Morgunblaðið - 11.12.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1975
7
Gagnsókn
Islendinga
I leiðara Ttmans I gær
segir m.a:
„Af hálfu islendinga er
nu að hefjast gagnsókn á
erlendum vettvangi vegna
innrásar brezka flotans t
fiskveiðilögsögu fslands. f
upphafi mun verða fylgt
svipuðum starfsaðferðum
og t tið vinstri stjórnar-
innar t þorskastriðinu þá.
Þannig mun Öryggisráð-
inu verða tilkynnt, að
brezki flotinn reyni að
verja veiðiþjófnað innan
fiskveiðilögsögunnar, og
áskilji íslendingar sér
allan rátt til að kæra þetta
athæfi fyrir ráðinu stðar.
Þá mun Atlantshafs-
bandalaginu verða skýrt
frá innrásinni á svipaðan
hátt og I þorskastrtðinu
1973 og reynt að gera þvt
Ijóst hvaða afleiðingar
hún geti haft. Þá er t und-
irbúningi að herða
áróðurssóknina út á við.
Þennan og allan annan
undirbúning verður að
miða við það, að þorska-
strtðið geti orðiðbæðihan
og langt.
Talsvert hefur verið um
það rætt, hvort rétt væri
að blanda saman land-
helgismálinu og varnar-
málinu, og tilkynna t.d.
úrsögn okkar úr
Atlantshafsbandalaginu
og krefjast brottfarar
hersins, ef Bretar hætta
ekki innrásinni. Þetta
kann ýmsum að þykja
freistandi, en þess ber að
gæta, að sliku gæti fylgt
siðferðileg skuldbinding
sem gæti bundið hendur
okkar siðar. Éf t.d. Bretar
létu undan værum við
búnir að skuldbinda okkur
meira en ella til að vera
áfram i Nato og leyfa her-
setuna."
Ummæli
Eysteins
Jónssonar
Þá vitnar Timinn til um-
mæla Eysteins Jónssonar,
fyrrv. ráðherra, I útvarps-
ræðu 1. desember sl., þar
sem hann segir:
„Miklu tel ég skipta að
sú stefna hefur orðið
ráðandi, með litlum
frávikum að halda herlifi
sér og þjóðlifi sér i
landinu. Rétt er að
minnast þess rækilega nú
að sú stefna hefur einnig
verið rikjandi að takmarka
umsvif varnarliðsins og
þar með fjárhagsleg áhrif
Eysteinn Jónsson.
þess i þjóðarbúinu. Ég tel
það mikinn þátt i
varðveizlu sjálfstæðis, að
þessari stefnu hefur verið
fylgt, og ég vona að aldrei
komi til á íslandi, að sú
stefna verði upp tekin að
gera dvöl varnarliðsins að
féþúfu eða sérstakri
tekjulind fyrir landið.
Þjóðin má aldrei verða
fjárhagslega háð dvöl
varnarliðsins i landinu."
Þá segir Timinn: „ Þetta
er rétt stefna og henni
hafa íslendingar lika i
stórum dráttum fylgt
hingað til. Varnarmálun-
um annars vegar og land-
helgis- og efnahags-
málunum hinsvegar á
ekki að blanda saman."
— Undir þessi orð skal
tekið.
Innlendar
skipasmíða-
stöðvar
Forsætisráðherra gat
þess i svari við fyrirspurn
á Alþingi, að með hliðsjón
af ástandi efnahagsmála,
viðskiptastöðu þjóðar-
búsins út á við sem og
stærð fiskiskipastóls
okkar miðað við skynsam-
lega sókn i minnkandi
fiskstofna, að rikis-
ábyrgðir verði ekki veittar
fyrst um sinn varðandi
innflutning á fiskiskipum.
Jafnframt vakti ráð-
herra athygli á uppbygg-
ingu og þýðingu innlendra
skipasmiðastöðva.
„Verður að teljast eðli-
legt." sagði hann, „að
það verði fyrst og fremst
þeirra hlutverk að halda
við fiskiskipaflotanum. en
eins og kunnugt er eyði-
leggjast árlega allmörg
fiskiskip, úrefdast, eru
seld úr landi eða farast. Er
hér um verulegt hags-
munamál landsbyggðar-
innar að ræða og þeirra,
sem atvinnu hafa af inn-
lendum skipasmiðum og
viðgerðum. Ennfremur má
vekja athygli á þeirri
nauðsyn að innlendu
skipasm iðastöðvarnar
kanni möguleika á sölu
nýbygginga til erlendra
kaupenda, þegar innan-
landsmarkaðurinn er
mettaður."
Hafnarstræti 3, simi 20455 — Sætúni 8, simi 1 5655.
DJIMPSTEIKINCM -
POTTARNIR
v
NÝ SENDING Á MJÖG 0
HAGSTÆÐU VERÐI
BRÆÐURNIR ORMSSON
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
%
J
Vinsælír islenskir
listamenn
áeinni ogsömu
plötunni
A þessari plötu syngja HLJÓMAR og leika eftir
margra missera hlé, gullfallegt lag eftir
Gunnar Þórðarson.
Sagt er að Lónlí Blú Bojs stæli Hljóma, en
bíðið bara þangað til þið heyrið í EILÍFÐAR-
BRÆÐRUM, varamönnum Lónlí Blú Bojs.
Þeir sem hafa næmt eyra geta reyndar gert
greinarmun á söngvaranum sem söng ”Heim
í Búðardal” og ENGILBERT JENSEN, en á
þessari plötu er ósvikinn Engilbert í topp-
formi.
ÞÓRIR BALDURSSON heiðrar þessa plötu
með lagi eftir sjálfan sig og öðru með texta
eftir systur sína MARÍU, sem einnig syngur
tvö lög.
BRIMKLÓ flytur "Kysstu kellu að morgni” .
ásamt öðru lagi og HAUKAR eru með eitt
sætt lag og ”Þrjú tonn af sandi”.
Fæst einnig á litlum og stórum kasettum.
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
Hljómplötuútgáfan HLJÓMAR
Skólavegj 12 • Keflavík • Sími 92-2717