Morgunblaðið - 11.12.1975, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1975
MetStefáns
ekki staðfest
Á ÁRSÞINGI Frjálsíþróttasam-
bands íslands sem haidið var
fyrir skömmu kom fram, að met
það er Stefán Hallgrímsson setti i
tugþraut í sumar fær ekki stað-
festingu. Sem kunnugt er hlaut
Stefán þá 7740 stig og var vel yfir
Olympíulágmarkinu, en það er
7500 stig. Meðvindur var hins
vegar of mikill i einni grein
þrautarinnar, 100 metra hlaup-
inu, til þess að þrautin teldist
lögleg. Var í fyrstu álit manna, að
meðvindurinn hefði verið undir
þvi hámarki sem má vera í tug-'
þraut, en við nánari athugun kom
i ljós að reglunum hafði verið
breytt og samkvæmt nýju reglun-
um var meðvindur af mikill.
Stefán á því ekki bezta löglega
tugþrautarafrek ársins, heldur
Elias Sveinsson, 7212 stig, en
Elías náði einnig betri árangri en
það í sömu tugþrautarkeppni og
Stefán náði sínu bezta, eða 7320
stigum, og einnig í þeirri þraut
náði Vilmundur Vilhjálmsson,
KR, mjög athyglisverðum árangri
eða 6948 stigum.
llEFA-bikarkeppnin:
tekjur. Aðrir leikir sem gáfu
meira en 400.000,00 kr. i tekjur
voru eftirtaldir: Víkingur — IA
(420.500,00), Valur — ÍA
(455.800,00), Fram — Valur
(408.400,00), og IBK — ÍA
(448.400,00)
Skipting tekna milli liða af 1.
deildar keppni Islandsmótsins
varð sem hér segir:
Kr.
ÍA 1.773.390,00
Fram 1.426.197,00
KR 1.192.355,00
IBK 1.157.825,00
Valur 1.129.820,00
Víkingur 921.524,00
ÍBV 780.845,00
FH 659.444,00
Athyglisvert verður að teljast
að áhorfendafjöldi að þeim fimm
landsleikjum sem fslenzka lands-
liðið lék á heimavelli í sumar var
ekki miklu minni samtals heldur
en að öllum leikjunum í 1. deild.
Alls munu áhorfendur að lands-
leikjunum hafa verið um 42.000
talsins. Til viðbótar koma svo
leikir f Bikarkeppni KSI og leikir
í 2. og 3. deild, þannig að ljóst má
vera að samtals hafa áhorfendur
að knattspyrnuleikjum sumarsins
verið á annaö hundrað þúsund,
sennilega ekki langt frá því að
svari til þess að helmingur þjóð-
arinnar hafi brugðið sér á völlinn
í sumar.
Á AMAB HINDRAB ÞUSIIND
ÁHORFEIVDUR AB MAITSPYRM-
LEIKJUM KEPPISTÍMABILSINS
Landsliðið bnrstaði Sjáleníinga
ISLENZKA landsliðið sigraði
Sjálandsúrval f æfingaleik f
fyrrakvöld með 27 mörkum gegn
14, eftir að staðan hafði verið
12—5 f hálfleik. Náði fslenzka
liðið ágætum ieik á köflum og
hefði sigurinn eftir atvikum
getað orðið stærrí, þar sem staðan
var 22:7 þegar aðeins tfu mfnútur
voru til leiksloka. Slakaði
fslenzka Iiðið þá greinilega á, og
Dönunum tókst að rétta hlut sinn
svolftið.
Axel Sigurðsson, fararstjóri
íslenzka liðsins, sagði f viðtali við
Morgunblaðið í fyrrakvöld, að
Sjálendingar hefðu ekki teflt sínu
sterkasta liði fram til þessa leiks,
m.a. af því að Helsingör var að
leika við ungverska Lðið
Tatabania sem taka mun þátt í
fjögurra liða keppni þeirri sem
íslenzka landsliðið leikur í um
næstu helgi. Einnig vantaði
nokkra danska landsliðsmenn í
Sjálandsúrvalið.
I leiknum f fyrrakvöld skoruðu
allir Islendingar mörk eða mark,
nema markverðirnir og Gunnar
Einarsson, sem ekki tók þátt í
leiknum. Axel Axelsson var mark-
hæstur, skoraði 7 mörk, Jón
Karlsson og Ólafur H. Jónsson
skoruðu 4, Friðrik Friðriksson og
Björgvin Björgvinsson 3, og Arni
Indriðason, Sigurbergur Sig-
steinsson, Páll Björgvinsson,
Viggó Sigurðsson og Ingimar
Haraldsson skoruðu hver eitt
mark.
Axel Sigurðsson kvaðst vera
hinn ánægðasti með þennan leik
hjá fslenzka liðinu, sem greini-
lega væri að ná vel saman. Hann
gat og um góða frammistöðu Ólafs
Benediktssonar í markinu, en
hann var inná allan tímann nema
síðustu 10 mfnúturnar og fékk
aðeins 7 mörk á sig.
Islenzka landsliðið æfði tvfvegis
í gær, en heldur f dag til Jótlands,
þar sem það leikur á morgun
landsleik við Danmörku. Fer sá
leikur fram f Arósum og hefst kl.
20.30.
Flokkaglíma
FLOKKAGLlMA Reykjavlkur fer
fram I fþróttahúsi Jóns Þorsteins-
sonar I kvöld kl. 19.30. Meðal kepp-
enda verða margir af beztu gllmu-
mönnum landsins og má þar nefna
Pétur Yngvason, Hjálm Sigurðsson
og Guðmund Frey Halldórsson.
Einn efnilegasti
skíðamaðurheims
fórst í d’Isere
EINN efnilegasti skíðamaður heims, Michel Dujon frá Frakklandi,
lézt af slysförum um sfðustu helgi, en þá var hann að æfingum í
bruni fyrir keppni í Val d’Isere. Missti Dujon jafnvægið er hann var
á um 80 kílómetra hraða i brautinni, og kastaðist langar leiðir. Slóst
höfuð hans við stein með svo miklu afli að öryggishjálmur hans
brotnaði og hann hlaut slæmt höfuðkúpubrot. Var Dujon þegar
fluttur í sjúkrahús f þyrlu og þar lézt hann skömmu síðar.
Michel Dujon var einn bezti skíðamaður Frakka og var það spá
margra að innan skamms tima yrði hann ósigrandi sérstaklega i
brunkeppni, en í þessari hættulegu grein sýndi hann jafnan óvenju-
lega mikinn kjark og áræði. Hafði hann, er slysið varð, verið að
reyna nýja gerð af skíðaáburði og fór á alltof mikilli ferð í erfiðan
kafla brautarinnar.
Roland Collombin, Svisslendingurinn, sem hefur verið f fremstu
röð skíðamanna í nokkur ár, varð einnig fyrir alvarlegum meiðslum
á æfingu í Val d’Isere. Hann var á um 100 km hraða þegar hann féll
og kom niður á bakið eftir mikil loftköst. Hann var þegar fluttur á
sjúkrahús, og kom þar i ljós að meiðsli hans voru alvarlegs eðlis.
Verður Collombin þvf ekki með í slagnum um Ólympíuverðlaun að
þessu sinni, og ólíklegt þykir reyndar að hann muni aftur koma í
skíðabrautirnar sem keppandi.
Á myndinni hér að ofan má sjá að
það eru engin smáræðis loftköst
sem brunkapparnir taka er þeir
detta. Það er hinn kunni skfða-
maður Franz Klammer sem fær
þarna byltu. Hann var heppinn og
slapp ómeiddur. Myndin hér að
neðan er svo af hinum efnilega
skfðamanni Michel Durjon sem
lézt af völdum byltu sem hann
fékk f Val D’Isere um helgina.
Samtals seldust 53.350 aðgöngu-
miðar á leikina 56 í 1. deild í
sumar, 42.400 fullorðinna miðar
og 10.950 barnamiðar. Meðaltals-
aðstókn að leikjum i Reykjavfk
var 1.107, á Akranesi 1.003, í
Hafnarfirði 535, í Keflavfk 1.060
og í Vestmannaeyjum 596.
Einn leikur sker sig algjörlega
úr hvað aðsókn varðar. Er það
Ieikur Fram og ÍA á Laugardals-
vellinum 17. ágúst. Sá leikur gaf
1.042.600,00 kr. í tekjur, en sá
leikur sem næst komst var leikur
KR og IA á Laugardalsvellinum
13. júní sem gaf 570.700,00 kr. í
I árskýrslu KSl fyrir árið
1974—1975 kemur fram, að að-
sókn að 1. deildar leikjum I knatt-
spyrnu minnkaði um 11,12% frá
árinu áður. Voru 953 áhorfendur
að meðaltali á hverjum leik s.I.
keppnistfmabili, en 1059 að
meðaltali árið áður og 914 árið
1972. Þarna munar mestu þeirri
gffurlegu minnkun sem varð á
aðsókn leikja f Keflavfk, eða
28,4%. Þá varð 14,92% minnkun
á aðsókn að leikjum á Akranesi,
en hins vegar 7,37% aukning á
aðsókn að leikjum f Reykjavfk og
2,68% aukning f Vestmannaeyj-
um.
Axel Axelsson — skoraði 7 mörk
á móti Sjálendingunum og átti
góðan leik.
Ajax datt nt eftir
vítaspjrnokeppni
SEINNI umferS 16liða úr-
slita UEFA-bikarkeppninnar
var leikin f gærkvöldi. Urðu
úrslit leikja sem hér segir:
Stal Mielec (Póland) — Inter
Bratislava (Tékkóslóvakla) 2:0.
Pólverjarnir komust áfram samanlagt
2:1
Torpedo-Moskva (Sovétrlkin) —
Jafntefli
hjá Búbba
CELTIC, lið Jóhannesar Edvalds-
sonar, lék i gærkvöldi við Hi-
bernian í deildarkeppninni
skozku. Jafntefli varð 1:1, og er
Celtic nú eitt í efsta sæti. Þessum
leik var aflýst á sínum tíma vegna
þoku. Þá léku Tottenham og
Everton í 1. deild í Englandi í
gærkvöldi. Jafntefli varð, 2:2.
Mark Celtic gerði Dixie Deans.
ÍBK vann
KK óvænt
IBK sigraði KR 26:25 f 2. deild
Islandsmótsins f handknatt-
leik f gærkvöldi, og kemur
þessi sigur Keflvfkínga mjög á
óvart. KR hafði yfir f hálfleik
14:9. Þá gerðu Leiknir og
Breiðablik jafntefli 19:19 eftir
að staðan hafði verið 10:9 f
hálfleik, Breiðablik f vil. Þá
léku einnig f Laugardalshöll f
gærkvöldi IR, og Fylkir, og
verður sagt frá úrslitum leiks-
ins á morgun.
Dynamo Dresden (A Þýzkaland) 3:1.
Austur-Þjóðverjarnir áfram samanlagt
4:3.
AS Roma (ítalia) — FC Brugge
(Belgla) 0:1. FC Brugge áfram saman-
lagt 2:0
Spartak Moskva (Sovétrfkin) —
AC Milan (italla) 2:0 Milan vann
samanlagt 4:2 og kemst áfram
Vasas Budapest (Ungverjaland) —
Barcelona (Spánn) 0:1. Barcelona
áfram samanlagt 2:0
Liverpool (England) — Slask
Wroclaw (Pólland) 3:0. Liverpool
áfram á samanlagðri markatölu 5:1
Levski Spartak (Búlgaria) — Ajax
(Holland) 2:1
Jöfn markatafa úr báðum leikjum 3:3,
en Spartak áfra.m eftir vítaspyrnu-
keppni
Oporo (Portúgal) — Hamburg (V-
Þýzkaland) 2:1. Hamborg áfram sam-
anlagt 3:2.
Mesta athygli vakti að Ajax, marg-
faldur Evrópumeistari hér fyrr á ár-
um, skyldi slegið út úr keppninni.
Búlgarnir skoruðu úr öllum sínum
vitum. þar á meðal Panov sem gert
hafði bæði mörk liðs sins. en Helling
I liði Ajax brást bogalistin og liðið var
Framhaid á bls. 22