Morgunblaðið - 16.12.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1975
17
Skautafélag Reykjavlkur hefur lltiB keppt undanfarin ér é skautum,
en I öðrum greinum hefur Skautafélagið eignast sina fulltrúa. f
frjálsum Iþróttum heldur Erlendur Valdimarsson merkinu á lofti og I
blaki hafa herramennirnir á myndinni keppt I 2. deildinni I vetur. Þeir
mættu til leiks um siðustu helgi og höfðu auðvitað skauta meS sér til
trausts og halds. en allt kom þó fyrir ekki og liðið tapaði.
2,3 og 4 í mínns iijá
Celtic, Stontfard og Charlesroi
ÞAÐ gekk ekki vel hjá liðum Islenzku atvinnumannanna I knattspyrnu um
siðustu helgi. Öll töpuðu þau leikjum sinum. Jóhannes og Celtic á heimavelli,
en Guðgeir og Ásgeir og lið þeirra á útivelli.
Það kom mjög á óvart I Skotlandi að bæði toppliðin I úrvalsdeildinni, Celtic
og Motherwell, töpuðu leikjum sinum. Einkum kom á óvart tap Celtic á
heimavelli, en liðið lék á heimavelli gegn Aberdeen, sem til þessa hefur ekki
haft yfir miklum afrekum á útivelli að státa. Reyndar var leikur Aberdeen og
Celtic tiltölulega jafn, en gestimir höfSu heppnina meS sér og skoruSu þau 2
mörk, sem skoruS voru i leiknum. Eru Celtic og Hibernian nú efst og jöfn i
deildinni, hafa hlotið 21 stip.
f Belgiu tapaði lið Ásgeirs Sigurvinssonar, Standard Liege, illega á
útivelli, eða 3:0. Leikið var gegn Brugge og átti heimaliðið mjög góðan dag
og er reyndar I einu af efstu sætunum i deildinni. Lið Guðgeirs Leifssonar,
Charlesroi, fékk enn verri útreið, tapaði 4:0 fyrir Lokeren á útivelli og
stendur illa að vlgi á botni deildarinnar — Lokeren er hins vegar á toppnum I
deildinni.
Ágúst hljóp vel í Carlisle
ÁGUST Ásgeirsson hlaupari úr
IR náði beztum tfma aiira
keppenda f vfðavangsboðhlaupi
sem fram fðr f Carlisle fyrir
skömmu. Keppti Agúst þar fyrir
félagið Lakeland AC og var vega-
lengdin sem hlaupin var 4 kfló-
metrar. Sveit félagsins varð f 5.
sæti f hlaupinu, en Ágúst sagði f
viðtali við Morgunblaðið að varla
hefði verið á þvf vafi að sveitin
hefði sigrað ef Sigfús Jónsson
hefði verið með f hlaupinu, en
hann missti af iest til Carlisle og
varð þvf af keppninni.
Agúst hljóp 4 kílómetrana á
11:17 mfnútum sem er mjöggóður
árangur miðað við aðstæður. Aðr-
ir hlauparar sveitarinnar hlupu á
milli 12:21 og 12:30 mfn. Meðal
þeirra sem Agúst sigraði í
hlaupinu var Jeff Norman sem
varð brezkur meistari í maraþon-
hlaupi árið 1975 en hlaupari þessi
er einnig þekktur fyrir góðan
árangur í fjallahlaupum sem eru
mjög vinsæl á Bretlandseyjum.
Þá náði Agúst einnig betri tíma
en hlaupari sem hlaut silfurverð-
laun í 5000 metra hlaupinu á
Evrópumeistaramótinu í Aþenu
1969, en sá er nú í ágætri æfingu
og hefur náð góðum tíma á sinni
vegalengd. — Það var reglulega
gaman að ná betri tíma en þessir
garpar, sagði Ágúst, og bætti þvf
við að hann hefði örugglega getað
gert betur hefði hann haft meiri
keppni, — ég sá ekki sálu allan
minn sprett, sagði Agúst.
Þær auglýsa stál — þeir sápu
MEISTARAFIOKKAR KR I handknattleik hafa að sjálfsögðu auglýsingar á
búningum slnum, eins og flest þau lið, sem taka þátt I íslandsmótinu I
handknattleik. KR-strákarnir hafa i allan vetur auglýst „shampo-tegund" sem
ber nafnið „super soft" og gæti útlagst „sérlega mjúkt." Nýlega fengu KR-
stelpurnar svo auglýsingar á sína búninga og bera á brjóstinu auglýsingar frá
vélsmiðjunni Sindra — „Sindra Stál
Snjóleysi hefur komið niður
á íslenzka skíðafólkinu ytra
ERFIÐLEGA hefur gengið hjá íslenzka skiðafólkinu,
sem nú dvelur i Austurriki. Litill snjór hefur sett strik i
reikninginn og mótum verið frestað hverju ð fætur
öðru. Stúlkurnar hafa enn ekki tekið þátt i einu
einasta móti, en keppa væntanlega um næstu helgi og
piltarnir sömuleiðis en heim verður haldið næsta
mánudag.
Frestun mótanna hefur haft það i för með sér að
miklu meiri fjöldi þátttakenda hefur tekið þátt I þeim
fáu mótum, sem haldin hafa verið. Það hefur svo aftur
leitt af sér að Islenzku keppendurnir hafa fengið mjög
léleg rðsnúmer og þegar að þeim hefur komið hafa
brautirnar verið grafnar og landinn hefur þvi þurft að
keppa að mestu á urð og grjóti.
Haukur Jóhannsson hefur náð beztum árangri Is-
lendinganna, en hann varð I 55. sæti á svigmóti, sem
haldið var á ítaliu fyrir nokkru sfðan. Voru keppendur
um 160 og hafði Haukur rásnúmer 130. Aðrir kepp-
endur islenzkir hafa ekki náð sérstökum árangri og
hefur þeim gengið illa að skila sér i mark.
Þó ekki hafi fengist mörg mót og þvi ekki sú
keppnisreynsla sem fyrst og fremst var sótzt eftir þá
hefur hópurinn æft mjög vel og þá aðallega á jöklum
uppi. Er hópurinn kominn I góða æfingu að sögn og
hafa þau öll mikinn áhuga á að fara ð ný utan til
æfinga og keppni strax eftir áramót, en spurningin er
hvort fátækt skfðasambandið getur styrkt landsliðið
til annarrar utanferðar.
Einvígi blökkumannanna er
KR og Ármann leika íkvöld
I KVÖLD gefst islenskum iþróttaunnendum kostur á að
sjá einvigi blökkumannanna sem leika hér með KR og
Ármanni i körfuboltanum. Þessi lið leiða saman hesta
sina I Laugardalshöllinni kl. 20 i kvöld, og er vist
örugglega hægt að mæla með þessum leik. Eins og
kunnugt er eru þetta einu taplausu liðin I 1. deildinni,
og þau lið sem koma til með að berjast um fslands-
meistaratitilinn ásamt ÍR-ingum.
Þeir félagar Jimmy Rogers og Trukkur Carter sem
dags daglega eru mestu mátar voru aldeildis ósammála
ægar væntanlegir möguleikar á úrslitum þessa leiks
/oru ræddir við þá. „Við erum bestir eins og þú veizt"
sagði Trukkur. — „Þið eruð það þangað til við höfum
tekið ykkur i karphúsið," svaraði þá Jimmy um hæl.
Tvö töp fyrir danska landsliðinu
en stórsigur gegn A rhus KFUM
íslenzka landsliSið tapaði tvívegis í æfingaleikjum fyrir danska landsliðinu
um helgina, en munurinn í báðum leikjum var mjög lítill. LiSiS vann hins
vegar stórsigur yfir 1. deildar félaginu Aarhus KFUM, en þaS lið er meS betri
dönsku 1. deildar liðunum um þessar mundir og varð t.d. danskur meistari
áriS 1974, en þá lék Bjarni Jónsson, núverandi þjálfari Þróttar, með liðinu.
— Ég er mjög ánægður með þessa ferð og dvöl okkar hér i Danmörku sagði Hákon Bjarnason,
fararstjóri islenzka liðsins, I viðtali við Morgunblaðið á sunnudagskvöld. Sagði Hákon að æfingaað-
staðan hefði verið mjög góð meðan liðið var I Kaupmannahöfn, en hins vegar hefðu töluverð
ferðalög fylgt dvöl liðsins á Jótlandi og leikjum þess þar, allt upp i einn og hálfan tima til þess að
komast I leikina.
— Samstaðan i liðinu er mjög góð svo og stemmningin, sagði Hákon, — menn voru svolltið
þreyttir fyrstu dagana enda óvanir þvi að fara á æfingar fyrir hádegi og slðan. á a m.k. eina aðra
æfingu eftir hádegi.
— Nú mun ætlunin hjá landsliðsþjálfaranum að veita leikmönnunum að mestu hvild fram að
landsleiknum við Júgóslava á fimmtudaginn, sagði Hákon. — Það verða að visu töfluæfingar og
menn ætla að hittast og spjalla saman til þess að halda uppi þeirri góðu stemmningu I liðinu sem
náðist hér.
mjög óheppnir að missa af honum og Dönum
tókst að bruna upp og skora sigurmark leiksins,
17—16, — nákvæmlega sömu úrslit og i
opinbera landsleiknum á dögunum.
Mörk ísiands i leik þessum gerðu: Björgvin
Björgvinsson 6, Jón Karlsson 6, Stefán
Gunnarsson 1, Viggó Sigurðsson 1, Axel Axels-
son 1 og Páll Björgvinsson 1.
TAP FYRIR DONUM
ÁFÖSTUDAGSKVÖLD
Fyrsti leikur Islenzka landsliðsins i æfingamót-
inu var á föstudagskvöld og var þá leikið við
danska landsliðið. Einn af helztu leikmönnum
danska liðsins, Flemming Hansen, var ekki með
þv! I leik þessum og því meiri von en ella að
islenzka liðinu tækist að sigra. Leikurinn var
mjög jafn og vel leikinn af beggja hálfu. Danir
náðu fljótlega allgóðri forystu í leiknum og var
t.d. staðan 10—4 þeim í vil er fyrri hálfleikur
var um það bil hálfnaður. I hálfleik skyldu svo
aðeins 4 mörk að, 12—8 fyrir Dani.
[ seinni hálfleiknum náði islenzka liðið sér til
muna betur á strik, sérstaklega er á leikinn leið
og ekki leið á löngu unz þvi tókst að jafna. Var
eftir það mikil barátta I leiknum og þegar aðeins
10 minútur voru til leiksloka var staðan 16—16
og fslendingar voru með knöttinn. Þeir voru
STÓRSIGUR YFIR AARHUS KFUM
Á laugardaginn vann islenzka landsliðið svo
stórsigur yfir Aarhus KFUM, 25—14, eftir að
staðan hafði verið 9—6 i hálfleik. Árósaliðið
komst í 3—0 á fyrstu mínútum leiksins, en
Islendingum tókst fljótlega að snúa leiknum sér í
vil og i seinnni hálfleiknum var danska liðið
hreinlega yfirspilað Skoruðu (slendingar 16
mörk gegn 8 I hálfleiknum. Mörk fslands gerðu:
Axel Axelsson 8, Jón Karlsson 6, Ólafur Jóns-
Jón Karlsson hefur verið jafnbezti leikmaður landsliðsins í leikjum þess að
undanförnu og var markhæstur á mótinu f Danmörku.
son 4, Páll Björgvinsson 4, Sigurbergur Sig-
steinsson 1, Viggó Sigurðssön 1.
AFTURTAP FYRIR
DANSKA LANDSLIÐINU
Á sunnudaginn var svo leikinn þriðji leikurinn
við danska landsliðið, og þá um fyrsta sætið I
keppninni. fslenzka liðið lék mjög vel I fyrri
hálfleik og hafði þá oftast yfir. t.d. 3—1 á 6.
mlnútu, og 8—6 á 26. mínútu. Þegar leiktima
fyrri hálfleiks var lokið var staðan 9—8 fyrir
fsland, en Dönum tókst að skora jöfnunarmark
úr aukakasti I seinni hálfleiknum gekk ekki eins
vel hjá Islenzka liðinu, enda var þá markvarzlan
ekki eins góð og verið hafði I fyrri hálfleik, en þá
hafði Ólafur Benediktsson staðið sig mjög vel
Náðu Danir fljótlega að komast yfir og sigruðu I
leiknum 20—17. Ekki mikill munur, sérstak-
lega þegar tekið er tillit til þess að Danir voru á
heimavelli, en slikt er oft margra marka virði. (
þessum leik léku Flemming Hansen með danska
landsliðinu og áttu íslendingarnir i miklum erfið-
leikum með hann. eins og reyndar flestir aðrir
mótherjar þessa snjalla leikmanns. Skoraði Han-
sen alls 9 mörk 1 leiknum.
Mörk (slendinga í leiknum skoruðu: Jón Karls-
son 5, Ólafur H. Jónsson 4, Gunnar Einarsson
3, Viggó Sigurðsson 2, Axel Axelsson 2, Björg-
vin Björgvinsson 1.
Handknattleikslandsliðið heim í gœr eftir vel heppnaða œfingaferð
til Danmerkur — Hvíld fram að leiknum við Júgóslava á fimmtudag