Morgunblaðið - 16.12.1975, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1975
15
Úrvals
Laugavegi 78
STERKA RYKSUGAN!
NILFISK er sterk: kraftmikil og traust. Þar hjálpast allt að:
styrkur og ending hins hljóða, stillanlega mótors, staðsetning
hans, stóra flókasian og stóri (ódýri) pappírspokinn með litlu
mótstöðunni, gerð sogstykkjanna, úrvals efni: ál og stál.
Og NILFISK er þægileg: gúmmíhjól og -stuðari, 7 metra (eða
lengri) snúra, lipur slanga með liðamótum og sogstykki, sem
hreinsa hátt og lágt. Þrivirka teppa- og gólfasogstykkið er
afbragð. Áhaldahilla fylgir.
Svona er NILFISK: Vönduð og þaulhugsuð i öllum atriðum,
gerð til að vinna sitt verk vel ár eftir ár með lágmarks
truflunum og viðhaldi. Varanleg eign.
RAFTÆKJAÚRVAL - NÆG RÍLASTÆDI
& FÖNIXrtn?;
Barnaverndarfélagið gefur heim-
ilinu í Kumbaravogi hálfa millión
BARNAVERNDARFÉLAG
Lára Sigurbjörnsdóttir gjaidkéri Barnaverndarfélagsins afhenti peim
Hönnu Halldórsdóttur og Kristjáni Friðbergssvni hina rausnarlegu
gjöf og Iét fylgja með fallega jólarós til að skreyta jólaborðið á
heimilinu f Kumbaravogi.
Reykjavfkur afhenti s.l. föstudag,
barnaheimilinu f Kumbaravogi
við Stokkseyri 500 þúsund krónur
að gjöf. Upphæðin var ágóði af
fjáröflunardegi félagsins, sem að
venju var fyrsta vetrardag og
tekjur af „serviettusölu“ kvenna
félagsins. Afhenti gjaldkeri
Barnaverndarfélagsins, Lára
Sigurbjörnsdóttir, gjöfina, en við
þetta tækifæri tóku til máls
Sigurjón Björnsson formaður
Barnaverndarfélagsins og Krist-
ján Friðbergsson, forstöðumaður
heimilisins í Kumbaravogi.
Sagði Sigurjón að Barnavernd-
arfélagið hefði undanfarin ár
látið ágóða af fjáröflunardegi
félagsins renna til barna, sem
miður mættu sín i þjóðfélaginu,
til menntunar þeirra eða til heim-
ila, sem störfuðu í þeirra þágu.
Það væri Barnaverndarfélaginu
sérstakt ánægjuefni að láta féð nú
renna til heimilisins í Kumbara-
vogi, sem unnið hefði einstakt
varnarstarf fyrir börn og ungl-
inga.
Kristján Friðbergsson þakkaði
hina rausnarlegu gjöf fyrir sína
hönd og konu sinnar, Hönnu Hall-
dórsdóttur. Sagði Kristján að þó
hann yrði manna síðastur til að
vanþakka svo rausnarlega gjöf þá
þætti honum meira vert um þann
viðurkenningar og virðingarvott
sem Barnaverndarfélagið sýndi
honum og konu hans og starfsemi
þeirra.
Heimilið í Kumbaravogi er að
mörgu leyti mjög sérstakt, þar
eru börn og unglingar sem heima
hjá sér. Þau yngri fá þar kennslu
og að sumrinu til starfa þau við
pokagerð, sem sett var upp í
tengslum við heimilið fyrir
þremur árum síðan. Að staðaldri
dvelja þar 15—20 börn, en þar að
auki reka þau hjón, Kristján og
Hanna, elliheimili, þar sem nú
dvelja 11 manns.
Lionsklúbburinn Baldur hefur
verið Kumbaravogsheimilinu
mjög hjáiplegur í gegnum árin,
en ríkisstyrkir til heimilisins hafa
verið hverfandi. — Við höfum
fengið þetta 50—125 þúsund
krónur á ári frá ríkinu, svo
kallaðan byggingarstyrk, og að
sjálfsögðu kunnum við að meta
slika styrki, sagði Kristján Ingi-
bergsson á fundi með fréttamönn-
um í gær. — Það að fá hins vegar
hálfa milljón upp i hendurnar
setur allt úr skorðum hjá manni,
þvi maður er engan veginn vanur
þvi að fá rétta svona mikla fjár-
muni.
Herrahúsið Aðalstræti4, Herrabúðin við Lækjartorg