Morgunblaðið - 16.12.1975, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1975
5
Halldór Blöndal:
Hagsmunir KEA og
hinn almenni borgari
ÞAÐ er engum vafa undirorpið,
að Kaupfélag Eyfirðinga og sam-
vinnuhreyfingin eiga mjög mik-
inn þátt í vexti og viðgangi Akur-
eyrar. Til þess að skilja, hvílíkt
afl þessi samtök eru í athafnalífi
bæjarins get ég talið það fram, að
fyrir allmörgum árum vann annar
hver maður á hinum frjálsa
vinnumarkaði hjá KEA eða fyrir-
tækjum SlS, en mér er ekki kunn-
ugt um, hver þróunin hefur verið
síðan. Þetta er líka allflókið
dæmi, þar sem hlutafjáreign sam-
vinnuhreyfingarinnar á Akureyri
er veruleg og liggur víða. Þá hef
ég það fyrir satt, að fjórðungur
Akureyringa sé félagsmaður í
KEA.
Þegar þetta er haft í huga, er
augljóst, að stjórn Akureyrar-
bæjar hlýtur að taka verulegt til-
lit til sjónarmiða og hagsmuna
þessarar fyrirtækjasamsteypu,
sem sumpart er rekin með sam-
vinnusniði og sumpart í hluta-
félagsformi. Á hinn bóginn eiga
Halldór Blöndal.
önnur fyrirtæki á Akureyri og
kannski fyrst og fremst hinn
akureyríski borgari einnig sinn
rétt. Það er m.ö.o. ekki hægt að
taka því þegjandi, þegar hags-
munum KEA er haldið fram af
þvílikri óskammfeilni í bæjar-
stjórn Akureyrar, að það gangi út
yfir almennt velsæmi og grund-
vallarreglu íslenzks réttar.
Vanhæfi
I Stjórnarfarsrétti Ólafs
Jóhannessonar, Rvík MCMLV,
bls. 179 og áfram er fjallað um
vanhæfi stjórnvalds. Þar segir
m.a. svo, bls. 196: „.... verður að
telja það grundvallarreglu
Islenzks réttar, að enginn megi
úrskurða í sjálfs sín sök. Og þessi
grundvallarregla mun eigi aðeins
gilda um úrskurði, heldur og um
hvers konar stjórnarathafnir og
samninga. Eðlilegt virðist, að
sama regla gildi, ef embættis-
maður á sæti f stjórnarnefnd
félags eða fyrirtækis, sem er aðili
máls. Þótt ríki eða sveitarfélag sé
aðili máls eða málsúrslit varði
verulega hagsmuni ríkis eða
sveitarfélags, eru þó stjórnvöld f
þeirra þjónustu auðvitað ekki
vanhæf.“
1 byggingarsamþykkt fyrir
Akureyri segir svo: „Ef bygg-
ingarnefnd fjallar um mál, sem
varðar persónulega hagsmuni ein-
hvers, sem er í nefndinni eða sit-
ur fundi hennar, t.d. ef hann hef-
ur gert uppdrátt eða sent umsókn,
sem fundurinn fjallar um, skal
hann víkja af fundi, meðan málið
er afgreitt." Mér er kunnugt um,
að þessari reglu hefur verið
haldið, og tekur t.d. Stefán
Reykjalín aldréi þátt í afgreiðslu
mála f byggingarnefnd, er snerta
hann sjálfan eða fyrirtæki hans.
Þá segir i byggingarsamþykkt, að
ályktanir byggingarnefndar skuli
bera undir sveitarstjórn til sam-
þykktar eða synjunar. Það leiðir
að sjálfsögðu af eðli máls, að
aðrar og minni kröfur verða ekki
gerðar til bæjarstjórnarmanna
varðandi vanhæfi en manna í
byggingarnefnd. Krafan og nauð-
synin á óvilhöllu, hlutlægu mati
hlýtur að vera jafnnauðsynleg f
báðum tilvikum.
Undarleg atkvæðagreiðsla.
Nú hefur risið deila milli bæjar-
stjórnar og byggingarnefndar um
verzlunarlóð f Glerárhverfi. I
byggingarsámþykkt segir fortaks-
laust, að ráðherra skuli skera úr
ágreiningi þessara aðila, en mér
er þó ekki Ijóst, hvort þvf ákvæði
er ætlað að ná til lóðaúthlutunar
eða einungis til hinna eiginlegu
byggingarmálefna. Það er þó ekk-
ert í byggingarsamþykktinni, sem
mælir á móti því.
Á Akureyri hefur ekki tiðkast,
að verzlunarlóðir séu auglýstar.
Hins vegar hefur byggingarnefnd
og sfðan bæjarstjórn tekið afstöðu
til umsókna, eftir því sem þær
hafa borizt. I samræmi við þetta
samþykkti byggingarnefnd á
fundi sfnum hinn 29. okt. sl. að
veita Þórbergi Ólafssyni kaup-
manni umrædda verzlunarlóð
með öllum atkvæðum eftir nánari
útmælingu og byggingarskil-
málum. Á bæjarstjórnarfundi 4.
nóv. var þessi samþykkt tekin
fyrir og lagði þá varaformaður
stjórnar KEA, Sigurður Óli
Brynjólfsson, til, að henni yrði
vísað til bæjarráðs, en sú tillaga
var felld með atkvæðum sjálf-
stæðismanna og Stefáns Reykja-
lín, framsögumanns bygginga-
nefndar i bæjarstjórn. Síðan gerð-
ist það undarlega, að lóðarveit-
ingin var felld með hjásetu meiri-
hlutans gegn 5 atkvæðum sjálf-
stæðismanna.
I ljósi þess, sem síðar verður
rakið, er spurning, hvort þessum
úrskurði bæjarstjórnar Akur-
eyrar verði ekki hrundið með
áfrýjun til félagsmálaráðherra
vegna vanhæfis a.m.k. eins bæjar-
fulltrúa Framsóknarflokksins.
Hagsmunir rekast á
Þórbergur Ólafsson kaupmaður
endurnýjaði þegar Ióðaumsókn
sfna og var hún tekin fyrir á fundi
byggingarnefndar næsta dag hinn
5. nóv., sbr. bókun hennar: „Bygg-
ingarnefnd samþykkir að gefa
umsækjanda vilyrði fyrir aðstöðu
fyrir matvöruverzlun á verzlunar-
lóð í nýju hverfi, Hlíðarhverfi f
Glerárhverfi, enda uppfyllir
umsækjandi þau skilyrði, sem
fram kunna að koma f deiliskipu-
lagi. Endanleg lóðarúthlutun fari
fram, þegar deiliskipulag liggur
fyrir“. Stefán Reykjalfn var
mættur á þessum fundi. Þessi
ályktun var svo tekin fyrir á
bæjarstjórnarfundi 25. nóv., og
enn gerðust óvæntir hlutir, sem
ekki skýrðust fyrr en síðar. eða
eftir að fyrir lá, að þá þegar hafði
KEA sótt um margumrædda
verzlunarlóð fyrir viku tæpri eða
19. nóv. Ekki lét formaður bygg-
inganefndar, Bjarni Einarsson
bæjarstjóri, þess þó getið við um-
ræðurnar, né fulltrúar KEA, sem
voru nógir á fundinum. Hins
vegar vildi svo til, að Stefán
Reykjalín var fjarverandi.
Nú tóku meirihlutaflokkarnir
það ráð að flytja tillögu þess
efnis, að verzlunarlóðir skyldu
auglýstar, þ.á m. viðkomandi lóð í
Glerárhverfi. Urðu allharðar um-
ræður um þetta mál og var til-
lagan að síðustu samþykkt með 6
atkv. gegn 5. Síðar hefur það upp-
lýstst, eins og áður segir, að KEA
hafði sótt um viðkomandi
verzlunaraðstöðu og ekki nóg með
það, heldur farið fram á að fá
byggða verzlunaraðstöðu f nýjum
hverfum. Það var þetta, sem hékk
á spýtunni, og mátti sannarlega
vænta annars af fulltrúa slíkra
sjónarmiða f bæjarstjórn Akur-
eyrar. Mætti hann þó vel minnast
þeirra átaka sem urðu vegna
verzlunarlóðarinnar á horni
Hrafnagilsstrætis og Byggða-
vegar. Þar varð Kaupfélag verka-
manna undir, þrátt fyrir einarðan
stuðning bæjarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins, og hafði það þó
við lélegar aðstæður haldið uppi
verzlunarþjónustu f þvi hverfi,
sem þar var að rísa.
Fyrir Framsóknarflokkinn sátu
þennan fund Valur Arnþórsson,
forstjóri KEA Sigurður ÓIi
Brynjólfsson, varaformaður
stjórnar KEA, og Sigurður Jó-
hannesson, forstjóri eins af
dótturfyrirtækjum samvinnu-
hreyfingarinnar, en Valur Arn-
þórsson hefur setið í stjórn þess
sem varaformaður. Enginn vafi er
á þvf, að lóðarumsókn KEA og
þau sjónarmið, sem þar koma
fram, veldur vanhæfi a.m.k.
hinna tveggja fyrrnefndra bæjar-
fulltrúa og bar þeim annaðhvort
að víkja sæti á bæjarstjórnar-
fundinum eða hafa ekki afskipti
af afgreiðslu málsins. Um vara-
fulltrúann, Sigurð Jóhannesson,
leikur hins vegar nokkur vafi. Þó
ber á það að líta, að hann situr
fundinn í stað Stefáns Reykjalfn.
Og ljóst er, að bæjarfulltrúar
Framsóknarflokksins eru klofnir
f málinu og það er líka ljóst, hver
staða hvers þeirra um sig er gagn-
vart KEA og samvinnuhreyfing-
unni.
Til frekari glöggvunar á eðli
þessa máls tel ég rétt að rifja upp,
að á bæjarstjórnarfundi 15. maí
1973 réðu þessir sömu þrír bæjar-
fulltrúar úrslitum um það, að
KEA var veittur hálfs árs frestur
á greiðslu lágmarksbyggingar-
gjalds verzlunarbyggingar við
Hrísalund nr. 3 Án þeirra full-
tings hefði sá frestur m.ö.o. ekki
verið veittur. A sama fundi felldi
meirihlutinn með hjásetu sam-
þykkt byggingarnefndar varðandi
verzlunarlóð þá, þar sem nú
stendur Kaupangur.
Var eitthvað að fela?
Þessi lóðarslagur er nú tekinn
að vekja mikla athygli og er m.a.
frétt um hann á baksfðu Vísis 3.
des. en þar segir m.a.: „Valur
Arnþórsson, kaupfélagsstjóri og
forseti bæjarstjórnar, sagði hins
vegar við Vísi f morgun, að KEA
hefði ekki lagt fram formlega um-
sókn um lóðina ennþá. Yrði beðið
þar til deiliskipulagi væri lokið og
lóðin auglýst. Þá yrði tekin af-
staða til þess hvort kaupfélagið
sækti um.“
Ef rétt er með farið, eru þessi
ummæli athyglisverð í ljósi þess,
sem áður er sagt. Þau bera það
einkum með sér, að kaupfélags-
stjórinn er ekki ánægður með
frammistöðu sína, en skilur, að i
lengstu lög verður ' að hindra, að
upp komist um strákinn Tuma.
Honum átti þó að vera ljóst, að
Framhald á bls. 30
SMAMIDAHAPPDRÆTTI
RAUÐa
KROSSINS
FYRIR 100 KR.
250 FIDJI gjafasett
200
RONSON
lcveikjarar
SKATTFRJALSIR
VINNINGAR!
HeildarverAmæti vinninga 6.200.000,oo kr.
ÁGÓÐINN AF ÞESSU
HAPPDRÆTTI RENNUR
■91 ÓSKIPTUR TIL
RAUÐAKROSSTARFSEMI
INNANLANDS, SEM FRAM FER
Á VEGUM DEILDA R.K.i., UM LAND ALLT.
10vinningar
Sólarfrí í skammdeginu
á Tenerife-Kanaríeyjum
FLUCFÉLAC LOFTLEIUIfí
/SLA/VDS riLtiuin
SMAMIDAHAPPDRÆTTI RAUDA KROSSINS