Morgunblaðið - 11.12.1975, Page 39

Morgunblaðið - 11.12.1975, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1975 39 Hér er bókin til skemmtunar og fróðleiks Mu^nús MagnÚBson RÁOHERRAR ÍSLANDS 1904 - 1971 Magnus Magnússon RÁÐHERRAR ÍSLANDS 1904 — 1971 Magnus Stormur, höfundur þessarar bókar, er iands- kunnur fyrir ritstörf og blaðamennsku og fyrir þaS. að vera ómyrkur i máli. tala tæpitungulaust. Hann segir i formála bókarinnar: . ég vil taka fram að ég einn ber alla ábyrgS á þvi, sem sagt er ráðherrunum til lofs eða lasts, nema þar sem ummæli annarra eru tilfærð." Og hann bíður menn að hafa i huga, að þetta eru aðeins svipmyndir og þvi hvergi um alhliða lýsingu að ræða. en segir jafnframt að hann telji sig hafa góða aðstöðu til að geta lýst ráðherrunum með nokkrum sannindum. „þvi ég hef séð þá alla, talað við flesta, kynnzt mörgum þeirra mikið og sumum allnáið." — Allir, sem þekkja Magnús Storm og skrif hans, vita að hér er bók sem þeir verða að eignast. HALLDÓR PJETURSSON DRAUMAR, SÝNIR OG DULRÆNA Stórmerkar sagnir af draum- spöku og dulrænu fólki, fjöldi merkra drauma, frásagnir af furðulegum sýnum og sér- stæðar sagnir af óvenjulegum miðilsf undum. Hér er t.d. veigamikil frásögn af Þórunni grasakonu Gísladóttur og ætt- fólki hennar, en sonur hennar var hinn landskunni grasa- læknir Erlingur Filippusson. HALLDÓR RJErVRRRON ðraumar sýnir Oflntifi dulræna INGÓLFUR JQNSSON FRÁ PRESTSBAKKA .^ogwr INGÓLFUR JÓNSSON FRÁ PRESTSBAKKA ÞJÓÐLEGAR SAGNIR Þetta seinna bindi Þjóðlegra sagna hefur að geyma stutt- orðar og gagnorðar sagnir, margar bráðsnjallar og ýmsar stórfyndnar. Þær eru skráðar á kjarngóðu máli og sem fyrr hefur Ingólfur fyrst og fremst leitað fanga hjá alþýðu manna, þvt þar finnst honum viðmótið bezt, frásögnin einlægust og sagnaheimurinn stærstur. — Þetta er þjóðleg bók, góður viðauki við fyrri sagnasöfn. HOWARD MURPHET SAI BABA — MAÐUR KRAFTA- VERKANNA Hér er sagt frá einum áhrifa- mesta kraftaverkamanni, sem fram hefur komið um aldaraðir. Kraftaverkum þessa undramanns er llkt við krafta- verk Krists og samfara þeim fer sú ást og umhyggja, sem Kristur hlýtur einnig að hafa búið yfir, og auk þess vit- neskjan um Guð, sem opnar dyrnar að nýrri llfssýn. Bókin um Sai Baba er stórkostleg og hrlfandi. GUNNARM. MAGNÓSS SÆTI NÚMER SEX Bókin hefst á þvi er Ásgeir Ásgeirsson kemur 29 ára gamall I framboð I Vestur-isafjarðarsýslu og berst þar um þingsætið við hinn gamla þingkappa Guðjón Guðlaugsson. Ferill Ás- geirs er rakinn I héraði, sagt frá baráttu hans og sigrum og hvernig leið hans lá inn á þing og að lokum I forsetastólinn. Þessi frásögn er afburða- snjöll og mun lengi lifa. — Gunnar rekur slðan hinn pólitlska æviþráð sinn, fer eftir honum I „sæti númer sex" á Alþingi og situr þar hundrað daga. Hér koma margir við sögu og þetta er „Ismeygilega vel skrifuð bók, sem Gunnar sendir frá sér". Hann dregur upp ógleymanlegar myndir af mönnum og málefnum og bókinni lýkur með palla- dómum um samþingsmenn hans. — og fær þar hver kappinn sinn skammt ómældan STEINAR BRAUÐINU JÓN HELGASON JÓN HELGASON STEINAR í BRAUÐINU Rithöfundareinkenni Jóns Helgasonar eru fyrst og fremst fagurt mál, frásagnarlist og stllsnilld. Þessi bók hans ber öll þessi glæstu merki. Hún er leikur að máli og llfsmyndum, mikilúðlegur skátdskapur, sem vekja mun athygli allra, sem fögrum bókmenntum unna. Þessar sögur hans eru svo vel sagðar að til tiðinda mun verða talið þegar bókmenntauppskera þessa árs verður gerð upp. SKOI.I guðjónsson LjÖTUNMMtSTÖDUM SKÚLI GUÐJÓNSSON LJÓTUNNARSTÖÐUM SVO HLEYPUR ÆSKAN UNGA Minningabrot frá bernsku höf- undarins, þar sem hann segir frá persónulegri reynslu sinni og bregður upp skemmtilegum svipmyndum af mönnum, sem honum urðu minnisstæðir. Hann segir frá „Guðfræðinámi I hænsnakofa", ræðir „Um gesti og gestakomur" og „Fornar ástir og þjóðlegt klám", frásagnir, sem hafa sér- stakt heimildargildi um þau ’mmmmmm, viðhorf, sem óðum eru að gleymast. f þeim birtist e.t.v. bezt hin sérstæða frásagnarsnilld höfundarins og hæfileiki hans til að skynja samtlð slna og breytta menningarstrauma. WOLFGANG LOTZ KAMPAVÍNS- NJÓSNARINN Þessi bók er hrikalega spennandi, hún er skjalfest og sönn frásögn af viðburðarlku og æsilega ævintýralegu lifi, , | ‘ ótrúlegasta njósnasaga sem skrifuð hefur verið Lotz starf aði sem israelskur njósnari Egyptalandi, varð trúnaðar- vinur hershöfðingja, ráðherra og leyniþjónustuforingja og þýzka nýlendan I Kalró bauð hann sérstaklega velkominn. En upp komast svik um slðir, og Lotz var handtekinn og ekkert virtist blða hans annað en snaran. Sexdagastrlðið varð honum til bjargar. — Þetta er æsispennandi og ótrúleg bók, en hvert orð er skjalfest og satt. NIOSNARINN DR. JAKOB JONSSON LÍF VIÐ DAUÐANS DYR LiF VIÐ DAUÐANS DYR Dr. Jakob segir hér frá reynslu sinni sem sjúkrahússprestur. Hann fjallar um mótlætið, heilsuleysið og sjúkrahúsið, um dauðann og þá einnig hinn umdeilda dauða. um heim- sækjendur, sorg og huggun og loks um heilbrigðina og llfs- hamingjuna. Þessi bók fjallar um vandamál, sem snerta hvern einasta mann, hvort heldur er sjúkan og sorg- mæddan eða geislandi af llfs- fjöri og krafti. Þetta eru hugleiðingar manns mikillar trúar reynslu, manns. sem segir hispurslaust frá, vekur til um- hugsunar og skilnings á miklu vandamáli. Jakob Jóns- son SALTFISKUR OG SÖNGLIST HARALDUR GUÐNASON SALTFISKUR OG SÖNGLIST Hér er sagt frá Skarðsselsbræðrum, Berg- steini á Yrjum, Hreiðari I Hvammi og Jóni I Skarðsseli og afkomendur þeirra raktir. „Djöfullinn I helvlti gefi þér tóbak" heitir þáttur um séra Loft á Krossi og þáttur er um Erlend Helgason I Heysholti. sem varð þjóðsagnapersóna þegar I lifanda llfi. Saltmengaðar frásagnir eru af nokkrum gamalkunnum Vest- mannaeyingum: Matthlasi Finnbogasyni, Guðmundi Ög- mundssyni, fyrsta vitaverði I Eyjum, Lauga I Mandal, Þórði formanni Stefánssyni, Jóhanni I Stighúsi, Friðrik I Batavlu, Hannesi Hreinssyni og loks Helga Jónssyni faktor i Garðin- um. PÉTUR EGGERZ HVAÐ VARSTU AÐ GERA ÖLL ÞESSI ÁR? Pétur Eggerz hefur I starfi sinu gengið meðal þeirra, sem leitað hafa fjár og frama, þeirra manna, sem máttur valdsins hefur freist- að. En hvers virði er valdið. féð og frægðin? Er lifs- hamingjuna þar að finna? Þessum og öðrum állka spurningum leitast þessi snjalli höfundur við að svara I bók sinni, sem er skopleg lýsing hins Ijúfa lifs, héð og spé um þá llfsblekkingu sem aðeins virðist eftir sókn eftir vindi. Pétur gagnrýnir „kerfið" I þessari bók, dregur dár að þvl, sem þar fer aflaga, setur gæðamat þjóðfélagsins undir smásjá og sér I gegnum blekkingavefinn. Enn sem fyrr hittir hann beint I mark, undan hárbeittum penna hans sviður. ÓLAFURTRYGGVASON Á JÖRÐU HÉR „Hverjum þeim, sem við erfið- leika á að stríða, munu bækur hans örugg hjálp. Það kann að vera að manni sem lífið leikur við, sé ekki nauðsynlegt að lesa þær, en færi svo að lífið hætti leik sínum, væri gott að vita, að þessar bækur eru til." Þetta hefur Kristján frá Djúpa- læk að segja um bækur Ólafs. — Það er eins og hulinn kraftur og máttur læknandi orku þessa mikla mannvinar fylli hverja siðu þessarar bókar. Cö TS WLá jöjfdn H*lA**- Csarrland yíáög Metmðiw BARBARA GARTLAND ÁST OG METNAÐUR Brora lávarður er vanur að stjórna og ráða ferðinni og þvl verður hann fyrst og fremst reiður, þegar fegurðardisin Melia Melchester slltur trú- lofun þeirra. Og þegar hann hittir hina ungu Jane Mac Leod, sem svipað er ástatt fyrir fær lávarðurinn eina af sinum stórsnjöllu hugmyndum. Stór- skemmtileg og eldfjörug ástar- saga. THERESA CHARLES ERFÐASKRÁIN Ný og spennandi ástarsaga eft- ir metsöluhöfundinn vinsæla. — Það var nánast tilviljun að Nixy Warren gerðist hjúkrunar- kona og það voru einnig til- viljanir að hún hafði tvlvegis orðið ástfangin af röngum karl- mönnum — og slikt var hún ákveðin I að láta ekki endur- taka sig. En svo kom Harvey Mayfield, ungur og glæsilegur, og lifið er sannarlega fullt af æsispennandi tilviljunum. StðastoiR FAÐIR MINN — BÓNDINN GÍSLI KRISTJÁNSSON RITSTÝROI. Fjórtán þættir um stórbrotna og á ýmsan hátt fyrirferðar- mikla bændahöfðingja, skráðir af börnum þeirra: Guðmundur Þorbjarnarson, Stóra-Hofi. eftir Hákon Gtiðmundsson — Bjarni Jensson, Ásgarði eftir Torfa Bjarna- son — Kristinn Guðlaugsson, Núpi, eftir Unni Kristinsdóttur — Glsli Jónsson. Hofi, eftir Gunnlaug Gislason — Þórarinn Jónsson, Hjaltabakka, eftir Hjalta Þórarinsson — Friðrik Sæmundsson, Efri-Hólum, eftir Sæmund Friðriksson — Þ. Magnús Þorláksson, Blikastóðum. eftir Helgu Magnúsdóttur — Jón Konráðsson. Bæ, eftir Björn Jónsson — Guðbjar Kristjánsson, Hjarðarfelli, eftir Gunnar Guðbjartsson Bjórn Þorkelsson, Hnefils dal, eftir Þorkel Björnsson — Jakob H. Lindal, Lækja móti eftir Sigurð Llndal — Sverrir Glslason, Hvammi, eftir Ólaf Sverrisson — Jón Sigurðsson, Yztafelli, eftir Jónas Jónsson — Helgi Jónsson, Seglbúðum. eftir Jón Helgason. — Allir voru þessir bændur braut- ryðjendur, hver með sinum sérstæða hætti, og allir voru þeir héraðshöfðingjar. kraftmiklir kjarnakarlar sem settu sterkan svip á samtið slna. Faóir rninn m f* 'W ts.< wfwJdtr MhM: o>> •)».« 0« ofm «x- :«*»•» t kx % x vsxoo. .«b is o:«u > Skuggsjá-Bókabúð Olivers Steins-Sími 50045

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.