarinnar. Sama máli gegnir um búninga og alla sviðssetningu. Umhverfið er oft svo ægifagurt og vel kvikmynd- að að maður á þá ósk heitasta að drífa sig inná næstu ferða- skrifstofu og panta far til Italfu með næstu vél. S.V. legur, fágaður og strokinn menntamaður, kveniegur karl- maður, en varast þó að yfirleika það að vera kynvilltur. SUNDAY BLOODY SUNDAY er mjög óvenjuleg mynd, einstök í sinni röð, og sjálfsagt rangsnúnasta grát- mynd sem gerð hefur verið. Hún stendur hvergi að baki næstu mynd á undan, MID- NIGHT COWBOY, þrátt fyrir að efni hennar væri aðgengi- legra og myndin öll líflegri. Nýjasta mynd Schlesinger heit- ir THE DAY OF THE LOCUST, var hún frumsýnd í vor og hlaut mjög góða dóma. Er ósk- andi að Háskólabíó sjái sér fært að sýna hana fyrst. Schlesinger er mikilhæfur leikstjóri, hann hefur rfka til- finningu fyrir hraða atburða- rásarinnar, hefur þróttinn til þess að koma öllum grundvall- aratriðum kvikmyndarinnar saman í heilsteypt listaverk. En hann er lfka sá afburðamaður að hann hefur f hendi sinni öll viðbrögð áhorfandans gagnvart myndinni, hann stjórnar til- finningum hans eftir sfnu höfði. En jafnvel þótt Schles- inger hræri ekki upp í fagur- fræðilegum tilfinningum manna, þá kemur hann fólki til þess að finna til, komast við og það er hreint ekki svo lftið af- rek. Penelope Gilliatt, (kvik- myndagagnrýnandi THE NEW YORKER á móti Pauline Kael) á engu minna lof skilið fyrir einstaklega vel skrifað handrit. Þessar tvær hæfileikamann- eskjur hafa í sameiningu skap- að ógleymanlegt kvikmynda- listaverk. S.V. Fjala- kött- urinn FJALAKÖTTURINN A sunnudagskvöldið brá ég mér á KUMONOSU JO, eða „Blóðkrúnan" eftir Kurosawa. Meistarinn endursegir MAC- BETH á japanskan máta, og gerir það af slíkum kynngi- krafti og þearri ljóðrænu feg- urð sem einkennir japanska kvikmyndalist, að myndin verð- ur hinn magnaðasti rammigald- ur. Þau Isuzu Yamada og Tosh- iro Mifune fara á kostum í hlut- verkum sfnum og eiga ekki hvað minnstan þátt i þvf að skapa það óhugnanlega and- rúmsloft sem hæfir verki Shakespears. Tilraun menntastofnana að koma á fót virkum kvikmynda- klúbb, virðist hafa tekist með ágætum, þar sem aðsóknin er meiri en bjartsýnustu rhenn þorðu að vona. Og þá er bara að slá hvergi af gæðum kvikmyndanna. S.V. Decameron Hryssan Baselfkukrukkan Kærlelkur og skfrnarbræður Garðyrkjumaðurfnn hjð Næturgalinn nunnunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.