Morgunblaðið - 09.01.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.01.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANUAR 1976 Sighvatur hættir sem ritstjóri Alþýðublaðsins SIGHVATUR Björgvinsson hefur ákveðið að láta af störfum sem rit- stjóri Alþýðublaðsins strax og gengið hefur verið frá ráðningu eftirmanns hans. Sighvatur segist hafa tekið þessa ákvörðun þegar » byrjun yfir- standandi þings og segir ástæðuna vera þá, að ritstjórastarfið sé svo bindandi að það geti ekki farið saman við annir þingmanns fyrir kjördæmi úti á landi. Uppsögn hans standi þannig ekki I neinu sambandi við nýgert samkomulag milli Reykju- prents og útgáfufélags Alþýðublaðó- ins um sameiginlegan rekstur Vfsis og Alþýðublaðsins, enda kveðst Sig- hvatur hafa verið annar fulltrúa Al- þýðuflokksins er stóðu að gerð þessa samkomulags. „Jú, það er rétt, að ég hef ákveðið 3 verzlanir kærðar fyrir verðlagsbrot VERÐLAGSSTJÖRI hefur ný- lega kært þrjár verzlanir i Reykjavik fyrir verðlagsdómi. Að því er Sverrir Einarsson, sakadómari tjáði Morgunhlað- inu, er hér um að ræða eina tízkuverzlun, eina skraut- munaverzlun og eina bílavara- hlutaverzlun. Þá er að mestu búið að yfir- heyra fyrir verðlagsdómi í sambandi við kæru verðlags- skrifstofunnar á hendur Meist- arasambandi byggingamanna fyrir að hafa ofreiknað ákvæð- isvinnutaxta. Kvað Sverrir verðlagsskrifstofuna nú vera að yfirfara ýmsar þeirra upp- lýsinga er fram komu í yfir- heyrslunum. að láta af störfum sem ritstjóri Alþýðu- blaðsins á næstunni," sagði Sighvatur í samtali við Morgunblaðið I gær ..Ég tilkynnti raunar þessa ákvörðun mina strax í þingbyrjun I haust eða I kringum miðjan október til þáverandi útgefanda Alþýðublaðsins og forráða- manna flokksins Ástæðan er einfald- lega sú, að ég komst að raun um það á fyrsta þingi minu í fyrra, að það er eiginlega gersamlega ómögulegt að samræma annars vegar þingstörf fyrir kjördæmi úti á landi og hins vegar starf af því tagi sem er að vera ritstjóri blaðs, þar sem maður þarf alltaf að Ijúka ákveðnum verkum á ákveðnum dögum Til þess er það of bindandi." Sighvatur var þá spurður að því hvort uppsögn hans stæði þá í engu sambandi við samkomulagið milli Visis og Alþýðublaðsins, sem áður er getið „Það er siður en svo," svaraði Sig- hvatur, „þvi að ég hef verið annar þeirra manna sem var valinn af útgáfu- félagi Alþýðublaðsins til að gera þennan samning Það eru sem sagt ég og Ásgeir Jóhannesson sem gerum þennan samning fyrir hönd útgáfu- félagsins og við mælum með þvi, bæði við útgáfustjórnina og flokksstjórn að hann verði samþykktur Það er þannig fjarri lagi að hér sé um einhver mót- mæli af minni hálfu að ræða," sagði Sighvatur Hins vegar kvað hann allt óráðið enn hver tæki við starfi hans sem ritstjóri blaðsins, þar eð það mái hefði verið lagt til hliðar meðan verið var að ganga frá samkomulagi þessu en nú yrði það tekið upp að nýju. Þá kvaðst Sighvatur vilja koma þvi á framfæri vegna ummæla Sveins Eyjólfssonar, framkvæmdastjóra Dag- blaðsins, þar sem látið væri í það skína að Reykjaprent hefði tekið að sér skuldir Alþýðublaðsins, eða með öðr- um orðum að það liti út eins og Reykjaprent hefði keypt atkvæði Alþýðublaðsins innan Blaðaprents með Framhald á bls. 27 BÆJARSTJÓRN Njarðvlkur kom saman til fyrsta fundar þriðjudaginn 6. jan. 1976 kl. 17:00. Forseti bæjarstjórnar var kjörinn Ingvar Jóhannsson 1. varaforseti Ingólfur Aðalsteinsson og 2. varaforseti Aki Gránz. Staðfest var ráðning Alberts K. Sanders sem bæjarstjóra. I tilefni tfmamóta f sögu sveitarfélagsins var samþykkt að veita fé til stofnunar tveggja sjóða. Ein milljón krónurtil stofnunar Lista- og menningarsjóðs Njarðvfkurbæjar og ein milljón kr. til stofnunar Hjálparsjóðs til að veita íbúum Njarðvíkur aðstoð, ef slys eða óvænt áföll ber að höndum. A myndinni eru frá vinstri: Aki Gránz, Ingólfur Aðalsteinsson, Arndfs L. Tómasdóttir, Ingvar Jóhannsson forseti bæjarstjórnar, Albert K. Sanders bæjarstjóri, Hilmar B. Þórarinsson, Ölafur 1. Hannesson, Oddbergur Eirfksson. Andromeda hefti för Árna Friðrikssonar FREIGATAN Andromeda reyndi að trufla siglingu rannsóknaskipsins Arna Friðrikssonar RE-1I0 f gærmorgun undan Norðausturlandi. Hætti freigátan ekki ögrunum sínum fyrr en eitt af varðskipunum fslenzku Ægir, hafði mótmælt kröftuglega. I gærmorgun voru 42 brezkir togarar á veiðum við landið, á svæði frá Sléttu suður á Vopnafjarðargrunn. Af þessum fjölda var 21 togari á veiðum, 3 voru á siglingu og 18 létu reka. Atti Landhelgisgæzlan enga skýringu á hvers vegna togararnir létu reka, helzt þá að þeir væru orðnir svo hræddir við varðskipin og ennfremur Arna Friðriksson sem þarna var við loðnuleit. eins og fjandinn sjálfur við skip, sem engin ástæða væri til að halda að væru varðskip. Með þessu háttalagi brytu þeir þær grundvallarreglur um athafna- Framhald á bls. 27 Hjálmar Vilhjálmsson, leiðang- ursstjóri á Arna Friðrikssyni, sagði þegar Morgunblaðið hafði Sunna fær ferðaskrif- stofuleyfið að nýju SAMGÖNGURAÐUNEYTIÐ hefur ákveðið að falla frá fyrri ákvörðun sinni um að svipta Ferðaskrifstofuna Sunnu ferðaskrifstofuleyfi, en eins og Morgunblaðið greindi frá I gær hafði samgönguráðherra það til at- hugunar. I fréttatilkynningu ráðu- neytisins í gær kemur fram, að upp- haflega ákvörðunin var tekin með tilliti til niðurstöðutalna efnahagsyf- irlits fyrir Ferðaskrifstofuna Sunnu hinn 30. nóvember sl. sem „ráðu neytið hafði ekki ástæðu til að ætla annað en byggja mætti á," eins og segir í tilkynningunni. Morgunblaðið hafði samband við Halldór E Sigurðsson, samgönguráð- herra, og spurði hann nánar um þetta atriði Sagði ráðherra, að I bréfi því er endurskoðandi Sunnu hefði lagt fram, kæmi í Ijós að sumt af þeim skuldum, er ráðuneytið byggði ákvörðun sina á, hefðu ekki tilheyrt ferðaskrifstofunni heldur færzt á milli flugfélagsins Air Viking og Sunnu Ráðherra sagði enn- fremur, að það sem fyrst og fremst hefði vakað fyrir ráðuneytinu með upp haflegri ákvörðun sinni um að svipta Sunnu leyfi, hefði verið að láta reyna á það hvort ferðaskrifstofan gæti staðið við þær ferðir sem hún hefði verið búin að láta viðskiptavini borga ínn á Þær ferðir væru nú allar afstaðnar og hing- að til hefði enginn kvartað við ráðu- neytið. „Við töldum okkar hlutverk vera fyrst og fremst að tryggja hags- muni þessa fólks sem þarna var búið að borga inn á ferðir og stöðva það að aðrir færu að borga inn á ferðir skrif- stofunnar nema vissa væri fengin fyrir þvi að ferðaskrifstoan gæti haldið starf- seminni áfram " Ráðherra kvaðst þann- ig fullyrða, að hin upphaflega ákvörð- un hefði ekki verið gerð í neinu fljót- ræði Fréttatilkynningin er annars svo- hljóðandi: Svo sem kunnugt er taldi ráðuneytið rétt hinn 8. des. s.l., eins og sakir þá stóðu, að afturkalla ferðaskrifstofuleyfi Sunnu h.f frá og með 15 janúar 1976, þó þannig að ferðaskrifstofunni var heimilað að Ijúka þeim ferðum, sem hæfust á tlmabilinu Þessi ákvörðun var tekin með tílliti til niðurstöðutalna efnahagsyfirlits fyrir Ferðaskrifstofuna Sunnu h.f. 30 nóv s.l., sem ráðuneytið hafði ekki ástæðu til að ætla annað en byggja mætti á. Framhald á bls. 27 samband við hann, að það hefði verið á áttunda tímanum í gær- morgun, að þeir á Arna hefðu komið að hópi brezkra togara, sem hefði verið að veiðum 40—45 sjómílur undan Hraunhafnar- tanga. Freigátan Andromeda F-57 hefði strax komið að Arna Frið- rikssyni og lýst skipið upp. — Við héldum okkar striki, sem var í NNA og freigátan fylgdi á eftir. A tíunda tímanum fór frei- gátan skyndilega að hindra för okkar í þessa átt með því að sigla meðfram okkur og lítið eitt fram fyrir og slá síðan af. Urðum við hvað eftir annað að snúa frá. Þannig þvældist freigátan fyrir okkur í nokkurn tima. Við vorum orðnir leiðir á þessu og höfðum samband við varðskip. Skipherra þess talaði hressilega við yfir- mann freigátunnar. Yfirmenn Andromedu svöruðu á móti og sögðu, að þeir hefðu haldið að við værum varðskip og sögðu að við hefðum sagt það sjálfir. — Ekki veit ég hjá hverjum þeir heyrðu það. Hins vegar voru einhverjir togaraskipstjórar að segja að við værum varðskip. Þá ragði Hjálmar, að það væri leitt til þess að vita, að Bretar létu Vantar fjár- veitingu til frágangs á tækjum í Þór — ÞAÐ ER mikill munur á hvað nýju varðskipin eru miklu sneggri á allan hátt en varðskipið Þór, og til þess liggja margar ástæður, sagði Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær og spurði hann hvort mikill munur væri að krafti og lipurð varðskipanna þegar freigátur revndu ásigl- ingar. Pétur Sigurðsson sagði, að ef Þór væri t.d. borinn saman við Tý bæri fyrst að nefna að vél- arafl Týs væri miklu meira og Týr væri með mun stærra stýri, sem leggja mætti hart borð í borð, og ennfremur bógskrúfu. Þá voru Týr og Æg- ir með skiptiskrúfu en Þór og Óðinn ekki, þannig að breyta mætti skurði skrúfublaðanna á nokkrum sekúndum, sem Framhald á bls. 19 Viðbrögð stjórnarandstöðunnar EFTIR að rfkisstjórn tslands hafði tilkynnt til hvaða aðgerða hún hygðist grfpa vegna atburðanna á Austfjarðamiðum í fyrradag, hafði Morgunblaðið samband við alþingismennina Benedikt Gröndal, Karvel Pálmason og Lúðvfk Jósepsson og bað þá að lýsa skoðun sinni á þessum aðgerðum. Fara svör þeirra hér á eftir. unni sé þess eðlis, að við eigum hvort tveggja að gera, að auka við okkur skipakost til gæzlu- starfa a.m.k. með 3 togurum, og sýna Bretum þannig hvert við erum að fara og að trufla enn frekar en orðið er veiðar þeirra. Og í öðru lagi eigum við að grípa til þeirra hótanna, sem við vitum fullvel að myndu hrífa. Á ég þar við að tilkynna Atlantshafsbandalaginu og bandaríska herliðinu á Kefla- víkurflugvelli, að verði 'orezk herskip ekki farin úr íslenzkri fiskveiðilögsögu innan einnar viku, þá segjum við okkur úr Lúðvík Jósepsson sagði: Um aðgerðir ríkis- stjórnarinnar hef ég það að segja, að ég er óánægður með þessi viðbrögð, þau eru þó betri en ekki neitt — en ófullnægjandi eins og allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar enn. Það er mín skoðun, að það sem þegar hefur gerzt í deil- Lúðvfk NATO og lokum NATO- stöðinni á íslandi. Mín skoðun er sú, að við þurfum að grípa til aðgerða af þessu tagi og stöðva þannig aðgerðir Breta. Hitt er tiltölu- lega lítils virði að senda menn á fundi eða kalla menn heim til að ræða við ráðamenn hér. Að sjálfsögðu léti ég fylgja þessu stjórnmálaslit við Breta. Benedikt Gröndal sagði: Mér finnst að það hafi gefizt tilefni til þess að við grípum til nýrra aðgerða, af því að það er aug- Ijóslega ætlun Breta að skemma varðskipin þannig, að þau geti ekki gegnt hlutverki sínu og framkoma brezka flot- ans er margfalt brot á öllum lögum og reglum. Alþýðuflokkurinn hefur lýst því yfir, að við munum styðja hvers konar mótaðgerðir, sem að gagni mega koma og við erum því samþykkir þessum aðgerðum ríkisstjórnarinnar svo langt sem þær ná. Við teljum að Atlantshafs- bandalagið sé líklegasti vett- vangurinn til þess að ná árangri. öryggisráðið hefur frekar áróðursgildi, enda hafa Bretar þar sjálfir neitunarvald og er því ekki að vænta neinna samþykkta þaðan. Það virðist nú á valdi brezku ríkisstjórnarinnar hvort hún heldur þessum hætti áfram og stofnar þannig til óhjákvæmi- legra slita á stjórnmálasam- bandi. Benedikt Karvel Pálmas, sagði: Okkur var skýrt frá þessu í dag og teljum sjálf- sagt að sýna ítrustu hörku í sambandi við svona aðferðir og vegna þess að það er greinilegt að Bretar hafa í raun og veru farið út fyrir það sem deilan snýst um. Viðbrögð ríkisstjórnarinnar eru auðvitað eðlileg miðað við það sem á undan er gengið. Þá er það Ijóst, að þarna hafa Bret- ar farið út í aðgerðir til þess að hindra eðlilegar siglingar varð- skipa og einnig rannsókna- skipa. Ég lít því á þetta sem fyrstu viðvörun af hálfu ríkis- stjórnarinnar, ekki sízt til Atl- antshafsbandalagsins. Og mitt álit er að slík viðbrögð hefðu mátt koma fyrr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.