Morgunblaðið - 11.12.1975, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 11.12.1975, Blaðsíða 5
 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1975 5 Dagur sýnir í Bogasal DAGUR Sigurðarson opnaði um sfðustu helgi málverkasýn- ingu f Bogasal Þjóðminjasafns- ins. Verður sýningin opin klukkan 14—22 fram til n.k. mánudags 15. desember. Á sýn- ingunni er 31 verk, olfu-,akrff- og tússverk. Margar myndanna eru f einkaeign. Á myndinni sjást Dagur og sonur hans við verkið „Strákar og stelpur leika sér“. Stafafell: Sjöunda Gunnu- bókin komin út MANNRÁNIN nefnist ný bók eft- ir Victor Canning, sem komin er út hjá Stafafelli. Victor Canning er talinn meðal slyngustu æsi- sagnahöfunda í heimi, og hefur saga þessi fengið þá dóma, að hún taki öðrum sögum hans fram. Fjallar sagan um rán á tveimur brezkum þingmönnum, en fyrir þá er krafizt lausnargjalds í óslfp- uðum demöntum. Meðan lögregl- an vinnur að því að reyna að upplýsa málið, hverfur einn af æðstu mönnum þjóðarinnar, og farið er fram á stórkostlegt lausn- argjald. Enda þótt allar leiðir virðist lokaðar, finnt þó lausnin um síðir fyrir algera tilviljun og endirinn er eins óvæntur og hugsazt getur. ísafold: Barnasaga um nútímadraug NÝ ISLENZK barnabók er komin út hjá Isafold og nefnist hún Draugurinn Drilli. Höfundur er Herdfs Egilsdóttir kennari, sem kunn er fyrir margs kyns efni, sem hún hefur samið fyrir börn, og birzt hefur í bókum, sjónvarpi og víðar. Þessi saga Herdísar fjallar um vinskap 10 ára drengs, Tryggva að nafni, og draugsins Drilla, sem er fjörugur og skemmtilegur, en ein- mana og þráir ekkert heitara en að eignast heimili og vini. Það gengur á ýmsu fyrir Drilla og hann lendir í mörgum spaugi- Iegum ævintýrum, m.a. fer hann á grímuball, veldur miklu uppþoti i umferðinni, svo að lögreglan er stöðugt á harðahlaupum á eftir honum. En öllum þykir vænt um Drilla og myndu margir krakkar vilja vera i sporum Tryggva og eiga annan eins vin. Myndskreytingar og kápumynd bókarinnar hefur höfundur sjálf- ur gert. Stafafell: Mannránin - æsisaga eftir W. Canning BÓKáUTGAFAN Stafafell hefur sent frá sér 7. bókina í barnabóka- flokknum um Gunnu eftir Cather- ine Wooley, og heitir hún Gunna og matreiðslukeppnin. Eins og nafnið bendir til fjallar Gunnubók þessi um matreiðslu- keppni, sem söguhetjan tekur þátt i. Einnig hefur hún í ýmsu öðru að snúast, því að ekki er hún gefin fyrir aðgerðarleysi, eins og fram hefur komið í öðrum bókum um hana. Fyrsta bókin um Gunnu, Gunna gerist barnfóstra, seldist þegar upp, og í barnabókakeppni, sem fram fór á vegum bókabúðar Máls og menningar reyndist hún vin- sælasta barnabókin það ár. Er sú bók nú komin út aftur og enn- fremur eru allar aðrar Gunnu- bækurnar fáanlegar. ísafold: Ný barnasaga frá Jótlandi ISAFOLD hefur gefið út barna- bókina Palli og Tryggur eftir E. Henningsen í þýðingu Arnar Snorrasonar. Gerist hún á Jótlandi seint á síðustu öld, og fjallar um Palla sem er munaðar- laus drengur og hundinn Trygg. Ýmsar fleiri persónur koma við sögu, bæði börn og fullorðnir. Einnig koma við sögu afbrota- menn frá Kaupmannahöfn, sem lögreglan leitar að út um allar sveitir og ýmsir aðrir spennandi atburðir. Sagan skiptist í 12 kafla, er 112 bls. að stærð og prýdd skemmti- legum myndum, sem Halldór Pétursson hefur teiknað, en hann gerði einnig kápumynd. Ný ljóðabók NÝLEGA kom út ljóðabók eftir Þuríði Guðmundsdóttur, sem ber nafnið Á svölunum. I bókinni eru 45 ljóð. Björg Þorsteinsdóttir listmálari gerði kápumynd. Þetta er þriðja ljóðabók Þuríðar, en áð- ur komu út „Aðeins eitt blóm“ 1969 og „Hlátur þinn skýjaður" 1972. Bókin er fjölrituð i Letri. FIMM bátar stunda skelfisk- veiðar frá Stykkishólmi og hafa þeir veitt vel. Aflinn er unninn f hraðfrystihúsi Sig. Agústssonar. Næg atvinna hefir verið allt árið í Stykkishólmi. Fréttaritari Góður afli í Stykkishólmi f

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.