Morgunblaðið - 31.12.1975, Síða 20

Morgunblaðið - 31.12.1975, Síða 20
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1975 Mœrín á glerfjallinu hann var þar, að hann var hreint ekki búinn að ná sér enn, en Pétur þorði samt að fara og fór. Og allt fór á sömu leið og hinar tvær næturnar, nema hvað jarð- skjálftinn hafði aldrei verið snarpari, svo harðir voru kippirnir, að Pétur hentist milli hlöðuveggjanna, og eins og áður, hættu ósköpin allt í einu og allt varð dauðahljótt. Pétur fór nú að gá út og sá þar einn hestinn enn, en hann var miklu stærri en hinir og hjá honum lágu her- klæði úr skíru gulli. Pétur fór með hest þennan til hinna og leist lang best á hann. Þegar hann kom heim, var farið að þrefa um það við hann, hvort allt grasið væri nú ekki farið af enginu. Páll gerði mest að því. Pétur svaraði fáu, en um daginn fóru þeir feðgarnir út á engið og litu á, og þar var grasið jafnmikið og tvö sumrin á undan. Konungurinn í landinu átti dóttur, sem hann vildi ekki gefa nokkrum manni, nema þeim, sem gæti riðið upp Glerfjall- ið, — því rétt hjá konungshöllinni var geysihátt glerfjall. Efst þar uppi átti konungsdóttir að sitja með þrjú gullepli í kjöltunni, og sá, sem gæti riðið upp til hennar og tekið gulleplin þrjú, hann átti að fá hana fyrir konu og hálft ríkið með, þetta lét konungur kunngjöra við hverja einustu kirkju I öllu landinu og einnig í mörgum öðrum löndum. Konungsdóttir- in var svo fögur, að allir, sem sáu hana, hlutu að verða frá sér numdir af henni, — hvort sem þeir vildu eða ekki, — og var þá varla að undra, þótt konungssynir og riddarar vildu gjarna vinna hana og hálft ríkið með og að þeir kæmu ríðandi frá ýmsum löndum, skrautbúnir og tígu- legir, og á slíkum gæðingum, að þeir þutu sem vindur eftir veginum. Og hver um sig hélt að hann og enginn annar myndi vinna hina fögru mey. Þann dag, sem konungurinn hafði til- tekið, var fullt af konungssonum og ridd urum allt umhverfis glerfjallið, og þang- að þaut líka allur almenningur, til þess að sjá, hver myndi vinna konungsdóttur og faðir Péturs og Páll bróðir hans fóru þangað líka. En þeir vildu ekki hafa hann með sér, af hverju sem það nú var. — „Jæja, ef mig langar, þá get ég farið einn,“ sagði Pétur. Þegar feðgarnir komu að glerfjallinu, þá voru konungssynirnir og riddararnir að gera atrennur, svo freyddi um járn- mélin á hestunum þeirra, en það kom nú ekki að miklu haldi, því þegar hestarnir settu framfæturna á fjallsræturnar, þá runnu þeir og enginn þeirra komst neitt upp eftir. Það var heldur ekki að furða, því fjallið var hálla en ís og nærri því eins bratt og veggur. — En allir vildu gjarna fá konungsdóttur og hálft ríkið og svo gerðu þeir hverja atrennuna af ann- arri, en runnu alltaf niður aftur. Að lokum voru hestarnir orðnir svo þreyttir og sveittir, að riddurunum fannst best að hætta. Konungurinn var farinn að halda, að hann yrði að auglýfca, að kappreiðarn- ar byrjuðu upp á nýtt daginn eftir, ef ske kynni að þá gengi betur, en þegar hann var að hugsa um þetta, kom riddari einn mikill þeysandi að, á svo stórum og fjör- legum gæðing, að slíkt hafði ekki sést fyrr. Hann var í koparklæðum, sem glampaði á og skein. Hinir kölluðu til hans, að hann gæti gjarna sparað sér ómakið við að reyna að ríða upp eftir glerfjallinu, því það þýddi hvort sem var ekkert. En það var eins og hann væri heyrnarlaus á því eyranu, sem að þeim sneri, hann reið beint að glerfjallinu og upp eftir því, eins og það væri ekki nokkur vandi og það þó nokkurn spöl, M0RöJK/-ý^\ kafriNu \1 Ja Annarlegur? Hann er bara sniðugur til að látast sjálfur ekki geta raðað keilunum upp. Hjónin voru á heimleið úr leikhúsi. Konan: — Ég ætla bara að biðja þig um lengstra orða, Jóhannes, að kalla ekki aftur „fram með höfundinn“, þegar sýnt er leikrit eftir Shakespeare. X Þjónninn: — Einn gestanna kvartar vfir þvf að bautinn sé lftill. Gestgjafinn: — Taktu baut- ann frá honum, settu hann á minni disk og farðu svo með hann til hans aftur. X Kennarinn: — Heyrðu, Villi minn, stfllinn þinn um „Kvöld f kvikmyndahúsi" er frá orði til orðs eins og stfll Kristjáns. Villi: — Það er ekkert undar- legt, við sáum báðir sömu myndina sama kvöldið. X tfmunum saman þarna undir skrjóðnum og þykjast vera að gera við. gift er þetta held ég orðinn alveg óþarfi? X Húsmóðirinn: — Hænan, sem ég keypti hjá þér f gær, var alveg afleit. Slátrarinn: — Það getur ekki verið. Hún var búin að fá fyrstu verðlaun á alifuglasýningum sex ár f röð. X Dómarinn: — Er það rétt, að þú hafir kallað þennan mann asna? Ákærði: — Nei, slfkt hefur mér aldrei dottið f hug. Dómarinn: — En það eru mörg vitni, sem halda þvf fram. Akærði: — Nú, þá hlýtur mannauminginn að vera asni. X Hún: — Skelfing finnst mér stúlkurnar horfa einkennilega á okkur sfðan við opinberuðum. Hann: — Látum þær kvelj- ast, þær hefðu átt að nota tæki- færið á meðan það stóð þeim til boða. V J Meö kveöju frö hvrtum gesti Jóhanna Kristjóns- 10 — Bíllinn fer af stað frá Pom- fret klukkan 18.41 og kemur til Forby klukkan nfu mínútur yfir sjö og til endastöðvar sinnar á Kingsmarkham klukkan tuttugu mfnútur vfir. Það gefur honum um það bil kortér til að mvrða konuna sína og komast að biðstöð- inni hinum megin við Pomfret- veginn. Bfllinn kemur þangað klukkan 18.46. Hann getur hlaup- ið eftir Tahard Road og verið kominn heim til sfn fimm mínút- ur sfðar og þá tekst honum að hringja til mín klukkan háíf átta. Wexford settist aftur f stólinn. — Hann hefur þá að minnsta kosti tekið gffurlega áhættu, Mike, sagði hann. — Hann hefði til dæmis getað átt það á hættu að einhver hefði hitt hann. Þér verð- ið að spvrja bílstjórana. Það getur ekki verið mjög algengt að þeir taki farþega við Prewettbæ- inn. Og hvað hefur hann þá gert af buddunni hennar og lyklun- um? — Hent þvf inn f skóginn. Auk þess sé ég svo sem enga sérstaka ástæðu til að fela þá hluti. En annars verð ég að játa að í fljótu bragði sé ég ekki hvaða ástæðu hann hefði átt að hafa til að myrða konuna sfna. — Tja — ástæðu, sagði Wexford. — Allir kvæntir menn hafa einhverja ástæðu. — Það hef ég ekki! sagði Burden reiðilega. Barið var að dvrum og lögreglu- maðurinn Brvant kom inn. — Eg fann þetta f skógar- jaðrinum sem sneri að inn- kevrslunni, sagði hann. Hann hélt á örlitlum sfvalningi milli fingra sér. — Varalitur, sagði Wexford. Hann tók gætilega við honum með vasaklút og hélt honum upp svo að hann gat lesið á botninn. „Sibrizk Zobel!“ las hann. — Og svo stendur eítthvað með penna — sennilega verðið 700 krónur Sýnist mér. Funduð þér eitthvað fleira? — Ekki nokkurn skapaðan hlut. — Þakka vður kærlega Brvant. Þér og Gates getið farið út á vinnustað Parsons og komizt að þvf hvenær — og ég meina upp á mfnútu — talið er að hann hafi farið þaðan á þriðjudagskvöldið. — Þetta gerir kenninguna vðar heldur ankannalega, Burden, sagði Wexford, þegar Bryant lögreglumaður var farinn. — Við látum fingraíarasér- fræðínga aðgæta þetta en ég spvr nú bara si svona: teljið þér trú- legt að frú Parsons hafi átt þennan varalit. Hún hafði ekki tösku meðferðis og notar ekki snvrtiáhöld og hún er sárafátæk — kvöldverður f Pomfret finnst mér f sjálfu sér alveg fráleit hug- mynd. En samt sem áður tekur hún varalit með sér sem kostar mörg hundruð krónur og þegar þau komu inn f skóginn kemur hún auga á kanfnu. Hún opnar budduna — sennilega til að taka fram haglabvssuna, hendir vara- litnum ískurðinn. hlevpur áeftir kanfnunni. kveikír á eldspýtu til að athuga hvar hún er og þegar hún er kominn inn f miðjan skóg- inn sezt hún niður og lætur mann- inn sinn kvrkja sig. — En þér senduð Brvant til Stowerton? — Hann hefur ekkert betra að gera sem sfendur. Wexford sat og horfði hugsandi á varalitinn. — Revndar hef ég gengið úr skugga um að Prewctthjónin voru f London. Móðir frú Prewett er alvarlega veik og sjúkrahústals- maður upplýsti mig um að þau hefðu verið vfir henni frá þvf um hádegi á þriðjudag þangað til langt fram á kvöld og svo aftur lungað úr gærdeginum. Gamla konan fór ögn að hjarna við í gærkvöldi og þá fóru þau frá hótelinu eftir morgunverðinn áleiðis heim f dag. Svo að þau koma ekki til mála í þessu sam- bandi. Hann lyfti varalitnum aftur gætilega upp og opnaði hann. — Þetta er splunkunýr varalit- ur, sagði Wexford hugsi. — Ég gct eiginlega ekki séð hann hafi verið notaður. Ég þarf að finna eiganda þessa varalitar, Burden. Við förum aftur til Prewetthjónanna og tölum við ungu stúlkuna sem er f vinnu hjá þeim. 4. kafli. Þegar Wexford hafði fengið að vita að fingraförin á varalitnum gætu ekki verið fingraför frú Parsons, fóru þeir aftur út á Pre- wettbæinn og spurðu vinnumenn- ina fjóra og ungu sfúlkuna spjör- unum úr. Hvað snerti vinnu- mennina alla hafði verið mikið að gera hjá þeim allan þriðjudagínn, en svo virtist sem það annrfki gæti á engan hátt tengzt morðinu á frú Persons. Prewett hafði látið bústjórann Draycott annast búið og á þriðju- dagsmorgun hafði Draycott farið á markaðinn ásamt efnum vinnu- mannanna, Edwards að nafni, Þeir höfðu tekið einn af jeppun- um og höfðu ekið aðalveginn vegna þess að skógarvegurinn til Pomfret var svo seinfarinn og bíll hafði staðið fastur þar I vikunni áður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.