Morgunblaðið - 16.12.1975, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1975
48 ára maður lézt
í umferðarslysi
Fáksskeiðvellinum um klukkan
18,30 s.l. laugardag. 48 ára gamall
maður, Birgir Gunnarsson,
Suðurlandsbraut 106, Reykjavfk,
varð fyrir bifreið og lézt sfðar um
kvöldið af völdum meiðsla sem
hann hlaut. Birgir lætur eftir sig
3 börn.
Birgir heitinn var á leið austur
yfir Reykjanesbrautina en bif-
reiðin, sem ók á hann, amerísk
fólksbifreið, var á leið norður
Reykjanesbrautina. Kona ók bif-
reiðinni, og kvaðst hún hafa verið
á u.þ.b. 60 km hraða. Frekar léleg
lýsing er á þessu svæði og sá
konan ekki Birgi heitinn fyrr en
rétt áður en hann lenti fyrir bif-
reiðinni. Höggið var mikið og
hlaut Birgir svo mikil meiðsli að
hann lézt á Borgarsjúkrahúsinu
tveimur tímum eftir slysið.
BANASLYS varð á nvju Reykja-
nesbrautinni, skammt frá gamla
Birgir Gunnarsson
2 Rússar setja „Nátt-
ból” Gorkis á svið
IJósm. Hafsteinn Davíðsson.
FRÁ SLYSSTAÐ — Vöruhifreiðin liggur gjörónýt í fjörunni, eftir að hafa steypzt
niður 50—60 metra snarbratta hlíðina.
TVEIR Rússar munu koma mjög
við sögu hjá Þjóðleikhúsinu, þeg-
ar leikhúsið hefur sýningar á
leikriti Gorkis, „Náttbólið“, eða
„I djúpinu." Einn þekktasti leik-
myndateiknari Sovétrfk janna,
David Borovsky, hefur undanfar-
ið unnið að undirhúningi þessar-
ar sýningar, en hann teiknar leik-
mvndir og húninga. Leikstjórn
Náttbólsins verður f höndum
Victors Strizkovs, en hann er
einkum þekktur fvrir túlkanir á
verkum Gorkis.
I frétt frá Þjóðleikhúsinu segir,
að Borovsky sé aðalleikmynda-
teiknari við Taganka-leikhúsið í
Moskvu, en sýningar þess leik-
húss hafa vakið heimsathygli
undanfarin 4—5 ár og er þetta
Ieikhústalið eitt hið bezta f Sovét-
ríkjunum.
Leikstjórinn Strizkov er vænt-
anlegur til Islands um hátíðarnar
og hefjast æfingar milli jóla og
nýárs. Ýmsir þekktustu leikarar
Þjóðleikhússins fara með hin
sögufrægu hlutverk í þessu leik-
riti, þeirra á meðal Valur Gísla-
son, en hann á 50 ára leikafmæli í
vor.
Banaslys við Patreksfjörð:
Fjögur banaslys á þjóðveg-
um V-Barðastr.sýslu í haust
Palreksfírói 14. des.
SÁ hörmulegi atburður átti sér
stað hér f gærdag, um klukkan
tvö, að Pálmi Magnússon bifreiða-
stjóri og útgerðarmaður beið
Ofviðri á Súgandafirði:
Athafnasvæðið við höfnina
eins og eftir hvirfilvind
Sógandafirói, 15. desembcr. —
StÐASTLIÐINN laugardag gerði
hér aftakaveður. Var það um
kaffilevtið, að það fór að hvessa
og var áttin þá vestsuðvestan til
að hvrja með, en snerist sfðan til
norðvesturs, er Ifða tók á daginn
og jók þá vindinn að mun og er
ekki of mikið sagt, að það hafi
verið ofsarok fram undir mið-
nætti, en þá lægði lítið eitt, en
mjög mikið veður hélzt fram und-
ir morgun.
Þegar vindur er hér norðvest-
an, kemur hann beint inn Súg-
andafjörð. Þessu veðri fylgdi
meiri sjógangur en hér hefur sézt
í áratugi. Stórtjón varð í þessu
fárvirði, en það er ekki að fullu
metið ennþá, en ner ur tugum
milljóna króna. Ætla ég hér að
nefna það helzta.:
Tjón hjá Suðureyrarhreppi:
Vatnsveitan liggur fyrir fjallið
Spilli út í Staðardal. Liggur leiðsl-
an í þjóðveginum og skolaði sjór-
inn honum burtu á kafla, þannig
að leiðslan liggur upp úr á nokkr-
um stöðum, en er þó óbrotin.
Þekja á ytra hafnargarði i báta-
höfninni skemmdist allmikið, er
sjór komst undir hana, braut nið-
ur á kafla og lyfti henni upp.
Hurðir f nýju áhaldahúsi
hreppsins brotnuðu inn vegna
þunga veðurofsans, einnig
brotnuðu rúður og horn hússins
tók af og litlu munaði að gaflinn
færi úr því í heilu lagi.
Járn fauk af þaki verbúðar Suð-
ureyrarhrepps.
Hjá Fiskiðjunni Freyju h.f.
braut sjórinn niður tvær tré-
bryggjur. A annarri bryggjunni
stóð harðfiskhjallur og brotnaði
hann í spón. 1 þeim hjalli var
Framhald á bls. 39
Hef ekkert á móti blaða-
mönnum um borð
— segir Pétur Sigurðsson
VEGNA kvartana margra aðila
og nú sfðast utanrfkisráðherra
um hve fréttir berist seint frá
landhelgisgæzlunni hafði Mbl.
samband við Pétur Sigurðsson
forstjóra Landhelgisgæzlunnar
í gær og spurði hann hverju
þetta sætti.
Pétur Sigurðsson sagði, að
það gæfi auga leið, að ekki væri
hægt að senda mikið frá varð-
skipunum á meðan átök ættu
sér stað. Ekkert væri sent frá
skipunum nema með heimild
skipherra. Sjálf gæfi Land-
helgisgæzlan ekki út til-
kvnningar fvrr en skýrar upp-
lýsingar skipherra lægju fyrir.
Og þegar um átök væri að ræða.
væri það mjög misjafnt hve
iangan tfma þau stæðu vfir.
Hann sagði, að f þessu sam-
bandi mætti vel koma fram, að
þessu væri háttað á annan veg
hjá Bretum. Einhver yfir-
maður brezku skipanna hefði
eftirlit með því, hvað sent væri
frá borði. Þeir blaðamenn, sem
væru um borð, gætu sent sínar
fréttir, en það sem frá þeim
kæmi teldust ekki opinberar
fréttir.
— Sjálfur hef ég ekkert á
móti þvf að blaðamenn fái að
fara með fslenzku varðskipun-
um og það mál er f athugun. En
þess ber að geta, að varðskipin
eru sex talsins og það er ekki
Ifkt þvf alltaf sem þau lenda f
átökum, sem betur fer, sagði
Pétur.
Pétur Sigurðsson sagði, að af
gefnu tilefni mætti það koma
fram, að landhelgisgæzlan
notaði ekki nema þegar á þvrfti
að halda dulmálskóda eins og
ef þyrfti að halda nöfnum
leyndum.
— Það, sem héir okkur mest,
er, að við höfum ekki mann-
skap til að senda skevti eða tala
f land jafn óðum og eitthvað
gerist, sagði Pétur að lokum.
Pálmi Magnússon.
bana er bifreið hans fór útaf
veginum á Raknadalshlfð. Er
þetta 4. banaslysið á þjóðvegum
V-Barðastandarsýslu f haust.
Nánari tildrög slyssins eru þau,
að Pálmi var að koma úr mjólkur-
ferð á bifreið sinni, sem er stór
yfirbyggð vörubifreið, en hann
annaðist mjólkurflutninga á
Rauðasandi og Barðaströnd fyrir
Mjólkursamlag Vestur-
Barðstrendinga. Með Pálma í
ferðinni var sonur hans 15 ára
gamall, Helgi Páll. Attu þeir eftir
aðeins tæplega 5 mínútna akstur
til Patreksfjarðar þegar óhappið
varð en þá voru þeir staddir
skammt innan við svonefnt Sel á
hlíðinni. Pálmi mun hafa áttað sig
á því hvað var að gerast því hann
kallaði til sonar síns að stökkva út
úr bifreiðinni, hvað honum tókst
en þá var bifreiðin komin útaf
vegbrúninni og kom Helgi Pálí
niður í urð en meiddist furðu
lítið, er þó nokkuð skrámaður.
Af bifreiðinni er það að segja
að hún steyptist niður hlíðina og
alla leið niður í fjöru en þarna er
snarbratt og um 50—60 metrar
niður í fjöruna. Pálmi kastaðist út
úr bifreiðinni, rétt fyrir neðan
miðja hlíðina og kom Helgi Páll
þar að honum og var hann þá
mikið slasaður. Eftir að hafa hag-
rætt og hlúð að föður sinum hijóp
Helgi Páll á eftir hjálp á leið til
Patreksfjarðar. Aðstæðan eru svo
erfiðar þarna, að er læknir og
tveir lögregluþjónar komu á
staðinn, varð annar lögreglu-
þjónninn að fara aftur til Patreks-
fjarðar eftir frekari aðstoð en
hinir urðu eftir hjá hinum slasaða
manni. Aðstoð barst mjög skjótt
og var Pálmi fluttur á sjúkra-
húsið á Patreksfirði. Meiðsli hans
reyndust það alvarleg, að hann
lézt skömmu eftir að hann kom á
sjúkrahúsið.
Pálmi heitinn var þaulvanur
bifreiðarstjóri, sem vanur var að
aka hina erfiðu fjallvegi hér við
erfiðustu skilyrði. Helgi Páll
telur orsök slyssins vera þá að
steinkast úr fjallinu fyrir ofan
veginn hafi lent á bílnum en
mikið vatnsveður var um daginn
og töluvert um grjóthrun á vegin-
um. Bifreiðin er gjörónýt.
Pálmi Magnússon var einn
hinna kunnu Hlaðseyrarbræðra.
Var hann mikill dugnaðar- og at-
orkumaður. Lætur hann eftir sig
eiginkonu, Þóru Magnúsdóttur
hjúkrunarkonu, og 4 börn, 7—15
ára.
Móðir Pálma, Kristín Finnboga-
dóttir, er búsett hér á Patreks-
firði, en faðir hans er látinn fyrir
nokkrum árum.
—Páll.
Missti allt
sitt í húsbruna
Olafsvfk, 15. desember.
UM KLUKKAN fjögur aðfarar-
nótt sunnudags, kviknaði eldur f
gömlu fbúðarhúsi að Sandholti 3
— öðru nafni Varmalæk. Húsið
sem var Iftið einlyft timburhús,
múrhúðað utan, varð alelda á
svipstundu. Húsráðandi, Sól-
mundur Júlfusson, verkamaður,
slapp naumlega út, en kona hans
og tvö ung börn voru að heiman.
Siökkviliðið kom fljótt á sta
inn, en þá var húsið komið að fa
og brann allt sem brunnið gi
Næstu hús voru mikið í hættu
neistaflugi, sem barst langar lei
ir undan vestanroki. Þó tókst ;
forðast frekara tjón. Innbú v
lágt vátryggt og er ljóst að fólk
hefur orðið fyrir mikiu tjóni. T;
ið er að kviknað hafi I út f
olfukyntri eldavél. — Helgi.