Morgunblaðið - 11.12.1975, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1975
Geir Hallgrímsson á Alþingi:
Staðið verður við allar skuldbindingar um
tjónabætur til Vestmannaeyja og Neskaupstaðar
GEIR Hallgrlmsson forsætisráð-
herra mælti I gær fyrir frumvarpi
þess efnis, að Viðlagasjóði sé
heimilt að verja allt að kr. 200
milljónum af eign sinni til að
standa að fullu við skuldbinding-
ar sfnar vegna snjóflóðanna f
Norðfirði.
Ræða forsætisráðherra fjallaði
um skuldbindingar og efndir
þings og rfkisstjórnar varðandi
tjón af náttúruhamförum bæði I
Vestmannaeyjum og Neskaup-
stað. Rétt þykir að birta ræðu
hans að meginmáli (en nokkuð
stytta vegna rúmleysis f blaðinu).
Til máls tóku I umræðunni: Guð-
laugur Gfslason, Tómas Arnason,
Lúðvfk Jósepsson, Sverrir Her-
mannsson, Ingólfur Jónsson og
Garðar Sigurðsson. Lýstu flestir
ræðumanna þakklæti og sam-
þykki við gjörðir rfkisstjórnar-
innar f þessu máli, en nokkur
gagnrýni kom fram á störf stjórn-
ar Viðlagasjóðs og umsögn er
frumvarpinu fylgdi, einkum að
þvf er varðaði Vestmannaeyjar.
— Ræða forsætisráðherra fer hér
á eftir:
# Viðlagasjóður,
Vestmannaeyjar og
Neskaupstaðar
Viðlagasjóður var stofnaður
með lögum nr. 4 frá 27. mars 1973,
um tveimur mánuðum eftir eld-
gosið á Heimaey. Þessi lög sýndu
einhug þings og þjóðar til að bæta
tjónið af völdum eldgossins og
aðstoða Vestmannaeyinga við
endurreisnarstarfið.
31. desember 1975 falla úr gildi
ákvæði laga, er kveða á um tekjur
Viðlagasjóðs af viðlagagjaldi á
söluskattsstofn. Fjárhæð sú, sem
Viðlagasjóður hefur fengið vegna
Vestmannaeyja frá ríkissjóði, at-
vinnuleysistryggingasjóði og
sveitarfélögum mun þá nema
rúmum 4.200 m.kr. Auk þessa er
að telja höfðinglega gjöf Norður-
landa, 1.456 m.kr. og gjafir ann-
arra aðila 211 m.kr. Alls er þarna
um 5.900 m.kr. framlag að ræða.
Hlutverk Viðlagasjóðs var
aukið með lögum nr. 5 frá 28.
febrúar 1975, en þá var sjóðnum
falið að koma fram gagnvart yfir-
völdum í Neskaupstað við endur-
reisnina í kjölfar snjóflóðanna 20.
desember 1974. Þing og þjóð voru
sammála um að bæta Norðfirðing-
um tjón þeirra á sama hátt og
Vestmannaeyingum. Verkefni
Viðlagasjóðs var í því fólgið að
gera úttekt á tjóninu og bæta það,
að svo miklu leyti, sem það kemur
f hlut annarra en venjulegrabóta-
greiðsluaðila. Með lögunum var
stofnuð sérstök deild við Viðlaga-
sjóð með sjálfstæðum fjárhag
vegna verkefnanna í Norðfirði.
• Viðlagatrygging
fslands
1. september 1975 tóku gildi
lög frá 14. maí 1975 um Viðlaga-
tryggingu Islands, en samkvæmt
þeim skal sá aðili taka við eignum
og skuldum Viðlagasjóðs hinn 1.
janúar 1977. Hlutverk Viðlaga-
tryggingar tslands er að tryggja
gegn tjóni af völdum náttúruham-
fara, þ.e. eldgosa, jarðskjálfta,
skriðufalla, snjóflóða og vatns-
flóða. Vátryggingarskyldar eru
allar húseignir og lausafé, en vá-
tryggingarfjárhæðir skulu vera
hinar sömu og brunatryggingar-
fjárhæðir á hverjum tíma.
Þar eð tekjustofnar Viðlaga-
sjóðs falla niður um áramót, er
mikilvægt að gera á því nokkra
úttekt, hvort sjóðnum hafi verið
aflað nægilegs fjár til að standa
við skuldbindingar sínar gagn-
vart Vestmannaeyingum og Norð-
firðingum.
0 Vestmannaeyjadeild
Viðlagasjóðs
I greinargerð stjórnar Viðlaga-
sjóðs, er fylgir greiðsluáætlun
Viðlagasjóðs fyrir Vestmanna-
eyjadeild sjóðsins, sem prentuð er
með athugasemdum við lagafrum
varp þetta, segir:
„Deildin hefur nú lokið upp-
gjöri við alla tjónþola nema bæj-
arsjóð Vestmannaeyja, en upp-
gjör bóta hans er það langt á veg
komið að telja verður áætlunina
nærri lagi. Samkvæmt því nema
bætur til bæjarsjóðs og stofnana
hans fyrir eignatjón 500 m.kr. og
fyrir rekstrartjón 200 m.kr. Auk
þess tekur áætlunin tillit til ým-
issa aðgerða til stuðnings upp-
byggingu í Vestmannaeyjum, sem
stjórnin hefur ákveðið með heim-
ild í ýmsum ákvæðum reglugerð-
ar nr. 62/1973, en gerir ekki ráð
fyrir að lengra sé gengið f þeim
efnum en þegar hefur verið
ákveðið. Á hinn bóginn gerir
áætlunin ekki ráð fyrir útgreiðsl-
um vegna ábyrgða, sem sjóðurinn
hefur gengið I fyrir bæjarsjóð.
Alls gerir áætlunin því ráð fyrir
greiðslum til bæjarsjóðs Vest-
mannaeyja, sem nema 800 m.kr.,
og hefur sú upphæð að verulegu
leyti þegar verið greidd.
Þingfréttir
EFRI DEILD
Matthfas Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra mælti í gær fyrir
tveimur frumvörpum I efri
deild Alþingis: um báta-
ábyrgðarfélög og Samábyrgð Is-
lands á fiskiskipum, sem af-
greidd voru til nefndar og 2.
umræðu. Ennfremur fyrir
frumvarpi um sjúkraþjálfun,
sem jafnframt var vísað til
nefndar.
Þá var frumvarpi um kaup-
staðarréttindi til handa Garða-
hreppi vísað til nefndar og ann-
arrar umræðu.
Steingrfmur Hermannsson
(F) mælti fyrir frumvarpi um
sérstakt álag á útvarps- og sjón-
varpsgjöld, sem nýtt yrði til að
flýta framkvæmdum, til að
þessir fjölmiðlar næðu fyrr og
betur til þjóðarinnar allrar.
NEÐRI DEILD
I neðri deild voru 6 mál á
dagskrá. Aðeins eitt kom til
umræðu á dagfundi deildarinn-
ar, „Snjóflóð í Neskaupstað og
fjáröflun til Viðlagasjóðs“ (sjá
ræðu forsætisráðherra hér á
þingsíðu). Allmiklar umræður
urðu um þetta mál. Var því að
umræðu lokinni vísað til nefnd-
ar og 2. umræðu. Afram-
haldandi fundur var ráðgerður
í þingdeildinni kl. 9 síðdegis I
gærkveldi.
AUKATEKJUR RlKISINS
Fram var lagt á Alþingi í gær
frumvarp til laga um auka-
tekjur rfkissjóðs. Er frumvarp-
ið I 7 köflum: Dómsmálagjöld I
einkamálum, gjöld fyrir fógeta-
aðgerðir, skiptagjöld, gjöld
fyrir uppboðsaðgerðir, gjöld
fyrir notarialgerðir, gjöld fyrir
þinglesningar o.fl., og ýmis
ákvæði. Frumvarpið gerir ráð
fyrir nær óbreyttum gjöldum
(tekjum ríkissjóðs) af þing-
lýsingum skjala og af skipta- og
uppboðsaðgerðum. Hins vegar
er frumvarpinu ætlað að skapa
svigrúm til eðlilegra tekna
rfkissjóðs eða þóknunar fyrir
vinnu og kostnao í tengslum við
dómsmál, gerð og frágang skfr-
teina og skjala og ýmiss konar
eftirlitsstörf sem þeim eru
tengd. Dómsmálaráðherra setji
reglugerð um dómsmálagjöld.
Geir Hallgrfmsson
forsætisráðherra.
Áætlunin sýnir að deildinni
hefur með núgildandi lagaákvæð-
um aflað nægilegs fjár til að
standa við þessar skuldbindingar
sfnar. Á hinn bóginn er mikið af
fé Vestmannaeyjadeildar sjóðsins
fast í skuldabréfum og fasteign-
um og mun þvf greiðslustaða
deildarinnar verða slæm og skuld
við Seðlabankann lækka hægt.
Gert er ráð fyrir að í árslok 1975
muni hún nema 1.031 m.kr. og í
árslok 1976 624 m.kr. og ekki
verða að fullu greidd fyrr en í
ársbyrjun 1978. Enn fremur sýnir
áætlunin að sjóðurinn eigi eignir
í skuldabréfum, sem nema um
900 m.kr. umfram þær skuldbind-
ingar, sem áætlunin gerir ráð fyr-
ir, en frá þvf verður að draga
afföll skuldabréfanna (vaxta-
mun). Vel getur verið að enn
komi upp f Vestmannaeyjum þau
vandamál, sem stjórn sjóðsins
telji sér skylt að sinna og sem
ekki eru tekin með í áætlunina.
Er ljóst, að eignastaða sjóðsins
gefur nokkurt svigrúm til þess, en
greiðslustaða yrði þá að sama
skapi lakari."
0 (Jttekt á bótaþörf
Vestmannaeyja-
kaupstaðar
Ennfremur segir í skýrslu
stjórnar Viðlagasjóðs:
„Stjórn sjóðsins telur þó ríkar
ástæður til að taka fram, að fyrir-
sjáanlegt er, að án frekari aðstoð-
ar mun bæjarsjóður Vestmanna-
eyja verða f miklum fjárhagserf-
iðleikum um árabil...
Stjórn sjóðsins telur að ekki
megi loka augunum fyrir þessum
vanda og vill því benda á hvort
ekki sér rétt að fram fari úttekt
á fjárhagsstöðu bæjarsjóðs og
horfum næstu árin. Stjórnin telur
ekki rétt að slík úttekt fari fram á
vegum Viðlagasjóðs einkum
vegna þess, að vandamálið mun
tæpast skýrast til fulls fyrr en um
það leyti, sem sjóðurinn verður
lagður niður. Virðist því eðlilegra
að slík úttekt fari fram á vegum
félagsmálaráðuneytisins eða ann-
arrar opinberrar stofnunar."
Framangreind viðhorf koma
einnig fram í bréfi forseta bæjar-
stjórnar og bæjarstjórans í Vest-
mannaeyjum til stjórnar Viðlaga-
sjóðs 13. nóvember 1975.
„Skv. fjárhagsramma kaupstað-
arins fyrir næstu 4 ár nemur fjár-
vöntun bæjarsjóðs 900 m.kr. auk
um 200 m.kr. hjá rafveitu, en þá
er einungis miðað við greiðslur
lána og verksamninga, sem f
gangi eru auk nauðsynlegra fram
kvæmda vegna endurreisnar
byggðar í Vestmannaeyjum. Ætla
má, að fái kaupstaðurinn fé í
þessu skyni á næstu fjórum árum,
þá muni hann standa á eigin fót-
um frá og með árinu 1980. Þó
verður staða rafveitunnar eftir
sem áður erfið en svo er um flest-
ar rafveitur á landinu. Ekki er
ólfklegt að unnt sé að skera niður
framkvæmdir að nokkru svo að
fjárvöntun verði u.þ.b. 1.000
m.kr...
Bæjarstjórn er reiðubúin til
allrar samvinnu, hvort heldur
væri frekari úttekt á stöðunni á
vegum Hagfræðideildar Seðla-
bankans, eða aðrar óskir stjórn-
valda f þessum efnum.“
Eins og fram kemur f þessum
bréfum eru aðilar sammála um,
að úttekt verði gerð á stöðu bæj-
arsjóðs. Hefur verið ákveðið, að
félagsmálaráðuneyti, Seðlabanki
Islands og bæjarstjórn Vest-
mannaeyja skipi hver sinn full-
trúa til að gera úttekt á fjárhags-
vanda bæjarsjóðs Vestmanna-
eyja. Með hliðsjón af þessari út-
tekt verður tekin ákvörðun um
lausn á fjárhagsvanda bæjarsjóðs.
0 Norðfjarðardeild
Viðlagasjóðs
Með frumvarpi þessu fylgir
einnig nýjasta áætlun stjórnar
Viðlagasjóðs um tekjur og gjöld
Norðfjarðardeildar. I greinargerð
með áætluninni segir m.a.:
„Aætlunin gerir ráð fyrir að
heildarútgjöld Norðfjarðardeild-
ar muni nema 650 m.kr. þar af 590
m.kr. tjónabætur og aðrar greiðsl-
ur, sem runnið geta til uppbygg-
ingarstarfsins í Norðfirði.
Tekjur samkvæmt núgildandi
tekjustofnum virðast munu nema
550 m.kr. Samkvæmt þvi skortir
deildina um 100 m.kr. til að
standa við skuldbindingar sínar.
Bætur til tjónþola taka að sjálf-
sögðu mið af því tjóni, sem varð,
en ekki af þeim kostnaði, sem
tjónþolar kjósa að ráðast í við
endurbyggingu, enda eru þeir
frjálsir að þvf hverpig þeir verja
bótafénu. En að undanförnu hafa
orðið talsverðar umræður um það,
hvort bótaféð ásamt annarri fjár-
mögnun, sem vitað er um, muni
nægja til að greiða þá endurbygg-
ingu, sem nú á sér stað í Norð-
firði, og þykir ástæða til að gera
hér nokkra grein fyrir því.
Fyrir liggur áætlun um kostnað
við endurbyggingu frá fram-
kvæmdastjóra uppbyggingar-
nefndarinnar í Neskaupstað, dags
l. október s.l., og er niðurstaða
hennar 982 m.kr. Samskonar
áætlun gerð af trúnaðarmönnum
Viðlagasjóðs nemur hins vegar
775 m.kr. Þessi mikli munur skýr-
ist ekki af mismunandi mati á
kostnaði við hina ýmsu verkþætti,
þar ber mjög lltið á milli, heldur
af því að f hærri áætluninni eru
ýmsir liðir, sem þar eiga ekki
heima, svo sem tekjubætur, lán-
tökur o.fl., sem ekki er fram-
kvæmdakostnaður, auk þess sem
trúnaðarmennirnir taka ekki inn
í sína áætlun nokkra liði, sem lúta
að fullnaðarfrágangi, sem ekki
verður framkvæmdur fyrr en síð-
ar, og sem ekki hefur áhrif á
starfshæfni þeirra mannvirkja,
sem um er að ræða.
Til þess að mæta þessum
kostnaði eru bætur og aðrar
greiðslur úr Viðlagasjóði 590
m. kr. lán til Síldarvinnslunnar úr
Fiskveiðasjóði 200 m.kr. og Ián til
annarra tjónþola, sem talið er að
munu fást, 28 m.kr., eða samtals
818 m.kr.
Það er þvf mat sjóðs-
stjórnarinnar að fáist það við-
bótarfé, sem farið er fram á hér
að framan, þannig að sjóðurinn
geti innt af hendi þær greiðslur,
sem honum er ætlað muni vart
mikið skorta á að nægilegt fé
verði til endurbyggingarinnar."
I lauslegri áætlun, sem fylgdi
frumvarpinu um stofnun Norð-
fjarðardeildar Viðlagasjóðs, var
talið, að útgjöld sjóðsins af þessu
verkefni muni nema 500 m.kr. Sjá
má nú, að of lágt var metið, enda
var þessi fyrsta áætlun gerð með
fyrirvara. Hins vegar eru menn
ækki á eitt sáttir, hve mikið á að
hækka upphaflega áætlun, eins
og fram kom í greinargerð
stjórnar Viðlagasjóðs.
A sínum tíma skipaði forsætis-
ráðherra nefnd þriggja þing-
manna, þá Sverri Hermannsson,
Lúðvfk Jósepsson og Tómas Árna-
son til að hafa milligöngu milli
Viðlagasjóðs og heimaaðila i Nes-
kaupstað. Þingmannanefndin
sendi forsætisráðherra bréf 20.
nóvember 1975 þar sem segir
m.a.:
„Það er skoðun okkar, eftir að
hafa rætt málið við fulltrúa Við-
lagasjóðs og þá heimaaðila f Nes-
kaupstað, sem málið varðar mest,
að tryggja þurfi Norðfjarðardeild
Viðlagasjóðs að minnsta kosti 250
milljónir króna á næsta ári og
miðum við þá við að tekjur
deildarinnar af gildandi tekju-
stofni til áramóta, verði 570
milljónir króna.
Við teljum tillögu Viðlagasjóðs
um viðbótartekjur 100 milljón
krónur ófullnægjandi og bendum
á að þær bótakröfur, sem fram
eru komnar og ekki hefir verið
synjað, enda ekki enn fjallað um
þær samkvæmt reglugerð sjóðs-
ins, samsvari þeirri tekjuþörf,
sem við gerum tillögur um.“
Framangreindar upplýsingar
gefa til kynna, að enn eru ekki öll
kurl komin til grafar við uppgjör
tjónsins í Norðfirði.
Með frumvarpi þessu er
heimilað að veita allt að 200
milljónum kröna úr Viðlagasjóði
til Norðfjarðardeildar. Hve há
upphæðin verður endanlega
innan þessa ramma ræðst af þeim
bótum, sem greiddar verða sam-
kvæmt reglum Viðlagasjóðs til
Norðfjarðar.
Aftan við 5. gr. laga nr. 5 28.
febrúar 1975 um ráðstafanir
vegna snjóflóða I Norðfirði og
fjáröflun til Viðlagasjóðs bætist
þvf ný málsgrein, er verður 4.
málsgrein svohljóðandi:
Á árinu 1976 er Viðlagasjóði
heimilt að verja allt að 200
milljónum króna af eign sinni til
að standa að fullu við skuldbind-
ingar sínar vegna snjóflóðanna f
Norðfirði 20. desember 1974.
% Staðið við gefin
loforð um tjónabætur
í Vestmannaeyjum
og Neskaupstað
Ég lýk máli mínu með því að
ítreka enn, að staðið verður við
áður gefin loforð ríkisstjórnar og
Alþingis um tjónabætur og upp-
gjör við Vestmannaeyjakaupstað
og Vestmannaeyinga, Neskaup-
stað og Norðfirðinga. Sömu regl-
um verður fylgt við endanlegt
uppgjör tjóna og greiðslubóta
beggja deilda Viðlagasjóðs og
sambærileg aðstoð verður veitt til
uppbyggingar atvinnulífsins f
kaupstöðunum tveimur.
Sjávarútvegsráð-
herra tekur á ný
sæti á Alþingi
Matthfas Bjarnason sjðvarút-
vegsráðherra tók í gær sæti á
Alþingi á ný eftir nokkurra
vikna sjúkraleyfi.