Morgunblaðið - 11.12.1975, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1975
15
Tæpir 9 milljarðar á ári
í sjóði sjávarútvegsins
A AÐALFUNDI L.I.U. I gær
ræddi formaður sambandsins,
Kristján Ragnarsson, nokkuð
um sjððakerfi sjávarútvegsins f
skýrsiu sinni. Kom þar fram, að
ísfirðingar
kaupa mannbæran
flugdreka
SU IÞRÖTT hefur náð vaxandi
vinsældum erlendis að svffa
hljððlaust um loftin blá á stðrum
flugdreka. Þessi íþrðtt hefur nú
náð fðtfestu á Islandi, eða að
minnsta kosti á lsafirði, þar sem
sex félagar hafa ákveðið að kaupa
mannbæran flugdreka.
„„Við búumst við að frá drek-
ann um áramót,“ sagði helzti
hvatamaður kaupanna, Háldán
Ingólfsson, f samtali við Morgun-
blaðið. Hálfdán er ekki alveg
óvanur sliku flugi, þar sem hann
smfðaði sér mannbæran dreka í
hitteðfyrra. „En sá dreki var bæði
lítill og illa smíðaður, enda hafði
ég ekkert til að fara eftir nema
mynd,“ sagði hann.
Hann sagði að nýi drekinn gæti
borið tvo og á honum kæmist
hann í verulega hæð og mun
meiri en á litla drekanum og
komst hann þó á honum upp í 300
metra.
En er þetta ekki hættulegt
kynnu sumir að spyrja. „Ekki,
meira en að vera á mótorhjóli,“
svaraði Hálfdán. „Þetta er auð-
vitað stórhættulegt ef maður er
með glannaskap.“
Þeir félagarnir munu aðallega
stunda flug sitt yfir skíðalandi
Isfirðinga í Seljadal. Fara þeir
fyrst upp f brekkuna á skíðum og
renna sér svo af stað. Þegar þeir
hafa náð ákveðnum hraða takast
þeir á loft og svifa hljóðlaust
áfram.
Ingólfur sagðist hafa orðið var
við nokkurn áhuga á þessari
íþrótt vfða um land og þvf hefði
hann komið sér í samband við
flugdrekaverksmiðjur í Bretlandi
og ætlaði að hefja innflutning á
drekum frá henni.
Aflinn tífaldaðist
I TILEFNI af frétt Morgunblaðs-
íns f gær af heildarafla Breta á
íslandsmiðum fyrstu 9 mánuði
ársins skal tekið fram, að boð
Islendinga, sem viðrað var af is-
lenzku viðræðunefndinni, var um
65 þúsund tonn, þar af aðeins 55
þúsund tonn af þorski. Þessi tala
var ranghermd í blaðinu, þ.e. ekki
var sagt frá skiptingu aflans f
áðurnefndu tilboði, sem raunar
hefur verið fallið frá nú.
Þá ber að geta þess, að reikn-
ingsskekkja varð, er blaðamaður
var að breyta ensku einingunni
kit í tonn og urðu tonnin öll tf-
föld, þ.e. fyrir framan síðasta
tölustafinn átti að vera komma,
sem féll niður. Lesendur eru
beðnir velvirðingar á þessu.
f Olfusjóðinn fara nú 3.196
millj. kr. miðað við tekjur á
ári f tryggingasjóð 1.182
millj. kr„ f Fiskveiðasjóð
470 millj. kr„ f Aflatrygg-
ingasjóð alm. deild 461
millj. kr„ f fæðisdeild 554
millj. kr„ f fiskimálasjóð 27
millj. kr„ til Fiskmats 37 millj.
kr„ til Sjávarrannsókna og
samtaka útvegsmanna og sjó-
manna 38 millj. kr. Samtals eru
þetta 5.965 millj. kr. og f Stofn-
f jársjóð fara nú 2.900 millj. kr.
ári, eða alls 8.865 millj. kr.
Sagði Kristján, að þegar
þetta sjóðakerfi væri borið
saman við skiptaverðstekjur,
sem nema um 16—17 milljörð-
um króna, ætti öllum að vera
Ijóst að um verulegan flutning
er orðið að ræða innbyrðis f
atvinnugreininni. þegar tillit
er tekið til þess, að allir þessir
sjóðir nema Stofnf jársjóður-
inn, sem er séreignasjóður,
greiða útgjöld hverrar veiði-
greinar óháð tekjum hennar.
ÞÖRDlS Tryggvadóttir list-
málari hefur opnað sýningu á
Mokka við Skólavörðustfg.
Myndirnar á sýningunni eru
átján talsins, unnar með olfu-
pastel og er myndefnið f flest-
um þeirra sótt í fslenzkar þjóð-
sögur. Þetta er jólasýning og
stendur hún út þennan mánuð.
Allar mvndirnar á sýningunni
eru til sölu.